Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.1998, Blaðsíða 18
18
FIMMTUDAGUR 29. OKTÓBER 1998
Tölvustýrðir bílar:
Bíllinn o
vandinn
Ekki er ástæða til að búast við
stórkostlegum vandamálum í sam-
bandi við bíla og bílaumferð þegar
áriö 2000 gengur í garð. Líklegt er
þó talið að einhverjir verði fyrir því
að dyr bíla þeirra opnist ekki eða þá
að bílamir fari ekki í gang eða sýni
einhver önnur hilanaeinkenni. Rétt
er að fólk spyrjist fyrir um hjá um-
boðunum hér á landi hvort eða þá
hvers sé að vænta i þessum efnum.
Tækninefnd AIT, Alþjóðasam-
bands bifreiðaeigendafélaga, hefur
sent aðildarfélögum sínum um allan
heim bréf. í því segir að vart þurfi
að búast við alvarlegum umferðar-
vandamálum vegna bíla sem
stöðvast eða fara ekki í gang, ekki
síst vegna þess að fáir verði akandi
eftir kampavinsdrykkju nýársnæt-
urinnar.
Nánast allir bílar nú til dags em
búnir tölvum og tölvuörgjörvum.
Þar til á allra síðustu árum eða jafn-
vel mánuðum hafa örgjörvar sem
mæla tíma talið ártöl með tveimur
tölum. Síðasta ár aldarinnar og áir-
þúsundsins verður í þeim árið 99 en
árið 00 munu þeir ekki telja sem
nýtt ár heldur einfaldlega sem endi-
mörk tímans eða heimsendi og
stöðvast. Við það slokknar á þeim
búnaöi í bílnum sem viðkomandi
örgjörvi stjórnar, hvort sem það er
kveikjan, bensíninnspýtingin, sjálf-
skiptingin eða eitthvað annað.
Tölvuþróun í bílum hófst fyrir um
tveimur áratugum og hefur aukist
jafnt og þétt síðan.
Tækninefnd AIT, Alþjóðasam-
bands bUaeigendcifélaga, sendi þeg-
ar í vor 30 helstu bUaframleiðend-
um heimsins bréf þar sem óskað
var eftir upplýsingum um hvers
konar örgjörvar væru í bUum
þeirra, hvaða búnaöi í bUunum þeir
stýrðu, hvort búast mætti við alda-
mótavanda og hvemig hægt væri að
ráða bót á honum í tæka tíð. FÍB
hefur sent sams konar fyrirspum
tU allra bUaumboða hér á landi.
19 bUaframleiðendur hafa þegar
svarað tækninefndinni og sagt að
engin vandamál verði í þeirra fram-
leiðslu.
-SÁ
Vélarstilling bílsins er einn af viðhaldsþáttunum:
Sparar bensín og eykur
öryggi
BUeigendur ættu að hafa í huga að nauðsynlegt er að láta vél-
arstUla bUinn með vissu mUibUi. Það er að segja ef hann er ekki
alveg glænýr og enn í ábyrgðarskoöun hjá umboðinu því þá er
m.a. fylgst með vélinni.
Þeir sérfróðu menn sem DV hefur rætt við telja hæfUegt að fara
með bUinn í vélarstUlingu á 15.000-20.000 kUómetra fresti. Gott er
að láta stUla vélina á haustin þvi þá er hugað að kertum og plat-
ínum, hleðsla mæld upp og ástand rafgeymis athugað. Stillingin
minnkar með öðrum orðum hættuna á því að menn komi bUum
sínrun ekki í gang í miklu frosti eða snjófjúki.
Annar kostur er sá að vélarstiUing minnkar bensíneyðsluna.
Hann einn ætti að vera nægUeg ástæða tU að huga að þessu at-
riði.
Þegar bUinn fer í stiUingu er svoköUuð vélarstiUingartölva
tengd við bUinn. Hún greinir það sem úrskeiðis hefur farið og af-
stiUst og mælir fyrir um hvað gera skuli tU úrbóta. Síðan er skipt
um þá hluti sem þurfa endumýjimar við.
Hér á síðunni fylgja nokkur verðdæmi um vélarstUlingu. í
verðinu er öU vinna við stiUinguna og vinna við að skipta um þá
hluti sem þarf að endurnýja. AUur efniskostnaður er utan við
þessar tölur. Miðað er við meðalíjölskyldubU.
Hvað kostar
vélarstilling?
8.900 9.000
Toyota Bílastillingar Bílaskoðun Hekla Alm. Vélastilling
og stilling bílaverkst. sf.
Hvort borgar sig að kaupa gamalt húsnæði eða nýtt?
Aukinn kostnaður upp á
70-80.000 krónur á ári
- vegna viðhalds á gamla húsnæðinu
Þegar fólk stendur frammi fyrir
því að velja sér húsnæði er ein af
stóru spurningunum sú hvort
kaupa eigi nýtt eða gamalt. Mörg at-
riði hafa sín áhrif, svo sem ýmsir
umhverfisþættir.
Hagkvæmnisjónarmið vega
einnig þungt. Að sögn Stefáns Ing-
ólfssonar verkfræðings má gera ráð
fyrir að það kosti 70-80 þúsund
krónum meira á ári að halda við
gamaUi meðalstórri íbúð en nýlegri
íbúð af sömu stærð. Vitaskuld er
þetta ekki föst stærð því viðhalds-
kostnaður fer eftir ástandi fasteign-
ar og aldri. En þetta er tala sem
hægt er að nota til að hafa ein-
hverja viðmiðun.
Hér á eftir fara nokkrir fróð-
leiksmolar um atriði sem gott er að
hafa í huga við húsakaup.
Skipta má efnisþáttum steinhúss
upp í þrjú tímabU, eins og sést á
meðfylgjandi köku. Skammtíma-
þættina getur fólk þurft að endur-
nýja á 5-10 ára fresti. Þeir teljast
allt að 10 prósent af verðmæti
blokkaríbúðar.
Þegar húsið er komið yflr ákveð-
inn aldur eru miUitímaþættimir
teknir í gegn. Þeir eru um 50 pró-
sent af verðmæti húsnæðis og end-
ast í 20-40 ár. Langtímaþættimir
miðast við fokhelt hús. Þeir eru um
40 prósent af verðmæti hús-
næðis og endast í 80-120 ár.
Þessir þættir ganga úr sér á
mismunandi tímum, eins og að
ofan greinir. Ef keypt er gömul
íbúð, þar sem búið er að endurnýja
aUa miUiþættina, má líta svo á að
upp undir helmingur eignarinnar
sé nýr.
Viðhald liggur á bilinu 1-2 pró-
sent af verði eignarinnar á ári og af-
skriftir eru um 1/2 prósent.
Þá feUur viðhald á eldri húsum
ekki tU jafnt og þétt tU heldur í
stærri áfóngum. Einkum geta
steypuskemmdir verið kostnaðar-
frekar. Stefán sagðist þekkja dæmi
Langtíma-
þættir
Grunnur, útveggir,
berandi plötur og þak
Endlng: 80-120 ár
Huröir. lausir milliveggir,
léttlr stigar, giuggar og gler,
hita- og raflögn
Endlng: 20-40 ár
Endurnýjunartími
húsnæðis . „
þess
að fyrir
3ja herbergja
íbúð hafi kostað 600 þúsund krónur
að gera við blokk að utan. Nokkur
dæmi væru um slíkan kostnað upp
á hálfa miUjón fyrir íbúð af um-
ræddri stærð.
Ljóst er þvi að það er dýrt spaug
að kaupa gamalt húsnæði sem kom-
iö er á tíma hvað varðar umfangs-
mikið viðhald.
Pössum
frostlöginn
Nú er vetur genginn í garð
með frostum og snjó og eins gott
að gæta að frosUeginum á bíln-
um. Guðmundur Kristófersson
hjá Frumherja bendir á að ekki
sé nóg að frostlögurinn þoli lág-
markslrost. Frostlögur er líka
tæringarvörn fyrir bílvélina,
ekki hvað síst vélar sem steypt-
ar eru úr áli, og til að hann
gegni því hlutverki þarf hann
að blandast vatni til helminga.
Slík blanda þolir að öUu jöfnu
37 gi'áða frost og kemur í veg
fyrir að kæligangar vélarinnar
tærist og vélin skemmist eða
hreinlega eyðUeggist.
ís í bensíninu
í kuldatíð og frostum er
hætta á því að loftraki inni i
hálftómum eða tómum bensín-
geymi bUsins þéttist og frjósi
síðan. Frosthrönglið getur
borist inn í bensínleiðslumar,
stíflað þær og valdiö slæmum
gangtruUunum. FyUið því bíl-
inn í hvert skipti sem bensín er
keypt. Til vamar þessu er ráð-
legt að blanda ísvara í bensíniö
á haustin. Almennt er talið
nægjanlegt að nota 0,2 lítra af
isvara við þriðju hverja áfyU-
ingu.
Verslað með
aleiguna
Fasteignaviðskipti snúast oft-
ast um aleiguna. Því er sjálfsagt
að tryggja öryggi í þeim eins og
unnt er. Skylt er nú samkvæmt
lögum að nota ný eyðublöð í
fasteignaviðskiptum. Þau eru
söluumboð, söluyflrlit og yflr-
lýsing húsfélags. Söluumboðið
er skriflegur samningur milU
seljanda fasteignar og fasteigna-
sala um sölutflhögun eignarinn-
ar. í söluyfirlit skal skrá ná-
kvæmar upplýsingar um eign-
arheimUd seljanda, stöðu allra
áhvílandi veðskulda og lýsa
eigninni, stærð hennar, aldri og
ástandi, kvöðum, göUum, bygg-
ingarefni og sérhverju opinbera
mati o.s.frv.
Fasteignamat
Ekki átta aUir sig á hvað fast-
eignamat í rauninni er. Það er í
stuttu máli verkfæri til að mæla
verðmæti fasteigna og miðast
við líklegt söluverð fasteignar á
frjálsum mai'kaði. Matið er not-
aö sem stofh tU að leggja ýmis
gjöld á eigendur fasteigna.
Sveitarfélög nota fasteignamat-
ið tU að leggja á eigendur fast-
eignagjöld sem eru fasteigna-
skattur, vatnsgjald og lóðar-
leiga. Ríkissjóður notar það tU
að ákveða eignaskatt, erfðafjár-
skatt o.fl. Þinglýsingargjöld era
einnig greidd af fasteignamati
eins og það er við þinglýsingu
kaupsamnings eða afsals. Auk
þessa er fasteignamatið notað
við ýmsa úrvinnslu vegna
skipulags og áætlanagerðar og
nú hin seinni ár sem viðmiðun
við veðsetningu. -SÁ