Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1998, Side 9
FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 1998
9
Utlönd
Mannréttindayfirlýsingin 50 ára:
Félagsmál í
brennidepli
Félagsleg og efnahagsleg réttindi
munu gegna stærra hlutverki en áð-
ur í framtíðarstarfmu við að tryggja
mannréttindi. Þetta er mat Lotte
Leicht, eins af leiðtogum mannrétt-
indasamtakanna Human Rights
Watch, og Brigitte Ernst hjá Am-
nesty International, sem danska blað-
ið Politiken ræddi við í tilefni 50 ára
afmælis Mannréttindayfirlýsingar
Sameinuðu þjóðanna.
Lotte Leicht bendir á að beina
þurfi enn frekar sjónum að félagsleg-
um og efnahagslegum réttindum
vegna aukins óróa í tengslum við
efnahagskreppuna. „Við höfðum séð
aukna tilhneigingu til að finna söku-
dólga efnahagskreppunnar meðal sér-
trúarhópa, minnihlutahópa og inn-
flytjenda," segir Lotte Leicht. Íþví
samhengi muni einkafyrirtæki gegna
stærra hlutverki í starfinu við að
tryggja mannréttindi. Það eigi eink-
um við fjölþjóðafyrirtæki með aðal-
stöðvar í lýðræðisríkjum.
„Fjölþjóðafyrirtækin verða að taka
þátt. í Amnesty International höfum
við lagt drög að starfseminni fyrir
þau,“ segir Brigitte Emst.
Hvor tveggja mannréttindasamtök-
in óska eftir virkari stefnu Evrópu-
sambandsins, ESB, í mannréttinda-
málum. Lotte Leicht gagnrýnir ESB-
ríkin fyrir að horfast ekki í augu við
til dæmis aukna andstöðu við trú
minnihlutahópa.
Svissneski innanríkisráðherrann Ruth Dreifuss brosti breitt í gær þegar hún
hafði verið kjörin forseti Sviss, fyrst kvenna og fyrst gyðinga.
www.visir.is
FYRSTUR MEÐ FRÉTTIRNAR
Vönduð
og jóla
í miklu úrvali.
Sérmerkt fyrir þig
Nýjar víddir
í hönnun og útgáfu
Snorrabraul 54 ©561 4300 j J561 4302
TRYGCINCAMIÐSTÖÐIN HF
HLUTHAFAFUNDUR
Boðað er til hluthafafundar í Tryggingamiðstöðinni
hf. og verður hann haldinn í Súlnasal Hótel Sögu í
Reykjavík, fimmtudaginn 17. desember 1998 og hefst
kl. 16.00.
Dagskrá:
Tillaga stjórnar um hlutafjárhækkun.
Lögð verður fram tillaga um að hækka hlutafé félagsins
um kr. 50.699.042, þannig að hlutafé hækki úr kr.
182.400.000 í allt að kr. 233.099.042.
Hlutafjárhækkunina skal alla nýta til skipta á
útistandandi hlutafé í Tryggingu hf. að nafnverði kr.
203.599.696, samkvæmt samkomulagi stjórna
Tryggingamiðstöðvarinnar hf. og Tryggingar hf. sem
gert var í nóvember 1998. Vikið er frá forkaupsrétti
hluthafa til áskriftar að hinum nýju hlutum og hafa
eigendur hlutafjár í Tryggingu hf. einir rétt til að skrifa
sig fyrir aukningarhlutunum og greiða þá með
hlutabréfum í Tryggingu hf.
Tillaga stjórnar ásamt greinargerð mun hggja frammi á
skrifstofu félagsins Aðalstræti, 6-8, Reykjavík, hluthöfum
til sýnis viku fyrir hluthafafundinn.
Stjórn Tryggingamiðstöðvarinnar hf.
Færeyjar:
Hnakkrifist um
sjálfstæðismál
Færeyskum lögþingsmönnum
hitnaði svo í hamsi við umræður
um sjálfstæðismálin á þriðjudag
að Marjus Dam, þingmaður Sam-
bandsflokksins, reif frumvarp
landstjórnarinnar þar um í tætlur
í ræðustól. Aðeins 18 af 32 lög-
þingsmönnum eru fylgjandi frum-
varpi stjómarinnar um að setja á
laggimar sérstaka nefnd til að
semja nýja stjómarskrá.
„Við erum í ríkjasambandi með
Danmörku og þar er fyrirtaks
stjórnarskrá. Tillagan er því
ónauðsynleg," segir Alfred Olsen,
þingmaður Sambandsflokksins, í
viðtali við danska blaðið Poli-
tiken i dag. Sambandsflokkurinn,
eins og nafniö gefur til kynna, er
fylgjandi áframhaldandi sam-
bandi við Danmörku.
Afstaða jafnaðarmanna veldur
færeysku landstjórninni einnig
nokkrum vanda. Jafnaðarmenn
sögðu pass í haust, rétt eins og
sambandsmenn, þegar stjórnin
bað um umboð til að undirbúa
viðræðurnar við dönsk stjórn-
völd. Og þeir eru við sama hey-
garðshomið nú.
„Það er engin ástæða til að
byrja að undirbúa nýja stjórnar-
skrá fyrr en við höfum efhi á sjálf-
stæðinu," segir Joannes Eides-
gaard, formaður Jafnaðarmanna-
flokksins. Hann bendir á að innan
landstjórnarinnar séu deildar
meiningar um horfumar i efna-
hagsmálum viö sjálfstæði.
Átt þú von á
stum?
115.510
Vandaðir Amerískir svefnsófar með innbyggðri
springdýnu. Frábær lausn þegar sameina þarf
fallegan sófa og gott rúm. Við bjóðum margar
gerðir, mikið úrval áklæða og lita.
,-n S:/t‘.^^^
79.490
91.410
Full
□ueen
107.110
QueenSize.