Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.1998, Síða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.1998, Síða 9
FIMMTUDAGUR 29. OKTÓBER 1998 9 Útlönd Eiturlyfjasalar grunaðir um að hafa rænt ráðherrann: Farinn í felur Lögreglan í Lundúnum telur að eiturlyfjasalar hafi rænt Ron Davies, fyrrum ráðherra mál- efna Wales, á mánudagskvöld. Ráðherrann sagði af sér í kjöl- far ránsins. Hann hafði skömmu áður þegið heimboð ókunnugs miðaldra svarts karl- manns i marglitum frakka sem hann hitti i almenningsgarði sem er þekktur samkomustað- ur samkynhneigðra í leit að skyndikynnum. Fjöldi rána hefur verið fram- inn á þessum slóðum þar sem fómarlömbunum eru ýmist boðin eiturlyf eða skyndikynni við samkynhneigða, eða hvort tveggja. Bresku æsiblöðin hafa haldið því fram að Davies sé samkyn- hneigður og tilgangur göngu- ferðcir hans í Clapham Comm- on garðinum hafi verið að finna bólfélaga. Hann neitar öllu sliku. Davies, eiginkona hans og þrettán ára dóttir, eru nú farin í felur til að meta stöðuna sem upp er komin. Lögreglan handtók þrjár manneskjur i gær og yfírheyrði um bifreið ráðherrans fyrrver- andi frekar en ránið sjálft. Fólkið var síðan látið laust og gert að mæta aftur síðar. Bíll Davies fannst í Brixton-hverf- inu, einhverju alræmdasta glæpahverfi Lundúna, ekki langt frá staðnum þar sem rán- ið var framið. Lögreglan rann- sakar nú bílinn í leit að vís- bendingum mn ræningjana. Davies er öskureiður yfir umfjöllun fjölmiðla um málið og segir hana ósanngjama. „Fólk gleymir því að ég var fórnarlamb glæps þar sem hnífi var beint að hálsi mér,“ Ron Davies, fyrrum ráðherra í bresku ríkis- sagði Ron Davies, fyrrum ráð- stjórninni, er reiður. herra. Sigraði í fyrstu lotu Hægri menn í Chile fognuðu í gær úrskurði bresks dómstóls um að Augusto Pinochet, fyrrverandi einræðisherra Chile, nyti friðhelgi. Flóttamenn frá Chile og baráttu- menn fyrir mannréttindum létu hins vegar í ljós reiði sína fyrir ut- an dómhúsið í London í gær. Kall- aði mannfjöldi skammaryrði á eftir breskum lögfræðingi Pinochets. Dómstóllinn úrskurðaði að ekki væri hægt að láta Pinochet koma fyrir rétt i Bretlandi þar sem hann hefði verið þjóðhöfðingi í Chile þeg- ar hann framdi þá glæpi sem hann er sakaður um. Niðurstaða dóm- stólsins var að rangt hefði verið að handtaka Pinochet. Honum verður þó ekki sleppt úr stofufangelsi strax. Breskir sak- sóknarar áfrýjuðu strax úrskurðin- um. Það verða þvi líklega lávarð- amir í efri deiid breska þingsins sem taka ákvörðun um framhald málsins. Lávarðadeildin er æðsta dómstig í Bretiandi. Mögulegt er að Pinochet verði sleppt gegn tryggingu á meðan mál hans er til meðferðar í breska dóms- kerfinu. Víst þykir hins vegar að bið verði á að flogið verði með hann til Chile í sjúkraflugvélinni sem biö- ur hans á herflugvelli í Bretlandi. Verslunin Ásgeir G. Gunnlaugsson & Co stofnuð 1907, elsta verslun í Reykjavík, er flutt í Skipholt 9. %/ Klossar i/ Festingasett Ý Ðorðar %/ Diskar i/ Handbr barkar |/ Skálar ✓ Slöngur mmmmmm* ^ Dælur skálar og diska, allar stæröir. Allar álímingar. e ÁLÍMINGAR Smiðjuvegi 20 (græn gata) Sími 567 0505 Gleðistund með Erni Árnasyni ásamt 4ra rétta matseðli Vesturgötu 6 - 8 • sími 552 3030 á Galdraloítinu 80 rétta hel«ar sérréttamatseðill í gamla salnum Dansað í kjallara * 1 >#p; H - H - Berið saman verð og gæði. það gerðum við! ■16" með 3 áleggjum & eitt af eftirfarandi 12" margaríta eða 12" hvítlauksbrauð eða / yu, 2 lítrar af kók kr. 1.480, 18" með 3 áleggjum, 2 lítrar af kók 990,- & stórar brauðstangir -

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.