Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1998, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1998, Blaðsíða 36
44 MANUDAGUR 28. SEPTEMBER 1998 „Þaö eru tveir heldur stórir gallar á myndinni. Fyrst er skilj- anlegur galli í því peninga- og tækja- harki sem alitaf er ’ til staðar; sjóslysið | virkar bara alls ekki. Venjulegir bíógestir eru búnir að sjá hvernig stór- myndir sýna svona atburði og maður kyngir bara ekki ósmurðu rúgbrauði lengur." Stefán Jón Hafstein, i Degi. Heyið skiptir máli „Það er eins og með manninn að hesturinn er það sem hann étur. í fyrsta lagi þarf að athuga næringargildi heysins, í öðru lagi hreinleika og í þriðja lagi verð.“ Bjarni Guðmundsson, í Mbl. Var ein um helgina \ „Með barn í maganum verð ég ein og yfirgefm í Reykjavík um helgina meðan mað- urinn minn, Jakob Frimann Þorsteins- son, fer norður á Akureyri og heldur þar námskeið fyrir starfsfólk á félags- J miðstöðvum." Vanda Sigurgeirsdóttir, i Degi. Garg úr goggi „Þegar Kolkrabbinn og Smokk- fiskurinn þrátta um hvernig þeir ætla að skipta bönkunum sín i millum, þá er garg úr goggi ekki við hæfi, jafnvel þó stórlaxar spillingaraflanna geri þjóðinni heyrinkunnugt að þeir ætli að fá helling fyrir lítið." Kristján Hreinsson, i Mbl. Kári og ættartrén „Það er mikiö fagnaðarefni að loksins skuli vera mættur hing- aö raunsær maður til að fást við greiningu og vöxt þessara margvíslegu teg- unda. Það vill líka svo skemmtilega til að hann ber sömu- leiðis nafn hins alis- lenska veðurguðs enda er hlut-f verk hans augljóslega að greina '» og sýna eyjarskeggjum hvemig veðurfarið og vöxturinn í þess- um óendanlega skógi er háttað." Haraldur Jónsson, í DV. Aukavaktir hjúkrunar- fræðinga „Það er lítill friður heima hjá þeim hjúkrunarfræðingum sem eru hér í vinnu vegna þess að þeir em reglulega beðnir um að taka að sér aukavaktir. Hjúkmnar- fræðingum fmnst þetta erfitt auk þess sem starfiö er erfitt bæði and- lega og líkamlega. Starfið er auk þess ekki metið að verðleikum, hvorki í launum né öðru." Erna Einarsdóttir, í DV. Ingvi Hrafn Óskarsson, nýkjörinn formaður Heimdallar: Grundvallaratriði Ingva Hraíns Hann er 24 ára og einhleypur. í næsta mánuði útskrifast hann sem lögfræðingur frá Háskóla íslands. Lokaritgerð Ingva Hrafns fjaUar um eðli málsins. Hann er þegar búinn að fá vinnu á lögmannsstofu við Garðastræti. Hann var í eðlis- fræðideild í MR og ætl- aði að fara í hagfræði eða verkfræði. Skyndihugdetta réð því að hann fór í lögfræði. Maður dagsins Áhugamálin eru tónlist, bók- menntir og póltík. Hvað tónlist- ina varðar þá spilar hann á pí- anó en hann lærði á það ágæta hljóðfæri í 10 ár. Hann hætti því námi þegar hann byrjaði í Háskólanum. Hvað bókmenntimar varðar segist hann lesa bæði sagn- fræðilegar bók- menntir og skáld- sögur. „Ég hef lengi haft áhuga á stjórnmál- um og áhuginn hefur aukist með árunum eftir því sem ég hef fylgst meira með,“ segir Ingvi Hrafn sem nýlega var kos- inn formaður Heimdall- ar, félags vrngra sjálfstæðis- manna í Reykjavík. „Til að byrja með ólst ég upp hjá afa mínum og ömmu. Það merki- lega var að Ingvi Hrafn Óskarsson. þar voru pólitiskar skoðanir í öfug- ar áttir. Amma er mjög vinstrisinn- uð en afi var hægrisinnaður. Ég __________ ólst því upp við bæði sjónarhornin í einu.“ Ingvi Hrafn fetaði í fót- spor afans hvað stjóm- málaflokk áhrærir. Hann segir að hugmyndafræði Sjálfstæðisflokksins hafi ráðið ferðinni. „Það eru grundvallarat- riðin þrjú hjá sjálfstæðisstefnunni sem réði þama miklu en þau eru frelsi, séreignarréttur og jafnrétti. Ég er á því að það eigi að vera þessi þrjú grundvallaratriði í ís- lenskri pólitík.“ Ingvi Hrafn fór í formannsslag- inn hjá Heimdalli vegna þess að hann vill leggja sitt af mörkum í starfsemi flokksins. „Ég var búinn að vera i stjórninni í eitt ár og hjá mér kviknaði mikill áhugi á starf- inu. Það er skemmtilegt og áhuga- vert ár fram undan,“ segir Ingvi Hrafn en formaðurinn er kosinn til eins árs. „Þetta er landsfundarár, afmælisár flokksins og kosningar verða náttúrlega í vor.“ Árið hans Ingva Hrafns í for- mannsstólnum verður mótað af þessum þremur atriðum. „Áhersla verður lögð á að beita þeim aðferð- um sem duga til að koma hug- myndafræðinni og frjálshyggjunni á framfæri á landsfundinum og í kosningunum." Ingvi Hrafn hefur í hyggju að láta pólitíkina vera áfram áhuga- mál frekar en atvinnu. Hann vill einbeita sér að lögfræðistörfum. Það er eðli málsins. -SJ Ráðstefna um sorpmál Á morgun kl. 15 hefst ráð- stefna um sorpmál á Hótel Húsavík þar sem sérfræð- . ingar á sviði sorpmála munu halda fyrirlestra. Að þeim loknum verða almenn- ar umræður. Tilgangur ráð- stefnunnar er m.a. að upp- lýsa Þingeyinga um ástand sorpmála, koma umræðu um soprmál í gang og auð- velda sveitarstjórnum að taka ákvarðanir í sorpmál- um. Dagskráin er.sem hér segir: Kl. 15 fundarsetning. Kl. 15.10 sorpbrennsla, kostir og gaOar. Kl. 15.30 græn og hagræn sorphirða. Kl. 15.50 urðun og endurvinnsla. Kl. 16.10 stefna stjómvalda. Kl. 16.30 kröfur stjórnvalda í framkvæmd. Kl. 17.10 um- ræður. Kl. 18.30 áætluð fundarslit. Samkomur Söngprufur fyrir rokksöngleikinn RENT í dag og á morgun verða opnar söngprufur fyrir rokksöngleikinn RENT sem Þjóðleikhúsið í samstarfi við Loftkastalann hyggst frumsýna næsta vor. Söngprufumar fara fram í æfingasal Þjóðleikhússins að Lindargötu 7 og hefjast þær kl. 16.30. Leitað er að söngvurum og leikumm á aldrinum 18-35 ára. Æski- legt er að þeir geti dansað. Myndgátan Lausn á gátu nr. 2214: "Á /<,AÐSJALFSÖCiyj . © 22 /+ - S % • / Skúlptúr eftir Önnu Sigríði Sigur- jónsdóttur. Grjót, járn, tré og gler Nú stendur yfir sýning í Aðalsal Hafnarborgar á verkum Önnu Sig- ríðar Sigurjónsdóttur myndhöggv- ara. Sýningin nefnist Hver er stað- an? Listakonan nam við Myndlista- og handíðaskóla íslands og AKI Akademie voor Beeldende Kunst. Hún hefur haldið einkasýningar hér heima og í Hollandi auk þess sem hún hefur tekið þátt í mörgum sam- sýningum á íslandi og í útlöndum. Anna Sigríður vann skúlptúrana, sem eru á sýningunni í Hafnarborg, á þessu ári. Þetta era stór verk úr grjóti, járni, tré og gleri. Sýningar í kynningarbæklingi segir Anna Sigríöur: „Ég velti fyrir mér spum- ingunni um það hvar við stöndum gagnvart jörðinni og umheiminum. Verðum við ekki að gefa okkur tima til að staldra við og líta yfir lífs- hlaup mannkynsins sem er einungis örstuttiu- tími í sögu jaröarinnar?'1 Sýningin er opin kl. 12-18 alla daga nema þriðjudaga og henni lýk- ur 5. október. Bridge Þegar þessar línur voru ritaðar var farið að draga til tíðinda á HM í Lille í Frakklandi. í sveitakeppn- inni var komið að sjálfum úrslita- leiknum á milli sveita Gabriel Cha- gas frá Brasilíu og Angelini frá ítal- íu. I tvímenningskeppni í opnum flokki vora Bandaríkjamennirnir Weinstein-Rosenberg með forystu og á hæla þeirra voru Pólverjamir Gawrys-Lesniewsky. Bragi Hauks- son-Sigtryggur Sigurðsson voru í 50. sæti (af á sjöunda hundrað para), tveimur sætum á undan Zia-Hamm- an. í úrslitakeppni í tvímenningi í kvennaflokki voru Hjördís Eyþórs- dóttir-Judy Radin í 17. sæti af 58. Spil dagsins er frá sveitakeppninni úr leik bresku sveitanna Hackett-Armstrong. Samningurinn var sá sami á báðum borðum, 4 hjörtu í suður. Á öðru borðanna spilaði vestur út spaðaníu og þar sem Hackettbræðumir ungu sátu í vörninni tók austur tvo fyrstu slag- ina á kóng og ás og spilaði síðan þriðja spaðanum. Sagnhafi tromp- aði með spaðaáttu og átti ekki í vandræðum með spilið. Útspilið var einnig spaðanían á hinu borðinu: * 53 * KD6 * KDG73 * DG7 é 98 V 753 ♦ 10852 * 10642 N * AKDG1042 Á10 * 9 * 953 Dragspil .. ruy- ...... —.......... Myndgátan hér aö ofan lýsir nafnoröi. ♦ 76 V G9842 '♦ Á64 * ÁK8 Bretinn Les Steel, sem sat í aust- ur, var betur vakandi í vöminni. Hann drap á spaðakóng í fyrsta slag og spilaði strax einspili sínu í tígli. Sagnhafi tók slaginn í blindum og spilaði trompi en Steel rauk upp með ásinn og spilaði spaðafjarka. Vestur var hissa þegar hann fékk slaginn á áttuna en var vel með á nótunum og gaf félaga sínum stungu í tígullitnum. Vöm austurs var vel ígrunduð. Hún gengur í þessari legu og einnig þegar vestur á einspil í spaða. Steel hefði aðeins tapað á vöminni ef vestur átti 9x í spaða og gosann í trompi. ísak Örn Sigurðsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.