Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.1998, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.1998, Side 4
4 FIMMTUDAGUR 29. OKTÓBER 1998 Fréttir Skelfiskvinnsla og atvinnulif á Hofsósi f uppnámi vegna opinberra aðgerða: Stefnir í málsókn - á hendur sjávarútvegsráðherra. Gífurlegt áfall, segir útgerðarmaður „Það er gjörsamlega búið að kippa rekstrargrundvellinum und- an útgerðinni og vinnslunni með þessum aðgerðum. Þarna er um að ræða í raun að okkur frumherjun- um er hent út af veiðislóðinni og öðrum gefinn kostur á að njóta uppskeru erfiðis okkar,“ segir Viggó Einarsson, skipstjóri og að- aleigandi skelbátsins Ingileifar SK-28 sem ekki fær lengur að veiða á slóð sem hefur að geyma gjöful hörpudisksmið. Útgerðin hafði tilraunaveiðileyfi frá upphafi ársins til veiða á mið- um sem ekki höfðu verið nýtt síð- an 1984. Vegna leyfisins var geng- ið til þess að útbúa og breyta bátn- um fyrir milljónir króna auk þess að Rækjunes hf. í Stykkishólmi setti upp vinnslu á Hofsósi með gríðarlegum tilkostnaði. Heildar- kosnaður vegna vinnslu og útgerð- ar nemur 40 milljónum króna. Mikil bjartsýni fylgdi þessum umsvifum enda hafði staðurinn verið í lægð í atvinnulífinu eftir að Fiskiðjan Skagfirðingur hf. lok- aði frystihúsinu þar. Umrædd mið eru út af Ströndum og var útgerð Ingileifar heimilt að veiða utan viðmiðunarlínu sem dregin var úr Skallarifi í Selsker og þaðan í Drangaskörð. Þegar veiðar hófust kom í ljós að afli var þokka- legur á áður -------------------- þekktum mið- Á um sem ekki höfðu verið nýtt sl. 14 ár. Þá fundust einnig ný mið sem t gáfu rífandi afla. „Við fengum í upphafi tilrauna- veiðileyfi en fyrir lá vilyrði fyrir veiðileyfi í framhaldinu þar sem ekki var um að ræða kvótabundn- ar veiðar. Þegar svo kom á daginn að við fengum afspyrnugóða veiði á nýjum miðum sem ég fann tóku aðrar útgerðir að líta þetta hýru auga,“ segir Viggó. Hann segir að þegar spurst hafi út að hann væri að ná árangri hafi allt verið sett í gang til að tryggja öðrum aðgang að miðunum út af Stöndum. Nú blasir við að skelvinnslan sem hófst á Hofsósi í upphafi árs leggist af. Gjöful mið út af Strönd- um, sem stóðu undir vinnslunni, eru nú lokuð og útgerðum á Blönduósi hefur verið afhentur veiðirétturinn. „Þetta endaði með þeirri ákvörðun sjávarútvegsráðuneytis- ins að við vorum lokaðir úti en bátar frá Húnaflóa fengu svæðið afhent á silfurfati," segir Viggó. Þegar tilraunaveiðileyfið rann út í byrjun júlí var viðmiðun- ---------------- armörkunum breytt þannig að í stað þriggja _ viðmiðunar- punkta áður voru teknir upp “ tveir punktar frá Skallarifi í Hombjarg. Þar með var útgerð Ingileifar útilokuð frá miðunum nýfundnu. Bátar frá Skagaströnd og Blönduósi fengu síðan úthlutað leyfum til veiða. Viggó segir að eftir standi í upp- námi útgerð og vinnsla sem kostað hafi milljónatugi. „Með þessu var ég lokaður úti og það blasir við að afkomu verk- smiðjunnar og okkar er ógnað. Með því að loka á okkur er grund- vellinum kippt undan rekstri verksmiðjunnar. Þá er þetta gríð- arlegt áfall fýrir Hofsós enda undan pólítísk- um þrýstingi Skagstrend- inga og fleiri aðila. Ég talaði við Þorstein en án þess að neina lausn væri að fá. Þá hefur Vilhjálm- ur Egilsson al- þingismaður reynt að lið- sinna okkur, einn þing- manna, en allt kemur fyrir ekki,“ segir Viggó. Sigurjón Jónsson, fram- kvæmdastjóri Rækjuness hf., segir að nú sé til skoðunar hvaða leið verði farin til vinna um 30 manns við skelina," segir Viggó. Hann sakar sjávarútvegsráð- herra um óheilindi og segir pólítískan þrýsting hafa ráðið ferðinni. „Þetta virðist vera kveðjugjöf frá Þorsteini Pálssyni sem lætur að ná fram réttlæti í málinu gagn- vart sjávarútvegsráðuneytinu. Þegar sé ljóst að málið fari lengra. „Við munum sækja rétt okkar í þessu máli og láta reyna á þessa ákvörðun ráðuneytisins,“ segir Sigurjón. -rt Fangavarðalaus fangelsi Ef allt fer sem horf- ir mun hagur fangels- aðra manna á íslandi versna að mun. Fangaverðir hafa sagt upp störfum sínum og leggja niður vinnu á morgun ef ekki verð- ur samið við þá. Og það eru engar líkur á að samið verði við fangaverði vegna þess að það eru ekki til peningar til að semja við þá. Fangaverðir vilja nefhilega fá hærri laun en ríkis- valdið hefur ekki ráð á því. Fangelsisstofn- un segist ekki eiga aura til að greiða launin enda nær góð- ærið ekki inn fyrir fangelsismúra. Það væri nú líka annað hvort, að láta fangels- in njóta góðærisins. Fangar eru hnepptir í varð- hald tO að refsa þeim, ekki til aö umbuna þeim. Fangaverðir eru innan fangelsismúranna og af þvi góðærið nær ekki inn fyrir veggi fangelsanna fá fangaverðir ekki að njóta góðærisins heldur. Meðan fangaverðir og ríkisvaldið karpa um kaup og kjör þeirra fyrrnefndu syrtir í álinn hjá fongunum. Ekki vegna þess að þeir séu á móti því að fangavörðunum séu greidd hærri laun fyrir að lita eftir þeim heldur vegna þess að þegar fanga- verðimir eru famir njóta fangarnir miklu minni þjónustu þegar enginn er til að veita hana. Fimm stjömu hótelið á Litla-Hrauni breytist þá í far- fuglaheimili. Ekki það að fangar á íslandi hafi haft það svo skitt. Sagt er að hvergi í landinu sé auðveldara að verða sér út um fikniefni og þar var um tíma rek- in umfangsmikil barnaklámsstarfsemi og svo hafa fangar fengið að skreppa í bæinn þegar mik- iö liggur við þannig að fangaverðir hafa í sjálfu sér ekki haft annað að gera en að liðsinna fóng- um við framangreinda iðju sina og raunar varla mátt vera að því, hvað þá haft efni á því, enda launin lág og kjarabaráttan löng og ströng. Nú em fangaverðir orðnir svo þreyttir á því að liðka til fyrir fangana að þeir ætla að ganga út og þegar fangaverðirnir eru farnir minnkar þjónust- an við fangana og spurning hvort fangar eigi ekki að ganga út líka í mótmælaskyni við skerta fang- elsisþjónustu. Það nær auðvitað ekki nokkurri átt þegar búið er að loka fullfríska mennina í fangelsi að þeir búi allt í einu við stórskerta þjón- ustu af því að fangaverðir ganga út og leggja nið- ur störf sín i þágu fanganna. Fangarnir hefðu aldrei samþykkt að fara í fangelsi ef þeir hefðu vitað um hvaö byði þeirra. Menn verða að átta sig á því að það er ekki ríkið sem sýpur seyðið af brotthvarfi fangavarðanna og heldur ekki fanga- verðirnir sjálfir sem em þá lausir úr prísundinni heldur fangamir sem sitja eftir fangavarðalausir. Hasslausir hasshausamir. Og hvað verður þá um bamaklámsþjónustuna? Dagfari Plokkfiskurinn Blaðamenn hafa hringt grimmt í Jóhannes kaupmann Jónsson í Bónusi eftir að ljóst varð að 10-11 verslanir fara undir væng hjá fyrir- tæki hans, Aðfóngum hf. Einn þeirra var grimmur og talaði um að Bón- us væri á fáum ámm orðið eins konar kolkrabbi í viðskiptalífinu og stórhættulegt fijálsri sam- keppni. „Ég mundi nú frek- ar segja að við værum plokk- fiskurinn í viðskiptalífinu. Alla vega erum við ekki neitt stórt miðað við Kolkrabbann," er sagt að Jóhannes hafi svarað. Margir telja sig sjá þau teikn á lofti að 10-11, sem staðið hef- ur í harðri samkeppni við Hag- kaup/Bónus, sé á hraðri leiö inn í samsteypu Jóhannesar.... Keppni um æru í nýjasta tölublaði unglingablaðsins Ozon er viðtal við Davíð Þór Jóns- son „skemmtikraft“ og Gunnstein Ólafsson, fyrrum dómara Gettu bet- ur, um ýmis málefni. í viðtalinu, sem ber fyrirsögnina „Keppnin um æruna“, segir Davíð m.a. frá því hversu ástfanginn hann er af stigaverðinum Katrínu Jakobs- dóttur. Gunn- steinn lýsir vinnu- brögðum í kring- um Gettu betur sem hinum glæsilegustu. Hann segir að þegar hann búi til spumingarnar sé mjög mikilvægt að hann geri það rétt og gæti að því að gera ekki mistök af því að ef það gerist hringi fólk í hann og Davíð Þór. Gunnsteinn segir að fólk sé stolt yfir því sem það viti bet- ur en dómarinn en í keppni sem þess- ari skuli rétt vera rétt! Þess má geta að viðtalið var tekið áður en úrslita- keppnin milli MR og MH fór fram... Gunnar bjargar Gunnari Prófkjörsstríðið í Reykjanesi er nú að nálgast hámark. Mikill hrollur er i þeim sem vilja efstu sætin og er Ámi Mathiesen sagður áhyggjufull- ur mjög enda sækja að honum bæði Sigríður Anna Þórð- ardóttir og Gunnar I. Birgisson sem bæði vilja leiða list- ann. Nú hefur dr. Gunnar spilað út sinu síðasta trompi sem duga skal til að ná toppnum. Gunnar Steinn Pálsson, auglýsingamógúll allra tima, hefur tekið að sér að flikka upp á ímynd nafna síns Birgissonar. Gunnar Steinn er augljóslega kjark- maður og ekki verkkvíðinn því á hans herðum hvílir þar með að sætta íslenska þjóð við sægreifana og gagnagrunninn auk þess að gefa gamla verktakanum og Klæðningar- forstjóranum það yfirbragð að Reyknesingar kaupi... Mógúll fer suður Nú stendur fyrir dyrum að ráða nýjan forstjóra að lánasjóði landbún- aöarins. Þar er Leifur Kr. Jóhann- esson búinn að standa við stýrið með mikilli prýöi en hyggst nú hætta fyrír aldurs sakir. Búið er að auglýsa starfið. Innan Fram- sóknar vilja menn hafa stjórn á því , hver hreppir hnoss- ið og eru þegar bún- ir aö ftnna heppi- legan kaupfélags- stjóra sem eftirmann Leifs. Það er Þórólfur Gislason, sem stýr- ir nú Kaupfélagi Skagfirðinga. Gangi það eftir telja Skagfirðingar líklegt að eftirmaður Þórólfs í stóli kaupfé- lagsstjóra verði Sigurjón Rafnsson sem er hægri hönd Þórólfs í dag... Umsjón Reynir Traustason .. Netfang: sandkom @ff. is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.