Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.1998, Side 31
Arnaldur Arnarson og Alicia Alcalay.
Arnaldo! Amaldo! Hvar er Arn-
aldo? Hann hlýtur að vera í skólan-
um. Eða heima? Er hann veikur? Það
er Arnaldur Arnarson gítarleikari
sem heitir bara Arnaldo þegar spurt
er eftir honum í Luthier-hljóðfæra-
versluninni í Barcelona.
Þetta er sérverslun með gítara við
Balmes-götu, steinsnar frá miðborg-
inni - og að auki er þarna stærsta
safn Spánar af nótum fyrir gítarleik-
ara. Hingað koma þeir sem hafa vit á
gítörum og hér ráða þau hjónin Am-
aldur og Alicia Alcalay rikjum.
Við hittrun Arnald í versluninni.
Hann skýst þangað úr tónlistarskólan-
um sem þau hjón reka líka. Þau eru
áberandi fólk i tónlistarlífl borgarinn-
ar.
Dóttirin byrjuð líka
Að utan lætur verslunin lítið yfir
sér, bara glerhurð og grænt skilti fyr-
ir ofan. Þegar inn er komið opnast
heill heimur af gítörum, nokkrir af
ódýrari gerðinni fremst en innar
eru dýrgripirnir, bæði gamlir og
nýir. Og lítill tónleikasalur innst
með sannarlegum forngripum úr
gítarsögunni á veggjunum.
Allt snýst um gítara þótt líka sé
hægt að fá lútur og selló hjá Arn-
aldi. Jafnvel smáselló eins og það
sem Anna Guðrún Arnaldsdóttir-
Alcalay, dóttir Amaldar og Aliciu',
sækir í að leika sér með, aðeins
rúmlega tveggja ára.
„Hún er ótrúlega hrifin af selló-
inu,“ segir Arnaldur.
Litlu neðar í götunni er skólinn.
Þar er Alicia, kona Arnaldar,
skólastjóri en hann er sjálfur með-
al kennaranna. Gítarkennsla og
tónleikahald er atvinna Arnaldar.
Gítarverslunin er eins konar auka-
geta við hliðina á skólanum sem
hefur rnn 400 nemendm- og 35
kennara.
Líka nótnasafnið sem Arnaldur
getur með stolti kallað það stærsta
sinnar tegundar á Spáni. Það er nú
komið í hendur starfsmanna í versl-
uninni. Arnaldur segist hafa ákveðið
að byggja upp þetta safn vegna þess að
hann minnist þess frá námsárum sín-
um hve erfitt gat verið að nálgast gít-
amótur.
Efaðist aldrei alvarlega
Arnaldur er Eyfirðingur í báðar
ættir þótt hann sé fæddur og uppalinn
á Seltjarnarnesinu. Það var þó í Umeá
í Svíþjóð sem gítarinn hafnaði í hönd-
unum á Arnaldi og vegna þessa hljóð-
færis er hann nú kominn með um-
fangsmikinn skóla- og verslunarrekst-
ur í Barcelona á Spáni. Það þurfa að
koma saman margar tilviljanir og
einnig ákvarðanir áður en það gerist.
Ástæðan fyrir að Umeá kemur við
sögu er að þar stundaði faðir Arnald-
ar framhaldsnám í læknisfræði. For-
eldrar hans eru Örn Smári Arnalds-
son, nú forstöðumaður myndgreining-
ar- og rannsóknarsviðs á Sjúkrahúsi
Reykjavíkur, og Rósa Hjaltadóttir
húsmóðir.
„Ég efaðist aldrei alvarlega um að
ég væri á réttri braut þegar ég ákvað
að leggja gítarleik fyrir mig,“ segir
Arnaldur. Hann valdi gitarinn upp-
haflega í tónlistarskólanum í Umeá
vegna þess að honum þótti hljóðfærið
fallegt og hljómurinn í því faUegur.
Engar gítarhetjur úr rokktónlistinni
réðu þarna ferðinni eins og þegar
krakkar völdu sér hljóðfæri á tímum
bítlatónlistarinnar.
„Það hefur aldrei freistað mín að
spila rokk- eða popptónlist á gítarinn.
Ég get ekki einu sinni blúsað á þetta
hljóðfæri,“ segir Arnaldur og hlær.
Hann rifjar upp að Jakob Magnússon
fékk hann eitt sinn ásamt fleirum á ís-
lenska gítarhátíð í London og inni á
milli var djammað á gitarana. .
„Það var settur rafmagnsgítar i
fangið á mér og mér sagt að blúsa eins
og hinum. Ég gat ekkert, alls ekkert
og var langverstur í hópnum," segir
Arnaldur um þessa einu tilraun sína
til að leika á rafmagngítar.
„Ég hef aldrei haft tilfinningu fyrir
rafmagnsgítamum. Klassiski gítarinn
er mitt hljóðfæri," segir hann með
sannfæringu. Hann neitar því hins
vegar ekki að honum hafi þótt gaman
að hlusta á gítarhetjur unglingsár-
anna, menn eins og Jimmy Hendrix
og Eric Clapton. En sjálfum hefur
honum aldrei dottið í hug að blanda
saman rokki og klassískum gitarleik.
Tvær ólíkar hefðir
„Þetta eru tvær ólíkar hefðir,“ seg-
ir Arnaldur til útskýringar. En að ís-
lendingur kenni Spánverjum klassísk-
an gítarleik? Er það ekki eins og að
Spánverji ætli að kenna Þingeyingum
að kveða rímur?
„Nei,“ svarar Arnaldur, ákveðinn.
„Spánverjar líta í það minnsta ekki
svo á. í augum Spánverja er gítarinn
alþjóðlegt hljóðfæri og það þykir ekk-
ert undarlegt þótt útlendingur kenni á
gítar - ekki frekar en áð kenna á
hvaða annað hljóðfæri sem er.“
Gítarhefðin er hins vegar sterk á
Spáni og frægasti gítarsnillingur allra
tíma er Spánverjinn Andrés Segovia.
Arnaldur telur að frægð hans valdi
miklu um að margir telja gítarinn sér-
stakt spánskt hljóðfæri.
„Spánverjum þykir undarlegt ef út-
lendingar ætla að tileinka sér fla-
mencóleik. Flamencó er sérstök
spænsk þjóðlagahefð sem útlendingar
ná ekki valdi á af sömu tilfinningu og
Spánverjar og þá sérstaklega Andalús-
íumenn," segir Arnaldur og nefnir
sérstaklega að Japanir eru mjög hrifn-
ir af flamencó en geta ekki allir leikið
hann af svo mikilli innlifún að Spán-
verjum líki. Frá Japan hafa þó komið
verðlaunaðir flamencóleikarar
Arnaldur hefur getið sér gott orð
sem gítarleikari í hinum spænsku-
mælandi heimi. Hann hefur farið í
tónleikaferðir til Suður-Ameríku og
leikið víða á Spáni.
„Eftir að Anna Guðrún fæddist hef
ég meira haldið mig hér í Barcelóna
og nágrenni," segir Arnaldur um þá
breytingu sem stofnun fjölskyldu hef-
ur haft í för með sér. í Barcelona kem-
ur hann oft fram með strengjakvar-
tett.
Skrapp til Barcelona
„Ég lít bæði á mig sem konsertgít-
arleikara og gítarkennara. Mér finnst
gaman að kenna og vildi hvorugu
sleppa," segir Arnaldur. Hann á
að baki nám í klassískum gítar-
leik heima f Tónskóla Sigur-
sveins D. Kristinssonar þar sem
Gunnar H. Jónsson var kennari
hans. Síðar fór Arnaldur til
framhaldsnáms í Manchester á
Englandi og þaðan lauk hann
mastersgráðu i gítarleik.
Fyrir rúmum fimmtán árum -
eftir eitt ár við kennslu heima á
íslandi - fór hann til Alicante á
Spáni í nám hjá einkakennara
þar. Frá Alicante skrapp hann
til Barcelóna á námskeið skipu-
lagt af þekktum gítarleikara og
kennara. Það var Alicia Alcalay
og Arnaldur hefur eiginlega
ekki komist heim af námskeið-
inu.
Arnaldur viðurkennir fúslega
að það er vegna áhuga á gítar-
leik að hann er staddur þar sem
hann er nú. Hann gat valið ann-
að en gerði það ekki.
Hefði annars orðið læknir
„Eftir að ég lauk menntaskólanum
velti ég því fyrir mér hvað ég ætti að
gera. Mig langaði að halda áfram að
læra á gítar og hugsaði sem svo að ég
gæti alltaf snúið mér að öðru námi
síðar þótt ég héldi áfram tónlistar-
náminu. Hins vegar er erfitt að byrja
aftur á tónlistarnámi eftir hlé,“ segir
hann telur helst að læknisfræði hefði
orðið fyrir valinu ef gítarinn hefði
ekki komið fyrst.
„Ég hugsaði þetta aldrei út frá fjár-
hagslegu sjónarmiði. Ég þurfti aldrei
að hafa áhyggjur af afkomunni á
námsárunum, tók námslán og velti
tekjumöguleikum síðar ekkert fyrir
mér,“ segir hann og bætir við að val-
ið hafi í raun og veru aldrei verið
erfitt. Hann ætlaði sér að verða gítar-
leikari.
Hann hefur hins vegar aldrei
ákveðið hvar hann ætlar að búa.
Hann er í Barcelóna og kallar aðstöðu
sína þar „áhugaverða". Hér er mikið
mn að vera í tónlistarlífinu og við tón-
leikahald og við rekstur skólans
kynnist hann nýjum tónlistarmönn-
um en hann hefur aldrei ákveðið að
búa í Barcelóna. Þetta er bara svona.
„Stundum finnst mér stórborgin
þreytandi. Barcelóna er ein þéttbyggð-
asta borg í heimi og hér heyrist borg-
amiðurinn allan sólarhringinn," seg-
ir Arnaldur. Þau hjón búa mitt í öll-
um ysnum rétt hjá tónlistarskólanum
og versluninni.
„Það er nauðsynlegt að komast burt
frá öllu þessu af og til,“ segir Amald-
ur og þau hjón eru öU sumur á íslandi
og á veturna reyna þau sem oftast að
komast út úr borginni.
„Kosturinn viðað búa hér er að hér
er mikið að gerast. Hingað koma fræg-
ir tónlistarmenn, virtar hljómsveitir
og dýrar óperusýningar sem ekki er
hægt að fá til íslands," segir Amald-
ur. Gróskan í íslensku tónlistarlífi
finnst honum þó alltaf jafnspennandi
og segir að það sé að mörgu leyti auð-
veldara fyrir almenning á íslandi en i
Barcelóna að fylgjast með því sem er
að gerast.
Illa við síestuna
í Barcelóna hefur Arnaldur samið
sig að lífsmunstri heimamanna.
Vinnudagurinn skiptist í tvennt því
um miðjan daginn varir „síestan" í
tvo tU þrjá tíma. Höfuðmáltíð dagsins
er seint um kvöld og Arnaldur segir
að þetta fyrirkomulag sé í raun og
veru úrelt og óþarft í borgarmenn-
ingu.
„Ég kann betur við að hafa sam-
felldan vinnudag og fara snemma
heim. Síestan er ekkert annað en arf-
ur úr sveitamenningunni. Það var úti-
lokað að vinna úti á ökrunum í hitan-
um um hádaginn en í borgunum á
þetta minni rétt á sér,“ segir Amald-
ur.
íslenska matarins saknar Arnaldur
síður enda hefur hann ekki borðað
kjöt í 18 ár og er sama þótt ekki séu
svið og hangikjöt á borðum. Þó hefur
fjölskyldan með sér flatkökur að
heiman og skyr og bakar rúgbrauð.
„Það kemur fyrir að ég sakna
stemningarinnar við matborðið á ís-
landi,“ segir Arnaldur og minnist
sumranna sem hann var í sveit í Eyja-
firðinum. Alltaf hádegismatur, síðasta
lag fyrir fréttir í útvarpinu og svo
fréttirnar. Það var reyndar ekki svo
fjarlæg hugmynd að verða bóndi. Og
hestamaður var hann í Eyjafirðinum,
greip í gítarinn af og til og þótti gam-
an í heyskapnum.
Heim á tónleika
Núna er næst á dagskrá að fara
heim til íslands og halda tónleika á
Myrkum músíkdögum í janúar. Þar
ætlar Arnaldur m.a. að flytja verk
Jóns Leifs; upphaflega fiðluverk sem
Arnaldur hefur sjálfur umskrifað yfir
gítar og einnig verk eftir Karólínu Ei-
ríksdóttur og Jón Ásgeirsson. Þá ætl-
ar hann aö frumflytja verk eftir John
Speight. Þetta er efnisskrá sem hann
er að æfa núna með öðrum verkum.
Á heimili Arnaldar og Aliciu snýst
allt um tónlist. Þau hjón eru bæði git-
arleikarar, dóttirin Anna Guðrún er
byrjuð að leika sér með selló og fóst-
ursynirnir tveir, synir Aliciu af fyrra
hjónabandi, eru báðir tónlistarmenn,
hvor á sinn hátt. Daniel Alonso, sá
eldri, stillir píanó en Guillem Alonso
er atvinnumaður í steppi - og raunar
fyrrum heimsmeistari í greininni.
Og ekki minnkar fjölbreytnin þegar
kemur að samræðum á heimilinu.
Alicia talar katalónsku við börn sín,
Amaldur og Alicia tala spænsku sín í
milli og Arnaldur og Anna Guðrún
tala saman á íslensku. Sú litla verður
því jafnvíg á þrjú tungumál; kata-
lónsku, spænsku og íslensku.
Gísli Kristjánsson
Ásamt dótturinni Önnu Guðrúnu Arnaldsdóttur-
Alcalay.