Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.1998, Síða 13
MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 1998
Fréttir
Samvinnuháskólinn:
Tvær umsóknir
um starf rektors
DV, Vestnrlandi:
Tvær umsóknir bárust um starf
rektors Samvinnuháskólans á Bif-
röst, frá Runólfi Ágústssyni og
Þorsteini Þorsteinssyni. Runólfur
er starfandi aðstoðarrektor Sam-
vinnuháskólans og hefur starfað
við skólann frá 1992, lengst af sem
lektor í hlutastarfi. Hann gegndi á
sama tíma starfi fulltrúa sýslu-
manns í Borgamesi. Þá var hann
um tíma framkvæmdastjóri Stúd-
entaráðs Háskóla íslands og leik-
húsritari Leikfélags Reykjavíkur.
Runólfur lauk embættisprófi í lög-
fræði frá Háskóla íslands vorið
1992. Hann er 35 ára gamall.
Þorsteinn hefur verið markaðs-
stjóri Ríkisútvarpsins frá 1997.
Hann var áður umboðsaðili
sænska fyrirtækisins Hags á ís-
landi og starfaði sem ráðgjafi á
sviði stjórnunar og markaðssetn-
ingar, bæði erlendis og hér á
landi. Þorsteinn lauk Master of
Science in Business Ad-
ministration-prófi frá Háskólanum
í Lundi vorið 1997. Hann er 38 ára
gamall.
Núverandi rektor Samvinnuhá-
skólans á Bifröst er Jónas Guð-
mundsson. Hann hyggst taka sér
tveggja ára launalaust leyfi frá
Runóifur Ágústsson, aðstoðarrekt-
or Samvinnuháskólans á Bifröst,
annar af umsækjendum um stöðu
rektors Samvinnuháskólans á Bif-
röst. DV-mynd Daníel
störfum frá og með næsta hausti
þegar nýr rektor tekur við störf-
um. Þá hefur hann starfað um tíu
ára skeið við Samvinnuháskólann,
án hlés, í nokkrum hlutverkum.
-DVÓ
Seyðisfjörður:
Vaxandi verkefni hjá
netagerðarmönnum
DV, Seyðisfiröi:
Fjarðamet flutti athafnasvæði sitt
af Búðareyri inn í Fjarðarhöfii í fyrra-
haust. Þetta er vaxandi fyrirtæki að
sögn Jóhanns Hanssonar fram-
kvæmdastjóra. Var stofnað í október
1984 - fyrstu árin við mjög erfiðar að-
stæður við ytri höfhina á Seyðisfirði
en flutti inn í Fjarðarhöfn í september
1997.
„Hér er miklu betra að vera og öll
aðstaða utandyra og innan rúmbetri
og þægilegri. Það er að sjálfsögðu
mikill ávinningur að geta nú sinnt
viðameiri verkefnum en áður. Reynd-
ar var orðin knýjandi þörf á því. Sam-
tímis því að veiðiskipin stækka
stöðugt nýta þau stærri veiðarfæri og
vinnurými verkstæðanna verður því
að aukast til þess að hægt sé að bjóða
hæfilega þjónustu," sagði Jóhann.
Starfsmenn Fjarðamets era venju-
lega tíu. Sé sérstaklega mikið um að
vera koma íhlaupamenn til aðstoðar.
Veiðiskipum hggur ávallt mikið á að
komast á veiðislóðina og er því reynt
að hafa alla þjónustu eins fljótvirka
og öragga sem mögulegt er. Verkefiii
era næg fram undan og ekki annars
að vænta meðan veiði á uppsjávar-
fiski gengur svo vel sem undanfarin
misseri.
Nú orðið eiga nótaveiðiskipin yfir-
leitt þrenns konar nætur, sUdar- og
loðnunætur auk grunnnótar, sem oft
era nauðsynlegar við síldveiðar hér
eystra. Þetta eykur þjónustuþörf skip-
anna. Sú breyting er nú að þessar
veiðar era stundaðar mikinn hluta
ársins. Veiðiskipin eru öflugri og
kolmunnaveiðin bættist við. Auðvitað
treystir þetta starfsgrundvöll neta-
verkstæðanna. -JJ
Flubber
.490,-
Flubber
Töfraheimur Disney svíkur
engan í Flubber. Flubber smýgur,
rennur, iðar, svífur, hoppar og
skoppar, og útkoman er
bráðfyndið ævintýri fyrir fólk á
öllum aldri. íslenskur texti.
HAGKAUP @ W í SI r. i
www.visir.is
Tilboðin standa til kl. 23.59
fimmtudagskvöldið 26. nóvember.
Ég heiti Blíðfinnur
en þú mátt kalla mig Bóbó
Ég heiti Blíðfinnur
en þú mátt
kalla mig Bóbó
— Þorvaldur
Þorsteinsson
Höfundur Skilaboðaskjóðunnar
lætur aftur að sér kveða. Efni
bókarinnar hefur hlotið einstaka
ritdóma og þykir hin mesta perla.
Þá er efnið hugljúfara en við eigum
að venjast, rödd sögumanns er hlý
og umhyggjusöm og það er næstum
eins og hann hvísli sögunni í eyru
lesandans.
. 1.495,-
Húsmæðragarðurinn —
Nýdönsk
5 árum eftir að hljómsveitin Nýdönsk gaf út
hljómplötuna Hunang lítur gæðagripurinn
Húsmæðragarðurinn dagsins ljós. Það er samdóma
álit gagnrýnenda að þetta sé með betri plötum
hljómsveitarinnar og að biðin hafi verið fyllilega
þess virði.
Húsmæðragarðurinn
. 2.199,-
Kauptu jóla-
gjafirnar heima
í stofu fyrir þessi jól
Þægilegasta búð landsins er heima
hjá þér. Þú situr í mestu makindum
við tölvuna lest kafla úr bókum,
hlustar á höfunda lesa úr bókum
sínum, lest gagnrýni eða umfjöllun
DV og Dags um bækur, myndbönd
eða geisladiska og svo getur þú
keypt gripina sem fjallað er um á
frábæru verði. Til að komast í
netverslunina HAGKAUP@VÍSIR.IS
þarftu að fara inn á Internetið, slá
inn slóðina www.visir.is og velja
HAGKAUP@VfSIR.IS.
Allar vörur sem keyptar eru á
HAGKAUP@VfSIR.IS eru sendar heim
til kaupandans af Póstinum. f
flestum tilvikum kemur sendingin
tii viðtakanda innan 18 tíma frá
pöntun. Enginn flutningskostnaður
leggst á verð vörunnar, en
afgreiðslugjald er kr. 165 kr. á hverja
pöntun, án tillits til magns.
POSTURINN