Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.1998, Blaðsíða 55
T*>*\J LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 1998
67 —
(mik
■ ** -4-
Sigrún Jónsdóttir, kirkjuleg listakona, er nýkomin frá Washington:
Sigrún Jónsdóttir, kirkjuleg lista-
kona, er stödd hér á landi til þess að
halda sýningu á munum sínum en
hún er nýkomin frá Bandaríkjunum
þar sem sýningu á verkum hennar í
þinghúsinu í Washington er nýlok-
ið.
Sigrún á lögheimili á íslandi en
býr meiri part ársins í Svíþjóð. Hún
segist ekki njóta neinna réttinda í
gósenlandinu en þar vinni hún verk
sín og komi svo hingað til þess að
hlaða batteríin. „Ég fæ aldrei tæki-
færi til þess að sakna íslands vegna
þess að þótt ég sé á ferð og flugi þá
er hugurinn hér heima og ég er
alltaf að vinna úr hugmyndum sem
eiga rætur í íslenskum veruleik,"
Þinghúsið í Washington. Verk Sig-
rúnar á vegg.
segir hún.
Þegar Sigrún er spurð um tildrög
þess að hún fór til Washington seg-
ir hún að sænsk kona, forstöðumað-
ur Herding-safnsins í Seattle, hafi
fyrir nokkrum árum verið að leita
að sænskum listamönnum tii þess
að sýna í safninu. Þó að Sigrún líti
ekki á sig sem sænska fékk hún
engu að síður að sýna og óf í leið-
inni altaristöflu fyrir dönsku kirkj-
una í Seattle.
Um þetta leyti voru tíu ár síðan
Reagan og Gorbatsjov hittust í
Höfða og til stóð að halda mikla sýn-
ingu á verkum íslensks, bandarísks
og sovésks listamanns í Was-
hington. Þessi sýning var haldin í
Martin Luther King-safninu fyrir
tilstilli Bimu Hróðmarsdóttur. Sýn-
ing Sigrúnar vakti einnig athygli
Peggy Olesen og Erlu Gunnarsdótt-
ur og með þeirra aðstoð barst sýn-
ingin til Tacoma og San Fransisco.
Eftir þær sýningar var Sigrún beðin
um að halda sýningu í þinghúsinu í
Washington.
„Þetta var mikill heiður," segir
Sigrún. „Sendiherrahjónin héldu
mér veislu með miklum myndar-
skap og Bryndís Schram klæddist
þjóðbúningi sem ég gerði á 1100 ára
afmæli íslandsbyggðar. Mér þótti þá
mál til komið að þjóðbúningurinn
hæfði konunni sem honum klæddist
og að hún gæti verið kvenleg i hon-
um. í Washington langaði mig til
þess að heiðra sendiherrafrúna með
einhverju og bjó því til sams konar
búninga á dúkkur og kynnti þær
sem tákn árstíðanna. Vetrarbúning-
urinn heitir Eilífðarsmáblóm,
haustið Bláfjalla-
geimur, sumarið
Landsýn og vorið
Ögrum skorið.“
Sigrún segir að í
Washington sé sendi-
ráðið tO fyrirmynd-
ar. „Það grípur mann
einhver tilfinning
sem maður hendir
ekki reiður á strax
en svo áttar maður
sig á henni: Það er
eins og maður sé
kominn heim til ís-
lands. Þetta er vita-
skuld sendiherra-
hjónunum Jóni Bald-
vini og Bryndísi að
Bryndís Schram sendiherrafrú klæddist þjóðbúning
sem Sigrún hannaði.
þakka,“ seg-
ir Sigrún.
Sýning
Sigrúnar
vakti verð-
skuldaða at-
hygli í
Washington
og næst
verður hún
sett upp í
New York.
Núna sýn-
ir Sigrún
búninga-
brúðurnar
auk ýmissa
muna hjá
Ófeigi að
Skólavörðu-
stíg 5. Sýn-
ingin stend-
ur til 9. des-
ember.
-þhs
Sigrún
Jónsdóttir,
kirkjuleg
listakona.
Hún segir
að það hafi
verið mikill
heiður að fá
að sýna f
þinghúsinu.
Líttu við í glæsilega og breytta verslun okkar.
Nú bjóðum við stórglæsileg og vönduð húsgögn í svefnherbergið. Sem fyrr höfum
við fjölbreytt úrval af rúmum, dýnum, koddum og allt annað sem þarf fyrir góða
hvíld og góðan svefn.
Skútuvogi 11* Sími 568 5588
Undírdívan Lystadún Snæland - þú þarft ekki að leita annað.
Góður svefn gefur góðan dag
ekki af sérvinnslu