Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.1998, Page 6
LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 1998
6 *
lönd
Fyrrverandi lífvöröur Jeltsíns:
Berezovskíj á bak
við morð á þingkonu
Auðjöfurinn Borís Berezovskíj
kúgar Borís Jeltsín Rússlandsfor-
seta. Þetta fullyrðir Alexander
Korzjakov, fyrrverandi lífvörður og
náinn samstarfsmaður forsetans.
Berezovskíj vísar fullyrðingunum á
bug og kallar þær óráðshjal.
Korzjakov gefur einnig í skyn að
Berezovskíj sé maðurinn á bak við
tvö morð, á sjónvarpsmanninum
Vladislav Listjev og þingkonunni
Galinu Storovojtovu.
Fullyrðir Korzjakov að dóttir
Jeltsíns, Tatjana Djatsjenko, og
Naina konan hans líti á Berezovskij
sem martröð sem þær vilji gleyma.
Berezovskíj á að hafa hótað þeim og
sagt að geri þær honum eitthvað op-
inberi hann öll skjöl um forsetafjöl-
skylduna.
Korzjakov heldur því fram að
samband sé á milli morðanna á
sjónvarpsmanninum og þingkon-
unni. Á fundi með fréttamönnum
sýndi hann myndbandsupptöku sem
hann sagði vera gerða daginn eftir
morðið á sjónvarpsmanninum í
mars 1995. Á myndbandinu segir
Berezovskíj við Jeltsín að morðið sé
ögrun gegn forsetanum og honum
sjálfum. Ekki þykir ljóst hvað
myndbandið sannar.
í gær kvaðst fyrrverandi yfirmað-
ur rússnesku öryggislögreglunnar,
Nikolai Kovaljov, ætla að höfða mál
gegn Berezovskíj vegna ásakana um
aö öryggislögreglan hafi ætlað að
myrða hann.
Kovaljov, sem var rekinn úr emb-
ætti í júlí síðastliðnum, sagði að öll
gagnrýni á öryggislögregluna á
sjónvarpsstöðinni ORT, sem Ber-
ezovskíj er meðeigandi að, rýrði
traust almennings á framkvæmd
laga.
Berezovskíj kom ásökunum sin-
um fyrst á framfæri í bréfi til eftir-
manns Kovaljovs, Vladimirs Putins.
Á fréttamannafundi í síðustu viku
greindu grímuklæddir menn, sem
sögðust vera í öryggislögreglunni,
frá því að þeim hefði verið skipað
að myröa auðjöfurinn. Putin segir
ekkert hafa sannað ásakanimar.
Vertíðin hjá jólasveinunum í New York hófst í gær. Tóku þeir sér stöðu á götuhornum og hringdu bjöllum sínum um
leið og þeir báðu borgarbúa um framlög til góðgerðarmála. Símamynd Reuter
Utanríkisráöherra Chile til Bretlands til bjargar Pinochet:
Neyddist sjálfur í útlegð
stuttar fréttir
Slæmt efnahagsástand
Ástandið í efnahagsmálum í
Asíu er verra en talið var fyrir
hálfú ári samkvæmt nýrri spá
asíska þróunarbankans.
Flýtti sér heim
Forsætisráðherra ísraels, Benja-
min Netanyahu, flýtti sér heim úr
Evrópuferð í gær
vegna sprengju-
árása gegn ísra-
elskum hermönn-
um á hernáms-
svæði ísraela í Lí-
banon. Sakaði Net-
anyahu líbönsku
stjómina um að bera ábyrgð á
árásum Hizbollahskæruliða. Sjö
ísraelskir hermenn hafa fallið á
svæðinu undanfama ellefu daga.
Átök á Kúbu
Átök urðu milli stjórnarand-
stæðinga og stjómarsinna við
dómhús í Havana á Kúbu í gær er
réttarhöld hófust yfir blaðamanni
úr röðum andófsmanna. Blaða-
maðurinn er sakaöur um að hafa
móðgað embættismann.
Sannleiksnefnd
Göran Persson, forsætisráð-
herra Svíþjóðar, ætlar að láta
sannleiksnefnd eftir norskri fyrir-
mynd rannsaka störf leyniþjón-
ustu hersins.
Hótar fangelsi
Forseti Argentínu, Carlos
Menem, hótaöi í gær að stinga
stjómmálaandstæðingum sínum í
fangelsi fyrir ærumeiðingu sök-
uðu þeir hann um spillingu.
Gjafmildir um jólin
Bandaríkjamenn munu kaupa
þrisvar til fimm sinnum fleiri gjaf-
ir en Evrópubúar um jólin. Banda-
ríkjamenn munu hins vegar
kaupa ódýrari gjafir samkvæmt
nýrri skoðanakönnun.
Þjóðverjar neita
Gerhard Schröder, kanslari í
Þýskalandi, neitaði í gær að fara
fram á framsal
Kúrdaleiðtogans
Abdullahs Öcalans
ffá Ítalíu. Þýsk yf-
irvöld óttast átök
milli Tyrkja og
Kúrda í Þýska-
landi komi Öcalan
j til Þýskalands. 2,2 milljónir Tyrkja
5 og hálf miiijón Kúrda era í Þýska-
| landi. Hvatti Schröder til að réttað
' yrði yfir Öcalan fyrir alþjóðlegum
j dómstól.
Fleiri lík fundin
; Björgunarmenn fundu í gær
í fleiri lík í lestarvögnunum á Ind-
| landi sem hraðlest ók á á fimmtu-
í daginn. ígær var tala látinna
\ komin í 148. 260 eru slasaðir og er
| ástand 30 þeirra alvarlegt. 16
I vagnar eyðilögðust í lestarslysinu.
Olíurisar sameinast
Forsvarsmenn olíufélaganna
Exxon og Mobil hafa verið í viðræð-
um um að sameinast. Hvort af sam-
einingu verður skýrist eftir helgina
að sögn Reuters-fréttastofunnar og
Financial Times.
Félögin Exxon og Mobil voru
stofnuð í upphafi aldarinnar af þá-
verandi eigendum risafyrirtækisins
Standard Oil. Tilgangurinn með
stofmm félaganna var að dreifa ört
vaxandi starfsemi Standard Oil á
fleiri hendur í því skyni að ganga
ekki í berhögg við lög sem þá höfðu
verið sett um hringamyndun.
Exxon er nú stærsta almennings-
hlutafélag heims og Mobil er annað
stærsta olíufélagið í Bandaríkjun-
um þannig að með sameiningu verð-
ur til risavaxið fyrirtæki með yfir-
burðastöðu á oliumarkaði heimsins.
Heimildamenn Reuters segja að
boðað verði til blaðamannafundar
um sameininguna í New York á
mánudag eða þriðjudag þar sem
sameiningin verði tilkynnt þar sem
hún sé á lokastigi. Sameiningarvið-
ræður hafa farið mjög leynt og hafa
óstaðfestar ffegnir af þeim komið
mjög á óvart í olíuheiminum. -SÁ
José Miguel Insulza, utanríkis-
ráðherra Chile, sem í gær hélt til
Bretlands til þess að reyna að fá
Augusto Pinochet látinn lausan,
neyddist sjálfur til að flýja land í
stjórnartíð Pinochets.
„Ég held ekki til London til þess
að verja Pinochet. En ég ver þær
grandvallarreglur sem stjómvöld í
Chile hafa í heiðri," sagði Insulza.
Hann flúði frá Chile þegar herinn
tók völdin og dvaldi samtals 11 ár í
Mexíkó og Ítalíu.
Innanríkisráðherra Bretlands,
Jack Straw, fékk í gær 9 daga frest,
eða þar tU 11. desember, til að
ákveða hvort framselja eigi Pin-
ochet til Spánar. Robin Cook, utan-
ríkisráðherra Bretlands, hafnaði í
gær beiðni Insulza um að láta Pin-
ochet lausan.
Chilemenn í Svíþjóð kunna að
hafa undir höndum sönnunargögn
sem fellt geta Pinochet fyrir morð,
aö því er sænskur lögmaður telur.
Luis Villalobos, sem nú er sextugur,
varð vitni að því er átta manns voru
pyntaðir á grimmilegan hátt og síð-
an skotnir til bana. 1990 sneri hann
aftur til Chile og tókst að finna
fjöldagröf með líkum 25 samfanga
sinna. Luis fullyrðir að þeir hafi
verið teknir af lífi samkvæmt skip-
unum Pinochets.
Kennsl vora borin á 13 fómar-
lambanna. Luis tók myndir af
fjöldagröfinni. Nú vonast hann til
að geta borið vitni gegn Pinochet.
Kauphallir og vöruverð erlendis
New York
London
Frankfurt
7500
7000f®M ■
N
aBjMacKMfj 240
wm
$/t a
ÍAJ | 160 * : Vl
150 , 140 j |
*/t A S 0 N
Hong Kong
10742,11
20000!
15000 j
10000*
5000
HangSeng
Hráolía
10,85
Dauðsföllum
af völdum al-
næmis fækkar
í Evrópu
Dánartíðni af völdum alnæmis
| hefur minnkað um 80 prósent í
i: Evrópu á fjórum árum, eða allt
frá því farið var að gefa sjúkling-
um blöndu nokkurra lyfja tU að
berjast við sjúkdóminn.
Að sögn vísindamanna er ekki
| hægt að skýra fækkun dauðs-
falla með öðru en tilkomu nýju
I lyfjanna.
Alnæmi er helsta orsök ótíma-
I bærs dauða í heiminum og til-
I fellum fer fjölgandi í flestum
j löndum. Þeir sem hafa efni á
| hinum nýju lyfjakokkteUum
•j geta átt von á þvi að lifa lengur.
Meira en 33 mUljónir manna
eru smitaðar af HlV-veirunni
I sem veldur alnæmi, flestir í Afr-
1 íku sunnan Sahara og í Asíu.
Svíar dugleg-
astir að hætta
reykingum
j Svíar eru fyrsta þjóðin 1 heim-
| inum sem tekst að ná því tak-
; marki Alþjóða heUbrigðisstofn-
; unarinnar að reykingamenn
verði undir 20 prósentum fyrir
J árið 2000. Svíar náðu takmark-
j inu í fyrra en þá kváðust 19,3
jj prósent fuUorðinna Svía reykja
s daglega.
ÍSamkvæmt rannsókn, sem
gerð var í Svíþjóð, hefur heUdar-
neysla sígarettna og annars
reyktóbaks minnkað aUs staðar
| á Norðurlöndum á árunum
I 1970-1997.1 Svíþjóð og Finnlandi
I hefur neyslan minnkað um 40
| prósent en rúmlega 25 prósent í
I Noregi og Danmörku.
í Svíþjóð reyktu karlkyns inn-
| flytjendur nær tvöfalt á við
; sænska karla, eða 25 prósent. 30
prósent innflytjendakvenna
| reykja á móti 21 prósenti
I sænskra kvenna.
Stjórnmála-
menn og löggur
| í klámklúbbum
1 48 stjómmálamenn og nokkrii'
; lögreglumenn eru meðal skráðra
S gesta tveggja klámklúbba í
I Stokkhólmi. Hafa gestimir greitt
I miUjónir króna fyrir nudd, dans-
| sýningar og böð í heitum pottum
| með ungum stúlkum, að því er
j fram kemur í sænskum fjölmiðl-
I um.
!; Einn stjórnmálamannanna
; hafði greitt fyrir þjónustuna með
krítarkorti flokks síns. Nokkrir
höfðu boðið viðskiptavinum sín-
| um í klúbbana en aðrir voru þar
1 í einkaerindum. Enginn stjórn-
k málamannanna situr á þingi.
I Þeir eiga sæti í aUs kyns nefhd-
j; um sveitarfelaga sinna, þar á
| meðal kirkjuráðum. Stjómmála-
mennirnir era úr öUum flokkum
| nema Vinstriflokknum.
Skattalögreglan fékk í hendur
krítarkortsnótur gestanna við
rannsókn sína á starfsemi
| klúbbanna.
Hönd og fætur
grædd á mann
;í DV.Ósló:
Læknar í Ósló gera sér vonir
um að maður, sem missti báöa
fætur og aðra höndina í vinnu-
I slysi, nái bata eftir að limirnir
■ voru græddir á hann. Maðurinn
| og limirnir voru fluttir í skyndi
| á sjúkrahús og aUt saumað sam-
1 an.
í Hinn slasaði er fangi í Ila-hér-
; aðsfangelsinu skammt vestan
Óslóar. Hann vann við skurð á
3 stálplötum og lenti í skurðarvél-
j inni en ekki er vitað með vissu
| hvemig slysið bar annars að
1 höndum. -GK