Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.1998, Side 6

Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.1998, Side 6
6 MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 1998 Fréttir Hjónin I Straumnesi á Skagaströnd fá reglulegar heimsóknir á veturna: Fálki fær heitan mat nær daglega - húsfreyjan setur hrossakjöt í örbylgjuofninn og gefur síðan „Friðriki fálka‘ „Komdu héma, Friðrik minn,“ segir Inga Þorvaldsdóttir, húsfreyja í Straumnesi á Skagaströnd, nær daglega þegar hún opnar eldhús- gluggann og hendir heitum kjötbita til fálka sem hefúr gert sig heima- kominn við húsið síðastliðna átta vetur. „Hann er héma í fæði, það er ekkert flóknara en það. Þegar hann kemur sest hann oftast á rekaviðar- hnyðju skammt frá húsinu. Konan stingur þá gjaman hrossakjöti í ör- bylgjuofhinn og hendir svo bitanum út um gluggann. Síðan fer fálkinn ofan af hnyðjunni og vappar nær glugganum að bitanum og sækir hann,“ sagði Birgir Ámason, hús- bóndinn í Straumnesi, við DV. Birgir sagði að fyrir þremur ámm hefði annar fálki komið að húsinu með „Friðrik". „Hann rak hinn þá i burtu, hann vill sitja einn að þessu hjá okkur. Hann fær ekk- ert verra en folaldakjöt og nautalif- ur og annað sem við fáum sem úr- gang úr kjötvinnslunni. Og alltaf er það heitt úr örbylgjuofninum," sagði Birgir. Skammdegis- Ijójsið Skammdegisþreyta og þung- lyndi geta valdið almennu áhugaleysi, leti og óeðlilegri þreytu. Ein besta lækningin við skammdegisdoðanum er birta og enginn vafi leikur á því að dagsljós hefur mjög góð áhrif á almenna líðan okkar. BrightLight lampinn ersvarvið skammdeginu Bright Light lampinn frá Philips gefur birtu samsvarandi náttúru- legu dagsljósi. Flöktfrítt Ijósið minnkar þreytu og eykur orku hjá þeim sem nota það reglulega. Bright Light lampinn er nettur og auðvelt að taka með sér hvert sem er. Verð: 39.900 kr. Friðrik fálki situr á rekaviðarhnyðj- unni fyrir utan Straumnes á Skaga- strönd. Stór fugl, mjög hvítur og með gular lappir sem bendir til að hann sé fulloröinn. DV-mynd Finnur Sturluson Fálkinn kom í fyrsta skiptið í Straumnes á þessum vetri um síð- ustu helgi. Veiddum saman rjúpu „Yfirleitt kemur fálkinn til okkar um miðjan október," segir Birgir. „Einu sinni hitti ég hann þegar ég var á rjúpnaveiðum úti á Skaga í október. Við vorum þá báðir að veiða rjúpu, vinimir. Hann hafði þá ekkert komið til okkar þann vetur. Ég var alveg viss um að þetta væri fálkinn okkar. Ég þekkti fuglinn þegar hann flaug rétt hjá mér - stór, mjög hvítur með gular lappir. Hann sveif yfir mér í marga hringi en sett- ist svo niður hjá bílnum mínum. Hann hefur örugglega þekkt hæði mig og bílinn. Daginn eftir var hann svo mættur heim i Straumnes. Einu sinni sá konan mín fálkann sitja á ljósastaur. Hún gekk að hon- um og talaði við hann. Fálkinn hreyfði sig ekki. Honum er líka al- Ekki ljóst hvað olli matareitrun 42 ríkisstarfsmanna: Farið yfir faralds- fræðileg gögn Heimilistæki hf SÆTÚN 8 SÍMI 569 1500 www.ht.is „Við vitum ekki hvað gerðist ná- kvæmlega en það er Ijóst að eitthvað fór úrskeiðis í mötuneytinu. Það beinist ekki grunur að matvælum sem komu utan úr bæ. Það var salat- har og lítils háttar matargerð i þessu mötuneyti. Við höfum verið að fara yfir faraldsfræðileg gögn sem við söfnuðum saman á mánudag og þriðjudag. Við vitum ekki á þessari stundu hvað þetta er en það verður farið yfir þetta með sérfræðingum," segir Rögnvaldur IngóLfsson, sviðs- stjóri matvælasviðs hjá Heilbrigðis- eftirliti Reykjavíkur, aðspurður um rannsókn á matareitrun sem talin er hafa ollið veikindum um 50 starfs- manna nokkurra ríkisstofnana. Grtmm- um matareitrunina kom í framhaldi af veikindum starfsmann- anna í síðustu viku. Þeir borðuðu allir í mötuneytinu að Borgartúni 7 í síðustu viku. Mötuneytinu var lokað á mánudagsmorgun þegar rannsókn hófst. „Eftir því sem ég best veit var eng- inn umræddra starfsmanna í hættu. Einkenni voru í flestum tilfellum uppköst og niðurgangur og um helm- ingur þeirra fékk hita. Ég veit ekki betur en allir séu orðnir frískir núna,“ segir Rögnvaldur. -RR veg sama þótt við séum í eldhús- glugganum þegar hann kemur að éta. Kettimir okkar tveir vilja líka gjaman fá að fylgjast með fálkanum. En honum líkar það greinilega ekki að kettimir séu að skoða hann.“ Eitt sinn fór hann fjórar ferðir Birgir segir að Friðrik fálki komi að jafnaði einu sinni á dag í Straum- nes. Stundum tvisvar og þegar hann er mjög svangur komi hann jafiivel þrisvar á dag. Síðan geti liðið dagur og dagur án þess að hann komi. „Einu sinni gaf ég fálkanum rjúp- ur. Ég lét þá fjóra fugla út. Hann tók þá einn í kjaftinn og flaug i burtu. Síðan kom hann aftur og tók aðra ijúpu. Áður en yfír lauk var hann búinn að fara fjórar ferðir. Svo kom hann ekki í þrjá daga. Þá var „karlinn“ i fínu fæði. Skemmtilegast finnst mér þegar fálkinn tekur bita, flýgur með hann af stað, sleppir honum og lætur hann detta. Síðan steypir hann sér niður á eftir bitanum og gripur hann á lofti. Þá er hann að ná betra taki með klónum." Birgir segir aö fálkinn fljúgi oftast út að Spákonuhöfða, skammt frá Skagaströnd, til að éta það sem hon- um hefúr verið gefið í Straumnesi. Þó að fuglinn sé nefndur Friðrik tel- ur Birgir ekki óliklegt að þegar öllu sé á botninn hvolft sé hér um kven- fúgi að ræða - Friðriku. Ástæðan sé sú að fúglinn hverfi gjaman stuttu fyrir varptímann. Mjög merkileg samskipti, seg- ir fuglafræðingur Ólafur Níelsen, fuglafræðingur hjá Náttúrufræðistoftiun íslands, sagði við DV að í ljósi þess hve „Straumnesfálkinn“ er stór sé lík- legt að hann sé kvenfúgl. „Kerling- amar em mun stærri en karlamir. Þetta era mjög merkileg sam- skipti sem hafa þróast þama á Skagaströnd," sagði Ólafur. „Einu dæmin sem ég veit um þetta vora í nágrenni Reykjavíkur þegar Sigurð- irn Klemenzson, kjúklingabóndi á Alftanesi, sem lést í janúar síðastlið- inn, var með nokkra fálka í fæði. Það stóð yfir í um tvo áratugi. Sig- urður var með fimm fálka þegar mest var. Ég veit annars ekki um hliðstæð dæmi þar sem fólk er með villta fálka á fóðrum,“ sagði Ólafúr. -Ótt Umdeildur salur Hinar illvígu deilur innan hins óstoöiaða Frjálslynda flokks taka á sig hinar skenunti- legustu myndir. Sverrir Hermannsson, sem telst vera sveifarásinn í hinu nýja en ófyrir- sjáanlega framboði, hefur ekki sparað lýsingarorðin um þá Bárð Halldórsson og Valdimar Jóhannesson sem hann telur vega að sér. Sverrismenn sögðu Bárð og félaga ekki hafa neitt for- ræði yfir fundarsalnum í Rúgbrauðsgerðinni við Borgartún þar sem landsfundur- inn á að fara fram í sumar. Veitingamaðurinn Elías V. Einarsson staðfesti við Stöð 2 að Margrét Sverrisdóttir og faðir hennar hefðu salinn á leigu i eigin nafhi. Elías kom nokkuð við sögu í bankamáli Sverris þar sem hann staðfesti að hafa skotist eftir brennivíni fyrir bankastjórann fallna. Ekki eru andófsmenn hressir með málið og segja Margréti hafa hringt úr síma Samtaka um þjóðareign til að panta salinn á meðan hún var starfsmaður þar. Því má búast við flöri um helgina þegar tekist verður á um það hverjir megi koma inn á fundinn... Rétt flokksskírteini Stjarna prófkjörs sjálfstæðismanna á Reykjanesi, Þorgerður Gunnarsdóttir, starfar sem yfirmaður dægurmálaútvarps Rásar 2. Ráðning hennar á sínum tíma var mjög umdeild vegna flokks- skirteinisins sem talið var lykillinn að þvi að hún fengi starfið. Sem sönnum fjöl- miðlamanni sæmir hafa pólitískar skoðanir hennar ekki haft áhrif á starf hennar sem hún hefur skilað með miklum sóma. Mörgum þykir þó skondið að þegar hún er örugg með að setjast á þing skuli hún sitja áfram í stöðu sinni sem hún mun gegna til áramóta. Ekki eru miklar vangaveltur inn- anhúss á RÚV um arftakann, enda talið víst aö ráðinn verði nýr maöur utan stofnunarinn- ar og ekki þýði að sækja mn í skjóli reynslu og menntunar. Dr. Hannes H. Gissurarson mun, að mati starfsmanna, ákveða hver verði arftakinn. Skilyrðin fyrir ráðningu eru sögð þau ein að flokksskírteinið sé af hinum eina sanna bláa lit... Framboðsraunir Enn er óvíst með hvaða hætti valið verður á lista Samfylkingar í ReyKjavík og á Reykja- nesi. Á Reykjanesi er staðan snúin þvi þar er látið í veðri vaka að fólki sé sama hvort verði prófkjör eða uppstilling. Rannveig Guðmundsdóttir alþingismaöur er talin tii- tölulega örugg um fyrsta sætið í prófkjöri og eðli málsins samkvæmt yrði hún efst í uppstillingu. Nú heyrist hvislað í kjördæm- inu að Guðmundur Árni Stefánsson, sem laut i gras fýrir Rannveigu á sinum tima, vilji ákveðið að gripið verði til uppstillingar. Það fylgir sög- unni að þessi afstaða þingmannsins eigi sér ákveðnar forsendur. Ágúst Einarsson, þing- maður Þjóðvaka, er sagður hafa unnið hylli margra þrátt fyrir að Þjóðvaki sé horfmn. Guðmundur Ámi er sagður óttast að Ágúst skjótist upp fyrir hann og því sé farsælla að nota handaflið við röðun á lista. Þá er annar afturgenginn Þjóðvaki, Jóhanna Sigurðar- dóttir, búin að lýsa yfir að hún sækist eftir fyrsta sætinu í Reykjavík í samkeppni við Össur Skarphéðinsson. Því gæti komið upp sú staða að Þjóðvaki næði efstu sætunum hjá krötum i tveimur stærstu kjördæmunum þó ekki séu líkumar miklar... Kallaður á þing Sandkorn sagði frá þvi á mánudag að Hall- dór Blöndal samgönguráðherra hefði rokið í fússi út af fundi i Sjálfstæðisflokknum þar sem fjarskiptamál voru til umræðu. Halldór mun hafa neyðst til að yfir- gefa fundinn þar sem kallaö hafði verið í hann vegna at- kvæðagreiðslu i þinginu hvað sem leið móralnum á fundinum. En fyrst Hall- dór er á dagskrá má ekki láta hjá líða að segja frá _ sterkum orðrómi þess efhis að hann þyki einna líklegastur til að erfa for- setastól Alþingis eftir Ólaf G. Einarsson sem haldið hefur styrkri hendi um stjóm þingsins. Talið er að þá reyni á hversu mikil manna- sættir og diplómat Halldór reynist... Umsjón Reynir Traustason Netfang: sandkom @ff. is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.