Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1998, Page 32
40
MÁNUDAGUR 28. SEPTEMBER 1998
íþróttir unglinga
i>v
4. flokkur kvenna
Umsjón
Óskar Ó. Jónsson
fengu eitt guU og þijú silfur. Þór frá
Akureyri og FH fengu tvenn verðlaun,
bæði eitt gull og eitt silfur.
Valsmenn og Blikar bættu við sigr-
um í bikarkeppni og fengu því bæði
tvo bikara í bikarsöfn sín og Framar-
ar unnu titil í yngri flokkum tíunda
árið í röð er þeir unnu bikarkeppni i
3. flokki.
Af Valsstúlkum
Valsstúlkur misstu af titlum bæði í
3. flokki og 2. flokki þrátt fyrir að vera
að flestum taldar vera með besta liðið.
Valur hefur aldrei orðiö íslandsmeist-
ari í þessum tveimur flokkum í
kvennaflokki en félagið hefur aftur á
móti unnið 4 sinnum 4. flokkinn á síð-
ustu átta árum. -ÓÓJ
2. flokkur kvenna
■
■ w
Bikarkeppm 1 2. flokki karla 1 knattspymu:
Silfur loks að gulli
2. flokkur karla
3. flokkur karla
Valsmenn náðu loks i flmmtu tilraun við úrslitaleik í yngri flokkum í ár að
tryggja sér gullið. Valur gerðu þaö með því aö vinna bikarkeppni 2. flokks annað
árið í röð, nú með því að leggja Stjömuna, 2-0, í úrslitaleik á Valbjamarvelli.
Fyrra markið var sjáifsmark á 12. mínútu eftir frábæran undirbúning Matthíasar
Guðmundssonar en seinna markið gerði Grímur Garðarsson beint úr aukspymu
á 70. mínútu eins og má sjá hér á mynd fyrir neöan. Valsmenn unnu öragglega
en þó má segja að fyrsta markið hafl ráöið miklu um gang leiksins. Við það urðu
Stjömustrákamir pirraðir og tókst þannig ekki að spila sinn leik.
16 llða úrslit
ÍA-KA.........................2-1
Fylkir-KR ....................4-1
Fram-Valur....................1-2
Stjaman-Þróttur R.............5-0
KS-Þór A......................0-9
ÍR-HK.........................4-6
Breiðablik-Víkingur ..........1-0
ÍBV-Keflavík..................2-4
8 liða úrslit
Keflavik-Þór A................3-0
Valur-Fylkir .................4-0
Stjaman-Breiðablik............4-1
tA-HK .......................11-1
Undanúrslit
ÍA-Valur .....................1-3
1-0 Guðjón Sveinsson (4.)
1-1 Grimur Garðarsson (28.)
1-2 Grimur Garöarsson (31.)
1-3 Grímur Garöarsson (53.)
Stjarnan-Keflavik ............2-1
0-1 Grétar Gíslason (35.)
1- 1 Veigar Gunnarsson (55.)
2- 1 Boði Gauksson (90.)
Úrslitaleikur
Valur-Stjarnan ...............2-0
1- 0 Sjálfsmark (12.)
2- 0 Grímur Garðarsson (70.)
Jóhann Hreiðarsson, fyririiði i 2. flokki Vals með bikarinn. DV-myndir ÓÓJ
íslandsmeistarar í yngri flokkum í knattspyrnu 1998:
Níu félög
- urðu íslandsmeistarar í knattspyrnu í sumar
Það er unnið mikið og gott ung-
lingastarf víða meðal íslenskra knatt-
spymufélaga ef marka má hvert ís-
landsmeistaratitlamir fóra í yngri
flokkunum í sumar.
Allir níu íslandsmeistaratitlarnir
fóra á hver á sinn staöinn og í fyrsta
sinn í sögu knattspymu íslensku
yngri flokkanna geta níu félög talist
eiga íslandsmeistara í yngri flokkum.
Það hefúr verið keppt um níu titla frá
1996 er 5. flokkur kvenna bættist í hóp-
inn. Sjö félög unnu íslandsmeistaratit-
il sumarið 1996 og átta félög náðu þeim
árangri í fyrra þannig að fjöldi fé-
laga.sem verða íslandsmeistarar hefur
aukist á hverju ári.
Þrettán félög verðlaunuð
Fjögur félög unnu til verðlauna til
viðbótar í sumar og það era því 13 fé-
lög sem eiga fulltrúa í fyrsta eða öðra
sæti á íslandsmótum yngri flokka í ár.
Auk íslandsmeistaranna, sem sjá má
hér til hliðar, fengu Fram, ÍA, KA og
Haukar silfúrverðlaun í sumar.
Valur með flest verðlaun
Valsmenn unnu til flestra verðlauna
af þessum þrettán félögum en þeir
Grfmur Garðarsson fagnar marki
sínu f úrslitaleiknum gegn Stjörnunni
en hann var bikarmaður Vals í sumar
og skoraði meðal annars þrennu f
undanúrslitaleiknum gegn ÍA.
ir
5. flokkur kvenna
6. flokkur karla
5. flokkur karla
4. flokkur karla
3. flokkur kvenna