Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1998, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1998, Blaðsíða 11
MÁNUDAGUR 28. SEPTEMBER 1998 11 Fréttir Ekkert sláturhús er lengur starfrækt á Patreksfirði: Upphafið að endalokunum - segir Guðjón Bjarnason sem þarf að aka fénu um 250 km leið DV.Vestfjörðum: Aðeins tvö sláturhús eru nú starfrækt á Vestfjörðum, annað á Hólmavík á vegum Norðvestur- bandalagsins og hitt er sláturhús Kaupfélagsins í Króksfjarðamesi. 12-14 þúsundum fjár, sem áður var slátrað á Þingeyri og á Pat- reksfirði, þarf nú að aka hundruð kílómetra til Hólmavíkur eða Búðardals til slátrunar. Ekki eru allir á eitt sáttir varðandi þessa þróun og sumum hreinlega hætt að lítast á framtíð búskapar á þessu svæði. Ég er nú trúlega sá sem þarf að fara hvað lengst með fé til slátrunar," sagði Guðjón Bjamason, bóndi í Hænuvík við Patreksfjörð. „Áður en Gilsfjörður var brú- aður voru 274 km til Búðardals, þannig að í dag er þetta um 500 km rúntur hjá bílnum fram og til baka. Á mínu svæði em menn orðnir langþreyttir á þessu basli. Þessi lausn er þvílfkt neyðar- brauð, að mér flnnst það fyrir neðan allar hellur. Almennt em menn ansi ýfðir yfir þessu og hefði fundist það eðlilegt af þessu Noðrvesturbandalagi að það tæki annaðhvort sláturhúsið á Þing- eyri eða hér á Patró og þjónaði þessum kjálka héma með því. Þetta em hvort sem er verðlaus hús og það er vel hægt að reka þau með þokkalegum hagnaði. Þeir vilja hins vegar bara fá okk- ur inn í sínar einingar og fá hag- kvæmni í sín hús. Þeim er alveg sama þó að við töpum eða verðum fyrir skakkafollum, það skiptir þá engu máli.“ - Hvað með kostnaðarhliðina á flutningunum? „í dag er okkur boðið upp á aö borga 7-8 krónur á hvert kíló. Ætli raunverulegur flutnings- kostnaður sé ekki hátt í 30 krónur á kg. Það er líka búið að boða það frá Framleiðsluráði og stjómvöld- um landbúnaðarins að miölun á flutningum á mjólk og kjöti verði smátt og smátt lögð niður. Við sjá- um fram á það að þurfa alfarið að borga þennan flutning sjálfír inn- an nokkurra ára. Mér finnst stjómleysi hjá bændasamtökun- um þar sem allt á að vera fijálst. Það má ekki borga niður neitt, eða styðja neitt af því sem er lengra í burtu. Það er því þeirra vilji að allar þessar dreifðari byggðir falli út þótt menn þori ekki að segja það upphátt. Ef flutningsstyrkurinn er felldur niður, þá verðum við ekki sam- keppnisfærir. Við fáum þá mikið minna fyrir afurðir okkar en þeir sem eru nær sláturhúsunum. Það segir sig því sjálft að ef af því verður endar það með þvi að menn sitja ekki við sama borð. Eitt hefst líka út úr þessu en það er stóraukin heimaslátmn. í bréfi sem við fengum um daginn er okkur gert að fylgja okkar fé í Guðjón Bjarnason, bóndi í Hænuvík við Patreksfjörð. DV-mynd Hörður sláturhús að skotmanni. Eitthvað em þeir að éta það ofan í sig þannig að við þurfum þess ekki sem erum lengst í burtu. Eigin- lega þyrftum við að fá okkur flug- vélar ef við eigum að sinna þessu.“ Svartamarkaðsbrask Þú segir heimaslátmn trúlega aukast, en hvemig er með heim- ildir til þess? „Ég má líklega slátra til heima- nota, en það er harðbannað að selja neitt.“ - Er þá ekki verið að neyða menn út í svartamarkaðsbrask ef menn eiga að lifa af? „Jú, það er engin spuming. Sumir em kannski ekki í stöðu til að bjarga sér svoleiðis en það em innan um menn sem munu hafa eitthvað í það og hafa slátrað fyr- ir sig í gegnum árin. Það er spuming hvort menn fari ekki að gera þetta í auknum mæli. Þetta er allt saman þvi líka aft- urfor fyrir Vestfirðinga í heild sinni og ég held að þetta sé upp- hafið að endalokunum á fram- leiðslu á kjöti hér. Þótt það taki ef- laust tíma að svelta menn upp og drepa menn frá þessu finnst mér þetta upphafið að endalokunum," sagði Guðjón Bjarnason. -HKr. INNKAUPASTOFNUN REYKJA VIKURBORGAR , Frfklrkluveal 3 - Pósthólf 878 - 121 Rovkjavík Sfml 552 58 0<f- Fax 562 26 16 - Netfang: Isrörvk.ls ÚTBOÐ F. h. Borgarverkfræðingsins í Reykjavík og Vegamálastjóra óskar eftir tilboðum í eftirfarandi verk: „Miklabraut, mislæg gatnamót. Eftirlit." Um er að ræða eftirlit með gerð mislægra gatnamóta Miklabrautar og Skeiðarvogs ásamt bráðabirgðatengingum. Áætluð stærðargráða framkvæmdakostnaðar er á bilinu 430-480 milljónir kr. Framkvæmdir hefjast í október nk. og er gert ráð fyrir að verkinu verði lokið fyrir 1. nóvember 1999. Útboðsgögn fást á skrifstofu okkar frá og með þriðjudeginum 29. september n.k. gegn 10.000 kr. skilatryggingu. Opnun tilboða: Miðvikudaginn 7. október 1998 kl. 11:00 á sama stað. bvf 98/8 rfztrjrfz xrrzrcz'? Sunny SU ‘91, ekinn 122 þús. km, Nissan sjálfskiptur, rafm. j rúðum, samiæsingar. Þæqilegur borgarbdl. Listaverð 630 þus. Okkar verð 530 þús. M. Benz 320 E ‘93 svartur, svart leður’c Listaverð 3.500 þús. þús. Legacy Outbáck 2 n#um Subar' topplúgu oq ölfum f 9' 98- ™eð leð Kostar nýr 3 084 bús “nuf™ aukablutu Honda Civic GL '88, ^álfetóptur, topp!úga, blár að lit, góður smabill. Verð. 350 þus. BlUUINNJ elUUINNJ Getum skaffað Nýju V.W Bjölluna í ýmsum litum og gerðum. Hringdu og pantaðu í hvelli. Verð 2.300 þús. r=riF=Tr'?=TJT?> ^ r=Tlf=í=?=fF' BMW 318 is ‘98, 4ra dyra, ekinn Þessi er með kraftmeiri vél 1 Dökkgrænn með leðri og 17 tommu álfelgum. Hlaðinn aukahlutum. Þessi er gæjalegur. Svona útfærsla myndi kosta langleiðina í 4 millj. Okkar verð 3 millj. - rmTfrrrf rrrrrGTJT M. Benz E 230 ‘96, ekinn aðeins 9 þús. km, dökkblár, sjálfsk. topplúga, 4 x rafm. í rúðum, 4 x hauspúðar, álfelgur, ABS o.fl. Svona gripur kostar nýr um 4,5 millj. Okkar verð 3.650 þús. Malarhöfða 2 112 Reykjavík Símí 577 3344 Fax 577 3345 Helmasfða: www.draumabllllnn.ls

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.