Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.1998, Qupperneq 68
FRÉTTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá f sfma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 1998
Tryggingamið-
stöðin og Trygg-
ing sameinast
Samkomulag hefur náðst um að
Tryggingamiðstöðin hf. og Trygging
Jjf. sameinist.
Stjómir félaganna tveggja stefna að
hlutabréfaskiptum þannig að hluthaf-
ar í Tryggingu hf. fái hlutabréf í
Tryggingamiðstöðinni hf. fyrir hluti
sína og hefla með því samvinnu um
rekstur félaganna.
í fréttatilkynningu segir að tilgang-
urinn með þessu samkomulagi sé að
að auka hagkvæmni í rekstri, auka
áhættudreifingu með stærri og fjöl-
breyttari vátryggingastofni og efla
samkeppnisaðstöðu sameinaðs félags.
Samkomulagið verður lagt fyrir hlut-
hafafundi á næstunni. Samanlagðar
iðngjaldatekjur félaganna á síðasta
ári voru 3,6 milljarðar króna. Saman-
lagt bókfært fé félaganna í árslok 1997-
var 1,7 milljaðar króna. -RR
---------------------------
Forsetaheimsóknin:
Konur áttu ekki
heimangengt
Glöggskyggnt fólk hefur tekið eftir
að í opinberri heimsókn forseta ís-
lands til Svíþjóðar er hlutur kvenna
frá íslandi nánast
enginn. En það á sér
skýringar. „Af sér-
stökum ástæðum gat
ekki farið utan
'^ineð manni mínum
að þessu sinni, ég er
í vinnu og á ekki
alltaf heimangengt.
Og þar sem ég gat
ekki farið fór kona
ráðuneytisstjóra ekki heldur," sagði
Sigurjóna Sigurðardóttir, eiginkona
Halldórs Ásgrimssonar, í gærkvöld
þegar hún var spurð um málið.
Ætlunin var að konurnar yrðu með
í fór eins og í Italíuferðinni og farmið-
ar munu hafa verið tilbúnir en af því
varð ekki eins og fyrr greinir, auk
þess sem hvorug dætra Ólafs Ragnars,
Tinna eða Dalla gat farið. -JBP
Sigurjóna Sig-
uröardóttir.
, íj
'-•fkt
«0
‘lCálindur
ánægjunnar
SYLVANIA
John Fowler, 25 ára íri, segist vera meö fimm Breta „í vinnu“ hér á landi:
Fylgdarmannaþjónusta
sem býður m.a. kynlíf
- getur reynt á hjá þeim fylgdarmönnum sem eru í sambúö, segir John Fowler
„Þessi fylgdarmannafyrirtæki hafa
verið starfrækt í Bretlandi í 5 ár og
einnig í Noregi. Ég var beðinn um að
koma þessari þjónustu af stað hér.
Það eru funm Bretar með mér í
þessu, allir búsettir hér á landi. Við
erum þegar búnir að fá nokkra við-
skiptavini en þeir eru ekki margir
enn sem komið er. Það eru aðeins
tvær vikur siðan ég kom til landsins.
Við munum auglýsa þetta betur.
Fram að þessu höfum við valið kven-
mannsnöfn af handahófi úr síma-
skránni og sent viðkomandi bréf
heim,“ sagði John Fowler, 25 ára íri,
í samtali við DV en hann hefúr verið
búsettur lengi í Noregi en einnig í
Bretlandi.
Allmargar konur á höfuðborgar-
svæðinu hafa þegar fengið send heim
bréf frá Time Escort Agency sem
John segist vera talsmaður fyrir hér á
landi. Þar segir m.a.:
„Time Escort Agency er fyrirtæki
þar sem konur á öllum aldri geta leigt
sér karlmann til ýmiss konar þjón-
ustu. í dag eiga margar konur við
kynlífsvandamál að stríða með
kærustum sínum eða eiginmönnum.
Sumar konur langar líka að prófa eitt-
hvað nýtt og aðrar eru aðeins að leita
að ævintýrum . . . einnig eiga konur
erfitt með að finna sér félaga eða vilja
fá einhvem út með sér.“
í bréfinu er greint frá því að „sex“
kosti 5.000 króntu- á klukkustund.
Borðfélagi í mat kostar 3.000 krónur á
tímann og sama verð er tekið fyrir ef
farið er í bíó, á diskótek og svo fram-
vegis. Þegar John er spurður hvort
bresku karlmennimir séu að selja ís-
lenskum konum líkama sinn segir
hann:
„Já, en það fer alveg eftir því
hvort karlmanninum finnst kröfur
konunnar sanngjarnar. Við leggjum
ríka áherslu á trúnað við viðskipta-
vinina.
Aðspurður um hagi þeirra karl-
manna sem í þessu standa sagði
John:
Við höfum þegar fengiö nokkra viöskiptavini, segir John Fowler.
„Sumir eru hér með konuna sína
og böm. Þetta getur því verið erfitt
fyrir sambönd þeirra. En þetta er auð-
vitað undir þeim komið. Vissulega
getur það reynt á þegar karlmaðurinn
kemur seint heim á nóttunni eða und-
ir morgun."
John segir að Bretamir séu flestir í
annarri vinnu. Fylgdarþjónustan sé
aðeins aukavinna sem oftast fari fram
á kvöldin og á nóttunni.
í bréfi fylgdarmannaþjónustunnar,
sem auglýsir GSM-númer Johns, er
greint frá þvi að „fylgdarmanninum"
sé heimilt að yfirgefa viðskiptavininn
eftir 30 mínútur af „kynningartíma"
án þess að þurfa að gefa nokkrar skýr-
ingar á því.
„Aðalatriðið er að karlmanninum
finnist kröfur konunnar sanngjarnar
og að hann sé sáttur við viðskiptin,"
sagði John. Tekið er fram að öll þjón-
usta karlanna skuli staðgreidd.
-Ótt
Alusuisse og VIAG:
Styrkir stöðu
okkar
„Ég á ekki von að sameiningin
hafi i fór með sér stórfelldar breyt-
ingar á starfsemi ÍSAL, að minnsta
kosti ekki í bráð en kannski i lengd,
og eftir sameininguna verði um að
ræða sterkara fyrirtæki en þau
vom hvort um sig. Að því leyti
verði staða okkar sterkari í þeim
harða heimi sem við berjumst í,“
sagði Einar Guðmundsson, aðstoð-
arforstjóri ÍSAL, um sameiningu
Alusuisse, aðaleiganda ÍSAL og
þýska fjárfestingarfélagsins VIAG.
VLAG er að sögn Einars eignar-
haldsfélag sem hefur verið ráðandi
í orkuframleiðslu í S-Þýskalandi,
auk þess að eiga hlut í síma- og fjar-
skiptafyrirtækjum af mörgu tagi og
álframleiðslufyrirtækjum. -SÁ
Veðriö á morgun:
Él á Norðausturlandi
Á morgun, sunnudag, verður suðaustangola eða kaldi og víðast úr-
komulaust um vestanvert landið en norðan- og norðvestankaldi eða stinn-
ingskaldi austanlands og dálítil él á Norðausturlandi.
Veðriö á mánudag:
Súld eða rigning suðvestanlands
Á mánudag verður suðvestangola eða kcddi um sunnanvert landið en
norðaustémgola eða kaldi norðanlands. Dálítil súld eða rigning verður
suðvestanlands en él norðvestanlands, þurrt að mestu og víða léttskýjað
áustan til á landinu.
Veöriö í dag er á bls. 73.