Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.1998, Blaðsíða 7
MÁNUDAGUR 23. NÓVEMBER 1998
dv Fréttir
Góður hagn-
aður Skag-
firðings
DV, Skagafirði:
Eitt hundrað og fimmtíu milljóna
króna hagnaður varð af rekstri Fisk-
iðjunnar Skagfirðings á síðasta
rekstrarári. Þar sem þetta er í fyrsta
skipti sem rekstrarárið er það sama
og fískveiðiárið eru niðurstöðutölur
ekki sambærilegar við fyrra ár en
ljóst að útkoman er betri en vonir
stóðu til fyrir fram.
Alls námu tekjur tæplega 2,2 millj-
örðum króna en gjöld tæplega 1,7
miiljörðum. Hagnaður fyrir afskriftir
og fjármagnskostnað nam 506 milljón-
um króna. Fiskiðjan gerði út flmm
skip á árinu og voru úthlutaðar afla-
heimildir í byijun þessa veiðiárs alls
15.084 tonn. Framkvæmdastjóri Fisk-
iðjunnar/Skagfirðings er Jón Frið-
riksson. -ÖÞ
Þóra Bragadóttir, formaöur Ferða-
málasamtaka Suðurnesja, og Magnús
Oddsson ferðamálastjóri klippa á
borðann í tilefni af heils árs opnun
Upplýsingamiðstöðvar fyrir ferða-
menn f Leifsstöð. DV-mynd Arnheiður
Leifsstöð:
Upplýsinga-
miðstöð opin
allt árið
DV, Suðurnesjum:
Upplýsingamiðstöð fyrir ferðamenn
verður nú í fyrsta sinn opin ailt árið. I
tilefni þess að um fyrstu vetraropnun er
að ræða var formleg athöfn á staðnum á
dögunum. Ferðamálasamtök Suður-
nesja í samstarfi við sveitarfélög og
ferðaþjónustuaðila á Suðumesjum hafa
rekið upplýsingamiðstöðina yfír sumar-
mánuðina frá árinu 1991. Það eru sveit-
arfélög og Byggðastofhun sem hafa fjár-
magnað reksturinn en á síðustu árum
hefur fjárveitingavaldið komið að þessu
með styrkjum til landshluta.
Nú í ár kom bein fjárveiting til
Ferðamálasamtaka Suðumesja og
Ferðamálaráðs íslands sameiginlega til
reksturs Upplýsingamiðstöðvar i Leifs-
stöð. Upplýsingamiðstöð þessi er fyrir
allt landið þannig að upplýsingamar
miðast ekki eingöngu við Suðumes. Um
90% allra erlendra ferðamanna koma til
landsins í gegnum Leifsstöð og það ger-
ist æ algengara að fólk komi á eigin veg-
um, því er þessi miðstöð nauðsynleg.
Formaður Ferðamálasamtaka Suður-
nesja er Þóra Bragadóttir og ferðamála-
fúlltrúi er Johan D. Jónsson. -AG
7
þitt tækifæri
Beint
fraktflug
til/frá Boston
Beint fraktflug er hagkvæmasta og árangursríkasta leiðin fyrir
innflytjendur sem vilja fullnægja kröfum nútímans um skjót
viðbrögð og hraða í vöruflutningum á milli íslands og
austurstrandar Norður-Ameríku.
Fraktvél Flugleiða flýgur alla sunnudaga til og frá Boston.
Fraktflug með áætlunarvélum Flugleiða frá Minneapolis,
New York, Boston, Baltimore, Orlando og Halifax í Nova Scotia
í Kanada. Yfir 30 ferðir í hverri viku!
Hafðu samband við sölumenn í síma 50 50 401 .
FLUGLEIÐIR
F R A K T i
Nú fer hver að verða síðastur að fá sér viðargólf með 25% afslætti
o o
Fákafeni 9
Símar 588 1717 og 581 3577
Umboðsmenn um allt land
Teppaland
GÓLFEFNI ehf.