Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1998, Síða 30
38
MÁNUDAGUR 28. SEPTEMBER 1998
árum
Asíu til Ameríkuríkja, fóru fljótt
suður með strandlengjunni.
Til þessa hefur sú skoðun hins
vegar átt mestu fylgi að fagna að
fyrstu fólksflutningamir hafl farið
um upplandið. Ástæðan er sú að litl-
ar minjar hafa fundist um byggð
meðfram strandlengjunni. Keefer
bendir á að yfirborð sjávar hafl
staðið miklu lægra fyrir fimm þús-
und til átján þúsund árum. Byggð
sem hafi verið við ströndina í þá
daga sé því komin undir vatn nú.
Quebrada Tacahuay og nærliggj-
andi byggðarlag, Quebrada Jaguay,
eru nálægt ströndinni nú en hafa
verið lengra inni í landi fyrir tólf
þúsund árum.
farir fyrir 12000
E1 Nino er ekki nýr af nálinni.
Þessi hlýi hafstraumur í Kyrrahaf-
inu, sem hefur verið kennt um flóð
og þurrka og nánast allt annað sem
aflaga hefur farið í veðurfarinu und-
anfama áratugi, gerði fmmbyggjum
Suður-Ameríku líka lífið leitt.
Tveir hópar fornleifafræðinga
segja frá því í tímaritinu Science að
þeir hafi fundið leifar tveggja byggð-
arlaga á suðurströnd Chile. Svo
virðist sem annað þeirra hafi orðið
fyrir barðinu á flóðum sömu ættar
og þeirra sem E1 Nino veldur, Sam-
kvæmt aldursgreiningu bjuggu
menn þama fyrir tólf þúsund árum.
Jarðfræðingurinn David Keefer,
sem starfaði með öðmm hópnum,
segist hafa fundið greinilegar vís-
bendingar um miklar hamfarir af
völdum flóða á stað sem kallaður er
Quebrada Tacahuay.
„Þarna em setlög af völdum æð-
andi flaums af vatni og leðju sem
kom úr giljunum við ströndina og
flæddu yfir mjóa landræmuna við
ströndina. Um þessar mundir
myndast svona setlög aðeins af völd-
um E1 Nino,“ segir Keefer.
Kyrrahafsstraumurinn E1 Nino
kemur á nokkurra ára fresti og flyt-
ur óvenjuheitan sjó á stórt svæði
undan ströndum Perú. Hann hefur
áhrif á veðurfar um allan heim og
hefur verið kennt um flóð og óveður
allt frá Kalifomíu til Afríku. Hon-
um hefur einnig verið kennt um gíf-
urlega þurrka I Asíulöndum.
„Svo virðist sem aðstæður fyrir
tólf þúsund ámm hafi ekki veriö
svo ýkja frábragðnar því sem er í
dag,“ segir Keefer.
Byggðin sem varð fyrir hamfor-
unum var grafin undir meters-
þykku lagi af leir.
Vísindamennirnir fundu einnig
vísbendingar um þróað efnahags-
kerfi við strandlengjuna. Af beinum
sem fundust má ráða að þessir
fomu íbúar Suður-Ameríku veiddu
skarfa og aðra sjófugla sér til matar.
Þá veiddu þeir einnig fisk, hugsan-
lega í net.
Keefer segir að uppgötvanir vís-
indamannanna renni stoðum undir
kenningar þess efnis að fyrstu íbúar
þessa heimshluta, sem komu frá
Deilt um ágæti
erfðabreyttra
plantna til átu
Uppnefnið vekur hroll: Plönt-
urnar hans Frankensteins. Sum-
ir segja að allt i lagi sé að leggja
þær sér til munns. Aðrir vilja
hreinlega banna þær. Hér er átt
við erfðabreytt matvæli sem
mikið er rifist um úti í hinum
stóra heimi.
Hópur breskra vísindamanna
lýsti því nýlega yfir að ekkert
væri að því að borða erfðabreytt
matvæli.
„Það er ekkert í hillum versl-
ananna sem ekki er öraggt,"
segir Derek Burke prófessor,
fyrrum konrektor háskólans í
Austur-Anglíu.
Ian Taylor, vísindalegur ráð-
gjafi umhverfissamtakanna
Greenpeace, viðurkennir að
hann geti ekki bent á neina
fæðutegund sem farið hefur
gegn um viðeigandi eftirlit og
hann geti lýst yfir að sé hættu-
leg. Grænfriðungar séu hins
vegar andvígir erfðabreyttum
matvælum, meðal annars vegna
þess að ekki sé vitað um lang-
tímaáhrif þeirra á neytendur.
Sala mauks úr erfðabreyttum
tómötum og hveitis sem í era
erfðabreyttar sojabaunir hefur
komið af stað heitum umræðum
um kosti slíkrar matvöru.
Karl Bretaprins blandaði sér í
deilurnar í júní þegar hann sak-
aði vísindamenn um að leika
guð með því að erfðabreyta
plöntum. Orð prinsins vöktu
litla hrifningu margra.
Derek Burke bendir á að neyt-
endur hafi tekið í sátt lækninga-
vörar eins og insúlín, interferón
og vaxtarhormón sem era öll
framleidd í bakteríum eða dýra-
frumum fyrir tilstilli erfðatækn-
innar. Því þá ekki að beita svip-
aðri tækni til að framleiða betri
plöntur til að fæða sífellt fleiri
íbúa heimsins.
Breska náttúrusögusafniö
hefur eignast merkilegan grip,
tuttugu og fimm milljón ára
gamla maíflugu af áður
óþekktri tegund sem varðveist
hefur í mexíkósku rafi.
Andrew Ross, steingervinga-
fræðingur við safhið, segir að
mjög óvenjulegt sé að finna
maíflugur varðveittar í rafi.
Ástæðan er einföld: maíflugur
lifa ekki nema nokkrar
klukkustundir og því litlar lík-
ur á að þær festist í rafi á
stuttri ævi sinni. Umrædd
fluga er í rafköggli sem
mexíkóskir indíánar fundu og
seldu.
Raf er hörð og glær stein-
gerð trjákvoða sem mikið er
notuð í skartgripi. Raf finnst í
miklum mæli í löndunum við
Eystrasaltið en lítið er af því í
Mexíkó. Það varðveitir vel þau
skordýr sem festast í því.
Drykkjarstráin
eru bjargvættir
tannanna
Gosdrykkjaþamb er mikill
óvinur tannanna. Þá koma
stráin til hjálpar. Skoskir vís-
indamenn ____________
Blýmengun fyrir
sex þúsund árum
Blýmengun í andrúmsloft-
inu er engin ný bóla. Rann-
sóknir sýna að hana var
einnig að finna fyrir sex þús-
und árum. Á þeim tíma voru
það aðallega bændur sem
stóðu fyrir þeim ósköpum.
Þetta kom á daginn við
rannsóknir Williams Shotyks
og samverkamanna hans við
háskólann í Bem í Sviss á mó
úr Júrafjöllum. Ekki hafði ver-
ið hróflað við mónum i fjórtán
þúsund ár.
í grein í tímaritinu Science
segja vísindamennimir að þeir
hafi fundið grunnlínu náttúra-
legar losunar blýs þegar jöklar
hopuðu fyrstu átta þúsund ár-
in. Athafnir mannanna bættu
síðan um betur eftir það,
hvort sem það voru bændur í
árdaga, námuverkamenn sem
þræluðu fyrir rómverska keis-
aradæmið eða þýskir silfur-
smiðir á miðöldum.
Góðu fréttimar era þær að
losun blýs í andrúmsloftið fer
nú minnkandi, sennilega
vegna aukinnar notkunar blý-
lauss bensíns.
telja hægt
að draga
úr skað-
legum
áhrifum
gos-
drykkja á
tennumar
með því
að drekka
með strá-
um. Helst
verða strá-
in að vera
grönn og
þau þurfa
að ná
langt aftur
í munn.
Skotamir skoðuðu drykkjar-
venjur tuttugu bama á aldrin-
um fjögurra til sautján ára.
Það er sá aldur sem er í
mestri hættu á að fá tann-
skemmdir af völdum gos-
drykkjaþambs.
Vísindamenn búnir að búa til pínulítið andefni:
Ekki nóg bensín fyrir
geimskipið í Star Trek
Star Trek er það nú ekki. Hugsan-
lega fyrsta skrefið, en varla þó. Vís-
indamönnum hefur engu að síður
tekist að búa til svokallað andefni,
eina af undirstöðunum í öllum vís-
indaskáldskap. Magnið er aftur á
móti svo lítið að það myndi hvergi
nærri duga til að knýja áfram geim-
skip þeirra Star Trek manna í sam-
nefndum sjónvarpsflokki og kvik-
myndum.
Vísindamenn við Evrópsku ör-
eindaeðlisfræðistofnunina (CERN) á
landamærum Frakklands og Sviss
hafa komið á fót fyrstu andefnis-
verksmiðju heimsins. Einn þeirra,
Frank Close prófessor, segir að níu
atóm af andvetni hafi verið fram-
leidd fyrir rétt rúmu ári. Nú er af-
kastageta nýju verksmiðjunnar
meira en tvö þúsund atóm á klukku-
stund.
Þeir sem láta sig dreyma um
geimskip sem gengur fyrir andefni,
rétt eins og í Star Trek, verða þó að
bíða lengi enn.
„Það þarf um tuttugu kíló af and-
efni til að knýja áfram geimskip,"
segir Frank Close.
Þúsundir andefnisatóma á
klukkustund kann að hljóma mikið
en, að sögn Close, þarf meira en
milljarð milljarð milljarða slíkra
atóma til verksins.
Fram kom á vísindahátíð í Car-
diff í Wales fyrir skömmu að vís-
indamenn CERN ætla að gera til-
raun til að bera saman atóm and-
vetnis og vetnis til að reyna að
varpa ljósi á eina helstu ráðgátu vís-
indanna.
Þegar efni og andefni mætast tor-
tíma þau hvort öðru með miklum
hvelli, eins og allir kunnáttumenn
um vísindaskáldskap vita. Innan
vísindanna er sú skoðun viðtekin
að við sköpun alheimsins í Mikla-
hvelli hafi jafnmikið af efni og and-
efni orðið til. Því er spurt hvers
vegna alheimurinn hafi komist af til
þessa.
Hugsanlegt svar er að efni og and-
efni séu ekki spegilmynd hvort ann-
ars. Vísindamennirnir vonast til að
fá úr því skorið við samanburðinn á
andvetnisatómum og vetni. Ef ein-
hver munur reynist á þeim, segir
Close að það yrði í sjálfu sér mikil
uppgötvun.
„Þá munu mörg grundvallarlög-
mál eðlisfræðinnar hrynja," segir
Close.
Hann segir að á næsta ári muni
vísindamenn ráða yfir tækni til að
góma andefni og setja i rafmagns- og
segulflöskur, eða gildrur, þar sem
það verður tilbúið til greiningar.
Það mun þó ekki marka neitt upp-
haf Star Trek ævintýris.
„Það hvarflar ekki að nokkrum
manni að til þess komi,“ segir.
Frank Close.