Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1998, Qupperneq 14

Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1998, Qupperneq 14
14 MÁNUDAGUR 28. SEPTEMBER 1998 óháð dagblað Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjóri: PÁLL ÞORSTEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaöaafgreiösla, áskrift: ÞVERHOLTI11,105 RVÍK, SÍMI: 550 5000 FAX: Auglýsingar: 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999 GRÆN númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777 Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/ Vísir, netútgáfa Frjálsrar fjölmiðlunar: http://www.visir.is Ritstjórn: dvritst@centrum.is - Auglýsingar: dvaugl@centrum.is. - Dreifing: dvdreif@centrum.is AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 4611605 Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Filmu- og plötugerð: ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF. Áskriftarverð á mánuði 1800 kr. m. vsk. Lausasöluverð 160 kr. m. vsk., Helgarblað 220 kr. m. vsk. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Mikilhæfur kanslari fallinn Jafnaðarmenn unnu stórsigur í þýsku kosningunum í gær þegar kristilegir íhaldsmenn biðu versta ósigur sinn frá árinu 1949. Leiðtogi þeirra, Gerard Schroeder, verður næsti kanslari Þýskalands. Úrslitin marka pólitísk kaflaskipti í tvennum skilningi í stjórnmálum Evrópu. í fyrsta lagi hafa nú jafnaðarmenn á tiltölulega skömmum tíma tekið við völdum í öllum helstu forystul- öndum Evrópusambandsins. Undir forystu Blairs í Bretlandi, Jospins í Frakklandi og nú Schroeders í Þýskalandi móta jafnaðarmenn stefnu þess á nýrri öld. í öðru lagi eru mestar líkur á því að jafnaðarmenn myndi ríkisstjórn með græningjum. Það yrði fyrsta ríkisstjóm sögunnar þar sem græningjar hafa úrslita- áhrif, en ekki er ólíklegt að Joschka Fisher, hinn sterki leiðtogi þeirra, kreflist embættis utanríkisráðherra. Þó er ekki fullvíst að rauðgræn stjórn af þeim toga verðu mynduð. Vinstri armur græningja, sem meðal annars vill Þýskaland úr Nató, er þekktur fyrir annað en pólitíska ábyrgð. Það verður því mjög erfitt fyrir jafnaða- rmenn að reiða sig á stuðning þeirra. Shcroeder sagði sjálfur í baráttunni að eins sætis meirihluti væri nóg til að mynda slíka stjórn. Hann var þó jafnharðan kveðinn í kútinn af flokksfélögum sínum sem kváðu tíu sæta meirihluta óhjákvæmilegan til að komast hjá gíslingu vinstrisinnaðra græningja. Niðurstaðan dugði þó aðeins í um 8 sæta meirihluta rauðgræna mynstursins. Því er ekki hægt að útiloka að Schroeder, sem er hægrisinnaður jafnaðarmaður, myndi samstjóm með flokki Kohls. Það er þó ólíklegri kostur í þeirri stöðu sem upp er komin. Sigur jafnaðarmanna batt endi á sextán ára samfellda stjóm undir forystu Helmuts Kohls. Þegar kosninga- baráttan hófst höfðu jafnaðarmenn 12% forskot í könnunum. Hinn lífseigi Kohl saxaði þó jafnt og þétt á þá og undir lokin var munurinn kominn niður í 1-2%. Sigurinn varð þó að lokum mun stærri en leit út síðustu daga. Jafnaðarmenn hlutu um 41% atkvæða, en kristilegir íhaldsmenn aðeins liðlega 35%. Dæmið snérist því við frá síðustu kosningum, þegar jafnaðarmenn höfðu liðlega 36% en íhaldsmenn ríf 41%. Schroeder er að mörgu leyti óskrifað blað. Hann hefur reynt að fella sig í sama mót og Tony Blair hinn breski, en skortir hina innri sannfæringu Blairs. Skoðanir hans eru óljósar, og Kohl hefur sagt að það sé auðveldara að negla búðing á vegg en henda reiður á þeim. í kosningunum gekk barátta Schroeders fyrst og fremst út á tvennt: Annars vegar gríðarlegt atvinnu- leysi, sem jókst eftir hina kostnaðarsömu sameiningu Austur- og Vestur-Þýskalands. Hins vegar út á vaxandi þreytu Þjóðverja gagnvart hinum þaulsætna Kohl. Helmut Kohl varð því fórnarlamb sömu glámskyggni og hefur orðið mörgum mikilhægur stjórnmálaleiðtogum að pólitískum aldurtila: Hann þekkti ekki sinn vitjunartíma. Eftir sextán ára samfellda kanslaratíð vildu Þjóðverjar sjá nýjan mann við stjómvölinn. Jafnvel hörðustu andsttæðingar Kohl geta ekki annað en viðurkennt hin pólitísku afrek sem Kohl hefur unnið. Hann sameinaði Þýskaland á nýjan leik, og hikaði þá ekki við að setja tákn stöðugleikans, þýska markið, undir. Ásamt Mitterand myndaði hann jafnframt þýsk- franska öxulinn, sem ruddi brautina fyrir Evrópu- sambandið í núverandi mynd. Fyrir þessi afrek verður hans minnst sem eins mikilhæfasta leiðtoga Evrópu á seinni hluta þessarar aldar. Össur Skarphéðinssonn „Skólinn er ekki lengur samkeppnisfær við aðra á vinnumarkaði," segir greinarhöfundur. Enn betri skóli - án kennara Sem kunnugt er vinna yf- irvöld um þessar mundir að menntastefnu sem ná skal til allra skólastiga. Fel- ur heiti verkefnisins í sér að góður skóli skuli gerður enn betri. Nú blasir hins vegar við að vandi skóla- kerfisins felst ekki í stefnu- leysi heldur er hann af hag- rænni toga - t.d. virðist hinn endurbætti grunn- skóli að mestu verða án kennara. Ef til vill er ekk- ert að óttast. Nám má stunda án hefðbundinnar kennslu. Svo má alltaf leysa vandann með tölvum! Kjallarinn Eina boðlega fyrir- komulagið Ástæður kennaraskorts- ins eru margar: Nú til dags er einsetinn heilsdagsskóli eina boðlega fyrirkomulag- ið í skólastarfí. Það kallar á fleiri kennara en tví- og þrí- setinn skóli fyrri áratuga. Þar með er þó ekki öll sag- an sögð. Gamalreyndir kennarar yfirgefa skútuna i stórum stO og nýútskrifaðir láta ekki munstra sig um borð. Skólinn er ekki lengur sam- keppnisfær við aðra á vinnumark- aði. Loks eru menntastofnanir kennara ekki i stakk búnar til að taka við nægilega mörgum nýnem- um. Sú framtíðarsýn sem við blas- ir felst því í miklum og vaxandi kennaraskorti. Helsta viðfangsefni þeiira sem vilja „enn betri skóla“ er að leysa þann vanda. Vandað skólastarf byggist flestu öðru fremur á því að eðlileg festa ríki í framkvæmd þess. Skiptir Hjalti Hugason prófessor þetta ekki síst máli í neðstu bekkjum grunn- skóla þar sem undirstöður eru lagðar að þroska nem- enda og þekk- ingaröflun þeirra. Það er því skaðlegt ef stór hluti kenn- arahóps margra skóla hverfur á braut ár hvert llkt og gerðist í haust. Slíkt er þó óhjákvæmi- legt ef betri „Eigi skólum að haldast á kenn- araliöi sínu og eölilegt sam- hengi að nást í námsframvindu nemenda er mikilvægt að reynd- ir kennarar sjái sér hag i að starfa við sama skóla um lengri tima.u laun bjóðast í flestum atvinnu- greinum og samkeppni sveitarfé- laga rnn kennara harðnar með til- heyrandi yfirboðum. Eigi skólum að haldast á kennaraliði sínu og eðlilegt samhengi að nást í náms- framvindu nemenda er mikilvægt að reyndir kennarar sjái sér hag í að starfa við sama skóla um lengri tíma. Eftir þörfum nemenda Af þessum sökum ber forystu- mönnum sveitarfélaga í samvinnu við samtök kennara að marka fag- lega launastefnu sem m.a. tekur tillit til hagsmuna nemenda og sérstöðu skólastarfs miðað við aðr- ar starfsgreinar. í þeirri stefnu felst að skólum um land allt sé gert kleift að halda starfsmönnum slnum jafnvel þótt atvinnuleysi réni og launaskriðs gæti á almenn- um vinnumarkaði. Stöðugleiki í skólastarfi má þó ekki leiða til stöðnunar. Því verða forsendur þeirra sem kenna að vera slíkar að þeir geti þróað starfsaðferðir sínar og lagað þær að þörfum nemenda. Þetta er helsta ástæða þess að „enn betri skóla“ verður ekki komið á kopp- inn með hjálp leiðbein- enda með ónóga þekk- ingu á sviði uppeldis- og kennslufræða. Ekkert mælir í raun gegn því að hvaða vel meinandi og þroskaður einstaklingur sem er geti með viðunandi árangri kennt stálpuðum krökk- um einstakar greinar grunnskóla sem hann hef- ur sæmilega undirstöðu í. Það er á hinn bóginn ósennilegt að þeim hinum sama takist að leiða blandaðan hóp barna í fyrstu bekkjum grunn- skóla inn í margbrotinn heim lestrar, ritunar og stærðfræði svo vel sé. Þetta á ekki síst við ef ein- hverjir í nemendahópnum eiga við námsörðugleika að stríða. Kennsla við slíkar aðstæður krefst flókinn- ar sérþekkingar. Skorti hana mun enn betri skóli" ekki verða að veruleika. Hjalti Hugason Skoðanir annarra Obreytt sjávarútvegsstefna „Ég hef ekki nokkra trú á að sjávarútvegsstefn- unni verði breytt í vetur, alla vega ekki í grundvall- aratriðum. Það sem ég tel að verði tekið á eru mál- efni trillukarla, sem eru í vandræðum. Eins má vera að einhverjir agnúar verði sniðnir af, án þess að ég sé tilbúinn til að nefna hvaða agnúar það gætu ver- ið. Varðandi þá hugmynd sem uppi er um að skatt- leggja hagnað sem myndast þegar útgerðarmenn hætta í greininni og selja þann kvóta, sem þeim hef- ur verið úthlutað fyrir ekki neitt, þá snertir það mál ekki sjávarútvegsstefnuna, þar er um skattamál að ræða.“ Magnús Stefánsson í Degi 25. sept. Kostir gagnagrunns- frumvarpsins „Án áhættu verða fáar breytingar. Þetta á bæði við um einstaklinga og þjóðfélög. Þeir sem barist hafa gegn gagnagrunnsfrumvarpinu gera það á mörgum mismunandi forsendum en þó er þeim það sammerkt að þeir neita aö horfa á kostina. Þeir eru hins vegar margir og spennandi. í fyrsta lagi getur grunnurinn orðið til þess að efla mjög skilning á verkun lyfja og bætt þannig heilsu fólks, í öðru lagi getur hann virkað sem stjómtæki í heilbrigðiskerf- inu og þannig hugsanlega lækkað kostnað vegna þess, í þriðja lagi mun hann veita fjölda fólks at- vinnu og í fjórða lagi getur hann orðið til þess að einhverjir auðgast á honum. Allt eru þetta góðar og gildar ástæður til þess að afgreiða fmmvarpið." Úr forystugrein Viðskiptablaðsins 23. sept. Öryrkja í stjórnmálin? „Ef öryrkjar telja þetta vera leiðina til þess að gæta hagsmuna sinna þá er ég ekki viss um að ég sé þeim sammála. Segjum sem svo að framboð öryrkja fengi einn mann kjörinn þá væri hættan sú að hann, einn síns liðs, væri áhrifalítill á þingi. Mín skoðun er sú að væniegra væri með tilliti til hagsmuna ör- yrkja að reyna að komast til frekari áhrifa í þeim flokkum sem nú eiga fulltrúa á þingi." Lúðvik Bergvinsson í Degi 25. sept.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.