Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.1998, Síða 29
MÁNUDAGUR 23. NÓVEMBER 1998
*
f
í
Heimurinn sameinast um byqginqu risaqeimstöövar
Geimstöð fæðist
Á föstudaginn var Zarya, fyrsta
hluta alþjóðlegrar risageimstöðvar,
skotið á sporbaug um jörðu, ári á eft-
ir áætlun. Á eftir munu fylgja rúm-
lega 40 einingar sem verður skotið á
loft fram til ársins 2004. Fyrstu menn-
imir munu hins vegar mæta á stað-
inn árið 2000.
Fyrstu hlutar áætlunarinnar eru
mikilvægir og griðarlega miklu máli
skiptir að framkvæmd þeirra heppn-
ist vel. Geimskot nr. 2 verður þann 3.
desember frá Bandaríkjunum. Sá
hluti geimstöðvarinnar mun tengjast
Zarya sem verður þá komin í sam-
band við bandarísku geimstöðina U.S.
Endeavour. Leiðir Zarya og Endeavo-
ur munu liggja saman á 4. degi teng-
ingarverkefnis sem áætlað er að taki
12 daga.
í júlí á næsta ári er áaétlað að Rúss-
ar skjóti á loft þriðja hlutanum, sem
mun nýtast sem vistarverur áhafnar
til að byija með. Eins og áður hefúr
komið fram á vísindasíðunum er þó
alls óvíst að Rússar hafi nægt fjár-
magn til að þessi hluti geimstöðvar-
innar verði á áætlun.
í janúar árið 2000 mimu svo þeir
Wiiliam Shepherd, Youri Gidíenko og
Sergei Krikalyov leggja Soyuz geim-
flaug að hlið geimstöðvarinnar og
ganga í bæinn. Soyuz-flaugin verður
nýtt til að forða áhöfninni í neyð ef
þörf krefst.
Landgræðsluskjaldbökur
Vísindamenn við Flórídaháskóla
hafa komist að því að skjaldbökur
sem verpa eggjum sínum á ströndum
Bandaríkjanna gera með því meira
gagn en að viðhalda bara stofiii sín-
um. Að öllum líkindum leggja þær
nefnilega þung lóð á vogarskálamar
viö að viðhalda gróðri á viökvæmum
sandöldum við strendur Flórída.
í eggjunum er nefnilega mikið
magn næringarefna sem nýtast sem
mikilvægur áburður fyrir gróöurinn
á ströndinni. Við rannsóknir hefúr
komið í ljós að skjaldbökueggin eru
sennilega mikilvægari fyrir gróður-
inn en flestar aðrar uppsprettur nær-
ingar á svæðinu.
Ef næringarinnar sem af eggjunum
hlýst nyti ekki við eru miklar líkur á
gróðureyðingu sem gæti leitt til land-
eyðingar vegna sandfoks. En svo illa
vill til að skjaldbökumar em í nokk-
urri útrýmingarhættu um þessar
mundir vegna ágangs mannanna.
Til að reyna að bjarga skjaldbökun-
um hafa menn stundað það á undan-
fömum árum að færa eggin inn á
vemduð svæði. Þar með hefúr mikil-
Skjaldbökur hafa mikifl að segja um gróðurfar við strendur Flórída.
væg næring verið tekin frá ákveðnum
landssvæðum og færð inn á önnur.
Líklegt er að i kjölfar rannsóknanna í
Flóridaháskóla muni verða farið ná-
kvæmlega í saumana á því hvemig
standa skuli að vemdim skjaldbök-
unnar og þar með strandlengjunnar í
Flórída.
Karl eða kona!
Ert þú að missa hárið?
APOLLO hefur þróað frábæra meðferð við hárlosi.
Megaderm meðferðin dregur úr hárlosi eða stöðvar það alveg.
Það hafa verið reyndar margar aðferðir, með misjöfnum árangri.
En með þessari meðferð næst sýnilegur árangur eftír aðeins lmánuð.
Ókeypis ráðgjöf. Fullur trúnaður.
Án skuldbindinga.
37 (.
-APOLLOd
Hair Centers
APOLLO
Hárstúdíó
Hringbraut 119 - Sími 552 2099
Lífeyrissj óðurinn Framsýn
Framhaldsársfundur
Framhaldsársfundur Lífeyrissjóðsins Framsýnar
verður haldinn á Grand Hótel Reykjavík
miðvikudaginn 2. desember 1998 og hefst
klukkan 17:00.
Dagskrá fundarins:
7. Tillögur um breytingar á samþykktum sjóðsins.
2. Kynning á Séreignarsjóði Framsýnar.
Sérstakt fulltrúaráð skipað fulltrúum aðildarfélaga
sjóðsins fer með atkvæði á ársfundi.
Þeir sjóðfélagar sem vilja kynna sér þær tillögur um
breytingar á samþykktum sjóðsins sem lagðar verða
fram geta fengið þær á skrifstofu sjóðsins eða haft
samband og látið senda sér þær í pósti.
Allir sjóðfélagar eiga rétt til fundarsetu með málfrelsi
og tillögurétti.
Sjóðfélagar eru hvattir til að nýta sér rétt sinn
og mæta á framhaldsársfund sjóðsins.
LIFEYRISSJÓÐURINN FRAMSÝN
Suðurlandsbraut 30, 3. hæð, sími 533 4700, fax 533 4705.
Heimasíða: www.framsyn.rl.is Netfang: mottaka@framsyn.rl.is
FINLUX
SJONVORP
Á VERDISEM KEMUR Á ÓVART
B R Æ Ð U R N
Ö
o
Lágmúla 8 • Sími 533 2800
_____ BRS5*íal‘
Á
i_t mm . • Nicam
25- Black invar aðgerðlr
2><20^mÆvarp*2Scart
á skjá. Hevrnartólstengi
KSsÆ'V1*
s
Rca
UMBOÐSMENN
Vesturland: Málningarþjónustan, Akranesl. Vestfiríir: Geirseyjarbúðin, Patreksfirði. Hafverk, Bolungarvík. Straumur, Isatirði. Kf. Norðurland: V-Hún„ Hvammstanga, Kt. Húnvetninga, Blönduósi. verslunin Hegri, Sauðárkróki. Hljðmver, Akureyri. KEA Lðnsbakka Akureyri.
| kt, Þingeyinga, Húsavik. Austurland: Vélsmiðjan Hðtn. Suðurland: Arvirkinn, SeHossl. Rás, Þorlákshöfn. Geisli, Vestmannaeyjum. Reykjanes: Ljðsboginn, ketlavlk. Batborg. Brindavlk.