Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.1998, Blaðsíða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.1998, Blaðsíða 33
53 I • ■ . • • ] DV MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 1998 J i í í I í 3 i i í Í Sólrún Braga- dóttir og Margaret Singer halda tónleika í Hafnar- borg í kvöld. Síðustu tón- leikar Sólrúnar Sólrún Bragadóttir óperusöng- kona hefur verið á faraldsfæti um landið í tónleikaferð. Nú er komið að lokum og síðustu tónleikamir verða í Hafnarborg, menningar- miðstöð Hafnarfjarðar, í kvöld kl. 20.30. Tónleikarnir eru haldnir af því tilefhi að nýbúið er að gefa út geislaplötu þar sem Sólrún syngur islenskar einsöngsperlur eftir Sig- valda Kaldalóns, Þorkel Sigur- bjömsson, Atla Heimi Sveinsson, Tryggva Baldursson, Karl 0. Run- ólfsson, Jón Ásgeirsson og Svein- bjöm Sveinbjörnsson. Á tónleik- unum syngur hún lög af plötunni ásamt lögum eftir Brahms, Bern- stein og Mozart og er undirleikari hjá henni bandaríski píanóleikar- inn Margaret Singer sem einnig leikur undir á plötunni sem er fyrsta geislaplata Sólrúnar undir eigin nafni. Hún hefur áður kom- ið fram á nokkrum geislaplötum. Tónleikar Sólrún Bragadóttir er ein þekktasta óperusöngkona okkar íslendinga. Hún hefur komið fram í mörgum af helstu aðalhlutverk- um óperubókmenntanna. Hafa óp- emhús á meginlandi Evrópu, Bretlandi og Japan sóst eftir sam- starfi við hana. Auk þess hefur hún haldið fjölda ljóðatónleika hér á landi sem og erlendis og margoft komið fram með Sinfón- íuhljómsveit íslands. Lesið úr nýjum bókum Lesið verður úr sex nýjum bók- um á Grandrokk við Klapparstíg 1 kvöld kl. 2. Stein- grímur Her- mannsson og Dag- ur Eggertsson kynna ævisögu Steingríms. Silja Aðalsteinsdóttir les úr bók sinni Perlur úr ljóðum, Sigmundur Ernir úr Sjaldgæfu fólk, Jón Múli Guðrún Eva úr Á ÍÁrnason. meðan hann horf- ir á þig ertu Mar- I ía mey, Þorvaldur Þorsteinsson úr bókinni Blíðfinnur en þú mátt kalla mig Bóbó og Jón Múli Ámason les úr Þjóðsögum sínum. Hinsegin fræði og kyngervisull Geir Svansson bókmenntafræð- ingur verður með fyrirlestur kl. 12 á morgun í stofu 201 í Odda, sem hef- ur yfirskriftina Hinsegin fræði og kyngervisull. Um kenningar Judith | Buuer. ITC-deildin Melkorka Fundur verður í Menningarmið- stöðinni Gerðubergi í kvöld kl. 20. Fundurinn er öllum opinn. Samkomur Ráðhús Reykjavíkur: Ole Kock og Stórsveitin I kvöld heldur Stórsveit Reykjavík- ur tónleika í Ráhúsi Reykjavíkur þar sem hinn þekkti danski djassmaður Ole Kock Hansen mun stjóma hljóm- sveitinni. Ole Kock hefur lengi verið í hópi virtustu tónlistarmanna í Dan- mörku. Hann hefur stjómað og útsett fyrir dönsku útvarpshljómsveitina með góðum árangri og þá hefur hann átt langt og gott samstaf með Niels Henning Orsted Pedersen. Með hon- um hefur Ole Kock komið til íslands í þrigang, fyrst 1977, síðan 1985 þar sem hann meðal annars útsetti ís- lensk þjóðlög fyrir djasstríó og Skemmtanir strengjakvartett sem síðar kom út á plötu og síðast 1994 þegar þeir félag- ar ásamt Alex Riel léku á upphafstón- leikum RúRek-djasshátíðarinnar. Stórsveit Reykjavíkur mun í kvöld flytja útsetningar Ole Kock á þjóðlög- um, eigin verkum og annarra. Það er óhætt að segja að mikill fengur er fyrir Stórsveit Reykjavíkur í komu Ole Kock Hansen til landsins en hann er einn af fremstu djasshljóm- sveitarstjórum Evrópu um þessar mundir. Þess má geta að Ole Kock Hansen mun leika á píanó hjá gospelsöngkon- unni Ettu Cameron í Bústaðakirkju fóstudags- og laugardagskvöld. Ole Koch Hansen stjórnar stórsveitinni á æfingu. Veðrið í dag Gengur í hvassa norðanátt Skammt suðvestur af Reykjanesi er víðáttumikil 953 mb. iægð sem þokast norðaustur yfir landið. í dag verður suðvestan stinnings- kaldi eða allhvasst og rigning eða skúrir suðaustan til en léttir til á Norðausturlandi. Gengur í all- hvassa eða hvassa norðanátt með slyddu eða snjókomu norðvestan til og vaxandi norðvestanátt og slydd- uél á Suðvesturlandi seint í kvöld. Hiti víða 3 til 7 stig en heldur kóln- andi um vestanvert landið. Á höfuðborgarsvæðinu verður hæg breytileg átt og skúrir en norð- vestan stinningskaldi og slydduél í kvöld. Hiti 1 til 4 stig. Sólarlag í Reykjavík: 16.04 Sólarupprás á morgun: 10.27 Síðdegisflóð í Reykjavík: 21.44 Árdegisflóð á morgun: 10.05 Veðrið kl. 6 i morgun: Akureyri alskýjaö 5 Akurnes léttskýjaö 5 Bergstaöir snjókoma 0 Bolungarvík alskýjaö 1 Egilsstaðir 5 Kirkjubœjarkl. léttskýjaö 1 Keflavíkurflv. skýjaö 4 Raufarhöfn alskýjaó 2 Reykjavík skýjaö 3 Stórhöföi úrkoma í grennd 3 Bergen rigning 6 Kaupmhöfn snjókoma 1 Algarve heiðskírt 8 Amsterdam F.úði/rign. á síö. kls. 0 Barcelona hálfskýjað 6 Dublin skýjaö 4 Halifax heiöskírt 3 Frankfurt þokumóöa -1 Hamborg snjókoma 0 Jan Mayen þokumóöa 3 London súld 6 Lúxemborg þokumóöa -5 Mallorca léttskýjaö 3 Montreal þoka 3 Nuuk alskýjaö -8 París súld 1 Róm þokumóöa 4 Vín þokuruöningur -8 Winnipeg þoka 1 Hálka og hálkublettir Hálka og hálkublettir eru víða á landsbyggðinni og snjóþekja á leiðum sem liggja hátt. Á Vestur- landi og Vestfjörðum er hálka á fjallvegum og viða með ströndinni. Á Norðaustur- og Austurlandi er Færð á vegum vetrarfæri á fjallvegum og hálka með norðaustur- ströndinni. Ófært er um Hellisheiði eystri, Lágheiði og Öxarfjarðarheiði. Unnið er að lagfæringu á leið- inni Botn-Súðavík og Laugarvatn-Þrastarlundur 4^ Skafrenningur E3 Steinkast 0 Háika Cb Ófært B Vegavinna-aOgát 0 Öxulþungatakmarkanir m Þungfært (£> Fært fjallabílum Félag eldri borgara í Reykjavík í Ásgarði verður línudans kl. 18.30 og bingó á morgun kl. 19.45. í Þorraseli verður handavinna og jólaföndur í umsjón Kristínar Hjaltadóttur kl. 13.30. Hafnagönguhópurinn í kvöld stendur Hafnagönguhóp- í urinn fyrir gönguferð frá Hafnar- húsinu kl. 20 vestur með ströndinni út á Snoppu við Gróttu. Á leiðinni verður litið inn hjá Landhelgisgæsl- unni. Allir eru velkomnir. Rakel Ósk Litla stúlkan sem er með bróður sínum á myndinni hefur fengið nafnið Rakel Ósk. Hún fæddist á fæðingardeild Landspítalans 5. ágúst Barn dagsins síðastliðinn kl. 11.26. Viö fæðingu var hún 3900 grömm og 53 sentímetrar. Bróðir hennar heitir Am- ar Þór og var hann átján mánaða þegar hann fædd- ist. Foreldrar systkin- anna eru Margrét Hjálm- arsdóttir og Ásgeir Ei- riksson. (I * Truman-“hjónin“. Laura Linney og Jim Carrey í hlutverkum sfnum. The Truman Show Laugarásbíó sýnir úrvalsmynd- ina The Truman Show, kvikmynd sem alls staðar hefur vakið mikla athygli og era margir á því að hún muni keppa við Saving Private Ryan um óskarsverðlaunin i apríl á næsta ári. The Truman Show fjallar um Truman Burbank, sem ekki veit af því að hann er skærasta sjónvarpsstjama nútím- ans, hann er aðalleikari vin- sælasta sjónvarpsþáttar í heimi sem sjónvarpað er tuttugu og fjóra tíma á sólarhring. Með hlut- verk Trumans fer grínistinn Jim Car- /////////, Kvikmyndir rey sem sýnir á sér nýja hlið í krefjandi hlutverki. Aðrir leikarar eru Ed Harris sem leikur skapara Trumans og höfund sjónvarpsþáttanna, Laura Linney sem leikur eiginkonu Trumans og Natasha McElhone sem leikur hina einu sönnu ást í lífi Trumans. Leikstjóri er Peter Weir, einn virt- asti leikstjóri nútímans. Nýjar myndir í kvikmyndahúsum: Bíóhöllin: A Smile like Yours Bíóborgin: The Avengers Háskólabíó:Maurar Háskólabíó: Út úr sýn Kringlubíó: Popp í Reykjavfk Laugarásbfó: Blade Regnboginn: There's Something about Mary Stjörnubfó: Dansaðu við mig Krossgátan 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 Lárétt: 1 pottur, 6 viðumefni, 8 peninga, 9 kvöl, 10 vísan, 12 saltlög, 14 lærdómstitill, 15 fálm, 17 tré, 19 óhreina, 21 rennsli, 22 einkenni. Lóðrétt: 1 blaðrar, 2 kvenmanns- nafn, 3 bogi, 4 haldi, 5 kjánalega, 6 kvaldi, 7 bjálfar, 11 sáðlands, 13 áköfu, 16 grip, 18 svaladrykkur, 20 rykkom. Lausn á síðustu krossgátu: Lárétt: 1 pottlok, 7 ófær, 9 efa, 10 strik, 11 sting, 12 teitur, 14 urta, 16 róa, 18 rjá, 19 rein, 21 kappi, 22 ræ. Lóðrétt: 1 póstur, 2 oft, 3 tæri, 4 lek- ur, 5 ofar, 6 kaldan, 8 ritar, 13 erja, 15 táp, 17 óir, 20 ei. Gengið Almennt gengi LÍ 25. 11. 1998 kl. 9.15 Eining Kaup Sala Tollgengi Dollar 70,190 70,550 69,270 Pund 116,390 116,990 116,010 Kan. dollar 45,280 45,560 44,900 Dönsk kr. 10,8400 10,8980 11,0520 Norsk kr 9,3620 9,4140 9,3900 Sænsk kr. 8,6640 8,7120 8,8310 Fi. mark 13,5520 13,6320 13,8110 Fra. franki 12,2880 12,3580 12,5330 Belg. franki 1,9971 2,0091 2,0372 Sviss. franki 49,9400 50,2200 51,8100 Holl. gyllini 36,5400 36,7600 37,2600 Þýskt mark 41,2100 41,4300 42,0200 ít. lira 0,041610 0,04187 0,042500 Aust sch. 5,8550 5,8910 5,9760 Port. escudo 0,4018 0,4042 0,4100 Spá. peseti 0,4844 0,4874 0,4947 Jap. yen 0,580400 0,58380 0,590400 írskt pund 102,400 103,040 104,610 SDR 97,200000 97,78000 97,510000 ECU 81,1500 81,6300 82,7000 Simsvari vegna gengisskráningar 5623270

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.