Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1998, Side 29

Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1998, Side 29
í Snákaaugumí Brian De Palma, sem framsynd verður í dag, “ i leikur Nicholas Cage löggu í Atlanta n Ísem verður vitni að morði méðan á hnefaleikakeppni stendur inake VÉmamiálarádhéiY'a myrtur & hneláleikakeppni Snake Eyes, sem frumsýnd er í dag í þremur bíóum, Bíóhöllinni, Kringlubíói og Stjörnubíói, gerist að langmestu leyti innan stórrar íþróttahallar. í aðalhlutverki er Nicholas Cage sem leikur lög- reglumanninn Rick Santoro sem starfar í Atlanta. Hann eins og fjórtán þúsund aðrir íbúar borgar- innar bregður sér á hnefaleika- keppni þar sem barist er um heimsmeistaratitilinn. Er hann í fylgd með vini sínum, Kevin Dunne, sem er háttsettur foringi í hemum og vinniu- náið með varn- armálaráðherra Bandaríkjanna. Þegar Dunne snýr baki í ráðherr- ann er hann skotinn og myrtur. Allir í höllinni eru nú grunaðir um morðið. Til þess að enginn sleppi út er íþróttahöllin nánast einangruð meðan rannsókn stendur yfir. Reynsla Ricks er dýrmæt og hann er því fenginn til að aðstoða við leitina að morðingjanum. Þrjú vitni eru talin geta hafa séð hver var morðinginn, dularfull kona sem var að tala við ráðherrann rétt áður en hann var skotinn, heimsmeistarinn í þungavigt, sem var að keppa, og Kevin Dunne sem hafði staðið viö hlið ráðherr- ans en snúið sér að öðru rétt áður en hann var skotinn. Öll þrjú em látin segja sína sögu og út frá því býr Rick til atburðarás sem sýnir að líklega er um samsæri að ræða sem fleiri en einn á aðild að. Auk Nicholas Cage leika í Sna- ke Eyes Gary Sinese, sem leikur Dunne, John Heard, Carla Gug- ino og Stan Shaw. Leikstjóri er einn af stóru leikstjórunum í Bandaríkjunum, Brian De Palma. Hann segir um mynd sína: „Fyrstu tuttugu mínútumar er stanslaus keyrsla fram á við en þegar Rick fer aö púsla hlutunum saman er meira um að farið sé nokkrar klukkustundir aftur í tímann og atburðimir séðir frá mismundandi sjónarhorni." Cage segir að mikil keyrsla hafi verið þegar fyrstu tuttugu mínút- umar vom teknar: „Brian vildi taka atburðarásina í réttri röð og á sem stystum tíma. Yfirleitt vil ég taka mér góðan tíma í lestur á textanum áður en kvikmyndað er en þar sem Gary og ég þurftum mikið að tala meðan á þessari hröðu atburðarrás stóð og lítill tími var til að fara yfir textann var þetta líkara því að leika á sviði en í kvikmynd en allt tókst þetta og það verður að þakka kraftinum í Brian að ekkert fór úrskeiðis." Snake Eyes var að mestu kvik- mynduð í Atlanta en Atlantic City Boxing Arena, þar sem hnefa- leikakeppnin fer fram, er þó ekki til og höllin sem notuð er í kvik- myndinni er fræg íshokkíhöll sem er í Montreal og tók þessi fom- fræga íþróttahöll, sem heitir ein- faldlega Forum, miklum breyting- um meðan á kvikmyndatökum stóð. -HK Species II í þetta sinn tekur geimveran sér bólstaB í líkama karlmanns, sem barnar hverja konuna á fætur annarri af geimbörnum (hann er jú hetja) og ætlar sér heimsyfirráö án dauöa. Þessi framhaldsmynd fellurí allar þær gildrur sem framhaldsmyndir eiga á hættu og virBist vera aB framhalda fleiri en einni mynd, Terminator II, Aiiens, Invasion of the Body Snatchers, Xtro og Insemnoid. -úd < Sliding Doors Paltrow er Helen, ung kona á uppleiB, þegar hún er óvænt rekin af hópi karlremba og líf hennar tekur stakka- skiptum tvöfalt. Leikurinn er almennt góBur en þó handritiB innihaldi heilmikiö af skemmtileg- um punktum og klippingarnar milli sviBa/veru- leika séu oft skemmtilegar þá vantar hér ein- hvern herslumun. -úd Regnboginn Halloween: H20 ★★★S/'á gagnrýni ÚLfhildar Dagsdóttur hér á opnunni. Dr. Doolittle ★★★ Þaö kom mér á óvart hversu lítiö púöurvarí handriti Nat Mauldin og Larry Levin, en sagan serp slík heföi átt aö tryggja fjörmeiri og eftirminnilegri mynd. Gam- an er aö ærslunum í Eddie Murphy, en Dag- finnur olli mér vonbrigöum. -ge Phantoms ★★★ Phantoms inniheldur mikiö af mögnuöum senum og sitúasjónum sem gera hana bara nokkuB eftirminnilega. ÞaB er fátt sem kemur á óvart, en hér er unniö vel úr gömlum tuggum, og meö vel völdum og ágæt- um leikurum má vel hrylla sig (ánægjulega) yfir þessari. -úd The X-flles ★★ Einhvern veginn þýddust ráö- gáturnar illa á stóra tjaldiö. Þarna er sannleik- ann bak viö þættina aö finna en þaö er eins og aöstandendur hafi aldrei almennilega get- aö gert upp viö sig hvort gera skuli langan sjónvarpsþátt eöa bíómynd. David Duchovny sýnir enn og sannar aö hann er og veröur aldrei annaB en þriöja flokks sjónvarpsleikari meöan Gillian Anderson ber breiBtjaldifl betur. -úd _ Stjörnubíó Les Mlsérables ★★★ Bille August er á heimavelli en honum lætur vel aö kvik- mynda miklar skáld- sögur og áhorfandinn fær þaö ekki á tilfinn- inguna aö efniö sé sótt f 1.500 síöna bók. Hér er á feröinni ágætis skemmtun og saga sem svíkur eng- an. -ge The Mask of Zorro ★★★ Þeir nafnar og félag- ar Antonio Banderas og Anthony Hopkins náöu einhvern veginn aldrei sérlega vel sam- an f þessari mynd um tvær kynslóöir skylm- ingahetjunnar Zorró. Hins vegar mátti vel skemmta sér yfir þessum ýktu hetjulátum og útblásnu rómantfk og myndin var ákaflega áferflarfalleg, glæsileg og giamúrus og flott og smart, en einhvern veginn vantaöi herslumuninn. -úd Imeira á. www.visir.is bíður þín! Þú þarft hvorki að vera Ríkur og undarlegur (1932) að eiga erindi í Bóksölu stúdenta. Hvort sem þú ert Ungur og saklaus (1937), lllræmdur (1946) eða Brjálæðingur (1960) þá tökum við vel á móti þér. Maðurinn sem vissi of mikið (1956) og Rangi maðurinn (1956) hafa aldrei sést hér innan dyra. Þó 39 þrep (1935) liggi upp á efri hæðina hjá okkur, hefur Lofthræðsla (1958) ekki hrjáð viðskiptavini okkar og Sviðsskrekkur (1950) er óþekktur. Ég játa (1953) að einstaka Dama hverfur (1938) ofan í bækurnar eins og í álögum (1945) sé, og hef Grunsemdir (1941) um að það sé Ráðabrugg fjölskyldunnar (1976) að leggjast í viðskipti við okkur. Því við eigum Án nokkurs vafa (1943) bækur fyrir alla hópa, hvort sem þú vilt lesa um Fuglana (1963) eða fræðast um Topaz (1969) eða aðra eðalsteina. Hringdu í M fyrir morð (1954) en í síma 5700 777 ef þú vilt ná sambandi við sérpöntunarþjónustu okkar, sem er Björgunarbáturinn (1944) sem aldrei bregst. Þú getur líka pantað bækur beint af heimasíðunni www.boksala.is. Við erum til húsa í Stúdentaheimilinu við Hringbraut, Norð-norð vestur (1959) af Norræna húsinu. bók/^lk /túdeixtðL -hörkuspennandi verslun! 30. oWóber 1998 f Ókus 29

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.