Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.1998, Side 20
20
MÁNUDAGUR 23. NÓVEMBER 1998
Fréttir
i>v
Ráöherrar hafa lagst gegn augljósum sparnaði:
Hótel en ekki sjúkrastofnun
- segja þær Sigrún Árnadóttir og Gunnhildur Sigurðardóttir í viðtali um sjúkrahótel
Það er mikill munur á því hvort
gist er á sjúkrahóteli eða hátækni-
spítala. Dvölin á Sjúkrahóteli Rauða
krossins kostar 3.600 krónur sólar-
hringurinn en rúmið á stóru sjúkra-
húsunum kostar allt að tífalt meira.
Það er líka munur á hóteli og hóteli,
jafnvel í sama húsinu. Sjúkrahótel
RKÍ er til húsa á efstu hæðinni á
HVER MÍNÚTA
FRÁ Kl. 23 TII 08
Á KVÖLD- OG NÆTURTAXTA
Dagtaxti er 73 kr./min.
Munið að velja oo ádur en hringt er sjálfvirkt til utlanda S í M 1 N N www.simi.is
Rauðarárstíg 18. Á hæðunum þrem-
ur fyrir neðan er Hótel Lind og þar
er gjaldið ailt að þrefalt hærra enda
þótt þjónustan við sjúkrahótelrýmið
sé talsvert meiri.
Starfshópur innan heilbrigðis-
ráðuneytisins, sem vinnur að bættu
skipulagi sjúkrastofnana, mun sam-
kvæmt heimildum DV leggja til að
sjúkrahótelum verði fjölgaö.
Sighvatur afturkallaði
Sjúkrahótel eru loksins komin í
umræðuna sem góður spamaðar-
kostur fyrir heilbrigðiskerfið. DV
greindi frá ummælum landlæknis,
Ólafs Ólafssonar, sem hvetur til að
byggingamennska heilbrigðisfólks
beinist meira að sjúkrahótelum en
minna að hátæknistofnunum sem
nóg sé af.
DV ræddi við Sigrúnu Árnadótt-
ur, framkvæmdastjóra Rauða kross-
ins, og Gunnhildi Sigurðardóttur,
hjúkrunarforstjóra á St. Jósefsspít-
cda, stjómarformann Sjúkrahótels-
ins. Þær sögðu frá því að rekstur
slíks hótels væri senn aldaifjórð-
ungs gamall hjá RKÍ. Það hótel hef-
ur aldrei eytt krónu í auglýsingar
eða þurft að stunda kynningarstarf-
semi. Þar hefur einfaldlega verið
fullt allan tímann. Hótelið gista um
800 manns á ári _____________
þannig að dvalargest-
ir hafa verið um 20
þúsund frá upphafi.
Rúmur helmingur
hótelgesta býr úti á
landi. í fyrra kostaði
reksturinn um 39
milljónir króna. At-
hygli vekur að ekki
era tölumar stórar i
bókhaldi sjúkrahót-
elsins, alla vega ekki
á mælikvarða heil-
brigðiskerfisins. Rík-
ið greiddi 34 milljón-
ir fyrir þjónustuna
en 5 milljónir þurfti
Rauði krossinn að
reiða fram til að
brúa bilið eins og
raunar nokkur und-
anfarin ár. Auk rým-
is fyrir 28 gesti rekur
RKÍ 6 íbúðir í sam-
vinnu við félög
hjarta- og krabba-
meinssjúklinga, fimm i Reykjavík
og eina á Akureyri.
Þeir sem einkum óska eftir hótel-
plássi era hjartasjúklingar að koma
úr aðgerðum, krabbameinssjúkling-
ar auk fólks sem er að jafna sig eft-
ir slys. Þegar talað er um stækkun
er það inni í myndinni að sængur-
konur fái rými á sjúkrahóteli sem
og fleiri hópar. Læknir hefur eftirlit
Sigrún Árnadóttir, framkvæmdastjóri Rauða kross íslands, á sjúkrahótelinu við Rauðarárstíg. Með henni á myndinni
eru heiðursmenn, sem voru óðum að komast til heilsu á ný, Jón Þorláksson lögfræðingur og Kristinn Ásgeirsson,
iögreglumaður frá ísafirði. Þeir létu vel af hótelvistinni.
Einstaka sjúklingur hefur ekki fótavist. Þessi gamla kona dvelur
á sjúkrahótelinu og fær þar góða umönnun. Hér er hún að rabba
við framkvæmdastjóra Rauða krossins, Sigrúnu Árnadóttur.
DV-myndir Teitur
með hótelgestum og er í fjórðungs-
starfi.
Reksturinn hófst í Skipholti 21
árið 1974 en um 1980 var farið að
ræða um stækkunarmöguleika,
enda hótelpláss allajafna yfirbókað
og er svo enn. Ráðist var í að kaupa
Rauðarárstíg 18 af Framsóknar-
flokknum og þangað fluttu aðal-
stöðvar Rauða krossins og hótelið.
ítarleg könnun var
gerð á þörfinni fyrir
aukið hótelpláss. Niður-
staöan var að fjölga
þyrfti úr 28 rúmum í 59.
Guðmundur Ámi Stef-
ánsson, heilbrigðisráð-
herra árið 1994, heimil-
aði þessa fjölgun yfir
mánuðina október til
maí hvert ár. En Guð-
mundur lét af ráðherra-
dómi og Sighvatur
Björgvinsson tók aftur
við fyrra embætti sínu
- og afturkallaði strax
heimildina, nokkru eft-
ir að hún var í raun
gengin í gildi!
Mikil þörf
„Viö höfum lýst því
yfir að við getum tekið
allt þetta hús, Rauðar-
árstíg 18, undir sjúkra-
hótel, sé það vilji heil-
brigðisyfirvalda. Við höfum raunar
margoft óskað eftir stækkun en yfir-
völd standa fast á buddunni og hafa
ekki veitt heimild. Ég veit að Ingi-
björg Pálmadóttir hefur meiri skiln-
ing á þessu en fyrirrennarar hennar
og það hafa fulltrúar spítala líka og
vilja að við tökum þetta að okkur,“
sagði Sigrún Ámadóttir í viðtali við
DV.
Hún segir að talað sé um tvenns
konar sjúkrahótel. Önnur gerðin
hýsir rólfæra gesti, eins og gert er í
dag, en hin fólk sem þarf enn á
læknisþjónustu aö halda, helst í ná-
grenni spítala. í könnun sem Land-
læknisembættið gerði nýlega kom í
ljós að stærsti hópurinn sem þarf á
sjúkrahótelsþjónustu að halda er
einmitt sá sem nýtur þjónustu
Sjúkrahótels RKÍ, rólfærir sjúkling-
ar.
„Það hefur orðið umtalsverð
breyting á læknisþjónustu. Fólk er
farið að ná sér mun fyrr en áður og
þá eykst þörfin fyrir sjúkrahótel
eins og það sem hér er rekið,“ sagði
Gunnhildur Sigurðardóttir. Hún
segir það ljóst að mikil þörf sé fyrir
aukið hótelrými fyrir sjúklinga,
ekki síst eftir að aðgerðum fjölgaði
á lækningastofúm víða mn borgina
þar sem ekki er um innlögn sjúk-
linga að ræða. Ennfremur sé alltaf
þörf fyrir húsnæði fyrir þá sem
koma í rannsóknir og aðstandendur
sjúklinga utan af landi.
Þær Sigrún og Gunnhildur segja
að stefnt sé að meiri tengslum við
sjúkrahúsin og markvissari þjón-
ustu frá þeim. Rauði krossinn sé
reiðubúinn til að reka áfram sjúkra-
hótel. Það er yfirlýst stefna samtak-
anna um heim allan að taka til
hendinni í góðum málum sem aðrir
ekki sinna. -JBP
UCM3U08M
VCM51GM
■CMH/lsM
SHARP VCM300SM
• Tveggja hausa
• Árs minni
• 8 liða
• Scart tengi
• Allar aðgerðir á skjá
• íslenskur leiðarvísir
SHARR VCM51SM
• Fjögura hausa
• Árs minni
• Myndvaki
• 8 liða • 2xscart tengi
• SP/LP
• Allar aðgerðir á skjá
• Sjálfvirkur hreinsi-
búnaður
• íslenskur leiðarvfsir
SHARR VCMH71SM
• Fjögura hausa
• Árs minni • Myndvaki
• 8 liða • 2xscart tengi
• Nicam Steríó
• SP/LP • Ntsc afspilun
• Allar aðgerðir á skjá
• Sjálfvirkur hreinsi-
búnaður
• íslenskur leiðarvísir
r i
//'
Umbo&smonn um land allt
Umboðsmenn: Vesturland: Málningarþjónustan Akranesi. Kf.Borgfiröinga, Borgamesi. Vestflrölr: Geirseyrarbúöin, Patreksfiröi. Rafver, Bolungarvík. Straumur, ísafiröi. Noröurland: Kf. V-Hún., Hvammstanga. Kf. Húnvetninga, Blönduósi.Verslunin Hegri, Sauöárkróki. Hljómver, Akureyri.
KEA, Lónsbakka. Kf. Þingeyinga, Húsavík. Lóniö Þórshöfn. Austurland: Kaupfólag Vopnfiröinga.Vopnafiröi. Kf. Hóraösbúa, Egilsstööum. Verslunin Vík, Neskaupstaö. Kaupfólag Fáskrúösfiröinga, Fáskrúösfiröi. Vólsmiöja Hornafjaröar, Höfn Homafiröi. Suöurland: Árvirkinn, Selfossi. Rás,
Þorlákshöfn. Geisli.Vestmannaeyjum. Reykjanes: Ljósboginn.Keflavfk.