Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.1998, Side 5
FIMMTUDAGUR 29. OKTÓBER 1998
5
DV
Fréttir
Keypti rekstur Hálogalandssjoppunnar fyrir offjár en fær ekki að reka hana áfram þrátt fyrir forleiguréttindi:
Greiddi milljónatug í
5 ár og er svo hent út
Jósep keypti „sjoppugoodwill" á 4 miiljónir króna fyrir fimm árum. Nú er honum „hent út“
þrátt fyrir forleigurétt. Eigandinn notfærir sér ákvæði í leigusamningi. DV-mynd BG
,Ég á að fara út á laugar-
daginn. Allir í hverfinu og
nemendur Menntaskólans við
Sund, sem er hér beint á móti,
eru mjög á móti þessu. Það er
til lítils að kaupa viðskipta-
vild á fjórar milljónir króna ef
það er hægt að stela henni af
manni eftir 5 ár þegar allt er
farið að ganga vel og vera þá
líka búinn að borga sama að-
ila 5 miiljónir i leigu. Það er
rosalega siðlaust að stunda
þetta við hvem mann á fætur
öðrum,“ sagði Jósep Grims-
son, rekstraraðili sölutums-
ins Hálogalands í Gnoðavogi
46.
Jósep á að fara út úr sjopp-
unni um helgina. Hann segir
að þrátt fyrir ákvæði um for-
leigurétt ætli eigandinn að
nýta sér klásúlu í leigusamn-
ingi þar sem segir að slíkt
gildi ekki ef leigusali eða fjöl-
skylda hans ætli að „notfæra
sér húsnæöið".
Jósep segir að á fímm árum
sé hann búinn að leggja um
milljónatug í sjoppuna:
„Ég keypti rekstur sölutumsins
þann 1. nóvember 1993 af húseigand-
anum. Hann var þá búinn að reka
sjoppuna í örfáa mánuði. Ég greiddi
honum 4 miiljónir króna fyrir kaup-
samninginn - í honum fólst aðeins
pylsupottur, peningakassi, ísskápur
og plastkörfur fundir sælgæti - í verð-
inu fólst því aðeins viðskiptavild. Fyr-
ir lagerinn greiddi ég sérstaklega 800
þúsund krónur.
Það lá mikið á að ganga frá þessum
samningi á sínum tíma.
Núna er eigandinn að henda okk-
ur út og neitar að framlengja leigu-
samninginn þrátt fyrir að ég sé bú-
inn að bjóða hærri leigu - leigan á
mánuði hefur verið 95 þúsund á
mánuði. Við buðum eigandanum
130 þúsund en hann neitaði því. Ég
keypti sjoppuna með það fyrir aug-
um að fá framlengingu til að reka
hana áfram eins og allir aðrir fá að
gera ef þeir standa í skilum. Það er
augljóst hvað eigandinn ætl-
ar að gera. Hann hyggst
eyðileggja reksturinn sem
hann seldi okkur með því að
henda okkur út og stofna
nýja sjoppu daginn eftir,“
sagði Jósep Grímsson.
Hann tímdi ekki að
skipta um Ijósaperur
„Honum var kunnugt um
það í upphafi að leigusamn-
ingurinn var til flmm ára,“
sagði Ólafur Sigurðsson, eig-
andi sölutumsins Háloga-
lands, í samtali við DV að-
spurður um málið. Ólafur
sagði að það væri „ekki fótur
fyrir einu eða neinu" sem
Jósep segði. Hann hefði ekki
málað húsnæðið og ekki einu
sinni „tímt að skipta um
ljósaperur".
„Hann er að reyna að eyði-
leggja allt fyrir mér,“ sagði
Ólafur.
Aðspurður um það hvort
það væri við hæfi að taka 4
milljónir fyrir viðskiptavild
og annað eins eða meira fyrir
leigu á 5 árum sagði Ólafur:
„Jósep hefur aldrei gefið mér
möguleika á að leigja honum áfram.
Hann hefur ekki staðið við eitt eða
neitt. Ég hef aldrei haft neitt saman
við hann að sælda. Síðan er ég að
frétta sögur af sjálfum mér sem hann
hefur borið út,“ sagði Ólafur. -Ótt
Vöncluð
dagatöl og jólakort
í miklu úrvali.
Sérmerkt fyrir þig
Nýjar víddir
i hönnun og útgáfu
ELFA
R LEMMENS
HÍTABLÁSARAR
Fyrir verslanir - iðnað - lagera
Fyrir heitt vatn.
Afköst 10 -150 kw
Öflugustu blásararnir á
markaðnum, búnir
miðflóttaaflviftum og
ryksíum.
Betri hitadreifing - minni
uppsetningarkostnaður,
lægri rekstrarkostnaður.
Hagstætt verð
UP Einar Farestveit & Co.hf.
Bor*aitúni28 Ð 562 2901 oc 562 2900
borgari eda grísasatrLloka
Effirlæti rokkarans 12^5.-
Djöflaieria í eftirrett.
CxeaajuJL Halloween veisla a. Hctrd K
# dagana 2^. okt.- 51. o\
HreKKjavako: eins oej kun gerisf besi.
Allir krakkar sem koyyva í ^rímubuninðji
í./f# » f^ okeypis h.amborqara fr<u Mard Rock.
HAUNTED H0U3E
"I fyrsta sinn á Islandi. Leiklækjaleiaan
SPRELL kynnir í samvínnu við Hard Rock
Cafe alvöru ameríska hrollvekju eins
hun gerist besl. "HAUNTED H0USE" «r
slaðsell beínt fyrir frarnar. Hard Rock Cafe
Komdu ef þú þorir á milli kl. 17-2.2. fimrntu-
dagj. föstudag. laugardag o^ sunnudag. Þú
veist ekki bverju þú átt von á I Sérstök
barnahrekkjavaka a lau$arda$ o$ sunnuda^.
mitli kl 13-17.
jomsvextin i
:pilar £yrir
fimm iuda a,
ercwp
ti a
KliYKJAVIK