Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.1998, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.1998, Blaðsíða 19
FTMMTUDAGUR 29. OKTÓBER 1998 19 Ráðgjafarstofa um fjármál heimilanna: Aðstoð án endurgjalds - við skipulagningu þegar fólk er komið í þrot Einn af þeim möguleikum sem standa fólki opnir til að koma reglu á gármálin er ráðgjafarstofa imi fjármál heimilanna. Þar stend- ur fólki til boða endurgjaldslaus ráðgjöf. Hún er ætluð fólki sem á í verulegum greiðsluerfiðleikum og er komið í þrot með fjármál sín. Ráðgjafarstofunni er ætlað að veita fólki aðstoð við að fá yfirsýn yfir stöðu mála, hjálp við að gera greiðsluáætlanir, velja úrræði og semja við lánardrottna. Sextán aðilar standa að Ráðgjaf- arstofunni, þ.e. félagsmálaráðu- neyti, Reykjavíkurborg, hags- munasamtök launþega, bænda- samtökin, neytendasamtökin, þjóðkirkjan, bankar og sparisjóð- ir, húsnæðisstofnun, Samband is- lenskra sveitarfélaga, lífeyrissjóð- imir og stofnlánadeild landbúnað- arins. Hægt er að panta t í m a tvisvar í mánuði, þ.e. annan hvem mið- vikudag. Viðkomandi mætir með öll sín gögn i viðtal við ráðgjafa. Þar er farið vandlega yfir þau. Síðan setur ráðgjafinn upp heildarmynd af stöðunni eins og hún lítur út, þ.e. hverjar ráðstöf- unartekjur eru í hverjmn mánuði. Mikilvægt er að átta sig á því hver framfærslukostnaður heimilisins raunverulega er því þá liggur ljóst fyrir úr hve miklu það hefur að spila. Notaðar eru ákveðnar við- miðunartölur eftir samsetningu og stærð fjölskyldunnar. Að þessum upplýsingum fengnum sést hver raunveruleg greiðslugeta heimilis- ins er. Þessu næst gerir ráðgjafinn skriflegt yfirlit yfir stöðu heimil- isins og tillögur til lausnar á vandanum. Viðkomandi fer með fjárhagsyfirlit, unnið af ráðgjafarstofu, ásamt tillögum sem ráðgjafi hefur til lausnar á vandanum, i lánastofnun sem tek- ur þá málið að sér, t.d. með greiðsluþjónustu, sem áður hefur verið greint frá á neytendasíðum DV. -JSS Úr vanskilum - í greiðsluþjónustu: Látum endana Henný Gústafsdóttir og því að drífa í að koma lagi á málin. hennar fjölskylda eru ein Bankinn gerði greiðsluáætlun fyrir okkur á grundvelli þeirra gagna sem fyrir lágu. Hann lánaði okkur fyrir vanskilaskuldunum og greiðslum okkar var dreift á árið. Bankinn tekur af okk- ur ákveðna upphæð á mánuði og það sem eftir er höfum við til ráð- stöfunar. Það er okk- ar að passa að end- amir nái saman. Ef þeir gera það ekki þá er það bara súpa og brauð.“ Nú eru þrjú ár síð- an Henný fór í greiðsluþjónustu. Greiðslubyrði heimilisins er þung og að ná saman Með heimilisbókhaldið. Henný Gústafsdóttir og Baldur Pétursson, ásamt börnunum Hafdísi Ósk, Önnu Þóru og Pálma Georg. DV-mynd E. Ól 10 hæstu og 10 lægstu: Marel á uppleið Það kann að vera að bréf í fyrir- tækjum tengdum sjávarútvegi séu að ná hinum marginntalaða botni því að hlutabréf í Marel hafa snögghækkað eins og sést á með- fylgjandi grafi. Helstu breytingar frá því í síðustu viku eru þær að Marel er hástökkvarinn og breyt- ingin upp á við 9%. Þá hafa bréf í Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna hækkað og áfram er Sparisjóður Hafnarfjarðar á uppleið. Bréf í Básafelli hafa færst upp í efsta sæti yfir þau bréf sem mest hafa fallið siðustu 30 dagana, eða um 17%. Mestu fallbréfin eru öll í sjávarútvegsfyrirtækjum og í einu fyrirtæki tengdu sjávarútvegi, Héðni-smiðju hf. -SÁ hinna fjölmörgu sem nýtt hafa sér greiðsluþjónustu bankanna til að koma skipulagi á fjármál heimilis- ins. „Við vorum komin i vanskil þeg- ar við byrjuðum í greiðsluþjónust- unni,“ sagði Henný við DV. „Þegar rukkanirnar komu á þungu mánuð- unum stungum við þeim stundum ofan í skúffu þvi við sáum að við gátum ekki borgað þær fyrr en eftir 2-3 mánuði. Dráttarvextimir voru fljótir að rúlla upp. Við ákváðum Fjármagnstekjuskattur upp á 10% leggst á eingreiðsl- ur úr erlendum söfnunar- tryggingum samkvæmt nú- | gildandi lögum og túlkun emb- ættis ríkisskattstjóra á þeim. Sam- kvæmt þessu mimu þeir sem samið hafa um líftryggingu með spamaði og fá síðan spamaðinn greiddan út í lok samningstímans með einni greiðslu þurfa að greiða fjár- magnstekjuskatt af þeirri ávöxtun sem bættist við höfuðstólinn á samningstímanum. Þetta kemur fram í skriflegu svari embættisins frá því í fyrrahaust. Eins og kom fram hér á neyt- endasíðunum sl. fimmtudag hafa miðlarar, sem bjóða er- Pft lendar söfnunarlíftryggingar, ’0' haldið því fram að ekki þurfi v að greiða fjármagnstekjuskatt P af söfnunampphæðinni þegar hún verður greidd út í einu lagi í lok tryggingarsamnings- tímans. Ástæðan sé sú að sá er- stórum hluta tilkomin vegna kaupa á nýju húsnæði. „Við erum með öll útgjöld inni í greiðsluþjónustunni. Þyngst vega greiðslur af húsbréfun- um. í fyrstu voru allir mánuðir í mín- us hjá okkur í bankanum. Svo fór mínusinn að minnka og nú koma þeir mánuðir sem við erum í plús. Þetta er allt annað líf, nú erum við hætt að hafa sífelldar áhyggjur af gluggabréfunum." -JSS arsjóður sem ávaxtar söfhunarsjóðinn greiði jafnharðan alla skatta og skyldur í viðkomandi landi. Þetta var borið undir Ríkisskatt- stjóraembættið síðla árs í fyrra. Spurt var m.a. um hvort rétt væri að íslendingur sem fær söfnunar- samning sinn greiddan út í lok samningstima við erlent trygginga- félag félli ekki undir íslenska lög- Hlutabréf á upp- og niðurleið Marel hf. Básafell hf. - síöastliöna 30 daga - Sölumlöst. hraöfrh. Sparlsj. Hafnarfj. SparisJ. Spskírt. R. 1994 Hafnarfj. 1. fl. ECU 5 ár Héöinn smiöja hf. Þormóður Hskiöjusamlag Samherji hf. Rammi hf. Húsav. hf. Erlendur lífeyrissparnaður: Hagnaðurinn skattskyldur - að mati ríkisskattstjóra Leiðbeint gegn vanda Kominn er út nýr leiðbeininga- bæklingiu- Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna. í honum er margt gagnlegt að fmna, svo sem upplýsingar um löggjöf er varðar greiðsluvanda og leiðbeiningar til þeirra sem eiga við slíkan vanda að etja. Þessi bæklingur liggur frammi hjá Ráðgjafarstofu í Lækjargötu 4 og bönkum og sparisjóðum. Að láta vita í ofannefhdum bæklingi eru nokkur heilræði til þeirra sem hafa skuldsett sig um of. Þau eru eftirfarandi: Láttu þá sem það varðar vita af fjárhagserfiðleik- um þínum. Settu þig vel inn í réttindi þín og skyldur sem skuldara og neyt- anda. Hafðu samband við lánar- drottna um leið og þér er ljóst að þú getur ekki staðið í skilum. Leitaðu aðstoðar við að leysa málin til langframa. Gættu að gjald- dögunum Gættu að gjalddögunum. Van- skilaskuldir eru fljótar að hlaða á sig viðbótarkostnaði. Það reynist mörgum erfitt að horfast í augu við fjánnálin. Með því að panta tíma hjá ráðgjafa hefur þú stigið mikilvægt skref í áttina til lausnar á fjárhagserflð- leikum. Söfnunarlíftrygg- ingar Hörð samkeppni er milli er- lendra og íslenskra söfnunarlif- trygginga. Ólafur Haukur Jóns- son framkvæmdastjóri Samlífs, Sameinaða liftryggingarfélagsins hf. segir að sparnaðarlíftrygging félagsins sé mjög hagstæð í sam- anburði við erlendar söfnunarlíf- tryggingar, en tryggingartakinn sé líftryggöur auk þess sem hann safnar í sjóð sem kemur til út- borgunar sem eingreiðsla í lok samningstíma. Möguleikar eru á ávöxtun söfnunarfjárins i hvers konar verðbréfum bæði innan- lands og utan hjá traustum fjár- festingarfyrirtækjum. Þeirra á meðal er hið virta Henderson In- vestors sem býður upp á sjóði í Lúxemborg þar sem fjár- magnstekjuskattur er mjög lágur, eða innan við 1% á móti rúmlega 16% í Bretlandi. gjöf um fjármagnstekjuskatt. Svar embættis ríkisskattstjóra er svohljóðandi: „Það að útborgun til íslendings á eingreiðslu vegna söfn- unartryggingar kemur frá erlendu tryggingafélagi breytir engu um skattskyldu þessara vaxtatekna hér á landi. Ávöxtun fjár erlendis er skattskylt hérlendis. Aðspurður um hvort engu breyti um skattskylduna að tvísköttunar- samningur sé í gildi milli íslands og heimalands hins erlenda trygg- ingafélags segir embætti ríkisskatt- stjóra að það breyti engu um skatt- skyldu vaxtatekna af þessu tagi hérlendis. -SÁ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.