Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.1998, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.1998, Blaðsíða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 1998 Spurningin Ferðu oft til tannlæknis? Þórhildur Albertsdóttir fulltrúi: Ekki reglulega en ég fer þegar ég þarf. Kristján Jóhannesson, 13 ára: Ég fer tvisvar á ári. Bergur Þorsteinsson, 13 ára: Ég fer tvisvar á ári. Jóhann Oddsson nemi: Ég fer einu sinni á ári. Sigvarður Hilmarsson: Ég fer tvisvar sinnum á ári. Lena Dögg Davíðsdóttir, 14 ára: Ég fer tvisvar á ári. Lesendur Ógleymanleg Kínaferð Öll skipulagning í Kína var til fyrirmyndar, hvergi mistök og dagarnir þar veröa ógleymanlegir, segja bréfritarar m.a. - Frá Peking. Kínafarar skrifa: Þann 10. nóv. sl. fórum við hjónin á vegum Útsýn- ar og Air Atlanta til Kína. Heimkoma var ákveðin þann 17. nóvember og gerðum við ráðstafanir í vinnu í samræmi við það. Þegar Qugvélin var komin í loftið, eftir rúmlega klukkutíma seinkun, og flogið hafði verið í u.þ.b. eina klukkustund, til- kynnti flugstjórinn að vél- inni hefði verið snúið við þar sem yflrflugsheimild yfir Rússland hefði verið afturkölluð og við mynd- um lenda í London. í vél- inni heyrðist hlátur og töldu kannski flestir að þetta væri „partur af prógramminu" því fljót- lega eftir flugtak hafði far- þegum verið borinn skemmtilegur matseðill, sérstaklega gerður fyrir Kínafara. En ónei. Ferðinni var nú allt í einu heitið til London og enginn vissi hvað verða vildi. - Þegar til London kom biðu okk- ar rútur sem fluttu okkur á hið besta hótel í mið- borginni. Fengum við þar mat og drykk okkur að kostnaðarlausu og að öllu hið besta staðið. Flugmiðum meö áætlunarvélum British Airways var bjargað í skyndi en skipta varð hópnum upp í tvo hópa vegna fjölda. Annar hóp- urinn millilenti í Frankfurt, hinn flaug beint til Peking. Þar hófst hin eiginlega fyrirhugaða ferð. Öll skipulagning í Kína var til fyrir- myndar. Hvergi voru mistök, mis- skilningur, eða að ekki væri staðið við það sem gert var ráö fyrir, þannig að farþegar hafi goldið fýrir, ef einhver voru. - Þeir dagar veröa ógleymanlegir. Var hópnum svo gefinn kostur á að lengja feröina um einn sólar- hring vegna fyrri tafar og þáðu flestir það. Þegar koma varð 230 manns aft- ur til íslands með áætlun- arflugi með svo stuttum fyrirvara sem raun varð á, var ekki sjálfgefið að allir kæmust með sömu vél á sama áfangastað og þurfti þess vegna að skipta hópn- um. Stærsti hlutinn flaug til Zurich, þar sem Atl- antaflugvél beiö eftir far- þegunum og flaug með þá heim. Nokkrir urðu að fara um Kaupmannahöfn. Vorum við hjónin ein af þeim þótt við hefðum frekar kosið að fara með hinum hópnum því þá hefðum við komið nokkrum klukkustundum fyrr til landsins. Þegar við lentum i Kaupmannahöfn beiö okkar rúta frá Úr- vali/Útsýn sem kom okk- ur í miðbæinn. Okkur var boðið að geyma farangur á skrifstofu þeirra og matur og drykkur var okkur að kostnaöarlausu. Að lokum var okkur komið út á flug- völl og tók þá fyrst við erf- ið bið því Flugleiöavél, sem við þráðum öll að komast sem fyrst í eftir langt og erfitt ferðalag, hafði seinkað um eina og hálfa klukkustund. ■ Að lokum þökkum við öllum að- standendum þessarar Kínafarar fyr- ir frábæra ferð, skipulagningu og skjótar úrlausnir sem voru til fyrir- myndar við aöstæður sem engan þeirra hafði órað fyrir að lenda í né óskað eftir. Prófkjör samfýlkingarsinna Jón Pálmi Steingrímsson skrifar: í framhaldi af pistli mínum í les- endadálki DV í gær, „Prófkjör í Kópavogi", vil ég skjóta hér inn nokkrum línum um prófkjör og þá skoðun mína að opin prófkjör séu ekki eins lýðræðisleg og látið er í veðri vaka. Allra síst eftir aö komið hefur í ljós við skoðun á kjörstöðum að það er sama fólkið að hluta til sem tek- ur þátt í prófkjörum bæði Alþýðu- flokksins og Sjálfstæðisflokksins hér í Kópavogi, og reyndar í Hafnar- firði líka. Nú vilja kratar opiö prófkjör fyr- ir sameininguna, en hinir í henni tregir í taumi til þess leiks. Þeir vita að kratar kunna þetta betur og munu ná fleiri sætum á listanum. Það er ein leiö fær fyrir þá; hún er sú að fá þá Hrannar og Helgana til að kenna og leiða leikinn. Forystu- menn þeirra flokka sem þetta stunda hafa nú að loknu prófkjöri á Reykjanesi sagt í fjölmiðlum að þeir hefðu ekki fengið sæti á listunum nema með svonefndu“lausagöngu- fólki" úr ýmsum flokkum. Sem þýð- ir að félagsmenn og -konur treysta þeim ekki til forystu, og er það stór dómur á eigin verðleika. Ég er sam- mála Áma Mathiesen, að hann hefði ekki verið valinn innan félags- ins, og svo mun vera um fleiri, sem á listanum verða. Þessi leikaraskap- ur er orðinn þjóðinni dýr og verður að hætta. Við þurfum ábyrga menn og konur á Alþingi íslendinga. Ofstopar undir stýri í umferðinni „Lögreglan gerir vel í því að herða eftirlit með ökumönnum verulega." Guðjón Gíslason hringdi: Ég er hundrað prósent sammála því sem gert er í einstökum ríkjum Bandaríkjanna og víðar, að lögregl- an lætur birta nöfn umferðarlaga- brjóta á Netinu, þeim sjáifum til viðvömnar, því það er ákveðin refs- ing að láta birta nöfn sín opinber- lega. Síst vilja menn láta vitnast að þeir hafi framið eitt eða annað brot sem er refsivert að lögum. Auðvitað verða alltaf einhveijir til að gagnrýna svona aðferð en mér finnst það ekki skipta máli, heldur það eitt að kenna ofstopum í um- ferðinni aö snúa af braut sinni. Það er stórhættulegt hvemig margir ökumenn haga sér og slíkir menn em hættulegir öðmm í umferðinni. Ekki er ólíklegt að þeir séu líka hættulegir annars staðar. Að láta öllum illum látum við stýri bifreiðar er einmitt merki um að ekki sé allt með felldu í sálarlífi viðkomandi. Við íslendingar eigum því miður æði marga ökumenn sem ekki ættu að sitja undir stýri eða hafa ökupróf yrirleitt. Og það sem verst er; við höfum enga eöa sáralitla möguleika á að refsa þessum mönnum nema þeir verði beinlínis valdir aö óhappi í umfrerðinni. Oft alltof hörmuleg- um. Ég mæli með því að birt verði nöfn slíkra manna, sérstaklega þeirra sem eru teknir fyrir endur- tekin lögbrot undir stýri. - Lögregl- an gerir vel í þvi að herða eftirlit með ökumönnum verulega. Verðbréfafárið M.K.Á. skrifar: Maðm- hlustar á fréttir og les um að verðbréfasalar hafi ekki undan að anna eftirspurn eftir veröbréfúm í hverju sem vera skal. Mér finnst mér þetta með ólíkindum. Ekki síst vegna þess að enginn veit í raun hvert verið er aö róa með þessum kaupum á verðbréfum. Það er spáð óvissutímum í efhahagsmálum, bæði af Seðlabankanum og hinni þekktu OECD-stofnun, sem við tök- um mikið mark á. Og óvissutíminn er vissulega genginn í garð hér með undirliggjandi verðbólgu sem getur þotið upp og svo hinni gegndar- lausu eyðslu fólksins. Ég þyrði ekki að kaupa bréf við þessar aðstæður. Hið rétta er að láta allt kyrrt liggja og sjá hverju fram vindur. Ástþór fær meðbyrinn Guðrún Árnad. hringdi: í deilumálunum um jólapakka- sendingar héðan tO Kósóvó eða Bosníu sem hafa blossað upp milli Ástþórs Magnússonar og Norður- pólsins á Akureyri, held ég að sam- úöin sé öll Ástþórs megin. Ekki síst þar sem svo virðist sem þeir Norður- pólsmenn hafl aldrei ætlað að flytja neina jólapakka til hörmungarsvæð- anna í Júgóslavíu, heldur viljað vera með allt á þurru að þessu leyti. Bara ætlað að fá næga aðsókn af fólki meö krakka héðan úr þéttbýlinu til Akur- eyrar. Ástþór virðist geta fram- kvæmt það sem hann bryddar upp á. Það er ekki allra að fara í skóna hans, sýnist mér. Olíumálin út og suður Jóhannes hringdi: Einkennilegt finnst mér hvemig ráðamenn hér taka á hinum svokölluðu olíumálum. Ég á við rannsóknir á þeim setlögum sem búið er að sanna að hér séu til stað- ar út af Norðurlandi eystra og jafn- vel á landinu sjálfú, t.d. í Flatey á Skjálfanda. Nú tala ráðamenn hér um að ræöa þurfi við bresk og írsk stjómvöld um Hatton-Rockall-svæð- ið sem er langt suður af landinu og engin vissa fyrir neinni eignaraðild okkar að því svæði. En stjómvöld eiga að líta sér nær og láta kanna sem fyrst hvort hér viö land sé vinnanleg olía. Færeyingar era komnir af stað og við þurfum ekki að verða eftirbátar þeirra. Þetta get- ur allt veriö okkur aö kostnaðar- lausu, boranir jafnt sem vinnsla olíu ef hún finnst hér, en afrakstur- inn okkar. Styð farþega- siglingar Ómar hringdi: Ég vil taka undir lesendabréf í DV sl. mánudag þar sem bréfritari reifar hvernig hefja megi siglingar með farþega til nálægari landa og einnig til sólarlanda, þar sem að- staða sé komin í Þorlákshöfn og því þurfi ekki að sigla fyrir Reykjanes- ið til Reykjavíkur. Það getur sparað kannski samtals 10 tíma eða meira. Ég er ekki í vafa um að íslendingar tækju því fegins hendi að geta tekið sæmilega búið farþegaskip til að ferðast með til og frá landinu. Ég skora á framtaksama einstak- linga að kanna þetta mál nánar. Jepparnir á hálendinu Doddi hringdi: Maður getur nú ekki haft mikla samúð með þessum jeppaeigendum sem festa þessi farartæki á hálend- inu eða missa þau niður jökulslakk- ana viö það að frílista sig á öræfum. í raun ætti ekki að sinna neinum útköllum vegna fólks sem lendir í ógöngum uppi um fjöll og firnindi, nema það hafi verið viö nauðsynleg störf sem auðvitaö era nauðsynleg, t.d. við rannsóknir o.þ.h. - Auk þess sem þessi farartæki hafa skilið eftir ómældar sorgarrendur í sverðinum og fást aldrei bættar af tjónvöldum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.