Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1998, Qupperneq 20

Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1998, Qupperneq 20
föld ánægja! Hringdu og pantaðu 16" pizzu með 5 áleggsteg. fyrir aðeins 1400 kr. Nýdanskrar Ekki er á allt kosið... 1988 ★★ Bandið kemur ferskt á ís- lenska rokksviðið. Sveita- legt bílskúrspopp! bland við fínni spretti. .Apaspil" gefur tóninn tyrir það sem síðar kom. Regnbogaland 1990 ★★★ Jón og Stefán koma inn í ungbandið með aukin bítlaá- hrif og fagmennsku. Tónlist- in er blanda af Trúbrotslegu hefírokki og nýbylgiurokki. „Frelsi" og „Nostradamus“ meik'aða feitt. Kirsuber 1991 ★★ Sjö laga sumarplata. Lura- lega hippalegt hetjurokk í bland með sterkari og svip- hreinni popplögum. „Hjálp- aðu mér upp" gerir það best. Deluxe 1991 ★★★★ Besta plata Ný danskrar. Frískar pælingar, góðar lagasmíðar, þétt rokk og eö- alfínt popp. „Alelda" og „Landslag skýjanna" trylla lýðinn. Himnasending 1992 ★★★ Ný danskir reyna meik I London (sem „Kind"). Koma heim með fina plötu sem verður þeirra vinsælasta. „Horfðu til himins" og „llm- ur" bólstra eyru útvarps- hlustenda. Hunang 1993 ★★ . Samstarfið aðeins farið að lýjast. Fátt minnisstætt ger- ist á þessari plötu, engir smellir, og gítardrifið bítla- þoppið er aðeins farið að I þynnast. Sveitin hættir I tímabundið, Björn gerir sólóplötuna „BJF" og fer til Liverpool, Daníel í gusgus og hinir gerast popp- verktakar. 1987-1997 1997 ★★★ Vinsældir þessarar tvöföldu safnplötu sanna að fólkið man enn eftir Ný dönsk, og sjá: sveitin kemur saman aftur (án Daníels). Fínn pakki, t.d. í partí og ferða- lög. Einnig: Drög að upprisu 1993 ★★★ Ný dönsk leikur undir á tónleikaplötu Megasar. Gauragangur 1994 ★★i Sveitin leikur og syngur frumsamið efni í ung- lingaleikriti Ólafs Hauks Símonarsonar. Dr. Gunni ræddi við Björn Jr. í Nýdanskri um nýju plötuna og þræddi með honum uppáhaldsstaði hans í bænum. karldýr Björn Jörundur er effcir sig um hádegi á mánudegi. Hann seg- ist hafa verið að til fimm nóttina áður. Hann segist þó vera í góðri þjálfun og árin tuttugu og átta lít- inn toll búin að taka. Ný dönsk var að gefa út „Húsmæðragarð- inn“ og ætlar að halda útgáfutón- leika í Óperunni fimmtudaginn 5. nóv. Bjöm segir að þeir ætli að reyna að fá Baldur Brjánsson eða HaUa og Ladda til að hita upp. Svo heldur bandið áfram að skólaballast og spilar þá bara eig- ið efni, enda af nógu að taka, og margur smellurinn sem hefur komið úr þessari herdeild. „Við vorum eiginlega bara sof- andi,“ segir Björn, „gáfum aldrei neina yfirlýsingu um að við vær- um hættir. Þegar við gerðum safnplötuna vildum við endilega hafa ný lög með og í kringum það byrjuðum við að tala um að gera heila nýja plötu. Svo kom i ljós að Daníel var of upptekinn við gus gus og baðst lausnar. Þá veltum við hinir því fyrir okkur hvemig við ættum að snúa okkur og ákváðum að láta það ekki koma í veg fyrir að við gerðum þessa plötu; áttum slatta af lögum og vildum koma þeim á koppinn.“ Eiga allir lög á nýju plötunni? „Jú, allir nema Stefán, hann hefur verið svo upptek- inn við að hljóð- setja teiknimyndir. Jón á tvö lög, Óli eitt, ég á sjö og svo eigum við eitt saman, allir þrír. Ég á textana, Jón hjálpaði mér við tvo og tvo samdi hljóðmaður- inn okkur (Ken Thomas) á ensku og ég snaraði yfir og endurstað- setti. Hann er búinn að vera með okkur á síðustu þrem plötum, við kynntumst honum þegar við fór- um út og tókum upp „Himnasend- ingu“.“ Þú ert að syngja um konur aö vanda, er það ekíti? „Ja, ekkert bara um konur, sko. Auðvitað koma þær við sögu, enda helmingur mannkynsins. Þetta er mikið, jú, um samskipti fólks." Ertu búinn að lœra eitthvað? „Nei, ekki nokkurn skapaðan hlut! Ég er voða beisikk, bara hefðbundið karldýr." Lækjartorg „Staðurinn er mér mjög hjartfólginn. Hérna drakk maður brennivín- ið sitt þegar maður var þrettán ára, fjórtán og fimmtán ára og nú er það ailt komið á myndband hjá kyn- slóðinni sem er að vaxa úr grasi og þau verða öll sett í fangelsi fyrir það. Mér finnst það bara ekki nógu gott mál. Þau eiga að fá að drekka í friði hér á Lækjartorgi fyrst ekki er hægt að hafa þau inni. Það hlýtur að vera hægt að hafa þau í friði úti, þó að það sé náttúrlega alveg rétt að þegar menn eru að mis- þyrma samborgurum sínum þá á ekki að sýna því neina linkind. Mér þætti nú eðlilegra að bæta við fleiri löggum í staðinn fyrir að vera með svona Stóra bróður-tilburði. Þetta endar bara á því að það verður komin myndavél frá lögreglunni inn á klósett heima hjá manni. Ef maður þvær sér ekki um hendurnar kemur löggan bara og handtekur mann á tröppunum!" Húsdýragarðurínn „Húsdýragarðurinn er skemmtilegur að því leyti að hann er eins og Húsmæðragarður- inn gæti orðið, þegar hann verður settur upp. Hér fær maður innsýn í heimilishald svína og fleiri dýra. í Húsmæðragarðinum gæti maður fengið að sjá litiar stillimyndir af daglega lífinu hjá fólki. Þar yrði boðið upp á allan fjölbreytileika mannlífsins, eins og segir frá í laginu. Maður gæti t.d. staðið fyrir framan rimla og virt fyrir sér fjölskyldu sem er að snæða kvöldverð eða að leggja sig. Ég er viss um að svona garður verður gerður. Á næstu öld þegar fólk verður komið enn fjær uppruna sinum, þá verður hægt að fá að gægjast inn í gleymdan menningarheim, þegar íslenskt heimilis- hald verður orðið að safngrip. Þetta er að einhverju leyti kom- ið í Árbæjarsafninu. Þar er nokkurs konar Húsmæðragarð- ur fyrri alda.“ plötudómur Ný dönsk - Húsmæðragarðurinn: ★★ íiUitlifS®! íhujSjí Seölaveskið vegur þyngra en sjálfsvirðingin og því er það fátítt að vinsælar hljómsveitir hætti að vera til. Þær lognast kannski út af í einhvern tíma en eins og vondu karlamir í hasarblöðunum snúa þær aftur í nýjum búningum og spenna poppvöðvana framan í heiminn. í byrjun áratugarins var Nýdönsk með vinsælli sveitum á skerinu. Grípandi popplög vora þeirra ær og kýr, og nú er okkur boðið upp á fleiri slík í Hús- mæðragarðinum. Gripurinn er vissulega fallegur, umslag glæsilegt og hljómur afar góður. Byrjunin lofar einnig góðu; hæggengispopp sem minnir á Urge Overkill þegar það minnir ekki bara á Nýdönsk. Fjórða lag plötunnar er titillagið, vel samið popplag og ekki skrýtið að það skuli hafa verið valið tU að kynna hana, þvi það er besta lag plötimn- ar. Á eftir þvi er lagið ÓskUamun- ir, rokkaðasta lag plötunnar og enn virðist Nýdönsk stefna upp á við þegar baUaðan Óskýrar minn- ingar kemur eins og skrattinn úr sauðarleggnum og dregur mann niður í einhvem (húsmæðra)for- garð evróvisjonhelvitis. Þó að meðlimir Nýdanskrar séu hagvanir þar um slóðir nær plat- an ekki fyrra flugi aftur og gæti maður í raun freistast tU að halda að öUu besta efninu hafi verið komið fyrir fremst, væntanlega til að spara heilann á plötusnúðum útvarpsstöðvanna. Hefði þá ekki verið nær að gefa bara út smá- skífu? Hinn megingalli Húsmæðra- garðsins er sá að maður hefði von- ast til að eftir fimm ára fjarveru hefði hljómsveitin upp á eitthvað nýtt að bjóða. í staðinn fara þeir troðnar slóðir eða sitja bara kjur- ir. Fyrir aðdáendur sveitarinnar er það kannski nóg. En ég hefði heldur kosið að Nýdönsk hefði hent uppskriftinni sinni að hinu fullkomna popplagi og byrjað aft- ur með óskrifað blað. Því það er jú best, eins og þeir segja sjálfir. Ari „Óskýrar minningar kemur eins og skrattinn úr sauðarleggnum og dregur mann niður í einhvern (hús- mæðrajforgarð evróvisjonhelvítis. < 20 f Ó k U S 30. október 1998

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.