Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.1998, Síða 18
18
MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 1998
MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 1998
39 y
íþróttir
íþróttir
Island-Ungverjaland í kvöld:
Hvert mark
skiptir máli
- Ungverjar með betri stöðu
Hvert einasta mark skiptir máli
í leik Islands og Ungverjalands í
Laugardalshöllinni í kvöld.
Markatalan getur ráðið úrslitum
um hvor þjóðin kemst í loka-
keppni HM í Egyptalandi næsta
vor.
Staðan fyrir lokaumferð 4. riðils
er þannig:
Ungverjaland 4 3 0 1 114-89 6
ísland 4 3 0 1 99-82 6
Sviss 4 2 0 2 92-106 4
Finnland 4 0 0 4 79-107 0
Leikirnir eru þessir:
25.11. Island-Ungverjaland
26.11. Finnland-Sviss
29.11. Ungverjaland-ísland
29.11. Sviss-Finnland
Ef tvö eða fleiri lið eru jöfn að
stigum í lokin ræður innbyrðis
markatala þeirra á milli hvert
þeirra stendur uppi sem sigurveg-
ari.
ísland þarf 3 stig úr leikjunum
tveimur við Ungverja til að gull-
tryggja sigur sinn í riðlinum.
Ef liðin vinna sinn leikinn
hvort er það samanlögð markatala
úr leikjunum sem ræður úrslitum.
Ef síðan bætist við að Sviss
vinnur báða leikina við Finna
verða ísland, Ungverjaland og
Sviss öll jöfn með 8 stig. Sviss á
samt ekki möguleika á efsta
sætinu vegna óhagstæðrar marka-
tölu gegn íslandi og Ungverja-
landi. Verði niðurstaðan þessi, eru
Ungverjar með pálmann í hönd-
unum. Þeir unnu Sviss með
samtals 10 mörkum en Is-
land vann Sviss samtals
með 4 mörkum. Þá þarf
ísland að vera með sjö
mörkum betri marka-
tölu út úr leikjunum
tveimur við Ung-
verja til að vera fyr-
ir ofan þá.
Hagstæðast að
Finnar nái stigi af
Sviss
Hagstæðast væri hins
vegar ef Sviss tapaði
stigi eða stigum til Finna.
Þá eru það bara innbyrðis-
leikir íslands og Ungverja-
lands sem telja og þá myndi
duga að vera með einu marki
betur ef stigin eru jöfn.
Á sunnudaginn hefst leikur
Sviss og Finnlands ekki fyrr en
leik Ungverjalands og íslands er
lokið. Staðan gæti því orðið
þannig að Ungverjar og Islending-
ar yrðu að bíða í hálfan annan
tíma eftir fréttum um hvor þjóð-
in komist í lokakeppnina í
Egyptalandi.
-VS
Július Jónasson
skoraði 3 mörk um
síðustu helgi þegar
lið hans, St. Otmar,
vann Suhr, 28-22, í
svissnesku A-deild-
inni í handknatt-
leik. St. Otmar hef-
ur unniö átta af
fyrstu 10 leikjum
sínum og er með 17
stig, eins og
Kadetten
Schaffhausen,
en Winterthur
er efst með 18
stig.
Gunnar Andrés-
son skoraði 5 mörk
fyrir Amicitia
Ztirich, 2 þeirra úr
vítaköstum, þegar
hans lið steinlá fyr-
ir Kadetten Schaff-
hausen, 21-32.
Amicitia er i 7.
sæti af tólf liöum í
svissnesku deild-
inni með 8 stig.
Yucel Seckiner,
iþróttamálaráð-
herra Tyrklands
gagnrýndi Knatt-
spymusamband
Evrðpu harkalega í
gær fyrir að fresta
leik Galatasaray og
Juventus í meist-
aradeild Evrópu
um eina viku.
Seckiner segir að
frestunin sé smán-
arblettur á UEFA
og svona ákvörðun
sé aðeins hægt að
taka ef um stríðsá-
stand sé að ræða.
Svo sé ekki og
Tyrkir hefðu tryggt
fyllsta öryggi
ítalska liðsins i Ist-
anbul.
Reykjavik og Osló
mætast í borga-
keppni í borðtennis
í TBR-húsinu á
laugardaginn kem-
ur kl. 14. Lið
Reykjavikur skipa
þeir Guómundur
E. Stephensen,
Dennis Madsen,
Kjartan Briem og
Markús Árnason.
Daginn eftir fer sið-
an fram stórmót á
sama stað þar sem
allir bestu borð-
tennismenn lands-
ins taka
þátt ásamt erlend-
um keppendum.
Sigurður Hall-
dórsson hefur ver-
ið ráðinn þjálfari 2.
deildar liös Tinda-
stóls í knattspyrnu
til næstu þriggja
ára. Auk þess að
þjálfa meistara-
flokk félagsins og 2.
flokkinn mun hann
sinna unglinga- og
uppbygg-
ingar-
starfi hjá félaginu.
Finnski ökuþór-
inn Tommi Mak-
inen tryggði sér i
gær heimsmeist-
aratitilinn í ralli
þriðja árið í röð en
síðustu rallkeppni
tímabilsins, kon-
unglega breska
rallinu, lauk í gær.
Makinen sigraði
þrátt fyrir að hafa
oröið fyrir ýmsum
áfóllum í raUinu.
Spánverjinn Car-
los Sainz hafði alla
burði til að hreppa
heimsmeistaratitil-
inn en honum
hlekktist á í sið-
ustu sérleiðinni og
Makinen, sem helt-
ist úr leik snemma
í breska rallinu,
fagnaði sigri.
Árni Gautur Ara-
son mun sitja á
varamannabekkn-
um hjá Rosenborg í
kvöld þegar liðið
mætir spænska lið-
inu Atletico Bilbao
í meistaradeildinni
í knattspymu.
Jorn Jamtfall
mun standa i mark-
inu á ný en hann
var á bekknum
gegn Galatasaray
fyrr i mánuðinum.
Norski knatt-
spyrnumaðurinn
Jan Áge Fjortoft
er genginn í raðir
þýska A-deildar
liðsins Frankfurt
en hann hefur leik-
ið með Bamsley í
ensku B-deildinni.
Tveir leikir voru í
þýsku A-deildinni í
knattspymu í gær-
kvöldi. Dortmund
lagði Hamburger,
2-1, þar sem varn-
arjaxlinn Júrgen
Kohler skoraði sig-
urmarkið undir
lokin og Werder
Bremen vann mjög
góðan sigur á
son
lagar hans í
Hibernian
ENGLAND
Schalke á útivelli,
2-1.
Ólafur Gottskálks-
unnu
St.Mirren,
4-1, í skosku B-
deildinni í knatt-
spyrnu í gærkvöld.
Meö sigrinum
komst Hibernian
upp aö hlið Ayr á
toppi deildarinnar
með 32 stig en Hi-
bernian á leik til
g0Öa'-VS/GH/-SK
L 1 Ungverjalandií LaugardalstioUikvold_
um leikinn gegn
slendingum
Höllin tekur við fjög-
ur þúsund manns
- aðgöngumiðasala gengur vel
Aðgöngumiðasala að leik Islands og
Ungverjalands í Laugardalshöllinni í
kvöld gengur vel en um hádegið í gær
höfðu selst um 700 miðar. Eftir smá-
breytingar getur Höllin tekið við um
fjögur þúsund áhorfendum.
„Miðasalan gengur vel og það veit
á gott. Við erum bjartsýnir á að upp-
selt verði á leikinn í kvöld enda
finnum við fyrir miklum áhuga,“
sagði Öm Magnússon, framkvæmda-
stjóri HSÍ, í samtali við DV.
Til að Höllin geti tekið við fleiri
áhorfendum hefur
veriö komið upp
pöllum fyrir aftan
markið í austur-
enda hússins.
Enn fremur geta
áhorfendur setið
í göngunum i efri
stúkunni. Forsala
aðgöngumiða
stendur yfir í versl-
unum 10-11.
-JKS
• •
r',
f/i $ < . | n^
........- ""
i • . "! ,»■
Utlitið dökkt
Síðari leikur íslendinga og
Ungverja í undankeppi
heimsmeistaramótsins í
handknattleik fer fram í
borginni Nyirgyháza í
Ungverjalandi á sunnu-
daginn.
I þessari borg fæddist
Zoltán Bragi Belányi og
bjó þar fyrstu 16 ár ævi
sinnar.
Belányi er íslendingum að
góðu kunnur því hér hefur hann
spilað handknattleik um margra ára
skeið, fyrst með ÍBV og nú með Gróttu/KR, og
hann fékk íslenskan ríkisborgararétt fyrir nokkru.
Belányi hefur um margra ára skeið verið með
markahæstu leikmönnum í Nissandeildinni og er
án efa með sterkustu hornamönnum sem hér hafa
leikið handknattleik.
DV sló á þráðinn til „Bello“ eins og hann er kall-
aður og bað hann að velta fyrir sér landsleikjun-
um mikilvægu gegn fyrrum löndum sínum.
■ ••
Hann hefur ákveðnar skoðanir á því sem mun gerast á næstu
dögum.
Heimavöllur Ungverja sterkari
„Leikimir eru mjög mikilvægir fyrir báðar þjóðir. Það er
auðvitað mjög erfitt að spá fyrir um hvor þjóðin kemst á HM
en ég hallast þó frekar að því að það verði Ungverjar þvi
heimavöllur þeirra er sterkari en íslendinga.
Ég held að íslendingar vinni leikinn í Laugardalshöllinni
með svona fjögurra marka mun en útileikurinn verður mjög
erfiður fyrir þá. Höllin sem leikurinn fer fram í í Ungverja-
landi er mjög stór og það verða um 5000 manns á honum. Þetta
er mikil gryfja og til að mynda töpuðu Svíar þarna fyrir
nokkrum árum með 10 marka mun,“ sagði Belányi.
Held með íslendingum í fyrri leiknum en Ungverj-
um í þeim síðari
„Mér finnst erfitt að gera upp á milli þjóðanna og því ætla
ég að halda með íslendingum í leiknum á Islandi og með Ung-
verjum í leiknum í Ungverjalandi. Óskastaðan væri hins veg-
ar sú að bæði íslendingar og Ungverjar kæmust á HM en því
miður er það ekki hægt þar sem bara efsta þjóðin kemst
áfram,“ segir Belányi.
Belányi segir að vinstri vængurinn í ungverska liðinu sé
mjög sterkur og að markvörðurinn János Szathmári sé mjög
snjall á milli stanganna. Besti maður liðsins sé þó Jozsef Eles
sem leikur í skyttustöðunni vinstra megin.
Hefði viljað hafa Duranona
„Ég hefði viljað hafa Duranona í íslenska liðinu. Hann er sá
eini sem getur skotið þetta af 9-10 metrunum og það heföi ver-
ið gott að grípa til hans í þessum leikjum. Þetta verða hörku-
leikir tveggja jafma liða og það verðm gaman að fylgjast með
þeim. Ég vona að fólk fjölmenni í Höllina og styðji íslenska liö-
iö,“ sagði Belányi sem ætlar að sjálfsögðu að mæta í Höllina í
kvöld en foreldrar hans og bróðir ætla að mæta á síðari leik-
inn í Nyirgyháza á sunnudaginn.
Rifbeinsbrotinn?
Belánýi hefur ekki getað æft með Gróttu/KR-liðinu síðan
eftir leikinn gegn ÍR á laugardaginn. Hann fékk högg á kviðinn
undir lok leiksins og annað hvort er hann rifbeinsbrotinn eða
með brákað rifbein.
„Það kemm ekki í ljós fyrr en eftir nokkra daga hvað þetta
er en það er alveg ljóst að ég verð að hvUa í einhverjar vikur,“
sagöi Belányi.
-GH
■ i
hja Liverpool
Liverpool verður að sýna allar sínar bestu hliðar ef liðið á að eiga
möguleika á að komast í 4. umferð UEFA-keppninnar í knatt-
spymu.
Liverpool tapaði illa í gærkvöld á heimavelli Celta Vigo, 3-1. Eft-
ir að Owen hafði komið Liverpool yfir í fyrri hálfleik skoruðu
heimamenn þrjú mörk í síðari hálfleik og voru mun betri aðUinn i
leiknum. Björn Tore Kvarme, varnarmaðm Liverpool, færði Spán-
verjunum þriðja markið á silfurfati á 90. mínútu. -SK
f kvöld
Undankeppni HM í handbolta:
Ísland-Ungverjaland ........20.30
1. deild kvenna 1 handbolta:
Valur-lR....................18.30
2. deild karla i handbolta:
Fjölnir-Ögri ...............20.00
Jóhann í raðir KR-inga
Jóhann Þórhallsson knattspymumaðm, sem leikiö hefur
með Þórsurum, er genginn í raðir KR-inga og hefur skrifað
undir þriggja ára samning við vesturbæjarliðið.
DV greindi frá því í gær að hann hefði ákveðið að vera um
kyrrt hjá Þór en það var ekki rétt og er beðist velvirðingar á
þeim mistökum.
Jóhann er 18 ára gamall miðju- og framlínumaöur og er
talinn einn af efnUegustu knattspymumönnum landsins.
Nokkur erlend félög hafa fylgst með honum og til að mynda
æfði hann með danska A-deUdar liðinu Brönd-
by í sumar.
FlestöU liöin í úrvalsdeUdinni bám víumar i
Jóhann en hann ákvað að ganga tU liðs við KR.
Jóhann er annar leikmaðurinn sem KR-ingar fá í
sínar raðir á skömmum tíma en í síðustu viku
skipti Skagamaðurinn Sigursteinn Gíslason yfir í
KR.
-GH
° UIFA-BIKARIHH
3. umferð - fyrri leikir
Roma-Zurich................1-0
Totti (90.)
Mónakó-MarseUle............2-2
Trezeguet, Giuly - Pires, Camara.
Grasshoppers-Bordeaux......3-3
Kavelaschvili, Turkyilmaz, Comisetti
- Wiltord 2, Micoud.
R. Sociedad-Atletico Madrid . 2-1
Kovasevic, Fresnedoso sjálfsmark -
Juninho.
Lyon-Club Brugge...........1-0
Bak.
Glasgow Rangers-Parma .... 1-1
Wailace - Balbo.
Celta Vigo-Liverpool.......3-1
0-1 Owen, 1-1 Mostovoi, 2-1 Karpin,
3-1 Gudelj.
Bologna-Real Betis ........4-1
Fontolan 2, Kolyvanov, Eriberto -
Zarandona.
Þorbjorn hefur kortlagt Ungverja
Þeir hafa verið margir
mikilvægir leikirnir sem
íslenska landsliðið í hand-
knattleik hefur leikið í
gegnum tíðina. Einn slík-
ur er á dagskrá í Laugar-
dalshöUinni í kvöld þeg-
ar okkar menn mæta
[ Ungverjum i und-
ankeppni heimsmeist-
aramótsins.
Þessar tvær þjóðir berjast
um sigurinn í riðlinum en
sigurvegarinn í honum trygg-
ir sér sæti í úrslitakeppni
heimsmeistarakeppninnar
sem haldin verður í Egypta-
landi næsta sumar. Riðla-
keppninni lýkur með leik
Ungverja og Islendinga ytra á
sunnudaginn kemur en þar
gæti orðið um hreinan úr-
slitaleik að ræða.
„Við erum klárir i slaginn.
Það eru aUir heilir og við
erum nokkuð vissir um
hvernig við tökum á Ungverj-
unum. Ég er búinn að grand-
skoða leik ungverska liðsins.
Ég hef farið yfir fióra leiki
liðsins frá HM í Japan í
fyrra, frá úrslitakeppni Evr-
ópumótsins á Ítalíu á sl.
sumri og frá leikjunum við
Sviss og Finna í riðlinum í
haust. Það má því segja að ég
þekki Ungverjana út og inn,“
sagði Þorbjörn Jensson
landsliðsþjálfari í samtali við
DV.
Geir Sveinsson, sem verið
hefur fyrirliði liðsins, verður
fiarri góðu gamni I kvöld og
mun Júlíus Jónasson taka
við fyrirliðastöðunni. Þaö er
ekki ný staða fyrir Júlíus en
hann var fyrirliði á alþjóða-
mótinu í Japan á sL sumri.
-JKS
Arsenal verður án lykil-
manna þegar liðið mætir
Lens í meistaradeild Evr-
ópu I knattspyrnu á
Wembley í London í kvöld.
Frönsku miðjumennirnir
Emmanuel Petit og Patrick
Vieira verða ekki með,
Petit er í leikbanni og
Vieira meiddur og litlar
líkur eru á að Dennis Berg-
kamp, hollenski sóknar-
maöurinn, geti spilaö
vegna meiðsla.
Colin Hetidry fer ekki frá
Glasgow Rangers til að
taka við stjórninni hjá
Blackburn. Þetta sagöi
David Murray, stjórnar-
formaður hjá skoska félag-
inu, í gær en miklar
vangaveltur hafa verið
undanfarna daga um fram-
tíð Hendrys hjá Glasgow
Rangers.
Ronny Johnsen og Teddy
Sheringham fóru ekki
með Manchester United til
Barcelona en félögin eigast
við í meistaradeildinni i
kvöld. Johnsen á við
meiösli að stríða í ökkla og
Sherhingham er meiddur í
hné.
Dunc-
an
Fergu-
son,
sókn-
armað-
urinn
stæði-
legi hjá
Ev-
erton, er á leið til
Newcastle fyrir 840 millj-
ónir króna. Félögin náðu
samkomulagi um þetta í
gær og gengið verður frá
kaupunum í dag, svo fram-
arlega sem Ferguson
stenst læknisskoðun hjá
Newcastle.
Þessi kaup koma mjög á
óvart þar sem Ferguson er
alls ekki talinn allra
þessara peninga viröi.
Örvænting viröist hafa
gripið um sig í herbúöum
Newcastle.
Bolton vann góðan útisig-
m- á Stockport I ensku B-
deildinni í knattspyrnu í
gærkvöldi. Bolton sigraði,
0-1, og skoraði Bob Taylor
sigurmarkiö á 81. mínútu.
Bolton sigradi Ipswich
með sömu markatölu mn
síöustu helgi og þá skoraði
Taylor sigunnarkiö á 90.
mínútu. Arnar Gunn-
laugsson lék meö Bolton
en Guöni Bergsson og
Eióur Smári eru meiddir.
-VS/JKS/-SK
Detta þeir úr keppni?
Island - Ungverjaland
Allt sem skiptir máli er á Lengjunni
1 X 2
25. Island - Unqverjaland 1,45 5,45 2,20
styður strákana okkar
Þorbjörn Jensson segir
sína menn klára f slaginn.
Laugardalshöll
í kvöld kl. 20.00
4