Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.1998, Blaðsíða 51
LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 1998
63
fólk
“Gefi þeir sem geta“ og „þiggi þeir sem þurfa“ stendur á skiltinu sem þessi
maður stillti upp framan við stjórnarráðið. Svo virðist sem mun fleiri vilji
þiggja en gefa.
Lftill betlari með biblíumyndir.
DV-myndir Helga Dís Sigurðardóttir
Mikill fjöldi fóstureyðinga
Eitt af því sem gestkomandi tekur
fljótlega eftir er hve lítið er af börn-
um á götum Moskvu, á meðan allt
virðist fullt af eldri borgurum hvert
sem litið er. Vissulega er eðlilegt að
eldri borgarar eigi frekar erindum
að sinna í miðborginni á meðan
börnin eru í skóla eða heima. En ef
litið er aðeins nánar á málin kemur
í ljós að böm em í raun og veru
færri í Rússlandi en í flestum öðr-
um löndum. Undanfarin ár hefur
þjóðinni fækkað um um það b'il eina
milljón á ári, þrátt fyrir að hvert ár
bætist við um ein milljón flótta-
manna og annarra innflytjenda.
fjöldi fóstureyðinga er með þvi
allra mesta sem gerist í heiminum
og svo virðist sem ungt fólk í Rúss-
landi í dag, jafnvel enn frekar en
annars staðar í heiminum, vilji
tryggja sér góða og stöðuga afkomu
áður en það fer að íhuga bameignir.
Ein dýrasta borg heims
Mun minna er um erlenda ferða-
menn í Moskvu nú en fyrir 5-6
árum. Þegar Gorbatsjov var við
völd tóku ferðamenn að streyma til
Rússlands en nú virðist sem Rúss-
land sé ekki „í tísku” lengur, og lit-
iö ber á ferðafólki. Fyrir því geta
legið margar ástæður. Moskva er
ein af dýmstu borgum heims og
verð á veitingastöðum og hótelum
virkar sennilega ekki beinlínis
lokkandi fyrir óbreytta bakpoka-
ferðamenn. Aðeins tvö farfugla-
heimili eru í borginni og bæði í dýr-
ara lagi. Annaö sem kann að koma
til er sú útbreidda trú að í Moskvu
sé mikið um glæpi og að gestir í
borginni séu varla öraggir á götum
úti. Moskva hefur, samkvæmt ný-
legum könnunum, þann vafasama
heiður að vera „sú höfuðborg Evr-
ópu þar sem flest morð eru framin á
ári“. Þetta eru þó ekki alveg
jafnslæmar fréttir fyrir ferðamenn
og í fyrstu kann að virðast, því að
flest morð og líkamsárásir eiga sér
stað í heimahúsum og flokkast því
undir heimilisofbeldi- í raun er
götuofbeldi ekki meira en gengur og
gerist í stórborgum og satt að segja
minna en í mörgum stærri borgum
Evrópu.
Fallegri Moskva
Útlit Moskvu hefur breyst mikið
til batnaðar á undanförnum áratug,
þar sem miklum fjármunum hefur
verið varið til að gera upp og jafnvel
endm'byggja frá grunni byggingar
sem voru í niðurníðslu eða höfðu
verið rifnar, einkanlega kirkjur og
klaustur. Á meðan kommúnistar
réðu rikjum voru mörg klaustur
notuð sem þrælkunarbúðir eða
Stalín á sér enn marga dygga stuðn-
ingsmenn.
fangelsi, og kirkjur notaðar fyrir
ýmiss konar starfsemi aðra,
ótengda trúarbrögðum. Þessi upp-
bygging nú er að stærstum hluta
fjármögnuö með frjálsum framlög-
um einstaklinga og er eitt af því
sem kreppan virðist ekki hafa náð
til enn. Enn er haldið áfram af fuU-
um krafti að fegra og bæta kirkjur
úti um alla borg.
Ómögulegt er að sjá fyrir hve
lengi núverandi kreppuástand kem-
ur til með að ríkja né hverjar afleið-
ingarnar verða. En þó rússneska
þjóðin hafi án efa séð það svartara
er ekki annað hægt en vona að
ástandið fari að skána og veturinn
gangi ekki of nærri þeim sem ekki
búa að matarbirgðum úr ekta rúss-
neskri datju.
Umboðsmenn um land allt:
REYUAViniHSVÆfllfi: Hagkaup, Smátatorji. Heimskringlaa Kringlunni. Tónborg, lópavogL VESTUHLAND: Hljómsýn. Akranesi. Kauplélag Borgfirðinga. Borgamesi. Blðmstunrellir, Hellissandi. Guðni Hallgríisson. Gnmdarfirði^ VESTFIBBIfl: Bafbúð Jónasar
1‘órs. Patreksfirði. Póllinn. IsaW. NDBÐUHLAND: (F Sreingrimsfjarðar. Hólmavík. KF V-Húnvetninga. Hvammstanga. (f Húnverninga. Blðndunsi. Skagfirðingabúð. Sauðárkróki. KEA, Dalvik. Ljósgjafinn.Akureyri. Kf Þingeyinga. Húsavík. Ilril. Baufarbófn.
AUSTUHEAND: Kf Héraðsbúa, Egilssföðum. Verslunin Vík. Neskaupsstað. Kauptún, Vopnafirði. Kf Vopnfirðinga, Vopnafirði. Kf Héraðsbúa. Seyðisfirði. Turnbræður. Seylisfitii.Kf Fáskrúðsfiarðar, Fáskrúðsfirði. KASK. Ojúpavogi. KASK. Hifn Homafirði.
SUDUBLAND: Bafmagnsveikstæði KB, Hvolsvelli. Hosfell. Hellu. Heimstækni, Selfossi. Kí, Selfossi. Bás, Þorlákshófn. Brimnes. Vestmannaeyjum. HEYKJANES: Hafborg. Grindavik. Baflagnavinnust. Sig. Ingvarssonar, Garði. Bafmætti. Hafnarfirði.
21" Black Matrix myndlampi
Nicam Stereó hljóðkerfi
íslenskt textavarp
Scart tengi IITI
Fjarstýring U I 1
28" Black Matrix myndlampi
2x20 watta IMicant Stereo hljóðkerfi
Textavarp með íslenskum stöfum
Allar aðgerðir á skjá
Scart-tengi
Fjarstýring
UTU8028
29" Super flatur Black Line myndlampi
2x20 watta Nicam Stereo hljóðkerfi
Textavarp með íslenskum stöfum
Hátalara tengi
Tvö Scart tengi
Fjarstýring
TUG293
j-iF''
W\ íuvm
|j 1
| :
1
1 f
II
L m U| if” I ■ c