Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1998, Page 26

Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1998, Page 26
Gunnlaugur Jónsson frjálshyggju- maöur hefur ærlega hrist upp í fólki meö þeirrl skoöun sinni aö réttast væri aö lögleiöa fíkniefni á íslandi. Heimdallur með fund um fíkniefni Á efri hæð Sólons kl. 20,30 á miðvikudag verður fundur á veg- um Heimdallar. Á fundinum verða þær hugmyndir um hvort lögleiða skuli fíkniefni ræddar. Þetta er í framhaldi af þeirri um- ræðu sem fór fram í málefnahópi á vegum SUS og endurspeglaðist í ályktun sem samþykkt var á SUS- þinginu í byrjun mánaðarins. Sú samþykkt er að vísu ekki sú vin- sælasta hjá SUS þessa dagana og hefur yfirstjóm félagsins flengrið- ið um bæinn til að skýra út fyrir fólki „sína túlkun" á ályktuninni ásamt því að þvo hendur sinar af þessum öfgafullu frjálshyggju- mönnum. En þetta er alveg ömgglega fundur sem á eftir að hrista upp i mörgum enda verður Gunnlaugur Jónsson frjálshyggjumaður einn af framsögumönnunum en hann er einmitt einn af höfundum til- lagna SUS um frelsi einstaklings- ins, og svo mætir Margrét Frí- mannsdóttir, formaður Alþýðu- bandalagsins, á svæðið og má því búast við fjömgri umræðum um málið. bíódómar Sjónþing Hannesar Lárussonar verður haldið klukkan tvö á morgun í Menn- ingarmiðstöðinni Gerðubergi. Þar mun lista- maður renna í gegn um feríl sinn og skoðanir á listinni, listaheiminum og samfélaginu. Hannes Lnrusson listnmnöur liefur veriö hnvaðasamnri i menningarumræöunni en flestir aörir listamenn i seinni tið. Þnð má þvi buast viö snorpu sjonþingi i Geröubergi á morgun. FÓKUSMYND: TEITUR offnileg „Mln list og minnar kynslóðar er ekki sýnileg vegna pólitiskrar ákvörðunar í menningarheimin- um um að hafa þá millikynslóð sem ég tilheyri ekki sýnilega," seg- ir Hannes Lárusson myndlistar- maður. Á morgun verður sjónþing í Gerðubergi þar sem Hannes mim sýna og fjalla um ævistarfið hing- að til og viðra skoðanir sínar á listinni og menningarumræðunni. Á undanfomum árum hefur Hann- es reglulega hent sprengjum inn í menningarheiminn með skrifum í blöð og timarit. Það má því búast við líflegu þingi. Hannesi til að- stoðar verða Gunnar J. Ámason, heimspekingur og gagnrýnandi á Mogganum, og Þorgeir Þorgeir- son rithöfundur. Þeir kumpáncir munu spyrja Hannes um verkin og skoðanirnar og prjóna sjálfir við. Myndlistarverk Hannesar eru óvanaleg og margbrotin, þrungin persónulegum táknum og tilvísun- um í allar áttir. Hannes fer aðrar leiðir en aðrir íslenskir myndlist- armenn því hann hefur notað út- skurð í verkin sín á undanfomum árum - það má segja að hann skeri sig úr fyrir þær sakir. Og hann er hagleikssmiður. í Gerðubergi verða eldri verk hans á yfirlitssýn- ingu - verk frá 1978 og fram undir lok síðasta áratugar. Hins vegar mun hann fjalla meira um nýrri verk á sjónþinginu, sýna myndir og vídeóupptökur af þeim. „Það sem einkennir mín verk er kannski fyrst og fremst tungutak myndlistarinnar og myndlistin sem afsprengi menningarlegra skilyrða," segir Hannes, þegar hann er beðinn að lýsa inntaki verka sinna. Ertu pólitískur og gagnrýninn? „Mín pólitiska gagnrýni felst i því að fást við þessi menningar- legu skilyrði. Og maður verður að velta því fyrir sér hvað hægt er að sýna og hvað sé sýnt. í þvi felst pólitísk og þjóðfélagsleg gagnrýni. En ég er ekki pólitískur hvað Marx eða neitt svoleiöis varðar.“ Þú ert sem sagt aö fást við þaö hvernig veröldin birtist okkur. „Já. Hvað er sýnilegt og hvað ekki? Það virðist til dæmis full- nægja menningunni að hafa bara þessa gömlu listamenn, eins og Jón Girnnar og fleiri fugla, sem eru annað hvort áttræðir eða dauðir, sem fulltrúa framúrstefnu- listamanna á meðan aðrir fá ekki neina athygli. Og það er einmitt þetta og margt fleira sem verður rætt á þinginu á morgun og þá ekki bara út frá mér heldur list- inni sem slíkri.“ Þetta veröur sem sagt óheföbund- ið sjónþing? „Nei, ætli það verði ekki bæði og. Það sem er frábrugðið tengist forminu. Aðaláherslan verður lögð á verkin og viðfangsefni þeirra í stað ævi eða ættfræði listamanns- ins. En sjálf umgjörðin er hefð- bundin með spyrlum og stjóm- anda.“ -MT Sambíóin - Popp í Reykjavík: ★★'i Sambíóin - Popp í Reykjavík: ★★ Með nafhgifit, treileram og al- mennri kynningu hefur nýja rokk- myndin, Popp í Reykjavík, borið sig saman við hina sextán ára gömlu heimildarmynd Friðriks Þórs, Rokk í Reykjavík. Munurinn er bara að Rokkið var sönn heim- ild, myndin náði stemningu sem var virkilega í gangi og gerði lítið til að fegra hlutina, en Poppið er uppsett dæmi. Aðstandendurnir hugsa: Þetta finnst okkur flott, svona ákveðum við að láta ástand- ið á íslenska rokkinu '98 líta út. Kannski er þetta gert vegna þess að búist er við að myndin verði lyfti- stöng fyrir islenska tónlist erlendis og aðstandendumir hafa dregið þá ályktun að best sé að láta útlend- ingana sjá eitthvað sem er dálítið artí og hugsanlega eins og eitthvað svipað og er í gangi í útlöndum; m.ö.o. „samkeppnishæft". Þess vegna fá sveitaballa- og poppbönd- in ekki að vera með, þess vegna sést enginn af eldri kynslóðinni og þess vegna er ekkert band með af lands- byggðinni. Ef Poppið ætti að vera sönn heimild væri Skítamórall að- albandið í myndinni og farið yrði á sveitaball með Stuðmönnum. Reynt er sem sé í Poppinu að hæpa eitthvað upp sem er ekkert sérlega vinsælt „meðal almenn- ings“ og segja að það sé gott, að þar sé „gróskan", sem má vel vera að sé alveg satt. Ágæt breidd er i myndinni, þetta er góður þver- skurður, en hún er samt sögufols- im og ekki sá samtíðarspegill sem skemmtilegra hefði verið að hún væri. Það er ekki nema með stutt- um myndskeiðum af fullum krökk- um að slást niðrí miöbæ að þessi mynd verður með sanni íslensk. Hvað sem þessu líður er þetta að stærsta leyti skemmtileg mynd. Al- veg eins og í Rokkinu breytast luralegir rokkarar með litla sviðs- framkomu í æsta stuðbolta sé kamerunni beint að þeim og í við- tölum reyna allir að toppa alla með sniðugheitum og frumlegu vali á viðtalsumhverfi. Páll Óskar er rauði þráður Poppsins, dregur áhorfendur með sér um miðbæinn að næturlagi og malar skemmti- lega um ýmislegt, auk þess að af- klæðast með fatafellum. Fyrst SkítamórEd vantar er séns að krakkamir flykkist i bíó til að sjá í rassinn á Palla. Aðrir hápunktar eru viðtölin við Vínil (opinbera hvað gerðist á Raufarhöfh), Stolíu (eru eins og aular úr Coen-bræðra- mynd), Botnleðju (detta íða með kameruna yfir sér), DJ Adda (þyk- ist vera vélmenni) og Quarashi (bulla bara). Mörg önnur viðtöl eru fremur flöt og frasinn „það væri gott ef við gætum lifað á þessu“ sagður einum of oft. Það hefði mátt minnka vægi viðtalanna, enda tjá flestar hljómsveitir sig betur með tónlist. Tónlistin sjálf er oftast góð; Spit- sign, Sigur Rós, Maus og Botnleðja koma sérstaklega vel út. Staðsetn- ing tónleikanna (Héðinshús og Loftkastalinn) verður þó fljótlega einhæf en því er reddað eins og hægt er með flottum klippingum og fjölbreyttri kvikmyndatöku. Hljóm- urinn er líka frábær og vonandi að myndinni veröi áfram blastað jafn hátt og á frumsýningunni. Tækni- lega séð er þetta því fin rokkmynd. Magga Stína segir í sínu viðtali að henni finnist vera orðið óþarf- lega mikið komið inn í íslenska tónlist til að hún eigi möguleika á að gera eitthvað í útlöndum. Þetta má yfirfæra á myndina sem reyn- ir fullmikið að vera „samkeppnis- hæf ‘ og Damon Albam er jafnvel fenginn til að sýna andlegan stuðning. Það er hellingur að ger- ast í rokkinu á Islandi eins og þessi mynd sýnir og bara vottur um landlæga minnimáttarkennd og útlendingasnobb þegcir þarf að leita til sjúskaöra poppstjama til að segja okkur hvað við erum æð- isleg. Gunnar Hjálmarsson Á miðvikudögum starfa ég á SPACE hárstúdíó, Rauðarárstíg 41, frá kl. 9-18. Aðra daga er ég í Hveragerði á stofu minni, Hjá Sollu. Solveig Pálmadóttir Rauöarárstígur 41 S. 551 3430 hjá sollu hárgrelðslustofa 'PÆ sifijijni3í|2Jíj ,Helsti kostur myndarinnar er að hafa Palla svona í miðdepli.“ Það verður að við- urkennast strax í byrjun að gamal- mennið ég er orðið svo dense að ég náði alls ekki gítargjöm- ingnum sem fluttur var á undan frumsýn- ingunni á Poppi í Reykjavík. Kannski gaf þetta slæman tón fyrir vanhæfni mína (sökum aldurs) til að dæma mynd sem svo greinilega er við yngra fólk. En ég er allavega ekki orðin of gömul til að þekkja úr lélegt hæp, líkt og það sem felst í þvi að láta fólk bíða fram úr hófi fyrir utan hinar og aðrar luktar dyr; kannski átti þetta að minna á Kaffibarsröðina sem var í bak- granni Páls Óskars þar sem hann talaði fjálglega um frægðina? Ann- ars var það helsti kostur myndar- innar að hafa Palla svona í mið- depli, og það hæfði honum einstak- lega vel að bera myndina uppi með skemmtilegum kommentum og El- vis-jakkanum. Tónleikamyndir af þessu tagi era ekki auðvelt viðfangsefni, ein- faldlega vegna þess að alltaf er mjög takmörkuð hamingja fólgin í þvl að horfa á fólk spila á hljóð- færi í 2 tíma. Enn erfiðara verður verkefnið þegar um er að ræða margar ólíkar hljómsveitir og mjög mismunandi (og misgóða) tónlist en þá getur áhorfandinn ekki einu sinni treyst á tónlistina. Og þetta var helsta vandamál Popps í Reykjavík: rysjóttur takt- ur, blindandi leiðinlegur á köflum, en með þónokkram smart mó- mentum. Annað vandamál er að sjáifsögðu tilvísunin stóra og er nú aftur komið að aldri gagnrýnand- arinnar. Líklegast er ég fjötruð í fortíðarþrá þegar ég segi að poppið standist rokkinu ekki snúning. Popp í Rvík tekur sér Rokk í Rvík mikið til fyrirmyndar með tilheyr- andi viðtölum við tónlistarfólk, umræðum um eiturlyf og áberandi áhrif áfengis. Viðtöl þessi áttu að einhverju að leyti að vera paródísk (vona ég), meðvituð og sjálfshæðin stæling á Rokkinu, með smáskoti á þann veruleika sem þar var til umræðu og deilna. En einhvem veginn gekk þessi til- vísanaleikur ekki vel upp og sam- anburðurinn var engan veginn Poppinu í hag, viðtölin flest frem- ur óáhugaverð og rislág. Með nokkrum finum vísúal- sprettum og ánægjulegri leiðsögn Páls Óskcirs um næturlífið þá er Popp í Reykjavík alls ekki slæmt sem kynning á tónlistarmenningu nútímans - og tónlistin sjálf var fín. Úlfhildur Dagsdóttir T 26 f Ó k U S 30. október 1998

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.