Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.1998, Blaðsíða 50
LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 1998
62
tlk
Daglegt líf í Rússlandi:
Sjálfsbjargarviðleitnin
alls staðar sýnileg
Ekki líður sá dagur að
við íslendingar fáum ekki
einhverjar fréttir af Rúss-
um og fallandi gengi
þeirra. En hvernig er lífið
austur þar í raun og veru?
Helga Dís Sigurðardóttir
dvaldi nokkrar vikur hjá
rússneskri fjölskyldu í
Moskvu nú í haust og hér
segir hún frá nokkru af
því sem athygli hennar
vakti í rússnesku þjóðlífi
þennan tíma.
Á meðan vestrænir fjölmiðlar
fjalía um fallandi gengi og óvissu í
stjórnmálum og sýndar eru myndir
af grátandi babúskum með tómar
pyngjur er rússneskur almenningur
önnum kafinn við að reyna að láta
enda ná saman og komast sem best
af í hinu daglega lífi. Þrátt fyrir
þokkalegt ástand og aukið frelsi
undanfarinn áratug eru tómar búð-
arhillur og biðraðir framan við
gjaldeyrissölustaði engin nýlunda í
Rússlandi.
En þó svo að almenningur sé
ýmsu vanur og einbeiti sér að þvi
að spjara sig, fer þvi fjarri að fólk
taki öllu sem á gengur þegjandi og
hljóðalaust. Á haustdögum hafa
mótmælaaðgerðir af ýmsu tagi auk-
ist stig af stigi og fyrstu vikuna í
október voru mótmælagöngur og
útifundir hvern dag.
Skólafólk safnaðist til dæmis
saman til að mótmæla lágum styrk,
ellilífeyrisþegar komu saman til að
sýna óánægju sína með lágan ellilíf-
eyri og þann 7. október efndu verka-
lýðsfélögin til allsherjarmótmæla
gegn rikisstjórninni en þó einkum
og sér í lagi Jeltsín, sem orðinn er
fram úr hófi óvinsæll. Meira en
hundraö þúsund manns mættu til
útifundar verkalýðsfélaganna í
Moskvu en sams konar fundir voru
haldnir í öllum stærri borgum Rúss-
lands.
70 ára heilaþvottur
Almenn þátttaka sýnir að rúss-
neskir borgarar eru langt frá því að
vera sáttir við ástandið eins og það
er orðið, en ekki eru allir sammála
um hvernig vandinn skuli leystur.
Á mótmælafundi verkalýðsfélag-
anna hópaðist fólk saman undir
flöggum anarkista (stjórnleysis-
sinna), monarkista (konungssinna),
nasista og fleiri öfgahópa. Allra
mest bar þó á kommúnistunum,
sem veifuðu sínum rauðu fánum og
flíkuðu gamalkunnum myndum af
félögunum Lenín og Stalín. Það
kann að virðast einkennilegt að svo
margir þegnar þjóðar sem var svo
undirokuð sem raun ber vitni á
valdatíma kommúnista skuli nú
sameinast undir merkjum kommún-
ista, en 70 ára skipulegur heila-
þvottur hefur haft sín áhrif og
margir þeir sem ólust upp við stjórn
kommúnista kenna nú frjálsræðinu
um alla óreiðuna og vilja snúa aftur
til fyrri hátta.
Á sama tíma er Mikhail Gorbat-
sjov, maðurinn sem leysti landið
undan oki kommúnista, ekki mikið
vinsælli en Jeltsín í heimahögum,
þrátt fyrir vinsældir á Vesturlönd-
um. Hann skýtur þó upp kollinum
öðru hverju og þá helst til að gagn-
rýna ríkisstjórnina.
Framtakssamar húsmæður
Rússar eru allra þjóða vanastir
að grípa til eigin úrræða til að
komast af. Sem dæmi má taka að
stór hluti hinnar rússnesku milli-
stéttar fæðir sig og sína af upp-
skerunni úr sumarhúsunum sín-
um, eða „datjunum”, eins og þau
eru kölluð. Undir lok valdatima
kommúnista voru þessi sumarhús,
sem upphaflega voru reyndar flest
heilsárs íbúðarhús, svo ódýr að
þeir sem höfðu einhver ráð yfir-
höfuð gátu varla annað en keypt
sér datju. Stór hluti borgarbúa
notar því hvert tækifæri sem gefst
til að skreppa í sumarhúsið og
rækta alls kyns grænmeti, sem er
kærkomin búbót. Kannanir á síð-
asta ári leiddu i ljós að 56% Rússa
rækta allar sínar kartöflur sjálfir!
Umhyggja þín
skilar sér
Veittu barninu þínu það besta sem völ er á
allt frá ykkar fyrstu kynnum.
Járn er fyrir blóðið og Fólínsýra er fóstrinu
nauðsynleg til eðlilegs þroska.
Multi Vit inniheldur öll helstu vítamín og steinefni.
Umhyggja pín skilar sér til barnsins
www.heilsa.is
eilsuhúsið
Skólavörðustíg, Kringlunni, Smáratorgi & Skipagötu, Akureyri
Rauður fáni blaktir á ný framan við kirkju heilags Basils.
Jeltsín er ekki á toppi vinsældalistans og þessi kona sýndi óánægju sfna
með útkrotaðri mynd af forsetanum.
Þar fyrir utan hefur aukist mjög
undanfarin ár að framtakssamar
húsmæður stilli sér upp hér og þar
í alfaraleið til að selja ýmislegt
grænmeti, svo sem graslauk,
radísur og jafnvel sumarblóm
beint úr sumarhúsinu, svona rétt
til að drýgja tekjurnar. Uppskeran
úr sumarhúsunum kemur sér sér-
staklega vel núna, þegar verð á
matvöru hækkar og vöruval
minnkar til muna.
Ný og glæsileg hestamiðBtöð
Alhliða þjónusta viðhesta og hestamenn
í boði eru:
Rúmgóðar stíur
ásamt heyi og hirðingu.
Hrossunum hleypt út.
Öll aðstaða mjög góð.
Önnur þjónusta:
Hestaleiga
Járningaþjónusta
Kerruleiga / sala
Bobcat þjónusta
(Verslun með hestavörur. Opnuð 15. des)
H R I í M F A X
H E S T A M I Ð S T Ö
HEIMSENDA 3 • VIÐ KJÓAVELLI
SÍMI: 587 6708 • FAX: 587 6708
GSM: 896 6707 og 896 5247
PO.BOX 9276 • 129 REYKJAVÍK
hrimfaxi@simnet.is