Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.1998, Page 21
MÁNUDAGUR 23. NÓVEMBER 1998
21
Fréttir
Félagsbúið Eyhildarholti í Skagafirði:
Fær skaðabætur frá Búnaðarbanka
DV, Skagafirði:
Hæstiréttur dæmdi fyrir
skömmu Búnaðarbanka Islands
vegna Stofnlánadeildar landbúnað-
arins til að greiða Félagsbúinu Ey-
hildarholti í Skagafirði 8,9 millj.
króna vegna galla í fjósbyggingu.
Einnig skal bcmkinn greiða vexti á
upphæðina frá 27. júni 1996 til 10.
febrúar 1997 og dráttarvexti frá
þeim tíma til greiðsludags. Dómur
Hæstaréttar var nánast samhljóða
dómi Héraðsdóms Reykjavíkur
sem kveðinn var upp í maí 1997.
Forsögu þessa máls má rekja til
ársins 1986 þegar hafist var handa
við að stækka fjósbyggingu í Ey-
hildarholti. Stuðst var við burðar-
þols-, afstöðu- og útlitsteikningar
frá Byggingarstofnun landbúnað-
arins, en byggingaráðunautur
Búnaðarfélags íslands hafði komið
á staðinn þegar fyrst var hugað að
viðbyggingu árið 1983. I upphafi
framkvæmda var oftar en einu
sinni haft samband við verkfræð-
ing Byggingastofnunar af bygg-
ingameistaranum Ólafi Þorbergs-
syni og byggingafulltrúa Skaga-
fjarðarsýslu, Ingvari G. Jónssyni.
Lýstu þeir efasemdum um ástand
grunnsins sem byggja átti á.
Ekki var þó neitt aðhafst af
hálfu Byggingastofnunar og bygg-
ingameistara sagt að halda áfram
framkvæmdum og fylgja teikning-
um. Strax árið 1988 fór að koma i
ljós sig á hluta af viðbyggingunni
og hefur það haldið áfram síðan.
Af hálfu ábúenda i Eyhildarholti
var á ánmum 1990-1993 haft sam-
band við Byggingastofnun og for-
stöðumann Stofnlánadeildar og
þeim gerð grein fyrir ástandi bygg-
ingarinnar og óskað eftir tilllögum
þeirra til úrbóta á henni. Ekki var
orðið við þessum óskum ábúenda
þannig að 1994 leituðu þau til lög-
fræðings sem síðan höfðaði mál á
hendur bankanum.
„Ég er afar feginn að þessu er
loksins lokið og að við fáum bætur
vegna þessarar gölluðu byggingar.
Mér finnst að réttlætið hafi sigrað.
En ég er afar óánægður með við-
brögð forstöðumanna Bygginga-
stofnunar landbúnaðarins og
Stofnlánadeildar sem svöruðu mér
nánast á þann hátt að þeim kæmi
þetta ekki við,“ sagði Árni Gísla-
son, bóndi í Eyhildarholti, í sam-
tali við fréttamann. Auk Árna eru
böm hans, Erlendur, Guðrún og
Sveinn, aðilar að félagsbúinu.
Þau sögðu að viðbyggingin sigi
á hverju ári. Sífellt þyrfti að vera
að þétta sprungur og hurðir og
karmar væru úr lagi gengin. Það
væri í raun ekki að undra þvi við
mælingu dómkvaddra manna á
sínum tíma hefði komið í ljós að
um 10 metrar væru niður á fast
við gafl viðbyggingarinnar.
-ÖÞ
LJOS
í miklu úrvali!
1.995.
RAFSOL
SKIPHOLT 33 • REYKJAVÍK
SÍMI: 553 5600
Viðbyggingin i Eyhildarholti sem málareksturinn varð um. DV-mynd Örn
BGB hf. á Dalvík kaupir Otur:
Kaupverðið
greitt með
hlutafé í BGB
DV, Dalvík:
Undirritaður hefúr verið samn-
ingur um kaup útgerðarfýrirtækis-
ins BGB hf. á Dalvík á öllum hluta-
bréfum í fiskverkunarfyrirtækinu
Otri hf. á Dalvík, það er samnefnd-
um bát, veiðiheimildum og fisk-
verkunarhúsi. Að sögn Þóris Matth-
íassonar, framkvæmdastjóra BGB,
er kaupverð ekki gefið upp en það
er að stærstum hluta greitt með
hlutafé í BGB hf. Kaupin eru liður í
því að treysta útgerð skipa BGB og
um leið að renna styrkari stoðum
irndir rekstur fyrirtækisins.
Otur EA verður ekki gerður út
heldur reynt að selja hann og fisk-
verkunarhúsið. Það verður væntan-
lega auglýst til sölu fljótlega. Þórir
sagði að það væri vissulega virðing-
arvert að eigendur Oturs hefðu val-
ið að selja á heimaslóðum og fyrir
það væru forsvarsmenn BGB hf.
þakklátir. Það sýnir að þeir hafa trú
að því sem hér er verið að gera og
vilja efla atvinnustarfsemi í heima-
byggð þó að þróunin undanfarið
hafi verið sú að minni fiskverkun-
arfyrirtæki hafa verið keypt eða
sameinast mun stærri félögum en
hér er mn að ræða, jafnvel á allt
öðru landshomi, og vissulega höfðu
eigendur Otursins möguleika á því
þótt þeir hefðu valið þessa leið.
-hiá
Alfelgur og negld vetrardekk á
stórtilboði dagana 23.-30. nóvember.
13“ tilboð
dekk 165R13
felga 13*5,5
14“ tilboð
dekk 195-60R14
felga 14*6,0
4x4 tilboð
dekk 33-12.50R15
felga 15*8,0
Verð 4 stk.
kr. 49.900
Verð 4 stk.
kr. 59.900
Verð 4 stk.
kr. 109.900
Bjóðum einnig hinar geysivinsælu Mosdal
stærðir á frábæru verði
155R13 negld, kr. 4.845
165R13 negld, kr. 5.150
195-60R14 negld, kr. 6.410
195-60R15 negld, kr. 7.920
215-75R15 negld, kr. 7.180
Greiðslukjör við allra hæfi,
Euro/Visa í allt að 36 mánuði
FELGUR FRABÆRT VERD
HERCULES
TIRES
GREIÐSLUR
Komdu við og
kynntu þér málið BORGARDEKK
Borgardekk • Borgartúni 36 • sími 568 8220
WICANDERS
gólfkorkur
Oft er úr vöndu að ráða þegar velja á gólfefni sem hentar fyrir þau litlu.
Ekki eingöngu viljum við að gólfið sé mjúkt og þægilegt heldur viljum við einnig tryggja öryggi
þeirra sem eru að leik.
Qi
WICANDERS korkgólfin hafa um áratugaskeið sannað ágæti sitt fyrir að vera traust og örugg.
Þau eru byggð á náttúrulega loftfylltum holum sem gera þau þægileg, mjúk og hlý.
Hið sérstaka yfirborð WICANDERS gólfanna gerir það að verkum að enginn hætta er á að fólk
renni til á þeim auk þess sem ræsting verður leikur einn.
Kynntu þér WICANDERS gólfin - þú munt sannfærast.
Þp
&ca
Þ.ÞORGRIIVISSON & CO
ÁRMÚLA 29 - 108 REYKJAVÍK - S: 553 8640 & 568 6100
INTERNET: http://www.vortex.is/thth&co - E-MAIL: thth&co@vortex.is
1®
ara^
<9