Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.1998, Blaðsíða 9
MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 1998
9
I>V
Norsku ríkisstjórninni bjargað frá falli í gærkvöldi:
Bondevik beygður
- forsætisráðherrann varð að samþykkja íjárlagafrumvarp hægrimanna
DV, Ósló:
„Óreiðan, sem verið hefur á
stjóm landsins, verður að taka
enda. Það verður að byggja upp að
nýju traust á efhahagsstjóminni og
það mun okkur takast," sagði Jan
Peterssen, formaður norska Hægri-
flokksins, eftir að hann hafði bjarg-
að lífi norsku ríkisstjómarinnar í
gærkvöldi. Hægrimenn ætla í félagi
við Framfciraflokkinn að tryggja að
ný fjárlög verði samþykkt á næstu
dögum.
En gjaldið var hátt sem séra Kjell
Magne Bondevik forsætisráðherra
varð að greiða til að halda stól sín-
um. Hann varð að samþykkja Eillar
hugmyndir hægrimanna um ný fjár-
lög. Fyrirhugað var að inn-
heimta 20 milljarða íslenskra
króna með nýjum sköttum á
næsta ári en þau áform verður
séra Kjell Magne nú að strika
út úr fjárlagafrumvarpi sínu.
Og hann verður að skera nið-
ur útgjöld um þessa sömu 20
milljarða.
Norskir fréttaskýrendur era
sammála um að þessi niður-
staða sé ósigur fyrir séra Kjell
Magne. Það eina sem hann
hefur öragg tök á nú eftir fjár-
lagakreppuna er stóll forsætis-
ráðherra.
Raunveruleg stjóm landsins
er nú aö sögn í höndum flokk-
anna tveggja til hægri við
Kjell Magne Bondevik, forsætisráðherra
Noregs.
stjómina, Hægriflokksins og
Framfaraflokksins. Stjómar-
liðar hafa nú einnig orðið að
lofa að hefja einkavæðingu
ríkisfyrirtækja en það er þeim
mjög óljúft.
Stjóm séra Kjell Magne hef-
ur aðeins fjórðung þingmanna
á Stórþinginu að baki sér og
því verður hann að kaupa sér
stuðning dýra verði í öllum
helstu málum. Carl I. Hagen,
formaður Framfaraflokksins,
sagði þegar stjómin var
mynduð á síðasta ári að hún
yrði aldrei annað en viljalaust
verkfæri í höndum þingsins.
Það hefur nú sannast enn einu
sinni. -GK
_______________Útlönd
Öryggisráðið
ekki einhuga
um íraksmál
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna
lýsti í nótt yfir fullinn stuðningi við
starf vopnaeftirlitssveitir S.Þ. í
írak. Fulltrúar í ráðinu komu sér
þó ekki saman um að veita írösk-
um stjómvöldum ákúrur fyrir að
afhenda eftirlitsmönnum ekki við-
kvæm gögn um vopnabirgðir lands-
ins. Það vora Rússar sem komu í
veg fyrir að uppkast að ályktun frá
Bretum um að írakar stæðu ekki
við fyrri loforð um fuila samvinnu
næði fram að ganga.
Vilja vítur
Nokkrir þingmenn demókrata í
dómsmálanefnd fulltrúadeildar
Bandaríkjaþings tilkynntu í gær
að þeir ætluðu að leggja fram til-
lögu um að Bill Clinton forseti
yrði víttur en ekki sóttur til saka
fyrir embættisafglöp í Lewinsky-
málinu. Demókratar eru ekki ein-
huga um tillöguna.
Elísabet Englandsdrottning mætti f
fullum skrúða í breska þinghúsið í
gær. í þingsetningarræðu sinni las
hún upp frumvarp sem kveður á um
að aðalsmenn fái ekki lengur sæti í
lávaröadeildinni út á ætternið eitt.
Milosevic rekur
yfirhershöföingja
Slobodan Milosevic, forseti
Júgóslavíu, hefur vikið æðsta
manna júgóslavneska hersins,
Momcilo Perisic hershöfðingja, úr
embætti að þvi er júgóslavneska
fréttastofan Tanjug skýrði frá í gær-
kvöld.
Talið er að brottreksturinn end-
urspegli áhyggjur Milosevic af and-
stöðu við stjómarstefnu sina. Per-
isic hafði lengi kvartað undan því
að ríkislögreglusveitunum væri
hyglað á kostnað hersins.
Kanar óttast
Bandarísk stjómvöld hafa um
langt skeið neitað að fara burt frá
Thule-svæðinu á Grænlandi af ótta
við hryðjuverkaárásir á bandarísku
flugstöðina þar. Niels Helveg Peter-
sen, utanríkisráðherra Danmerkur,
hefur nú fallist á að aðstoða græn-
lensku heimastjómina í málinu.
Grænlendingar hafa frá 1995 óskað
eftir að fá svæðið aftur til umráða.
SÍÐUSTU EINTÖKIN
BALENO g*e***~4X41
ÁLFELGUR - VETRARDEKK - FJARSTÝRÐ SAMLÆSING - GEISLASPILARI
vökva/veltistýri • upphituð framsæti • 2 loftpúðar
rafmagn í rúðum og speglum • aflmikil 16 ventla vél •
vindkljúfur með hemlaljósi • styrktarbitar í hurðum
samlitaðir stuðarar • hæðarstillanleg kippibelti
^ BALENO EXCLUSIVE 4X4
1.595.000 kr.
$ SUZUKI
“4T4*-
SUZUKI SÖ1UUMB0Ð: Akranes: Ólafur G. Ólafsson, Garðabraut 2, simi 431 28 00. Akureyri: BSA hf., Laufásgötu 9, simi 462 63 00. Egilsstaðir: Bila- og búvélasalan hf.,
Miðási 19, simi 471 20 11. Hafnarfjörður: Guðvarður Eliasson, Grænukinn 20, simi 555 15 50. Isafjörður: Bilagarður ehf.,Grænagarði, simi 456 30 95. Keflavik: BG
bilakringlan, Grófinni 8, simi 421 12 00. Selfoss: Bílasala Suðurlands, Hrísmýri 5, sími 482 37 00. Hvammstanga: Bila- og búvélasalan, Melavegi 17, sími 451 26 17.
SUZUKIBILAR HF
Skeifunni 17. Simi 568 51 00.
Heimasida: www.suzukibilar.is
Það er síminn til þín!
Höfmn bætt UNITED gæðasimtækjum við vóruuivalið.
ÞOLA VERÐSAMANBURÐ!