Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1998, Qupperneq 17

Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1998, Qupperneq 17
FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 1998 17 Sverrir Guðjónsson söngvari: Grænmeti úr stórmörkuðum Hjónin Sverrir Guðjónsson söngvari og Elín Edda Ámadóttir leikmynda- höfimdur búa í Grjótaþoipi ásamt son- um sinum. Þeir eru ívar Öm leiklistar- nemi og Daði sem stundar nám við Tónlistarskólann í Reykjavík. Græn- metisréttir em aðaluppistaðan hjá fjöl- skyldunni þótt synimir hafi viljað hefðbundinn íslenskan mat á árum áður. Þá þurfti að vera tvíréttað. „Þetta hefur breyst á undanfómum árum en þeir eru famir að meta græn- metisréttina og það kryddbragð sem er af réttunum. Þeim finnst þessi matur ekki lengur skrítinn,“ segir Sverrir sem ólst upp við hefðbundinn mat eins og synimir vora svo hrifnir af. „Ég var um tvítugt þegar ég fór að borða léttari mat. Ástæðan var að ég fór að lesa mér til um mataræði og hugleiðslu og þar kom m.a. fram að kjöt er þungmelt. Það hefur þau áhrif að blóðið tekur við ýmsum óæskileg- mn efnum.“ Á timabili borðuðu hjónin eingöngu grænmetisrétti en nú borða þau fisk af og til. Hann er þó ekki á borðum í Grjótaþorpinu í hverri viku. „Mér fmnst ágætt að fá góðan fisk öðra hveiju." Sverrir segir að kosturinn við að vera grænmetisneytandi sé meðal ann- ars hvað hægt er að búa til fjölbreytta rétti auk þess sem eldamennskan tek- Húsráð Kertavax hreinsað af viði Mýkið vaxið með hárblás- ara. Fjarlægið vaxið með bréfþurrku og þvoið síðan með hlöndu af ediki og vatni. Ráð fyrir tágahús- gögn Til að koma í veg fyrir að tága- húsgögn gulni má þvo þau upp úr volgu saltvatni. Til að koma í veg fyrir ofþomun skal bera sítrónuolíu á þau af og tO. Látið tágahúsgögn aldrei fijósa. Við það fer að braka og bresta I þeim. Tágahúsgögn þola illa þurrt loft. Notið því rakatæki þar sem þau era. Blóðblettir á áklæði Hyljið blettinn strax með deigi úr komsterkju og köldu vatni. N.uddið létt og setjið áklæðið út í sólina til þerris. Sólin dregur blóðið inn í komsterkjuna. Burstið af. Ef blett- urinn fer ekki alveg skal reyna aft- ur. Skjögrandi stólfætur V . - Festið lausa stólfætur með fl því að vefja smábút af nælon- Yq ^ sokk eða tvinna um ' ý lausa endann áður W 1 en límið er sett á 0^1 | og endanum | | stungið á sinn f Timburstrekkjari gerir sama gagn. Þetta má reyna á skakk- ar myndir Setjið límband um miðjan rammavírhm. Vírinn er ólíklegri til að renna til á naglanum. Setjið málaralímband aftan á öU hornin og þrýstið myndinni að veggnum. Vefjið nokkra tannstöngla með málaralímþandi (límhliðina út) og setjið neðst aftan á rammann. Úr Húsráðahandbókinni. ur stuttan tíma. „Úrvalið af grænmeti í verslunum hér á landi hefur aukist mikið undanfarin ár og hér er hægt að fá flestar grænmetistegundir. Það vora margir á móti grænmetisréttum hér áður fyrr þegar úrvalið var minna og hefur þeim eflaust fundist þetta eins og fólk færi út í haga tU að bíta gras.“ Sverrir segist halda að margir átti sig ekki á því hvemig matur er saman- settur og hvemig hann fer út í líkams- kerfið. „Flestir verða tU dæmis syfjað- ir eftir góða máltíð. Ástæðan getur ver- ið að kolvetnisrík og eggjahviturUí fæða fer ekki vel saman þannig að það fer mikU orka í meltinguna." Sverrir og Elín Edda versla yfirleitt í matinn í stórmörkuðum þar sem Sverrir segir að hægt sé að fá fjölbreytt grænmeti á nokkuð hagstæðu verði. „Við verslum fyrir fáa daga í einu og höfum vanist því. Við höfum þó í huga að vera útsjónarsöm.“ Hjónin elda mikið á vokpönnu og era þá oft með blandað grænmeti sem þau steikja. Rótargrænmeti er mikið notað. Þau nota mikið basmati hrís- grjón sem Sverrir segir að fari vel í maga. „Það er sagt að þau tengi ágæt- lega saman kolvetnisríka og eggja- hvíturíka fæðu.“ Fyrir nokkrum árum notuðu hjónin oft pasta í eldamennsk- una en era hætt því. „Okkur finnst það hreinlega þungmelt." Þegar Sverrir bjó í foreldrahúsum fyrir tvítugt borðaði hann oftast lambakjöt um jólin. Sú hefð datt niður þegar hann einbeitti sér að grænmetis- réttunum. Hann fór út í búð í gær og kannaði hvað kostaði í rétt sem hann kallar „Bakað grænmeti í ofni a la Provence“ en sá réttur var í miklu uppáhaldi hjá hjónunum þegar þau vora i Frakklandi í sumar. Uppistaðan í réttinum er rótargræn- meti og eggaldin. Síðan bætast við basmati hrísgijón sem era steikt í vok- pönnunni, hvítlauksbrauð og sósa úr niðursoðnum tómötum og sýrðum ijóma. í forrétt er avocado með sýrð- um rjóma og svörtum kavíar og í eftir- rétt era púrtvínslegnar perur í kanil. „Þetta er herramannsmatur,“ segir söngvarinn sem drekkur yfirleitt vatn með þessum rétti. Hann er um þessar mundir að ganga frá útgáfu á geisladiski, Epitaph/Graf- skrift, en við taka upptökur á miðald- arsöngvum Voces Thules en taka á upp Þorlákstíðir en hópurinn mun HUNTS TÖMATSÓSA/OÓS 78,00 C HUNT’S TÓMATPÚRRA 62,00 C HUNTS TÓMATSÓSA/DðS 78,00 C RJÓMI 1/4 L 142,00 C SÍRÐUR RJÓMI 18X 129,00 C EPLI RAUÐ 0,295kg A 98,00/kg 29,00 C HVITLAUKUR 0,0S0kg A 769,00/kg 69,00 C TÓHATAR 0,670kg A 189,00/kg 127,00 C AVOCADO 0,925kg A 198,00/kg 183,00 C ZUCHINI 0,160kg A 339,00/kg 54,00 C EGGALDIN 0,295kg A 399,00/kg 118,00 C PERUR 1,215kg A 165,00/kg 200,00 C NVJAR ÍSL.GULRÖFUR 0,875kg A 189,00/kg 185,00 C SATAR KARTÖFLUR 0,565kg A 19B,00/kg 112,00 C RAUDLAUKUR USA 0,380kg A 132,00/kg 50,00 C BABY GULRSTUR 298,00 C ** LEIBRÉTT BABY GULRÍTUR -298,00 C HANGÓ 1 STK. 98,00 C « LEIDRÉTT HANGÓ 1 STK. -98,00 C CHILLI FERSKUR 0,035kg A 998,00/kg 35,00 C 10-11 GULRATUR 258,00 C 10-11 BURÐAPOKAR 10,00 C 12,505 STK. SAHTALS 1.899,00 Peningar 2.000,00 Sverrir fór út í búð og keypti hráefni í „Bakað grænmeti í ofni a la Provance". halda miðnæturtónleika í Hallgríms- kirkju 30. desember. Þótt Þorlákur helgi sé ofarlega í huga söngvarans ætlar hann ekki að borða kæsta skötu á Þorláksmessu. -SJ ’ Forréttur f. 4: 4 avocado með sýrðum ijóma. Svart- ur kavíar settur á toppinn. Bakað grænmeti í ofni a la Provance f. 4 2 eggaldin 1 stór rófa 8 gulrætur 2 rauðlaukar 2 kúrbítar 3 sætar kartöflur krydd-blandað blaðkrydd, svartur mulinn pipar og saxaður hvítlaukur Sósa: 2 dósir af niðursoðnum tómötum 2-3 msk tómatkraftur 1 box sýrður rjómi Misjafnt verð á normannsþin „Jólatréð í stofu stendur, stjömumar glampar á,“ segir í gömlum góðum texta sem við þekkjum öll. Sumir vilja ekta jólatré en aðrir kjósa gervijólatré sem breytast ekki frá ári til árs. Óhætt er að fullyrða að verð á jólatrjám breytist frá ári til árs hvort sem þau eru ekta eða gervi. Nú eru einungis tvær vikur til jóla og margir famir að huga að jólahjáakaupum. Hér er verð á norðmannsþini - ekta - í stærðinni 151-175 sm í nokkram verslunum: Garðshom við Fossvogskirkjugarð 3.500 krónur. íþróttafélagið Grótta, Eiðistorgi 3.800 krónur. Knattspymufélag Reykjavíkur, KR-heimilinu við Frostaskjól 3.750 krónur. Jólatré ffá ÍR í göngugötunni Mjódd 3.700 krónur Blómaval 3.990 krónur. „Við verslum fyrir fáa daga í einu og höfum vanist því. Við höfum þó í huga að vera útsjónarsöm," segir Sverrir Guðjónsson söngvari. DV-mynd Pjetur Allt rótargrænmetið er forsoðið. Látið síðan í eldfast mót, sósunni er hellt yfir og allt sett inn í ofn í um 40 min. við 200 gráður. Basmati hrísgijón 2 bollar hrísgjjón basmati 1 rauðlaukur 1 hvitlaukur 2 msk. ólífuolía 1 rauður chili (fræin flarlægð) 8-10 tómatar maukaðir 1 msk. tómatkraftur ferskur kóríander Látið hrisgijónin brúnast í vok pönnu. Vatni hellt yfir þ.a. allt sé í kafi. Látið sjóða við vægan hita í 10-15 mínútur (fylgist vel með ef þarf að bæta við vatni). Berið frarn með heitu hvítlauksbrauði. Eftirréttur: Púrtvínslegnar perur 4 allsgáðar (þroskaðar) perur rifinn kanill og púrtvín sett í ofh í 20 mínútur við 200 gráður. Barnakuldaskór loðfóðraðir st. 30-35 Verð 3.990 smáskór sérverslun m/bamaskó í bláu húsi v/Fákafen. Sími 568 3919 Stjórn Olíufélagsins hf. boðar til hluthafafundar fimmtudaginn 17. desember, kl. 16.00 síðdegis, í húsnæði Olíufélagsins hf., Suðurlandsbraut 18, 5. hæð, Reykjavík. Á dagskrá fundarins er tillaga stjórnar félagsins um samruna Olíusamlags Keflavíkur og nágrennis ehf. við Olíufélagið hf., skv. fyrirliggjandi sammnaáætlun félaganna. Verði tillagan samþykkt, þá felst jafnframt í henni breyting á samþykktum Olíufélagsins hf. um hækkun á hlutafé, en hækkuninni verður varið til að skipta á hlutum hluthafa í yfirtekna félaginu á hlutabréfum í Olíufélaginu hf. Hluthöfum er bent á að skjöl viðkomandi I fyrirhuguðum samruna, skv. 5. mgr. 124. gr. ? hlutafélagalaga, hafa legið frammi | á skrifstofum félagsins frá 1. nóvember 1998. Hluthafar geta fengið framangreind gögn send skv. beiðni fyrir fundinn, eða nálgast þau á skiifstofu félagsins, en rétt er að taka fram að gögnin liggja einnig frammi til skoðunar á sjálfum hluthafafundinum. Stjórn Olíufélagsins hf. Olíufélagiðhf

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.