Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.1998, Side 26

Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.1998, Side 26
34 MÁNUDAGUR 23. NÓVEMBER 1998 Quake III Arena í vinnslu Flottasti netleikur mannkynssögunnar - en er hann nógu góður? Quake I og II brutu báðir blað í sögu tölvuleikja. Þeir voru (og eru) ekki bara gífurlega vinsælir heldur voru þeir einnig á sínum tíma tæknilega það fullkomnasta sem fannst á markaðnum. Skaparar Qu- ake, gengið hjá id Software, hafa reyndar verið í fararbroddi hönn- uða fyrstu persónu skotleikja síðan þeir hreinlega fundu upp þetta tölvuleikjaform með leiknum Wol- fenstein í byrjun þessa áratugar. Þeir bjuggu svo til Doom og Doom II áður en Quake-serían kom fram á sjónarsviðið. Það er þvi ekki að ástæðulausu sem tölvuleikjamarkaðurinn hrein- lega nötrar og skelfur af spennu þegar eitthvað heyrist frá höfuð- stöðvum id. Síðla sumars kom fréttatilkynning þaðan sem kom mörgum í opna skjöldu. Þriðji Qu- ake leikurinn mun heita Quake III Arena. Þar verður nær engin áhersla lögð á eins manns leiki heldur allt púður lagt í að þróa Qu- ake sem netleik. Af hverju? Voru þeir nú gengnir af göflun- um? Með því að taka út nær alla möguleika tölvuleikjaunnenda á að spila leikinn í einrúmi á móti kvik- indum og skrýmslum af ýmsu tagi er hætta á að talsvert færri kaupi sér leikinn heldur en ella. Þó svo Skjámynd úr Quake III Arena á vinnslustigi. Eins og sjá má munu persónurn- ar verða raunverulegri en við þekkjum úr leikjum hingað til. Enda verður það raunverulegt fólk sem stjórnar þeim. spilun Quake á Netinu sé gífurlega vinsæl er það aðeins lítill hluti tölvuleikjaunnenda sem tekur þátt í slíku. Hagstœð kjör Ef sama smáauglýsingin er birt undir 2 dálkum sama dag er 50% afsláttur af annarri auglýsingunni. aW milli hirr)ins Smaauglysingar DV 550 5000 Þeir id-liðar telja þó að þetta sé áhættunnar virði. Einmennings- leikimir eru komnir inn í ákveðna blindgötu, að þeirra mati. Sífellt erfiðara verður að smiða einmenn- ingsborð sem hafa eitthvað nýtt fram að færa og stöðnun er bann- orð í höfuðstöðvum id Software. Netleikirnir eru hins vegar mun óskrifaðra blað. „Þegar við vorum að hanna Quake II þá unnum við að netmöguleikum leiksins um helgar og í öðrum „frítímum" okk- ar,“ segir John Carmack, yfirmó- gúll id. „Með því að leggja alla okk- ar vinnu óskipta í að þróa netspil- un tryggjum við að Quake III Arena verði ekkert hálfkák þegar kemur að því að murka lífið úr al- vöru fólki á Netinu." Með hliðsjón af þessu og afreka- sögu id er hægt að fullyrða að leik- urinn verður flottasti netleikur sög- unnar þegar hann loks kemur út. Hausar fljúga Eftir rúmlega hálfs árs vinnu hleyptu id-hðar blaðamönnum tíma- ritsins PC Gamer fyrstum inn til sin til að skoða Quake III Arena á vinnslustigi. Afrakstur vettvangs- rannsóknarinnar má sjá í nóvember- hefti tímaritsins. Miðað við það sem þar sést er ekki annað hægt en að fyllast eftirvæntingu. Útlit leiksins verður mjög flott, þó svo mesta vinnan sé ekki lögð í að gera borðin sem ásjálegust úr garði. Enda hefur maður um margt annað að hugsa en hve lýsingin sé vel hönnuð þegar vitað er af Gumma frænda með sprengju- vörpu handan við næsta hom. Fjölda vopna verður bætt við og áhrif þeirra á andstæðinginn verða sýnilegri. Skot með öflugu vopni í höfuð andstæðingsins mun t.d. hreinlega geta afhausað hann. Ef einhver hittir þig með skoti úr sprengjuvörpu muntu hendast fleiri metra aftur á bak og svo mætti lengi telja. Jafhframt hefur mikil vinna far- ið í að þróa kóða sem gerir spilun gegnum mismunandi hægar nettengingar spilaranna auðveld- ari, enda verða slíkar tengingar líf- æð leiksins. Til að auðvelda netspil- un verða borðin einnig mim smærri en þau risastóru sem við þekkjum úr Quake n. id viðbúið öllu Þó id-liðar vilji ekkert gefa upp um hvenær leikurinn muni koma út má jafnvel búast við honum á fyrri hluta næsta árs. Mjög erfítt er að segja um mögulegar viðtökur á þessu stigi en liklegra verður að teljast að nokkuð færri eintök muni seljast af Quake III Arena heldur en Quake II. Þó svo verði er þar með ekki sagt að leikur- inn hafi verið misheppnaður. Svo byltingarkennd hugmynd sem hér er á ferðinni gæti þurft nokkum tíma til að ná almennum vinsældum því enn sem komið er eru margir feimnir við að spfla leiki á Netinu af ýmsum aðstæðum. Verði leikurinn vel heppnaður er samt ekki ólíklegt að margir láti freistast og prófi og þar með gæti boltinn byrjað að rúlla af fúllri alvöru með tilkomu Quake m Arena. En ef tilraunin mistekst fullkom- lega mun id Software síður en svo riða tfl falls. „Við bíðum spenntir eft- ir viðtökunum. Ef ánægja verður al- menn munum við halda áfram á sömu braut. Ef illa fer höfum við margt í handraðanum. Margir hafa beðið okkur um framhald af Wolfen- stein- og Doom-leikjunum og slíkt myndi alltaf safna peningum í kass- ann,“ segir John Carmack. -KJA íslensk skrá yfir netföng: Vefbókasafnið opnað Fyrir skömmu opnaði Björn Lögð er áhersla á að upplýsingar Bjarnason menntamálaráðherra Vefbókasafnið en það er samstarfs- verkefni íslenskra almenningsbóka- safna um vefvakt á Netinu. Á Vef- bókasafninu er hægt að finna stórt safn tengla á íslenskar og erlendar heimasíður sem flokkaðir eru eftir efnisatriðum. Vefbókasafnið er upplýsingatæki sem aðgengilegt er allan sólarhring- inn á Netinu. Til að tryggja að allir geti notað það verður það svo að- gengilegt almenningi á almennings- bókasöfnunum. Þannig er tryggt að- gengi að upplýsingum fyrir fólk án tillits til efnahags eða búsetu. um samfélagsþjónustu ríkis og sveitarfélaga verði fyrir hendi í Vef- bókasafninu. Einnig eru tengingar á innlendar og erlendar fræðslu- og upplýsingaveitur, auk efnis sem nýtist fólki í tómstundum. Islensk almenningsbókasöfn hafa verið að vinna að samstarfsverkefni um vefvakt á Netinu í nokkurn tíma. Formleg samtök um verkefn- ið, Félag um Vefbókasafn, voru svo stofnuð þann 9. október og síðan hefur vinna við verkefnið stöðug. Slóð Vefbókasafnsins http://www.vefbokasafn.is verið Eitt sinn skáti... íslenskir skátar hafa komið upp skátavefnum. Hann er að frnna á slóðinni http://www.scout.is/ íslensk myndlist Aðdáendur íslenskrar myndlist- ar geta nú tekið gleði sína því í síðustu viku var opnuð Upplýsj ingamiðstöð myndlistar, sem er gagnagrunnur um islenska mynd- list. Slóðirnar eru tvær: http://www.umm.is og http://www.artinfo.is Gervihnattamyndir Hægt er að skoða gervihnatta- myndir hvaðanæva úr heiminum á heimasiðunni http://www.terraserver.com/ Tölvuteiknimyndir Á heimasíðunni http://www.hotwired.com/ani- mation/ er að flnna fjöldann all- an af teiknimyndum sem gerðar; eru fyrir tölvur. Heimasíða í Reykjavík Heimasíða helguð hinni ágætu kvikmynd Popp í Reykjavík er á slóðinni http://www.popp.is/ Netheimili Hann Alex er búinn að tengja stóran hluta heimflis síns við Net- ið. Á heimasíðunni http://www.icepick.com/ má sjá beinar útsendingar úr sex her- bergjum auk þess sem hægt er að fylgjast með því hverju Alex hend- ir í ruslið. Enski bolt- inn Fréttir, skoð- anir, brandara og ýmislegt ann- að um enska boltann er að finna á slóðinni http://www.football365.co.uk/ Afganskar hárkollur Hin frábæra hljómsveit Afghan Whigs er nýbúin að gefa út sína fimmtu geislaplötu og fræðast má um hljómsveitina á slóðinni http://www.afghanwhigs.com/

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.