Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.1998, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.1998, Blaðsíða 21
MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 1998 41 ^ Fréttir Kenningum kollvarpað um ferlimál refa? - merktur yrðlingur úr Kjaransvík á Hornströndum veiddist á Rauðamýri við Djúp Guðmundur Valdimarsson refaskytta. DV-myndir Hörður. Veiðimaðurinn Guðmundur Valdi- marsson lá 7. nóvember yfir útburði á Rauðamýri við Djúp. Hann náði að skjóta 4 unga refi sem sóttu í það sem Guðmundur lagði fyrir þá. Einn af þeim var merktur og með senditæki um hálsinn. Þegar Guðmundur skoð- aði hræið kom í ljós að þama var um yrðling að ræða sem merktur var í Kjaransvík á Homstöndum í sumar. Það vakti athygli Guðmundar að þessi yrðlingur var áberandi stæltast- ur og best á sig kominn af þeim fjór- um sem hann veiddi. Hann hafði strax samband við Pál Hersteinsson og sendi honrnn yrðling- inn til rannsóknar. Stysta mögulega leið frá Kjaransvik að Rauðamýri á korti er um 65 km og þá ekki tekið til- lit til holta og hæða. Því er líklegt að yrðlingurinn hafi í sumar ferðast að minnsta kosti á annað hundrað kíló- metra. Páll staðfesti það að refurinn væri einn þeirra sem hann merkti í Kjaransvík í sumar. Þessi var búinn hefðbundnum radíósendi en ekki Líffræðingarnir sem stunduðu refarannsóknir í Hlöðuvík, Kjaransvík og þar um kring í sumar, talið frá vinstri: Ester Ruth Unnsteinsdóttir, Páll Hersteins- son og Hólmfríður Sigþórsdóttir. gervihnattasendi og var sendirinn í fullkomnu lagi. Slíkum sendum er að- eins hægt að fylgjast með af tiltölu- lega stuttu færi með miðunartæki. Ekki er því vitað hvaða leið rebbi hef- ur farið. Páll var við rannsóknir á refum í Hlöðuvík og nálægum vikum í sumar ásamt 2 öðrum vísindamönnum. Voru þá merktir refir úr grenjum á svæð- inu, m.a. með gervihnattasendum til að hægt væri að fylgjast með ferli þeirra. Alls voru þá eymamerkt 24 dýr. Refarannsóknir á Ströndum vom gerðar í framhaldi af umræðu um veiðar á ref í friðlandinu. Gervi- hnattasendar í hálsbandi vora settir á 5 refi en þeir era nú allir óvirkir nema einn. Sá refur sem enn er hægt að fylgjast með er farinn að heiman. Hefur hann farið 12 km og komið ann- að slagið heim aftur. Dýrið sem Guð- mundur veiddi hafði farið heldur lengra en hann hafi vitað til áður um refi sem hann merkti á Vestfjörðum fyrir 20 árum. Bændur við Djúp, með Indriða Að- alsteinsson á Skjaldfönn í farar- broddi, og fleiri refaskyttur hafa áram saman haldið því fram að refir Indriði Aðalsteinsson á Skjaldfönn. dreifðust frá Homströndum suður um ísafiarðardjúp og víðar. Af þeim sök- um vildi Indriði láta leyfa refaveiðar á Hornströndum. Er Guðmundur með drápi sínu á tófuyrðlingnum frá Kjaransvík 7. nóv- ember búinn að kollvarpa kenningum fræðimanna um ferlimál refa? „Þetta kollvarpar engum kenning- um,“ sagði Páll Hersteinsson. „Alla- vega era engar slíkar kenningar komnar frá mér. Ég merkti 33 yrð- linga á Vestfiörðum 1980 til 1982. Af þeim endurheimtust 20. Meðalvega- lengdin sem þeir höfðu farið vora 24 km eða frá 0 og upp í 59 km. Þessi fór 63 km og er álíka og þeir sem höfðu farið lengst áður. Á þeim tíma var þó refastofninn miklu minni. Það sem maður veit ekki er hversu mikil áhrif aukinn þéttleiki i stofninum hefur á ferðir refanna. Það var nú einmitt það sem var meiningin að reyna að fá upplýsingar um.“ Verður refarannsóknum haldið áfram á Ströndum næsta sumar? „Ég á von á því. Maður veit þó ekki fyrr en á næsta ári hvað fæst af peningum tO þess. Ég held að það sé mjög mikilvægt að halda þessu áfram og reyna að þróa þessa senda þannig að þeir dugi. Þær upplýsingar sem þeir veita eru gríðarlega gagnlegar. Það hefur komið í ljós að það er ein- hver galli á þeim en hver hann er veit maður ekki. Líklegasta skýringin er sú að loftnetin hafi skemmst í slags- málum eða á annan hátt,“ sagði Páll. -HKr. BIFREIÐASTILLINGAR NICOLAI RÆSTINGAR FYRIRTÆKJA RÆSTINGAR STOFNANA RÆSTINGAR HEIMILA jtbk. Árnarberg ehf Fossháls 27 • Draghálsmegin Sími 567 7557 • Fax 567 7559 M. /- Allar lagnir, vökvahraðtengi aftan og framan, gaflar fyrir hraðtengi, 40, 60 og 90 cm skóflur. Verð kr. 4 millj,- án vsk. í toppstandi, nýtt lakk, vökvalagnir, 25 og 55 cm skóflur. Verð kr. 1.750.000,- án vsk. Gúmmíbelti, vökvalagnir og slétt skófla, 85 cm. Verð kr. 1.650.000,- án vsk. Hraðtengi framan, vökvalagnir, 55 cm skófla. Verð kr. 2.150.000,- án vsk. Yfirfarin, servo, 90 cm skófla. Verð kr. 1.200.000,- án vsk. kraftvClar Dalvegi 6-8 • 200 Kópavogi s:535 3500/fax 5353519 e-mail peturi@kraftvelar.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.