Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.1998, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.1998, Blaðsíða 12
12 FTMMTUDAGUR 29. OKTÓBER 1998 Spurningin Hvaða erindi áttu í Kringluna? (Spurt í Kringlunni á föstudegi) Auðbjörg Ingvarsdóttir félags- ráðgjafi: Ég er að kíkja á Kringlu- kastið. Jónas Þorgeirsson tæknimaður: Ég er að versla. Sævar Örn Arason nemi: Ég er að skoða mig um. Ari Michaelsen: Er að skoða mig um. Már Valþórsson nemi: Ég er aðal- lega að eyða tímanum. Haraldur Pétursson nemi: Ég var að kaupa glös. Lesendur Einelti í skólum og á vinnustöðum Einelti er rót alls ills. Börn sem leggjast á aðra eiga líka við verulegt vanda- mál að stríða, segir m.a. í bréfi Skarphéðins. Skarphéðinn Einarsson skrifar: Einelti er ekki nýtt fyrirbæri. Böm hafa verið tekin fyrir af skóla- félögum og líka í almennum sam- skiptum bama við leik. Þá em bömin útilokuð frá leikjum. Þetta hefúr eyðilagt marga andlega og námsárangur hefur dalað. Böm kvíða fyrir komandi degi og ef um ungling er að ræða em afleiðingam- ar skelfílegar. Kvíðinn fyrir að mæta i skólann stuðlar að þvi að ekki er farið í skólann í sumum tii- vikum heldur dvalið hjá krökkum sem oft em í óreglu og jafnvel vímu- eftianeyslu. Einelti er rót alls ills. Böm sem leggjast á aðra eiga oft við vanda- mál að stríða. Kennarar þurfa því að vera vel á verði og ekki síður for- eldrar. Á vinnustöðum er þetta al- gengt og þar em á ferö sjúkir menn, svokallaðir „lúserar", sem eru fúllir beiskju og taka ófarir sínar og menntunarskort ef um hann er að ræða, og þá heimsku, út á mönnum sem bera ekki hönd fyrir höfuð sér. Aö sjálfsögðu blandast fleiri í hópinn. Afleiðingamar eru hroða- legar. Afköst við vinnu minnka, fjarvistir aukast því fólk kvíðir fyr- ir að koma til vinnu í byrjun viku. Verkstjórar sem láta svona hluti viðgangast era sömu úrþvættin og þeir vansælu vesalingcir sem stunda einelti. Margir þessara manna em óhamingjusamir og sumir hafa fengið slæmt uppeldi, jafnvel verið misnotaðir í æsku. Ég tala sjálfur af reynslu og henni biturri. - Ég starfaði á Keflavíkm-- flugvelli í tæpa 3 áratugi. í 10 ár mátti ég þola gróft einelti af íslensk- um starfsmönnum hjá varnarliðinu. Þessi 10 ár vora hræðilegur tími. Það tók mig langan tíma að komast yfir þetta eftir að ég hætti störfum hjá vamarliðinu. - Þeim sem stuðla að einelti, hvort sem er í skólum eða á vinnustöðum, hefnist fyrir en það kemur ekki í veg fyrir að á þessu máli verður að taka á íslandi líkt og gert er í nágrannalöndum okkar. Þar hefur víðast náðst verulegur árang- ur í að uppræta einelti og sums staö- ar er það nánast úr sögunni. Góðir skulu þeir „stjórar" vera Sigurbjörg Kristjánsdóttir skrifar: Mér fmnst það orðið meiri háttar fyndið stundum að lesa í Degi þessa dálka sem ég kalla „kjaftakerlinga- dálka“ og hafa ýmist nafnið „Heiti potturinn", „Garri“, „Efst á baugi“ eða eitthvað í þessa áttina. - Sérstak- lega á það við þegar í þeim er verið að verja opinbera starfsmenn þegar lánleysi þeirra ríður ekki við einteyming. i þessu sambandi em tveir menn búnir að vera einkar áberandi. Ann- ars vegar er það fréttastjóri Sjón- varps og hins vegar lögreglustjórinn í Reykjavík. Báöir hafa þessir menn, viljandi eða óviljandi, komið sér í talsvert klandur og fengið á sig gagn- rýni fyrir vikið. Blaðamenn þessara dálka hafa ver- iö einkar duglegir við að veija fyrr- nefnda menn með ýmsu móti, eins og t.d. með því að þykjast hafa eftir hin- um og þessum ónafngreindum vinum sínum í sundlaugunum að mikil ein- ing hafi ríkt um þessa menn. Jafnvel hafi nokkrir starfsmenn á viðkom- andi stofnunum áhyggjur af þessu. Skrif þessi em oft hlægileg, og dettur manni í hug hvað þurfi eigin- lega að ganga á til þess að erfitt verði að bera blak af fréttastjóranum og lögreglustjóranum. Það er nú svo að menn í opinberum stöðum verða, a.m.k. að einhveiju örlitlu leyti, að bera ábyrgð á gerðum sínum. Ekki rétt? í siöuðum þjóðfélögum er sú krafa miklu skýrari en hér á landi og gildir þar einu hvort menn eru „framsóknarmenn“, eins og áður- greindir einstaklingar, eða einhveij- ir aðrir. Váleg tíðindi af veðurfarinu - þyrmir yfir svo um munar „Menn moka sig út úr húsum sínum að morgni og jafnvel inn í þau aftur að kveldi", segir m.a. í bréfinu. - Á Akureyri í vikunni. Dalvíkingur skrifar: Það má slá upp fréttum í fjölmiðl- um eins og „Hressileg vetrarbyrjun", „Árstíðaskipti meö stil“, og hvaðeina sem fréttafólki kemur í hug þegar vetur heldur innreið sina í hinar norðlensku byggðir hér og á Vest- fjörðum. En orðið „hress" kemur ekki upp í huga margra. Það þyrmir yfir mann svo um munar og ég held flesta sem komnir eru til fullorðins- ára. Við vitum hvað bíður okkar. Vetrarkoma upp úr miðjum október boðar ekkert gott. Það fengum við að reyna sl. vetur og ofan á hann ein- dæma lélegt sumar sem maður var nýbúinn að jafna sig eftir. Þegar þetta er ritað er spáð áframhaldandi snjókomu en björtu veðri syðra. Er það enda líkt og maður gæti ímyndaö sér paradís fyrir okkur að koma til Reykjavíkur með flugi. Allt marautt og engar lík- ur til að þar verði mikil umskipti fremur en sl. vetur. Já, það tekur á taugarnar að búa við slíkt veðurfar og verið hefur norðan Holtavörðu- heiðar undanfarin misseri. Menn moka sig út úr húsum sínum að morgni og jafnvel inn í þau aftur að kveldi. - Verst er þegar veðurfræð- ingar spá því að nú gæti hlýnað ör- lítið eða að veður fari að ganga nið- ur. Það gefur vonir sem þó oftast bregðast. Sannleikurinn er sá að mjög fáir standast svona veðravíti og snjó- þyngsli. Bömin una sér að vísu og örfáir snjósleðamenn, en allur al- menningur örvæntir. Margir, bæði hér og á Akureyri, hyggja alvarlega að búsetuskiptum verði sami vetur og í fyrra og annað eins sumar. Og ekki þá bara suður til þéttbýlis- svæðisins, heldur rétt alveg eins áfram og til útlanda. - Danmerkur, Noregs eða bara eitthvert. Kýpur eða Kípur? Lesandi hringdi í grein sinni með þessari yfir- skrift í DV (26. okt.) í dag um átök Tyrkja og Grikkja á ey þessari vík- ur Gísli Sigurðsson íslenskufræð- ingur frá þeim rithætti sem nú um langt skeið hefur verið rikjandi, þ.á.m. á landakortum sem notuð em við kennslu í skólum, þ.e. Kýp- ur með ý en ekki í, eins og hann vill hafa og notar í grein sinni. Frá fornu fari hét ey þessi Kýpros (gríska) og Cypms (latína) og mun vera dregið af því að þar er berg auðugt að eiri (cuprum), sem þar hefur verið numinn úr jörðu frá ómunatíð. Á sama hátt og nafniö cuprum hefúr orðið kopar á ís- lensku sýnist mér rökrétt að af- leidda nafnið lúti sömu meðferð og eyjan haldi áfram að heita Kýpur á íslensku. Meinatæknar mega hætta Karen hringdi: Það er nú orðið hvimleitt þetta með uppsagnir hverrar stéttar inn- an heilbrigðisgeirans á fætur annarri. Nú eru það 47 meinatækn- ar sem hóta heilbrigðiskerfinu. Hvert er tilefnið? Jú, deila um túlk- un á úrskurði aðlögunamefndar! Hver skilur þetta tungumál? Ekki ég. Leyfum meinatæknum þessum að hætta, það hljóta einhverjir aör- ir að geta tekið við störfum þeirra, eða þá að senda megi verkefni þeirra utan til úrlausnar. Er ekki tæknin orðin það fullkomin að slíkt sé gerlegt? En fyrir alla muni hætt- um að birta fréttir um þessar deil- ur í heilbrigðiskerfinu, þær eru bæði leiðinlegar og marklausar, því það er ávallt samið á elleftu stundu. Framvindan saman stend- ur af hótunum einum. Jólaundirbún- ingur allt of snemma Kristján skrifar: Það er engin hemja hvað kaup- menn hér á landi komast upp með. Aö byija jólaauglýsingar upp úr miðjum október er helber skrípa- leikur sem enginn á að taka þátt í. Það eyðileggur fyrir öllum að ná hinni réttu jólastemningu, bæði í verslunum og annars staðar. Eftir- væntingin verður nánast engin þegar svo snemma er byrjað sem nú í sumum verslunum hér. Svarið ætti aðeins aö vera eitt: að snið- ganga slíkar verslanir þar til í byrj- un desember. Vegna bamanna og okkar sjálfra. Jólin í jólamánuðin- um en ekki fyrr. Góð sunnu- dagsleikrit Pálmi hringdi: Ég og fjölskyldan öll horfðum á sunnudagsleikritið síðasta; Sögur fyrir svefninn. Hreint frábært stykki með enn betri leikurum. Óvænt endalok og nokkuð áhrifarík, a.m.k. fyrir suma sem hugsa um ei- lífðarmálin, dauðann og hvert við fómm héðan úr heimi. Sunnudags- leikritin hafa öll verið góð til þessa, gagnstætt því sem var síðasta vetur. - Og Spaugstofan er að hressast lika, síðasti þáttur mun betri en sá næstsíðasti sem var afar klénn, vægast sagt. En gott er ef svona heldur fram í helgardagskránni. Þakka lesenda- dálka DV Vilhjálmur Alfreðsson skrifar: Mig langar að nota tækifærið og senda ykkur á DV þakklæti fyrir lesendasíðurnar þar sem flestir geta tjáð skoðanir sínar. Það þarf ekki að orðlengja það að þetta er eins konar þjóðarsál í rituðu máli. Ég hef reynslu af öðrum blöðum þar sem aðeins þröngur hópur virð- ist eiga aðgang. Jafnvel Mbl. er meira og minna farið að líkjast Prövdu. DV er sannarlega frjálst og óháð blað að þessu leyti.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.