Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1998, Page 10

Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1998, Page 10
meira öl VAIWUUU VI Líf utan Biarka unnar Móa og Magga Stína fá líka frábæra dóma! Grein hér í Fókusi fyrir tveim- ur vikum, þar sem sagt var frá slæmum dómum sem Móa og Magga Stína hafa fengið í erlend- um blöðum, vakti mikil viðbrögð, enda ekki vaninn að segja frá lé- legum dómum á íslandi. Tilgang- urinn með greininni var ekki að velta sér upp úr hrakförum popp- aranna heldur að benda á það leið- inlega fúsk sem oft vill einkenna skrif erlendra poppskríbenta; það þegar þeir umsvifalaust dæma ís- lenskar söngkonur sem Bjarkar- stælingu vegna framburðar og þjóðemis. „Poppað í skugga Bjark- ar“ gæti alveg eins hafa verið fyr- irsögnin. En auðvitað era tvær hliðar á þessu máli eins og öðra. Þó nokk- uð margir skríbentar sjá út fyrir skuggann, meta þær Möggu og Móu út frá eigin verðleikum og skrifa mjög jákvætt um þær. Móa ásamt bandinu sínu er á fullu svíngi um Bretlandseyjar þessa dagana. Túrinn byrjaði 4. nóvember og þotið er borga á milli og spilað samtals á 12 tónleikum með hljómsveitinni Electrasy. í kvöld era tónleikar í Leeds en túr- inn endar á morgun í Glasgow. Móa er að keppa með plötunni sinni á erflðasta tímanum í brans- anum, jólaplötuflóðiö skellur á í Bretlandi eins og hér, en þrátt fyr- ir það hefur hún fengið mikla um- fjöllun. Evening Standard var ný- lega undirlagt í viðtali við söng- konuna og í nýjasta hefti Esquire er löng grein um Móu og þar sagt að hún sé nýjasta poppgoð íslend- inga. Báðar smáskifur hennar, „Memory cloud“ og „Joy & pain“, fengu ágætis dóma víða, t.d. 4 af 5 í snúðablaðinu Mixmag. Stóra platan hefur og fengið jákvæða umfjöllun, t.d. 8 af 10 í karlablað- inu Esquire, jafn góða einkunn og nýja Beck-platan og hærri ein- kunn en nýja R.E.M.-platan. Þá mælir tímarit Tower-plötubúð- anna með plötunni í jólapakkana. Magga Stína hitar upp fyrir Björk á þrennum tónleikum í næstu viku, í Manchester, Birmingham og London. Hún er Hafnarfjarfiarlelkhúslð gefst ekki upp. Síðastl bærlnn í dalnum verður leikinn á sunnudaginn kl. 14 vegna fjölda áskorana. Það eru örfá sæti laus og síðan er bara að sjá hversu lengi þeir munu leika þessa síöustu sýningu sína. Síminn í Hafnarfjarðarleikhúsinu er 555-0553. Mögulelkhúslð við Hlemm. Göðan dag, Elnar Áskell, eftir Gunlllu Bergström er sýnt í allra siðasta skipti á sunndudaginn kl. 14. Það má enginn aðdáandi Einars missa af þessu verki. Það var ótrúlegasta fólk sem sótti um handríts- styrk hjá Kvikmyndasjóði íslands í síðustu viku. Um miðjan nóvember myndast Þorláksmessu- stemning í Kvikmynda- sjóði íslands við Tún- götu. Yfir hundrað manns mæta, eftir ómælda vinnu við umsóknir, til að bítast um hundrað millur. Mestur hluti fer til að framleiða myndir, eitthvað í að eftirvinna og restin í handrítsstyrki. Mikael Torfason fór og sótti um handrítsstyrk í síðustu viku. Ea fæ engan mun deyja Þorláksmessa hjá (tllvonandl) kvikmyndagerðarmönnum. Hvab skyldi stóri bróður gefa þeim þetta áriö? og úr hungri Það er gengið upp tröppur og hugsa ég með mér. Nei, er hún Elín og Sigursteinn fara á und- stjóra. Við Jonni erum sem sagt fengið sér sæti í biðstofunni. Báð- um megin eru inngangar sem leiða að skrifstofum merktum annaðhvort „Handritsumsóknir" eða „Framleiðsluumsóknir". Alls staðar er fólk. Þetta er Þorláks- messa kvikmyndageirans ís- lenska. Margir búnir að vaka yfir stafsetningu og svoleiðis í alla nótt. Nokkrir með bauga. Það era þessir sem hafa aldrei fengið neina styrki, held ég. Upp stigann kemur maður með fullann kassa af handritum. Ég spyr hann hvaðan hann sé. Kvik- myndasamsteypan (Frikki kol- krabbi) sendi hann. Þetta er bíl- stjóri. Hann fer þrjár ferðir með kassa. Fær sérmeðferð. Hendir meistarastykkjunum bara á gólfið og rýkur út. Þarf ekki að bíða eins og við, hálfvitamir. Já, við bíðum af því að okkur er ekki treyst til að gera umsókn. Það þarf að fara yfir hjá okkur og athuga hvort við höfum fyllt umsóknina rétt út. Sigursteinn Másson mætir með risastóran plastpoka. Hvem fjandann er hann að gera þama? Einhver spyr og hann segist vera með sitt lítið af hverju. Það er handritsstyrkur. Hann fer alla vega í þá biðröðina. Ég heyri á samtali að Hallgrímur Helgason hafi verið þama fyrr um daginn. Sagan segir að hann hafi sótt um handritsstyrk. Nokkrir fleiri mæta og dreifa sér um húsnæðið eða fá sér kaffi og vínarbrauð. Kemur ekki Elín Hirst og kyss- ir Sigurstein. Era þau saman? ekki með þessum framkvæmda- gæja? Ég man það ekki. Vildi óska að ég vissi það. Hvar er Séð og heyrt þegar maður þarf á því að halda? Elín er að fara að sækja um handritsstyrk. Hvað er það? Hvem fjandann hefur hún að gera við styrk úr Kvikmyndasjóði. Þetta sjóðasukk er komið út í tómt kjaftæði. Hvemig get ég, blaðasnápurinn, keppt við fólk sem er á skjánum á hverju kvöldi. Það líta allir á Elínu sem systur sína. Meira að segja ég. Mér þyk- ir vænt um hana þar sem ég sit og stari á hana. Hún er svo sæt og góð. Ég man eftir henni í gegnum öll þessi snjóflóð, jarðskjálfta og þetta með Clinton. Hún sat bara þama rétt hjá mér og sagði mér allt af létta. Ætti ekki að banna svona rosalega frægu fólki að sækja um styrki? Elín Hirst fær pottþétt handritsstyrk. Alla vega gæti ég ekki hugsað mér að synja henni um peninga. Ég er kallaður upp. Lít í kring- um mig. Allir stara á mig og ég kann illa við athyglina. Höndla ekki að fara á undan Elínu, Sigur- steini og þessum frægu. Vild’ ég hefði bara farið fyrir helgi. Þá hefði ég bara verið einn og i róleg- heitunum. Af hverju mæta allir í dag? Klukkan er fimm mínútur í flögur og umsóknarfresturinn rennur út eftir fimm mínútur. Kvikmyndagerðarmenn eru engir smá letihaugar. Óskipulagðir, í það minnsta. an mér. Já, ég gat ekki annað en leyft þeim að fljóta. Ekki langt i fréttir og ég vildi ekki hafa það á samviskunni ef Elín mætti of seint eða óundirbúin. Það myndi gjörsamlega ganga frá mér. Konan yrði líka ekkert ánægð ef ég væri að eyðileggja fyrir okkur frétta- tímann bara til að þurfa ekki að biða í biðröð. Áður en ég veit af er ég búinn að heyra að enginn af þeim stóra hafi mætt. Friðrik Þór sendi bíl- stjórann og Ágúst og Hrafn kon- urnar sínar. Hrafn var víst veikur og kannski sótti Ágúst ekkert um neinn styrk. Er bara búinn að gef- ast upp á krabbanum og öllu því. Það sem ég tek eftir er að kvik- myndabændur (þá minni spá- menn, en spámenn engu að síður) era ekki bjartsýnir á hversu mik- ið fiárlaganefnd mun henda í þá. í fyrra voru það áttatíu millur og í ár var búist við tuttugu til fiöra- tíu milljónum til viðbótar. Góðær- ið átti að skila sér í styrkjum. En nú eru menn og konur sem sagt svartsýn. Sumir með þá kenningu að vælið í Ágústi pirri fiárlaga- nefnd og því muni hún ekki hækka framlagið eins mikið. Það er sem sagt spáð og spekúlerað og svo er ég einn eftir. Tölti mér inn á skrifstofu. Nán- ast þögn í húsinu fyrir utan að ég sé Jonna Sigmars (Ein stór fiöl- skylda og handritið af Veggfóðri) sitja inni á skrifstofu. Þorfinnur Ómarsson eða einhver álíka situr á móti honum og minnir á skóla- látnir sitja eftir. „Vá, hvað þetta er flott mynd,“ segir starfsmaður Kvikmynda- sjóðs þegar ég rétti henni um- sóknina (í fiórriti) og sest fyrir framan skrifborðið. Ég kinka kolli og reyni að lesa í það hvort það sé jákvætt að hafa flotta mynda á forsíðu. Ég er næst- um því búinn að spyrja hana hvort ég fái einhverja peninga en þá man ég eftir því að hún er ekki í nefnd- inni. Guðni Elísson, Salvör Nor- dal og Steinunn Sigurðardóttir sjá um þann pakka. Þá dettur mér í hug hvort ég ætti að hringja í þau eða láta einhvem hringja. Finna handrukkara og bjóða honum að skipta peningunum með honum. Kúga þessa nefndarkjána til að gefa mér peninga. „Þetta er mjög fínt,“ segir starfsmaðurinn og brosir. Réttir mér kvittun og stendur upp. Er það gott? hugsa ég með mér og man ekki í augnablikinu af hverju ég kom hingað. Man ekki einu sinni hvaða hugmynd ég skrifaði í fiórriti og skilaði inn. Finn fyrir fótunum, ég er á leið- innni út, og rétt rámar í að mér hafi fundist hugmyndin alveg brillíant þegar ég skrifaði hana. Besta mynd á íslandi, fyrr og sið- ar! En þá man ég eftir Elínu, Hall- grími, Sigursteini og veit að ég fæ engan helvítis styrk og mun deyja úr hungri eða bara að ég gef skít í þetta allt saman og skrifa hvort sem verður. -MT með Bikarmeistarana með sér svo jafnvel þröngsýnustu skugga- blaðamenn ættu að hrífast af því þétta prógrammi. Plata Möggu - „An album" - hefur fengið mjög góða dóma í Daily Telegram og Wire, sem sagði hana hegða sér eins og stálhressa en heimilis- lausa úlfynju í tónlistinni. Magga er nýkomin frá Kúbu þar sem hún var að heimsækja Diddu vinkonu sína og gera splattermyndband fyrir lagið sitt „I-Cuba“. -glh Öll fjölskyldan samein- ast I Geröubergl á sunnudaginn klukkan tvö. Þar gefst bókaorm- um og öðrum lestrar- hestum á öllum aldri kostur á að hlýða á barnabókahöfunda lesa úr nýútkomnum bókum sínum. Þetta eru höf- undarnir: Þorvaldur Þorstelnsson, Hrafn- hlldur Valgarðsdóttlr, Bergljót Arnalds, Svelnbjörn I. Bald- vlnsson, Slgrún Eld- Járn, Helgl Guð- mundsson, Yrsa Slg- urðardóttlr, Anna Dóra Antonsdóttlr og Krlstín Helga Gunnarsdóttlr. Auk alls þessa mætir pianó- leikarinn Snorrl Slgfús- son ásamt Aöalsteini og Önnu Pálfnu og þau veröa að sjálfsögðu þer- rössuö á tánum við að kynna nýju þarnaplötuna sína. Og það sem meira er: Það kostar ekkert inn! Iðnó sýnir ævintýrið Dimmalimm fyrir fullu húsi á sunnudaginn kl. 16, þaö er sem sagt uppselt. En síminn er 530-3030 fyrir þá sem vilja panta miða á sýninguna 6. desember en þaö er ekki uppselt á hana. fslenska óperan. Matarævin- týrið Ávaxtakarfan verður sýnt á sunndaginn en það er þara uppselt á báðar sýning- arnar sem verða þann dag- ínn. En það eru örfá sæti laus í næstu viku og um að gera fyrir þá foreldra sem vilja kenna þörnunum að haga sér vel í kringum önnur ávaxta- börn að panta sér miða. Sím- inn í Öperunni er 551-1475. Snuðra og Tuðra eftir Iðunni Stelnsdóttur er sýnt í Mögulelkhúsinu við hlemm. Þaö er því miður uppselt á sýninguna kl. 14 á morgun en um að gera fyrir foreldra aö fá sér miða kl. 16 en þá eru örfá sæti laus. Síminn er 562-5060. Á Stóra sviöi Þjóðleikhússlns er aukasýning á Bróður mín- um LJónshJarta á morgun kl. 14. En hún gagnast litið því það er uppselt á hana og líka á sunnudagssýninguna. Það er því ekkert að gera annað en að hringja f síma 551- 1200 og panta sér miða á sýninguna sem veröur 29. desember (örfá sæti laus). 10 f Ó k U S 20. nóvember 1998

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.