Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.1998, Side 26
LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 1998
26 íungt fólk
ama helvítis ruglið
• Mikael Torfason, höfundur bókar-
innar Falskur fugl, sendir nú frá sér
nýja bók sem heitir Saga af stúlku.
Hann er kominn með fínni útgef-
anda en vill þó ekki meina að bókin
sé finni fyrir vikið. DV spurði yfir-
lýsingaglaða ungskáldið nokkurra
spuminga og í ljós kom að hann er
ekki sáttur við jólabækumar í ár.
Er sami sóðakjafturinn á þér í
nýju bókinni og var í Fölskum
fugli?
„Nei,“ svarar Mikael. „Það er
ekkert líkt með Sögu af stúlku og
Fölskum fugli annað en að ég skrif-
aði báðar bækurnar. Fuglinn var
fantasía um réttlæti og þar af leið-
andi mjög hörð og gróf. Saga af
stúlku fjallar um ranglæti og er fyr-
ir vikið harðari og grófari án þess
þó að þaö sé eins mikið um ofbeldi
og dóp í henni.“
Þú skrifar bókina í fyrstu per-
sónu og svo ert þú líka sögupersóna
í henni?
„Já, og öll fjölskyldan mín. Bókin
fjallar um bamapíuna mína, hana
Auði Ögn Amarsdóttur, en hún býr
í Breiðholti þar sem ég bjó um tíma.
Ég fékk nóg af því þegar ég var að
kynna Falskan fugl að ég þurfti sí-
fellt að vera að afneita bókinni.
Segja í viðtölum að hún fjaUaði alls
ekki um mig og væri hreinn skáld-
skapur. Sem er náttúrlega lygi þar
sem ég þurfti að gera allt sem Am-
aldur í Fuglinum gerði. Ég var bú-
inn að lifa hans lifi í marga mánuði
þegar ég ákvað að koma honum í
bókahillur og þá var hann allt í einu
orðið eitthvað sem mín persóna
kom ekkert nálægt. Saga af stúlku
er einmitt andstæðan við þetta. Hún
fær einlæga höfundarrödd vegna
þess að ég er sögumaðurinn og per-
sóna í bókinni."
Kikk lesandans
Ertu jafngagnrýninn í þessari
bók og þeirri fyrri?
„Já. En á aðeins lúmskari hátt.
Söguefnið krefst þess að gagnrýnin
sé ekki eins beinskeytt. Það er litið
um blammeringar í þessari bók.
Hún er bara keyrð áfram á litlu frá-
viki í samfélaginu. Ungri stúlku
sem getur ekki fótað sig í þessu lífi
og leitar allra leiða til að finna ein-
hvem tilgang. Svo spinnst margt
annað inn í. Hún fer að fá bréf frá
gæja í Ameríku sem er að áreita
hana. En bréfin era einmitt skrifuð
af Ragnari Bragasyni kvikmynda-
gerðarmanni sem sendi mér þau út
til Portúgals þar sem ég skrifaði
bókina. Ég vissi ekkert um hvað
þau vom heldur var ég bara búinn
að skipa fyrir um hvenær ég vildi fá
hvert bréf. Ég svaraði síðan áreit-
inu fyrir Auði um leið og hún fékk
þau. Bréfin fá hana út úr skápnum
og láta hana gera upp ýmislegt úr
fortíðinni. Það veldur síðan spreng-
ingu hjá stúlkunni og til að rústa
ekki kikk lesandans þá segi ég ekki
rneira."
Höfundar þora ekki að
skera sig úr
Hvað finnst þér um jólabókaflóð-
ið í ár?
„Mér sýnist það vera svipaö og í
fyrra,“ segir Mikael og brosir dauft.
„Þetta er sama helvítis ruglið nema
að Einar Kára er með períódu í
staðinn fyrir Einar Má í fyrra. Það
er síðan ekki verið að segja neitt í
þeim bókum sem gerast í samtíman-
um. Höfundar í dag skrifa fyrir les-
endur næsta árþúsunds. Því sam-
kvæmt Guðbergi - sem er aftur með
minningabók í ár - sannast ekki
hvort um alvörubók er að ræða fyrr
en fimmtíu árum eftir að höfundur-
inn drepst. Sem gefur lesendunum
og gagnrýnendunum undanþágu frá
því að taka afstöðu til verksins. Það
fær enginn að vita hvort þessi eða
hin bókin eigi erindi við samtímann
fyrr en eftir X mörg ár. Og þetta ger-
ir það að verkum að bækumar
verða bara ómeðvituð lygi höfund-
arins um það sem hann heldur að
verði ofsalega sniðugt einhvern
tima í framtíðinni. En við lifum í
núinu. Það er hvorki til fortíð né
framtíð og það er til skammar að
horfa upp á íslenska rithöfunda
míga yfir samtímann."
En era engar undantekningar á
þessum fullyrðingum?
„Jú, jú. En þetta er heildarmynd-
in. í fyrra var til dæmis sífellt veriö
að spyrja mig hvort ég hefði ekki
áhyggjur af því að bókin mín myndi
deyja vegna þess hversu raunvera-
lega hún lýsti samtímanum. Það
virðist sem fólk sé alið upp við þá
lygi að það eigi að skrifa fyrir
ófædda lesendur. Þetta er náttúr-
lega rugl og ég veit að Laxness og
Þórbergur vora til dæmis ekki að
skrifa fyrir menntaskólanema árið
1998. Þeir vora að skrifa fyrir sam-
tímann og kröfðu hann til að dæma
sig og taka afstöðu. En nú eru allir
höfundar svo hræddir við aö tekin
verði afstaða til þeirra að þeir
skrifa ekki fyrir samtimann. Þess
vegna er reglan að bækur komi
bara út fyrir jólin. Höfundar þora
ekki að skera sig úr og vilja því hafa
tækifæri til aö hverfa i jólabókaflóð-
inu.“
Af hverju gefurðu þá út fyrir jól-
in?
„Ég var bara akkúrat tilbúinn
með bók núna og vildi ekki biða.
Svo var ég að fá nýjan útgefanda og
mig langar að sýna honum að ég
kunni stafrófið áður en ég fer að fá
hann til að gefa mig út um mitt ár.
En þetta er eitthvað sem ég mun
gera, annaðhvort á næsta ári eða
þamæsta."
-ILK
Kynorar
* ungUngs
Guðrún Eva Mínervudóttir. Sadómasókismi var henni ofarlega í huga þegar
hún skrifaði bókina. DV-mynd ÞÖK
• Guðrún Eva Mínervudóttir hefur
nýlega gefið út smásagnasafnið Á
meðan hann horfir á þig ertu María
mey. Hún er yngst ungskáldanna
svokölluðu en segist þó vera búin að
fá nóg af ungskáldaumræðunni.
Hún segist frekar vilja tilheyra hópi
rithöfunda og vera metin að verð-
leikum en að vera skipað á bekk
einhvers unglingalandsliðs sem fjöl-
miðlar hafa búið tiL
Þér hefur þá ekki dottið i hug að
bíða þar til þú yrðir eldri?
„Það era mörg ár síðan ég fór að
skrifa af fúlustu alvöra en samt
bjóst ég ekki við því aö ég fengi út-
gefið strax. Ég hélt ég þyrfti að
reyna í langan tíma og að það yrði
erfiðara að koma sér á framfæri.
Það kom flatt upp á mig hvað ég
fékk fljótt útgefið og einnig þessi at-
hygli og ágætu móttökur sem ég hef
fengið."
Hvenær byrjaðirðu að skrifa bók-
ina?
„Ég byrjaði að skrifa hana eftir
áramót og það er því tæpt ár síðan.
En hún er Util, þessi bók, og það var
einkum vorið og sumarið sem fóru í
að klára hana. Ég var aö skrifa
skáldsögu sem ég hef veriö að vinna
að í tvö ár en gerði hlé á henni á
meðan ég skrifaði smásögumar. Nú
eftir áramót er ég á leið til Amster-
dam til þess að endurskrifa hana.“
Þegar Guðrún Eva er spurð nán-
ar út í innihald þeirrar sögu verður
fátt um svör og hún segir að aldrei
sé hægt að segja frá því um hvað
saga fjalli nema innihaldið virki þá
léttvægt.
„Þaö hefur einhvem veginn verið
þannig i mínum skáldskap að sögu-
þráðurinn hefur ekki verið aðalat-
riðið heldur einhvers konar stemn-
ingar. Smásögumar í safninu era
þó tvimælalaust heilar sögur, þær
fara alveg hring og enda nákvæm-
lega þar sem þær eiga að enda og
hvergi annars staðar. Ég held að
flestir upplifi þær þannig en ég hef
þó heyrt nokkra kvarta yfir því að
þær séu snubbóttar, vanti upphaf,
miðju og endi og séu frekar eins og
litlar svipmyndir en sögxu-."
Hvernig líst þér annars á dómana
sem þú hefur fengið?
„Mér þykja dómar í seinni tíð
orðnir frekar hlutlausir. Það vantar
fyrirsagnir eins og Loksins, loksins!
og Kynórar unglings. Mér finnst
það samt vera þreytt að segja að
mér hafi þótt dómar vera loðnir og
ég hafi ekki séð hvað ritdómaranum
fannst en hins vegar hafði ég gaman
af dómunum, sérstaklega hjá Þresti
Helgasyni í Mogganum, en hann
fletti skemmtilega ofan af mér með
öllu þessu tali um sadómasókis-
mann sem var mér einmitt ofarlega
í huga þegar ég skrifaði bókina. Ég
bjóst ekki við því að neinn kæmi
auga á það, aðrir en mínir nánustu
vinir.“
Þú verður að vara þig á bók-
menntafræðingunum.
„Ég veit ekki hvernig það er
hægt. Rithöfundurinn er berskjald-
aður fyrir viðbrögðum annarra og
veröur að vera það. Maður getur að-
eins orðið meðalrithöfundur ef mað-
ur ætlar alltaf að vera að vara sig á
einhverjum, eins og almúganum
eða bókmenntafræðingunum, en
það er ekki hægt aö verða framúr-
skarandi nema renna blint í sjóinn
með það sem maður er að gera.“
En ætlarðu að bjarga heiminum?
„Nei, ef ég ætlaði að reyna það þá
myndi ég bara fara út í pólitík.
Skáldskapur er að mínu viti gagns-
laus í þeirri baráttu. Hann er frekar
til þess fallinn að auðga mannlífið
og láta okkur finnast við vera meiri
manneskjur. Góður skáldskapur
gerir heiminn lika bærilegri þótt
hann bjargi honum ekki.“
Ætlarðu að halda áfram?
„Það er erfitt að venja sig af
svona vitleysu þegar maður er einu
sinni byrjaður. Mér finnst ég ekki
hafa neitt val. Allt sem ég geri er til
þess að ég geti skrifaö betri og meiri
texta. Þetta er bara það sem ég geri
og allt mitt líf mun miðast við að
skapa mér betri skilyrði til þess að
skrifa."
-þhs
L. í prófíl
Fullt nafn: Margrét Sigurðardóttir.
Fæðingardagur og ár: 25. 04.1973.
Maki: Enginn.
Böm: Engin.
Starf: Sjónvarpskona.
Skemmtilegast: Að sprella með
vinunum.
Leiðinlegast: Peningamál og fót-
bolti.
Uppáhaldsmatur: Grjónagrautur
með kanil.
Uppáhaldsdrykkur: Kakómalt.
Fallegasta manneskjan (fyrir
utan maka): Mamma.
Fallegasta röddin: Jeff Buckley
átti fallegustu rödd sem ég hef
heyrt.
Uppáhaldslíkamshluti: Ég tek
alltaf fyrst eftir tönnunum. Minn?
Vinstri höndin er svona slétt og
mjúk (þessi hægri eins og hún hafi
stundað þvotta og skúringar í 20
ár).
Hlynnt(ur) eða andvíg(ur) ríkis-
stjóminni: Andvíg.
Með hvaða teiknimyndapersónu
myndir þú vilja eyða nótt: Pétri
Pan ef ég ætla að
vaka
>
alla nóttina en Simba til að kúra
með.
Uppáhaldsleikari: Robert DeNiro,
Leonardo DiCaprio, Hilmir Snær
og Helga Braga - get ekki valið.
Uppáhaldstónlistarmaður:
Hjálmar H. Ragnars.
Sætasti stjómmálamaðurinn:
Össur er algjört krútt.
Uppáhaldssjónvarpsþáttur: Kol-
krabbinn auðvitað.
Leiðinlegasta auglýsingin:
Banka- og verðbréfaauglýsingar
eins og þær leggja sig eru hundleið-
inlegar.
Leiðinlegasta kvikmyndin: Flest-
ar myndir sem heita eitthvað
Highschool Romance, Love at the
Prom o.s.frv.
Sætasti sjónvarpsmaðurinn: Ég
get nú bara ekki gert upp á milli
Krabbastrákanna, þeir
eru allir svo
hrikalega sætir.
Uppáhaldsskemmtistaður: Þaö etj
bara þar sem vinimir og skemmtij
legt fólk er hverju sinni. Ég á eng
an bar sem er minn samastaðu
mánudagsþynnku eða þar sem é|
fer fram fyrir röðina og fæ afslátt í |
fatahenginu.
Besta „pikköpp“-línan: Veistu að 1
þú ert með alveg eins augu og guU-!
fiskurinn sem ég á heima. Viltu 1
kikja á hann?
Hvað ætlar þú að verða þegar þú
verður stór: Leikkona eða læknir.
Eltthvað að lokum? Ne, nei - jú,
lifi ljósið.