Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.1998, Page 11

Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.1998, Page 11
MÁNUDAGUR 23. NÓVEMBER 1998 11 Akraneskaupstaður: Minni lántökur DV, Akranesi: Fjárhagsáætlun Akraneskaupstað- ar fyrir 1999 var lögð fram til fyrri um- ræðu í bæjarstjóm Akraness 17. nóv- ember. Síðari mnræða verður 8. des- ember.“ Áætlað er að tekjur hækki um tæp 5% og verði 867 milljónir króna. Heildarrekstrargjöld á næsta ári em áætluð 748,7 m.kr. Af rekstrarliðum taka skólamálin mest til sín, 323,7 m.kr. eða 43,2% af rekstrargjöldum. Félagsþjónusta 135,0 m.kr. eða 18,0% og æskulýðs- og íþróttamál 69,7 m.kr. eða 9,3% . Mjúku málaflokkamir taka því tíl sín samtais 528,4 m.kr. eða 70,5% af rekstrarútgjöldum," sagði Gísli Gíslason bæjarstjóri við DV. „Samanburður rekstrargjalda milli ára er að svo stöddu erfiöur m.a. vegna uppgjörs á starfsmati á síðasta ári og nokkurra annarra atriða, en ijóst er að laun og launatengd gjöld nema um 63% af rekstrarkostnaði. Þeir liðir hækka um 4% strax 1. janúar nk. Þeg- ar rekstrargjöld hafa veriö dregin frá tekjum em um 118 m.kr. eftir til ráð- stöfúnar eða um 13% af tekjum og eft- ir aö greiddir hafa verið vextir og af- borganir standa eftir um 26,9 m.kr. Þegar búið er að taka tillit til gjald- færðrar og eignfærðrar fjárfestingar er áætluð lántaka 53,4 m.kr. sem er um- talsvert lægra en nokkur undanfarin ár. Það hefur í för með sér niður- greiðslu lána um 33,7 m.kr. Óvissa er varðandi rekstrarframlag til Dvalarheimilisins Höfða en verið er að vinna að áætlun fyrir heimilið. Stærsta framkvæmdin á næsta ári er áframhaldandi undirbúningur við grunnskólana vegna einsetningar og lagningar slitlags á Leynisbraut, Still- holt og Hafnarbraut," sagði Gísli. -DVÓ Sauðárkrókur: Nýr vinnustaður fatlaðra DV, SkagaindL Nýendurbætt húsnæði sem fatlaðir á Sauðárkróki munu nota i framtíð- inni var formlega afhent Svæðisskrif- stofú um málefni fatlaðra á Norður- landi vestra fyrir skömmu. Húsnæðið er í eigu Kaupfelags Skagfirðinga og sá það um gagngerar endurbætur sem gerðar voru með þarfir fatlaðra í huga. Þær hófúst snemma í sumar. Svæðisskrifstofa fatlaðra hefúr tekið húsnæðið á leigu til nokkurra ára. í því verður þríþætt starfsemi. Þar verð- ur æfingaaðstaða, endurhæfing og vinnuaðstaða fatlaðra. Sveinn Allæi Mortens, forstöðumaður skrifetofúnn- ar, sagði að þetta nýja húsnæði væn bylting fyrir þá 25-30 einstaklinga sem daglega sæktu í þjónustumiðstöðina. Hún hefúr undanfarin ár verið á þriðju hæð í húsnæði kaupfelagsins við Ártorg. Það húsnæði var orðið alltof lítið fyrir þessa starfsemi. Sveinn Alian sagðist afar ánægður með nýja húsnæðið sem væri um 170 m að stærð. í því eru tvær stórar vinnustof- ur, eldhús, boröstofa, hvíldarherbergi ásamt snyrtingum. Hann færði for- svarsmönnum kaupfélagsins þakkir fyrir að hafa staðið að endurbótum á húsnæðinu af sérstökum myndarbrag. Ámi Ragnarsson, arkitekt á Sauðár- króki, hannaði breytingamar. -ÖÞ Fulltrúar fatlaðra við athöfnina. Frá vínatri: Aðalheiður Bára Steinsdóttir, Steinar Þór Bjömsson og Sigríður Effa Eyjóffsdóttir. DV-mynd Öm ¥ ¥ * * * Fegxtröai samkeppni f Islands Hérra Island * lliL " V ¥ *% I •# f' .BRQADWi K.ryitdui* * hi i < lati way ! lail.udag'im. c - vumhei' ^ BnrúJi vic uetsr. kl. 19:30. Kvnmr: Bjanu Oiatu:‘(ruðinundsson. ¥ M itseðilí: ■ i»niiykkiu‘: ¥ (bo(» Ho) Idverslunai' Kaví - »• Karlssonar. * Glæs:'r-odsta uiaðborð ^ ianosi;. meo urvali ai k if sk pasta- o|J' o' isrettum. Kfi '. r* ttir, «. fjóiiiir ; oav tegundir. Skemmriatriði; ¥ ' aan .■ kafiar úr ABB.. svuingunni. * Daiisiit.1 ioi itndir stjorn K-iUn Hiui. Ý Vevd kr. ‘.Sd'. :.9óO ettir kl. 21:30. Fegurðarsamkeppni íslands þakkar eftirtöldiun aðálnm: FACE ŒCWAm GuðmuDdur HenBaosaoa úrsmiður Canon KARL KARLSSON ^taésio. GoodLife Bralarvcgs Fréttir Flateyri, ísaQaröarbæ: Náðhús vefst fyrir bæjarapparatinu DV; ísafjarðarbæ: Við tjaldstæöið á Flateyri stóð eitt sinn veglegt náðhús sem eyði- lagöist í snjóflóðinu árið 1995. Allar götur síðan hefúr engin aðstaða ver- ið fyrir tjaldstæðisgesti til að gera þarfir sínar, önnur en opin svæði eða húsagarðar í nágrenninu. Flateyringurinn Siguröur Haf- berg hefúr haft af þessu miklar áhyggjur og lagði til að kamri yrði fúndinn staður i íþróttahúsinu og það fellt inn í lokafrágang hússins. Sagði Sigurður að það heföi hentaö mjög vel þar sem húsið er alltaf vaktað. Ekki fúndust þá þau 500 þúsund sem herlegheitin áttu að kosta svo áfram sat við það sama. í sumar ítrekuðu kamaráhugamenn á Flateyri óskir um úrbætur og höfðu menn þá í huga leigu á færanlegum kamri, en ekkert gerðist. Að sögn Sigurðar var ástæðan sögð sú að það vantaði líka slíkt hús á Suður- eyri og vafðist kostnaður þá fyrir bæjaryfirvöldum. í framhaldi af því rituðu íbúasamtök á Flateyri bæjar- yfirvöldum bréf, þar sem þau buð- ust til að lána sveitarfélaginu pen- inga til að koma upp náðhúsi. Sig- urður segir að því bréfi hafi enn ekki verið svarað og bjóst hann því við að íbúasamtökin ítrekuöu boð sitt svo skítakamarinn komist inn í fjárhagsáætlun bæjarins. Blaðinu er þó kunnugt um að bréfið var tekið fyrir á fúndi menningamefndar 15. október, þar sem frumkvæðinu var fagnað og mælt með að viöræður yrðu teknar upp við Flateyringa. -HKr. Vönduð dagatöl og jólakort í miklu úrvali. Sérmerkt fyrir þig Nýjar víddir í hönnun og útgáfu Snorrabraut 54 ©531 4300 Q 561 4302 RÆSTINGAR FYRIRTÆKJA RÆSTINGAR STOFNANA RÆSTINGAR HEIMILA jtíkk Arnarberg ehf. Fossháls 27 • Draghálsmegin Slmi 567 7557 • Fax 567 7559 • MYNDBANDSTÆKI • SJÓNVÖRP • TÖKUVÉLAR • FERÐATÆKI MEÐ GEISLA • ÚTVARPSVEKJARAR • HLJÓMTÆKI OFL.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.