Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1998, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1998, Blaðsíða 40
w Vinmngstölur laugardaginn: 9 /24 26(27 Jókertölur vikunnar: _ 5 10 1 6 "•—*— 28 37 ms Vinningar Fjöldi vinninga Vinnings- upphæö 1. 5af 5 0 6.056.590 2. 4 af 5+^ 1 446.680 3. 4 af 5 87 8.850 4. 3 af 5 2.889 620 FRETTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 5505555 FRJALST, ÓHÁÐ DAGBLAÐ MANUDAGUR 28. SEPTEMBER 1998 Nót í skrúfu á Oddeyrinni Sigurvíma í Eyjum Mikill erill var í Vestmannaeyj- um aðfaranótt sunnudags því marg- ir vildu fagna íslandsmeistaratitli ÍBV í knattspyrnu. Að sögn lögregl- unnar í Vestmannaeyjum voru Eyjamenn ekki bara í sigurvímu þvi mikið var um ölvun. Allt fór þó stórslysalaust fram utan við ein- staka pústra hér og þar. -GLM Vélbáturinn Góa RE fór í sinn fyrsta róöur, eftir að kvótinn kom, aöfara- nótt sunnudags. Gott hljóö var í mannskapnum eftir róöurinn því á annaö tonn af ýsu og þorski veidd- ist í ferðinni. DV-mynd S ÓL í skák í Rússlandi: Frestaö til morguns Ólympíumótið í skák, hið 33. í röðinni, átti að hefjast í gær í borg- inni Elista í sjálfstjómarlýðveldinu Kalmykíu í Rússlandi. Setningu þess var hins vegar frestað um tvo daga, eða til morguns. Ásdis Bragadóttir, formaður Skák- sambands íslands, sagðist í samtali við DV í gærkvöldi ekki vita um ástæðuna. Hún hafði án árangurs reynt að ná sambandi við mótsstað. ^ Þó vissi hún að vel hafði verið tekið á móti okkar mönnum. -SJ NU ER HANN ,KOHLFALLINN“! A laugardaginn festist nót í skrúfu Oddeyrarinnar EA 210 þar sem skipið var á síldveiðum við Noregsstrendur. Norskt skip dró Oddeyrina til hafnar í Lófóten þar sem nótin var skorin úr. Erfitt er að fá löndun í Noregi. Reynt var að fá löndun í Tromsö en það gekk ekki. Eini möguleikinn hefði verið að sigla langt suður eftir en þar sem jafn langt er til íslands var ákveðið að sigla heim. Skipið er nú á leið til íslands. Það er augljóst að vegna óhapps- ins mun Samherji, sem rekur Odd- eyrina, ekki ná þeim kvóta sem skipið fékk úthlutað. Hann var um 740 tonn en um borð eru um 450 tonn. -SJ Fjölmargir fylgdust með útsendingum þýskra sjónvarpsstööva á kosningavöku í Perlunni í gærkvöld í tilefni þýskra daga. DV-mynd JAK Kosningasigur Gerhards Schröders og jafnaðarmanna í Þýskalandi: Mjog mikill sigur - segir Sighvatur Björgvinsson - áfram óvissa um framtíð Goethestofnunar „Þetta er mjög mikill sigur. Schröder er að fá það fylgi sem bjartsýnustu menn spáðu. Jafnaðar- menn eru að ná og hafa náð völdum í öllum forysturíkjum Evrópu: Bret- landi, Frakklandi og nú Þýskalandi auk þess sem þeim tókst að halda velli í Svi- þjóð þrátt fyrir tap,“ sagði Sig- hvatur Björgvins- son, formaður Al- þýðuflokksins, um konsningasig- ur þýskra jafnað- armanna. - Áttu von á að Sighvatur Björgvinsson. velgengni evrópskra jafnaðarmanna muni gæta hér á landi? „Ég ætla að vona að íslendingar séu með svipað hugarfar og aðrir Evrópumenn." Hægrimaður með „Þegar horft er á Þýskaland eftir að vestur- og austurhluti landsins voru sameinaðir og þann gríðarlega kostnað sem var því samfara má kalla það aírek að jafnvægi skuli hafa skapast í landinu á mörgum sviðum. Maður spyr sjálfan sig hvort nokkur hefði getað gert þetta betur eða öðruvísi en Kohl. En Kohl hefur setið fjögur kjörtímabil og þvi ekki óeðlilegt að fólk vilji breyting- ar. Það verður spennandi að sjá hvað Schröder hefur fram að færa,“ sagðí Lára Margrét Ragnarsdóttir sem sæti á í utanríkismálanefnd Al- þingis. Lára sagði Schröder hafa kynnt harðan hægrimann sem tilvonandi fjármálaráðherra. „Þetta var klókt útspil hjá Schröder og athyglisvert að skoða þann hóp sem hann ætlar að vinna með.“ - Hefur þú trú á að velgengni jafn- aðarmanna í Evrópu nái til íslands? „Nei. Ástæðan er að Sjálfstæðis- flokkurinn er mjög stór og breiður flokkur og núverandi stjóm- arsamstarf byggir á mjög breiðum grunni. Þegar allt að helmingur þjóðarinnar kýs einn flokk þýðir það að viðkom- andi flokkur mið- ar stefnu sína við þarfir flestra ís- lendinga." inni hérlendis, sagði það „hræðilega ranga ákvöröun". En er líklegt að Schröder muni breyta ákvörðun fyrri stjórnvalda og opna Goethestofnunina hérlendis aftur? Coletta Búrling, fyrrum for- stöðumaður Goethestofnunarinnar hérlendis, er hóflega bjartsýn. „Spurningin er fyrst og fremst hvort hann mun beita sér í menn- ingarmálum. í Þýskalandi segir fólk að erfitt sé að sjá hvert Schröder stefnir og erfltt sé að reikna hann út.“ Coletta segir Goethestofnanirnar víða um heim hafa búið við þröng kjör undanfarna áratugi vegna stöðugs sparnaðar i menningarmál- um. Goethestofnunin sé hins vegar mjög jákvætt tákn Þýskalands víða um heim og þvi sé óskandi að Schröder taki á málum og hlúi að stofnuninni. -hlh/GLM Lára Margrét Ragnarsdóttir. Ovissa meö Goethestofnun Þegar Gerhard Schröder kom hingað til lands fyrir tæpu ári gagn- rýndi hann þá ákvörðun þýskra stjómvalda að loka Goethestofnun- Haröur árekstur fólksbíls og jeppa varö á gatnamótum Álftanesvegar og Hafnarfjarðarvegar í gærkvöld. Aö sögn lögreglunnar i Hafnarfiröi eru til- drög siyssins óljós þar sem ágreiningur er á milli ökumanna um stööu umferöarljósa á gatnamótunum. Einn var fiuttur á slysadeild og var hann ekki talinn alvarlega slasaöur. Eins og sjá má eru báðir bílarnir mikiö skemmdir og voru dregnir burtu meö krana. DV-mynd S Veðrið á morgun: Gola eða kaldi Á morgun verður austlæg átt, stinningskaldi og síðan allhvasst við suðausturströndina en kaldi víðast annars staðar. Rigning eða súld víðast sunnan- og austanlands og sums staðar þokusúld með norðurströndinni. Hiti á bilinu 5 til 10 stig. Veðrið í dag er á bls. 45. Sb g II! 'lfátindu.r ánægjunnar MERKILEGA MERKIVELIN brother Islenskir stafir Taska fylgir 8 leturgeröir, 6 stæröir 6, 9, 12, 18 mm boröar Prentar í 4 línur Aðeins kr. 10.925 Nýbýlavegi 28 Sími 554 4443 Veffang: www.if.is/rafport I

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.