Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.1998, Blaðsíða 20
LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 1998 DV
20
fréttaljós
★ ★
Fullur fjandskapur ríkir milli fylk-
inga sem hugðust efna til stjómmála-
flokks, Frjálslynda flokksins. Sá flokk-
ur átti að taka á siðrænum vanda í
sjávarútvegsmálum þjóðarinnar og
ætlaði að skila þjóðinni til baka auð-
lindum hafsins sem sægreifamir
njóta í dag. Ljóst er að ísfirðingamir
Sverrir Hermannsson og Bárður G.
Halldórsson eiga ekki skap saman.
Efnafræði þeirra virðist álika og olía
og vatn, þeir samlagast engan veginn.
Það tók þá nokkrar vikur að komast
að raun um að hvorugur þoldi hinn.
Framtíð Fijálslynda flokksins er því í
hættu. Einhuga hefði flokkurinn ef-
laust orðið einhvers konar bam í
brók, helsta baráttumál flokksins
höfðar til almennings, en ósættiö áður
en flokkurinn varð til verður vatn á
myllu sægreifa þessarar þjóðar.
Það er stæll á Sverrí konungi
Sverrir Hermannsson er kóngur að
eðlisfari, stórlyndur kóngur. Um sumt
er hann fom í skapi og slær um sig
með málfari gullaldarinnar. Það er
stæll á Sverri, hann kann að tala
þannig að eftir verður tekið og hann
heillar fólk í kringum sig með stráks-
legri framkomu. En Sverrir á erfitt
með að vinna undir öðrum. Á heima-
síðu hans má lesa hvar hann sendir
formönnum Sjálfstæðisflokksins kald-
ar kveðjur, kallar Þorstein Pálsson
„muddumanninn", sem hann hafi
ekki haft skapsmuni til að leika
skjöldum við. Hann segir um Þor-
stein: ..enda er maðurinn gaeddur
þeim hæflleikum að tala af óhrein-
skilni um málefnin og með þau undir
borðinu flest, ef við verður komið“.
Hann segist hafa tekið þátt i að „bola
Þorsteini ffá“, en því miður, Davíð
kom of seint, ffjálshyggjan var alls-
ráðandi i flokkn-
um, sem Sverri
minnir að áður
hafi verið „flokk-
ur almannatrygg-
inga, samhjálpar
og skjól lítilmagn-
ans“, hvorki
meira né minna.
Á fundinum
meö blaðamönn-
mn í fyrradag fór Sverrir á kostum.
Hann talaði enn og aftur iila um fólk.
Núna var það fólk sem var samherjar
hans fyrir aðeins rúmri viku síðan.
Sverrir hefúr ítrekað sagt að hann
vilji ekki leðjuslag. Það hefur hinn
hópurinn líka sagt. En báðir eru
aurugir upp fyrir haus.
Sverrir taldi fljótlega að í peim
hópi sem hann segist hafa verið kall-
aður til, Samtökum um þjóðareign,
sætu ýmsir menn sem sleiktu sár sin
og vildu komast að kjötkötlunum með
sínum liðstyrk. Hann segir frá þvi úr
þessu stutta samstarfi að Bárður hafi
ekki getað þolað Valdimar Jóhannes-
son sem var þó upphafsmaður að
Samtökunum um þjóðareign.
Hraðferð á hjartadeild
Fæðingarhríðir nýs stjórnmála-
flokks, sem Sverrir stofnaði við nefið
á andstæðingum sinum að morgni
fimmtudagsins, voru stuttar. Það var
undir sumarlokin, laugardaginn 5.
september, sem Sverrir, Bárður og
Jón Sigurðsson komu saman á skrif-
stofum Samtakanna um þjóðareign og
ákváðu að stofna stjómmálasamtök
undir nafhinu Frjálslyndi lýðræðis-
Sverrir og Bárður meðan allt lék í lyndl, að minnsta kosti á yfirborðinu.
Innlent
fréttaljós
flokkurinn. Síðar var „lýðræðis" sett
innan sviga. Á fundinum voru lögð
fram drög að lögum flokksins og þau
samþykkt samhljóða. Ákveðið var að
boða til formlegs stofhfundar flokks-
ins síðar. í fjölmiðlum var talað um
að flokkurinn fengið nafnið Lýðræðis-
flokkurinn og yrði stofnaður á afmæli
rússnesku byltingarinnar, þann 7.
nóvember.
Áformað var að Sverrir færi um
land allt í septemberlok ásamt ýmsum
væntanlegum framámönnum flokks-
ins, en það varð ekki. Um þetta leyti
óskaði líflæknir Sverris eftir því að
hann léti setja grind í eina hjartaæð.
Sverrir var í viðtölum i DV um þetta
leyti, brandhress,
eins og hann orðaði
það, eftir aðgerð
sem fór fram án
svæfmgar. Sverrir
beið stutt eftir að-
r gerð, fjóra daga, en
margir hjartasjúk-
lingar bíða marga
mánuði með lifið í
lúkimum. Sverrir
var skotfljótur að jafna sig eins og títt
er um marga hjartasjúklinga í dag og
kvartaði undan að þurfa að bíða eftir
aðgerðinni. Og víst er að Sverrir er í
miklu stuði þessa dagana.
Það var hugur í mönnum í haust.
Þingseta virtist freista margra. Ýmsir
voru nefndir til sögunnar sem fylgis-
menn hins nýja Lýðræðisflokks, þóit
alla staðfestingu vantaði. Meðal
þeirra sem stóðu í gættinni og kíktu
inn voru framsóknarmaðurinn Guð-
mundur G. Þórarinsson, kratinn og
skipstjórinn Grétar Mar Jónsson í
Sandgerði, Pétur Bjamason á ísafirði
og Guðjón Amar Kristjánsson, for-
maður Farmanna- og fiskimannsam-
bandsins. Rætt var um að Matthías
Bjamason skipaði heiðurssæti á list-
anum á Vestfjörðum. Fleiri vom
nefndir til sögunnar sem væntanlegir
frambjóðendm- og í kjölfarið þing-
menn Lýðræðisflokksins, til dæmis
Sigbjörn Gunnarsson, einn hinna
landlausu krata, fyrrverandi þing-
maður, og Hrafnkell A. Jónsson á
Eskifirði. í haust talaði Sverrir Her-
mannsson kinnroðalaust um mikið
mannval í kringum flokksstofnunina.
Honum hefur greinilega snúist hugur
um marga þeirra.
„Eg held ég gefi ekkert út á það,“
sagði Grétar Mar skipstjóri i gær,
staddur á formannaráðstefnu FFSÍ
austur á Homafirði. Hann sagðist
vera að átta sig á landslaginu, vissi
ekki hvað, yrði ofan á. Grétar er í
stjóm Samtakanna um þjóðareign en
líka orðaður við vinstri samfylking-
una. Án efa em margir ofangreindra
manna tvístígandi i afstöðunni eftir
nýjustu tíðindi og Sigbjöm hefur þeg-
ar geflð kost á sér meðal samfylking-
armanna á Norðurlandi eystra.
Vandamálin með
nafngiftina
Vandamál kom upp strax í haust
vegna nafngiftarinnar Lýðræðisflokk-
urinn. Ámi Bjöm Guðjónsson, for-
sprakki kristilegs framboðs, hafði
nefnilega látið skrá nafnið hjá Hagstof-
unni í júní og er eigandi þess nafns.
stjómmálastarfsemi. Þrír menn und-
irrita og staðfesta að standa að félag-
inu, Sverrir, Bárður og Jón. Ábyrgð-
armaður er Sverrir Hermannsson,
Einimel 9. Efst á blaðið hefur verið
skrifuð kennitalan 480998-2359. Sú
kennitala er skráð á Sverri sem for-
Sverrir Hermannsson kynnir sig fyr-
ir blaðamönnum á fimmtudag þegar
flokkurinn var aðeins fárra klukku-
tíma gamall.
DV-mynd E.ÓI.
Sverrir, Bárður og Jón Sigurðsson
drifu sig þá niður á Hagstofu íslands
og fylltu út umsóknareyðublað um
kennitölu fyrir félag. Þar var skrifað
efst með blokkskrift: FRJÁLSLYNDI
LÝÐRÆÐISFLOKKURINN, en við
nánari skoðun hefur sá sem hélt á
penna ákveðið á strika yfir LÝÐRÆÐ-
IS og eftir stendur Frjálslyndi flokkur-
inn. Sími hans er hjá Samtökum um
þjóðareign og tilgangur félagsins
Gunnþórunn Jónsdóttir, enn einn
ísfirðingurinn i stjórnmálum.
DV-mynd GVA
ráðamann flokksins. Hann er þar með
eigandi nafiisins - og kannski flokks-
ins.
Kænn maður Sverrir! Hann er með
skráningunni orðinn „eigandi"
flokks, enda er flokkurinn í upphafi
lítið annað en nafnið. Sverrir greiddi
fyrir 5 þúsund krónur, enda segir
hann að félagarnir í Samtökum um
þjóðareign hafl ekki átt það fé, og ger-
ir góðlátlegt grín að peningaleysi
þeirra. í fleiri málum hefur Sverrir
sýnt að hann er gamall refur. Til
dæmis þegar hann fékk i hendur fé-
lagaskrá Samtakanna með samþykki
Bárðar. Líka þegar salurinn í Borgar-
túni var pantaður, þá var það á nafhi
Sverris.
Hvaða flokk eru menn að
stofna?
Á skrifstofú Samtaka um þjóðar-
eign er unnið hörðum höndum. Fram
eftir vikunni var verið að undirbúa
stofnun Fijálslynda flokksins og for-
manns- og stjómarkosningu. Af því
verður ekki. Auglýstur stoftifundur
nýs flokks Bárðar og félaga verður í
dag i félagsheimili Seltjamarness. Sá
flokkur nefndist Frjálslyndi lýðræðis-
flokkurinn og á eflaust yfir höfði sér
stefnur og málaferli tveggja annarra
skráðra flokka.
Daginn sem Sverrir greindi frá „in-
stant“ flokksstofnun prýddi þrenning
úr Samtaka-arminum forsíðu DV. Þar
var Gunnþórunn Jónsdóttir frá ísa-
firði kannski helsta aðdráttaraflið.
Hún er ekkja Óla Kr. Sigurðssonar í
Olís, dóttir listamannsins Jóns frá
Hvanná, komin frá heimili þar sem
stjómmál bar gjarnan á góma. Gunn-
þórunn var varaformannsefni Bárðar
í Fijálslynda flokknum á miðvikudag-
inn. Á flmmtudag var ljóst að Frjáls-
lyndi flokkurinn er ekki þeirra flokk-
ur. Flokksstoftiun var undirbúin i
snarhasti og kynnt á blaðamanna-
fúndi í gær.
„Ég tel stefnumálin mjög mikilvæg
og vil því taka þátt í starflnu," sagði
Gunnþórunn í samtali við DV í fyrra-
dag. Hún sagðist tilbúin að setjast á
þing ef til þess kæmi. Hún er amma í
fjórgang, ánægð og lifsglöð kona sem
hefur góðan tíma. Og hún hefur skoð-
anir og liggur ekki á þeim.
Að sjálfsögðu vora menn fljótir að
reikna út að Gunnþórunn vildi hefna
harma á Sverri Hermannssyni lands-
bankastjóra sem var manni hennar
óþægur ljár í þúfu forðum, meðan 01-
ískaupin gerðust á eyrinni. „Ég tók
þessa ákvörðun á eigin forsendum.
Minningin um Óla er í mínu hjarta,
stór og góð minning. Ég bjóst við að
einhverjir túlkuðu það á einhvem
hátt þegar ég birtist í þessu starfl,"
sagði Gunnþórunn, æskuvinkona og
jafnaldri Bárðar G. Halldórssonar, ís-
firðingar bæði tvö, eins og Sverrir
Hermannsson reyndar einnig. Hún
segist ekki eiga neinna harma að
heftia gagnvart Sverri.
Tveir stjómmálaflokkar bætast nú
við fánu íslenskra stjómmála. Á sama
tima eru þrír flokkar að reyna að
verða að einum. Báðir nýju flokkanir
hafa sama meginmálið á dagskrá auk
fjölmargra annarra stefnumála sem
era eins og samin upp úr stefhuskrám
hinna flokkanna. Hver framtíð þess-
ara tveggja flokka er veit enginn.
Greina má valdagræðgi, hroka og
slóttugheit á báða bóga.