Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.1998, Page 8
8
Húsfriðiinarsj óður
Húsfriðunarnefnd ríkisins auglýsir
eftir lunsóknum til Húsfriðunarsjóðs,
sbr. ákvæði í þjóðminjalögum.
Veittir eru styrkir til að greiða hluta kostnaðar vegna:
- undirbúnings framkvæmda, áædanagerð og tækndegrar ráðgjafar
og til framkvæmda vegna viðhalds og endurbóta á friðuðum húsum
og húsum sem hafa menningarsögulegt og listrænt gddi.
- hyggingasögulegra rannsókna og útgáfu þeirra.
Að gefnu tilefni er hlutaðeigendum bent á að leita eftir áliti
Húsfriðunarnefndar ríkisins og sækja
um styrk áður en framkvæmdir hefjast.
Umsóknir skulu berast eigi síðar en 1. febrúar 1999 til
Húsfriðunarnefndar rikisins, Lyngási 7, 210 Garðabæ, á
umsóknareyðublöðum sem þar fást. Eyðublöðin verða póstlögð til
þeirra sem þess óska.
Frekari upplýsingar eru veittar í síma 530 2260 milii kl. 10.30 og 12
virka daga.
Húsfriðunarnefnd ríkisins
ják
LYFjAVERSLUN ÍSLANDS HF.
HLUTHAFAFUNDUR
LYFJAVERSLUNAR ÍSLANDS HF.
VERÐUR HALDINN AÐ BORGARTÚNI 6, 4. HÆÐ
(RÚGBRAUÐSGERÐIN)
MIÐVIKUDAGINN 9. DESEMBER, KL. 16.00
Dagskrá:
1. Tillaga um staðfestingu á sölu á framleiöslu- og
þróunardeildar félagsins til Delta hf.
2. Tillaga stjómar um að félaginu sé heimilt að kaupa
allt að 10% eigin hluti samkvæmt 55. grein laga
um hlutafélög.
Dagskrá og endanlegar tillögur munu liggja frammi
á skrifstofu félagsins 7 dögum fyrir hluthafafund.
Aðgöngumiðar, atkvæðaseðlar og fundargögn verða
afhent á skrifstofu félagsins Borgartúni 7, á 2 hæb,
dagana 2.- 8. desember kl. 9-16. Hluthöfum er
vinsamlegast bent á að vitja fundargagna sinna fyrir
kl. 16. þriðjudaginn 8. desember.
Stjórn Lyfjaverslunar íslands hf.
Utlönd
MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 1998
Stuttar fréttir i>v
Þingkona jöröuö í Rússlandi:
Morðingjar
hræða ekki
Þúsundir Rússa fylgdu frjáls-
lyndu þingkonunni Galínu
Starovojtovu, sem var myrt á fostu-
dagskvöld, til grafar í Pétursborg í
gær. Samherjar hennar í stjómmál-
um hétu því að láta morðingjana
ekki hræða sig til aö gefa umbóta-
stefnuna upp á bátinn.
Forsætisráðherramir fyrrver-
andi, þeir Viktor Tsjemomyrdín,
Jegor Gaídar og Sergei Kíríjenkó,
stóðu þungir á brún við opna kistu
þingkonunnar í Marmarasal mann-
fræðisafnsins í Pétursborg.
Óbreyttir borgarar létu fimb-
ulkulda ekki aftra sér frá því að
votta hinni 52 ára gömlu baráttu-
konu hinstu virðingu sína. Mikinn
óhug sló að Rússum við morðið á
þingkonunni og em þeir þó vanir
alls kyns launmorðum.
Ekki sama landiö
Írína Khakamada, einn leiðtoga
öjálslyndra í Rússlandi, sagði eftir-
farandi um morguninn eftir morðið
á Starovojtovu: „Landið var ekki
samt og áður þegar ég vaknaði."
Biðraðir fólksins sem vildi ganga
fram hjá kistu þingkonunnar vom
svo langar að þriggja klukkustunda
töf varð á jaröarforinni.
Starovojtova var jarðsett í Alexand-
er Nevskí klaustrinu þar sem stór-
menni á borð við rithöfundinn
Fjodor Dostojevskí hvíla.
„Þeir em að drepa félaga okkar
og vini. Vilja þeir stöðva okkm'?
Vilja þeir hræða okkur? Þeim tekst
það ekki. Engum mun takast það,“
sagði hinn frjálslyndi Anatólí
Tsjúbaís, fyrrum fjármálaráðherra
Rússlands og andkommúnisti.
„Við getum sagt það hátt og skýrt
yfir gröf látins félaga okkar. Hver
svo sem reynir að stöðva þaö sem
við höfúm fengið áorkað mun ekki
verða kápan úr því klæðinu," sagði
Tsjúbaís allt að því grátklökkur.
Skotið á alla
Tsjemomyrdín hvatti lýðræðis-
öflin í landinu, sem em ákaflega
sundrað, að snúa nú bökum saman.
„Þessum skotum var skotið að
okkur öllum,“ sagði Tsjemomyrdín.
Starovojtova sat i Dúmunni,
neðri deild þingsins, þar sem hún
gagnrýndi harðlega kommúnista og
þjóðemissinna sem þar era í meiri-
hluta. Fjölmiðlar hafa lýst morði
hennar sem fyrsta pólitíska morð-
inu á frammámanni í stjómmálum
frá falli Sovétríkjanna 1991.
Þúsundir venjulegra Rússa kvöddu þingkonuna Galínu Starovojtovu hinstu
kveöju í gær. Galína var myrt fyrir utan heimili sitt á föstudagskvöld.
Fluttir nauðugir
Útvarp ísraelska hersins til-
kynnti í gær að nú gætu ísraelar
flutt inn í hús á svæði Palestínu-
manna í Jerúsalem þar sem
Palestínumennimir sem vom
fyrir hafl verið fluttir nauðugir á
brott.
Dani málar Karl
Danski listmálarinn Thomas
Kluge hefúr verið beðinn um að
mála mynd af
Karli Breta-
prinsi. Myndin
er gjöf til prins-
ins í tilefni
þess að 10 ár
em liðin síðan
sjóður hans til
styrktar ungu
fólki var stofnaður. Thomas Klu-
ge, sem er 29 ára, málaði fyrir
þremm- árum mynd af Margréti
Þórhildi Danadrottningu. Sú
mynd var brúðkaupsgjöf til
Jóakims prins og Alexöndm
prinsessu.
Vantrauststillaga
Tyrkneskir þingmenn greiða í
dag atkvæði um vantraust á
stjóm Mesuts Yilmaz forsætis-
ráðherra. Yilmaz hefur verið sak-
aður um samstarf við mafíósa.
Varaðir við Viagra
Matvæla- og lyfjaeftirlit Banda-
ríkjanna varar menn með hjarta-
kvúla og háan blóðþrýsting við
að taka rislyfið Viagra.
Kennedy iðraðist
John F. Kennedy, fyrrverandi
forseti Bandaríkjanna, iðraðist
mjög ákvörðunar sinnar um að
hvetja til valdaránsins í S-Ví-
etnam 1963. Þetta kemur fram af
segulbandsupptökum sem gerðar
hafa verið opinberar.
ESB styður Ítalíu
Evrópusambandið, ESB, lýsti í
gær yfir stuðningi við afstöðu
ítala í máh Kúr-
daleiðtogans
Abdullahs Öcal-
ans. Hótaði ESB
Tyrkjum refsi-
aðgerðum tækju
þeir formlega
ákvörðun um að
sniðganga ítölsk
fyrirtæki. Sagði ESB slíka ákvörð-
im bijóta í bága við tollasam-
komulag sem gert hefði verið 1995.
ítalir hafa neitað aö framselja
Öcalan til Tyrklands þar sem
dauðarefsing er í gildi.
Kuldabylgja í Evrópu
Alls er nú vitað um 130 dauðs-
foll af völdum kuldabylgjunnar
sem gengið hefur yfir Evrópu. {
Rúmeniu hafa 60 látist úr kulda
undanfama daga. Tugir hafa
einnig orðið kuldanum að bráð í
Póllandi og Rússlandi.
Óvenjukalt hefur verið í
Frakklandi, Hollandi og Belgíu
miðað við nóvember.