Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.1998, Page 59
JL>V LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 1998
71
Til hamingju
með afmæ ið
29. nóvember
90 ára
Jóhannes H.
Jóhannesson,
fyrrv. bóndi
á Vindheimum
á Þelamörk og
kirkjuorganisti
um árabil, nú til heimilis að
Hlíðargötu 7, Akureyri. Hann
heldur upp á afmælið í Lóni,
félagsheimili Karlakórs Akur-
eyrar-Geysis, sunnud. 29.11.
kl. 15.00 Og 19.00.
Agnes Stefánsdóttir,
dvalarheimilinu Höfða,
Akranesi.
85 áxa
Magnús Sigurðsson,
Hjallaseli 45, Reykjavík.
Hann tekur á móti gestum í
salnum í Seljahlíð á afmælis-
daginn frá kl. 18.00.
Bjarnheiður Gissurardóttir,
Stórási 9, Garðabæ.
75 ára
Ásta Guðvarðardóttir,
Krummahólum 10, Reykjavík.
Ásgeir Sigurðsson,
Sefgörðum 6, Seltjamamesi.
Kristín Þorleifsdóttir,
Þverá, Eyja- og Miklaholtshr.
Bjöm Eysteinn
Jóhannesson,
Stokkhólma, Skagafirði.
Magnús Anton Jónsson
vélstjóri,
Aðalbraut 41B, Raufarhöfn.
70 ára
Svanfríður Jónasdóttir,
Reynimel 84, Reykjavík.
Vilhelmína Adolfsdóttir,
Heiðargerði 76, Reykjavík.
Inga Valborg Einarsdóttir,
Gullsmára 5, Kópavogi.
Gunnlaugur Gunnlaugsson,
Hóli, Kópaskeri.
Jón Kristjánsson,
Fossheiði 48, Selfossi.
Oddsteinn Kristjánsson,
Hvammi, Skaftárhreppi.
60 ára
Gunnþórunn
Aðalsteinsdóttir,
Furugnmd 32, Akranesi.
Reynir Hallgrímsson,
Kringlu, Blönduósi.
50 ára
Guðfinna A.
Hjálmarsdóttir
kaupmaður,
Bollagörðum 20,
Seltjai'namesi,
verður fimmtug
á mánudag. Maður hennar er
Grímur Ingólfsson. Þau taka á
móti ættingjum og vinum á
heimili sinu laugard. 28.11.
frá kl. 20.00.
HaUdór Gunnarsson,
Geitlandi 31, Reykjavík.
Unnur B. Gísladóttir,
Leimbakka 22, Reykjavík.
Ásdis Einarsson,
Tjamarmýri 16, Seltjamarn.
Magnús Óskarsson,
Hamratungu, Gnúpverjahr.
40 ára
María F. Bjarnadóttir,
Svalbarði 10, Hafnarfirði.
Lilja Jónína Héðinsdóttir,
Traðarbergi 19, Hafnarfirði.
SigurUn Högnadóttir,
Borgarvegi 31, Njarðvík.
Danuta Wasyl,
Víkurtúni 11, Hólmavík.
Grétar Carlsson,
Júllatúni 9, Höfn.
Bjamdís Kristin
Axelsdóttir,
Kirkjubraut 59, Höfn.
______________%fmælí
Leifur Guðmundur Pálsson
Leifur Guðmundur Pálsson, skip-
stjóri og stýrimaður, Skólavegi 13,
Hnífsdal, er áttræður í dag.
Starfsferill
Leifur fæddist í Hnífsdal, ólst þar
upp og hefur átt þar heima mestan
hluta ævinnar. Hann lauk hinu
meira fiskimannaprófi frá Sjó-
mannaskólanum í Reykjavík 1949.
Leifur var stýrimaður og skip-
stjóri á ýmsum fiskiskipum til 1972
og starfrækti síðan fyrirtækið Vír
hf. á ísafirði ásamt öðrum til 1986.
Leifur hefur verið virkur félagi í
Stangveiðifélagi ísafjarðar um ára-
bil og er heiðursfélagi slysavarna-
deildarinnar í Hnífsdal frá 1984.
Fjölskylda
Leifur kvæntist 10.7. 1958 Ingu
Þórhildi Jónsdóttur, f. 12.10. 1929,
skrifstofumanni. Hún
er dóttir Jóns Gríms-
sonar, f. 18.12. 1887, d.
25.9. 1977, málafærslu-
manns á ísafirði, og
Ásu Finnsdóttur
Thordarson, f. 18.5.
1892, d. 15.5. 1971, hús-
móður.
Börn Leifs og Ingu
Þórhildar era Guðbjörg
Leifsdóttir, f. 16.9. 1958,
píanókennari og hús-
móðir í Reykjavík, en
maður hennar er Óskar
Jóhann Sigurðsson, f. 7.6.1962, húsa-
smíðameistari, og eiga þau þrjár
dætur; Páll Skúli Leifsson, f. 10.8.
1960, lektor við Konunglega dýra-
lækninga- og landbúnaðarháskólann
í Kaupmannahöfn, kvæntur Júlíönu
Guðrúnu Reynisdóttur, f. 16.7. 1960,
skrifstofumanni, og eiga
þau tvö böm;Jón Atli
Leifsson, f. 30.10. 1966,
efnaverkfræðingur hjá
VSÓ, búsettur í Reykja-
vík, kvæntur Sigríði
Ingu Sigurðardóttur, f.
17.7. 1971, háskólanema.
Systkini Leifs; Páll
Pálsson, f. 1.4. 1914, d.
19.12.1994, siðast búsett-
ur í Reykjavík, faðir
Kristjáns alþm. og Ólafs
Karvels fiskifræðings;
Jóakim Pálsson, f. 20.6.
1915, d. 8.9. 1996, útgerðarmaður í
Hnifsdal; Halldór Pálsson, f. 4.8.
1916, d. 6.6. 1917; Helga Pálsdóttir, f.
19.9. 1917, búsett á ísafirði; Kristján
Pálsson, f. 25.5. 1920, d. 1.12. 1941;
Halldór Gunnar Pálsson, f. 5.11.
1921, verkstjóri í Hafnarfirði.
Foreldrar Leifs voru Páll Pálsson,
f. 10.7. 1983, d. 26.3. 1975, útvegsb. í
Heimabæ í Hnífsdal, og k.h., Guð-
rún Guðríður Guðleifsdóttir, f. 4.7.
1895, d. 3.3. 1923, húsmóðir.
Ætt
Páll var bróðir Halldórs, föður
Páls, organista í Hallgrímskirkju.
Páll var sonur Páls, útvegsb. í Gili í
Bolungarvík, Halldórssonar, og
Helgu Jóakimsdóttur frá Árbót í Að-
aldal í Suður-Þingeyjarsýslu.
Guðrún var dóttir Guðleifs frá
Hlöðuvík ísleifssonar, bróður
Hjálmfríðar, ömmu rithöfundanna,
Jakobínu og Fríðu Sigurðardætra.
Móðir Guðrúnar var Guðbjörg Jóns-
dóttir frá Kirkjubóli, systir Guð-
bjarts, afa Harðar Helgasonar sendi-
herra.
Leifur Guðmundur
Pálsson.
Guðmundur Jóelsson
Guðmundur Jóelsson, löggiltur
endurskoðandi, Hlíðarhjalla 54,
Kópavogi, verður fimmtugur á
mánudaginn.
Starfsferill
Guðmundur fæddist í Reykjavík
en ólst upp í Garði og Sandgerði.
Hann lauk gagnfræðaprófi frá Gagn-
fræðaskóla Austurbæjar 1965,
stundaði nám við Samvinnuskólann
að Bifröst og lauk þaðan prófum
1967, hóf nám í endurskoðun haust-
ið 1969 hjá Geir Geirssyni, lögg. end-
urskoðanda, og hlaut löggildingu
sem endurskoðandi vorið 1975.
Guðmundur var skrifstofumaður
hjá Olíufélaginu hf. 1967-68, skrif-
stofumaður hjá Ríkisábyrgðasjóði
1969, starfaði á endurskoðunarskrif-
stofu SÍS 1969-74 og var við bók-
halds- og endurskoðunarstörf hjá
Bókhaldsþjónustunni Bergi hf. á Eg-
ilsstöðum 1975.
Guðmundur hóf rekstur eigin
endurskoðunarskrifstofu í október
1975. Hann er nú einn af eigendum
endurskoðunarskrifstofunnar BÓK-
UN sf., Hamraborg 1, í Kópavogi.
Guðmundur átti heima í Garði og
Sandgerði til 1967, í Reykjavík
1967-74, á Egilsstöðum 1975 en hefur
búið í Kópavogi frá haustinu 1975.
Fjölskylda
Guðmundur kvæntist 11.11. 1978
Önnu Margréti Gunnarsdóttur, f.
20.4. 1950, kennara. Hún er dóttir
Gunnars Þ. Þorsteinssonar, f. 11.5.
1918, rennismiðs frá Litluhlíð á
Barðaströnd, og Ástu S. Sigmunds-
dóttur, f. 22.8.1917, verslunarmanns
og húsmóður frá isafirði.
Böm Guðmundar og Önnu Mar-
grétar eru Gunnhildur Ásta, f. 30.6.
1978, nemi í VÍ; Erla Dögg, f. 24.8.
1981, nemi í MK; Aldís, f. 18.12.1985,
grunnskólanemi.
Fósturbróðir Guðmundar er Axel
Jónsson, f. 5.3.1950, veitingamaður í
Keflavík.
Hálfsystkini Guðmundar eru
Vignir Jónsson, f. 5.5. 1956, kennari
í Reykjavík; Þorsteinn Jónsson, f.
4.1. 1958, þjónn og listamaður í
Keflavík; íris Jónsdóttir, f. 25.3.
1963, myndlistarmaður í
Keflavík.
Foreldi'ar Guðmund-
ar: Jóel Örn Ingimars-
son, f. 15.8. 1926,
húsgagnabólstrari í
Reykjavík, og Bergþóra
Þorbergsdóttir, f. 1.5.
1925, húsmóðir í Kefla-
vík.
Fósturfaðir Guð-
mundar frá því Guð-
mundur var fimm ára
er Jón Axelsson, f. 14.6.
1922, kaupmaður í Sand-
gerði og Keflavík.
Ætt
Foreldrar Jóels Arnar vora Guð-
jón Ingimar Jónsson frá Drangs-
nesi, oft kenndur við Bólsturgerðina
í Reykjavík, og k.h., Elín Jóelsdóttir
frá Stóra-Fljóti í Biskupstungum.
Foreldrar Guðjóns Ingimars vora
Jón Jónsson, barnakennari frá
Tumakoti í Vogum á Vatnsleysu-
strönd og k.h., Anna Sigríður Árna-
dóttir, ættuð úr Strandasýslu. For-
eldrar Elínar voru Jóel
Jóhannesson frá Múla
og k.h., Pálína Þórann
Guðmundsdóttir frá
Stóra-Fljóti.
Foreldrar Bergþóru
voru Þorbergur Guð-
mundsson frá Valda-
stöðum í Kjós, skip-
stjóri og útgerðarmaður
í Garðimun (gjarnan
nefhdur Bergur á Jaðri)
og kona hans, Ingibjörg
Katrín Guðmundsdóttir
frá Hvammsvík í Kjós.
Foreldrar Þorbergs voru Guðmund-
ur Sveinbjörnsson frá Bygggarði á
Seltjarnarnesi, bóndi á Valdastöð-
um í Kjós, og kona hans, Katrín
Jakobsdóttir frá Valdastöðum i
Kjós. Foreldrar Ingibjargar Katrín-
ar voru Guðmundur Guðmundsson
frá Hvítanesi í Kjós og kona hans,
Jakobína Jakobsdóttir frá Valda-
stöðum í Kjós.
Afmælisbamið tekur á móti gest-
um í Glaðheimum, sal Hestamanna-
félagsins Gusts að Álalind 3 í Kópa-
vogi, fostudaginn 4.12. eftir kl. 20.00.
Guðmundur Jóelsson.
tilkynningar
Jólahátíð í Laugardalnum
Sunnudaginn 29. nóv. hefst jóladag-
skrá Fjölskyldu- og húsdýragarðsins
með pompi og prakt. Hér gefur að líta
dagskrána yfir daginn: Kl. 13, ungir fé-
lagar úr Harmónikufélagi Reykjavíkur
spila. Kl. 14, jólasaga, Brúðuleikhúsið
Tíu fingur. Kl. 15, Sigríður Beinteins-
dóttir kveikir á jólaljósum og
Kammerkór Langholtskirkju syngur.
Kl. 15.30 syngur Sigga Beinteins nokk-
ur lög af nýju plötunni Flikk Flakk.
Ferðafálag íslands
Sunnudagsganga 29. nóv. kl. 14. Að-
ventuganga frá Mörkinni 6, um 2 klst.
létt ganga í Elliðaárdal, frítt. Kvöld-
vaka um Færeyingasögu verður mið-
vikudagskvöldið 9. des. Munið ára-
mótaferðina í Þórsmörk 30/12-2/1.
Jólafundur verður haldinn fóstud. 4.
des. kl. 20 i Kirkjubæ. Mætið með
hatta, jólapakkaskipti, happdrætti og
fleira. Konur láti vita í sima 553 7839
hjá Svanhildi eða 554 0409 hjá Ester
fýrh mvd. 2. des.
Gjábakki
Eins og undanfarin ár verður
„laufabrauðsdagur" í Gjábakka, sem
er félagsheimili eldri borgara í Kópa-
vogi í Fannborg 8. Byrjað verður kl.
13.30 og eru þeir sem eiga skurðbretti
og áhöld til laufabrauðskurðar beðnir
að taka slíkt með sér. Eldri borgarar í
Kópavogi eru hvattir til að mæta með
gesti og eru litlir fmgur sérstaklega
boðnir velkomnir í fylgd reyndra
handa. Heitt á könnunni og heimabak-
að meðlæti selt á vægu verði. Jóla-
handverksmarkaðurinn í Gjábakka
verður svo 1. des.
Félag eldrí borgara í Reykjavík
og nagrenni
Dagskrá Félags eldri borgara í Ás-
garði: Félagsvist kl. 13.30 í dag, allir
velkomnir. Dansað kl. 20 í kvöld.
Mánudag, bridge kl. 13. Skák alla
þriðjudaga kl. 13. Fyrirhuguð ferð 11.
des., jólahlaðborð í Básnum i Ölfusi ef
næg þátttaka fæst.
Kvenfélag Kópavogs
Jólabasarinn verður sunnudaginn
29. nóv. kl. 14 í Hamraborg 10.
Bækur og bíó
Fjölskyldudagur í Háskólabíói á
morgun, sunnudaginn 29. nóv., kl.
13-17. Þá verður boðið í bíó og bóka-
kynningu i Háskólabíói. Sýningar á
vinsælum bamamyndum hefjast á
hálftímafresti milli kl. 13 og 17 og lesið
verður úr nýjum bamabókum fyrir
hverja sýningu. Á göngum og í and-
dyri verður ýmislegt um að vera.
Glæsileg bókaverðlaun verða í lauf-
léttri getraun. Allar útgáfubækur Máls
og menningar og Forlagsins verða þar
til sýnis fyrir böm og fullorðna.
Basar
Kvenfélag Háteigskirkju verður með
basar sunnudaginn 29. nóv í safnaðar-
heimilinu eftir messu.
Jólabasar KFUK
Hinn árlegi jólabasar KFUK verður
haldinn í félagshúsi KFUK og KFUM á
Holtavegi 28 laugardaginn 28. nóv. kl.
14. Seldir verða fallegir munir, handa-
vinna og kökur. Á basamum verður
jafnframt selt kaffi og vöfflur.
Kvikmyndir fyrir böm
Sunnudaginn 29. nóv. kl. 14. Jóla-
myndin Reisen til julestjemen er sýnd
í Norræna húsinu. Þetta er norsk fjöl-
skyldumynd um prinsessuna Gullin-
toppu sem grimmur greifi lokkar út í
skóg á jólanótt. Norskt tal er í mynd-
inni og sýningartíminn er 92 min.
Breiðfirðingafélagid
Félagsvist verður spiluð sunnudag-
inn 29. nóv. kl. 14 í Breiðftrðingabúð,
Faxafeni 14. Kaffiveitingar. Allir vel-
komnir.
Kvenfélag Kópavogs
Kvenfélag Kópavogs heldur basar
sunnudaginn 29. nóv. kl. 14 í húsnæði
félagsins, Hamraborg 10, 2. hæð til
hægri. Tekið verður á móti basarmun-
um og kökum frá kl. 17-19 á laugardag
og fyrir hádegi á sunnudag.
andlát
Páll Pálsson, Þormóðsgötu 21,
Siglufiröi, lést í Sjúkrahúsi Siglu-
fjarðar að morgni 26. nóvember.
Magnús Guðlaugsson, Hjalla-
brekku 3, Ólafsfirði, nú til heimilis
að Lautarsmára 3, Kópavogi, lést í
Sjúkrahúsi Reykjavikur 27. nóvem-
ber.
Einar Ernst Einarsson frá Siglu-
firði lést á hjartadeild Sjúkrahúss
Reykjavíkur 8. nóvember. Útförin
hefur farið fram í kyrrþey.
Rós Níelsdóttir, Dalbakka 9,
Seyðisfirði, lést 26. nóvember á
Norðfjarðarspítala.
jarðarfarír
Útfor Magnúsar Ólafssonar frá
Vestur-Botni fer fram frá Sauð-
lauksdalskirkju á morgun, laugar-
dag, kl. 14.
Ólöf Þórarinsdóttir, Blómstur-
völlum 4, Grindavík, verður jarð-
sungin frá Grindavíkurkirkju laug-
ardaginn 28. nóvember kl. 13.30.
Rannveig Valdimarsdóttir,
Hlíf, ísafirði, verður jarðsungin frá
ísafjarðarkirkju laugardaginn 28.
nóvember kl. 14.00.
Ragnheiður Pálína Jónsdóttir,
sem lést 21. nóvember, verður jarð-
sett að Barði í Fljótum laugardag-
inn 28. nóvember. Minningarathöfn
fer fram í Siglufjarðarkirkju kl. 11
sama dag.
Útfór Ingólfs Guðjónssonar frá
Oddsstöðum fer fram frá Landa-
kirkju í Vestmannaeyjum laugar-
daginn 28. nóvember kl. 14.00.
Þórarinn Vigfússon, Marar-
braut 11, Húsavík, lést 19. nóvem-
ber. Útfórin fer fram frá Húsavíkur-
kirkju laugardaginn 28. nóvember
kl. 14.00.