Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1998, Blaðsíða 23
FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 1998
23
DV
Fréttir
Formaður stjórnar KEA um synjun borgarinnar:
Leitum fýrir okk-
ur annars staðar
DV, Akureyri:
„Vissulega eru þessi nið-
urstaða vonbrigði fyrir okk-
ur. Við töldum okkur taka
Reykjavíkurborg á orðinu,
þeir nánast auglýstu eftir
einhveuu sem myndi lífga
upp á miðbæinn en ég skil
að vissu leyti þau sjónar-
mið að þetta samræmist
ekki skipulagi hafnarinnar
eins og það er,“ segir Jó-
hannes Geir Sigurgeirsson,
formaður stjórnar KEA, um
þá ákvörðun hafnarstjórnar Reykja-
víkur að heimila KEA ekki verslun
með matvöru í fiskverkunarhúsi
Jóns Ásbjörnssonar við Reykjavíkur-
höfh sem KEA hafði keypt til að opna
þar Nettó-verslun.
Jóhannes Geir segist hins vegar
fullviss um að borgin haldi ekki
neinni athafnastarfsemi á gamla
hafnarsvæðinu án þess að breyta
þeim skilmálum sem þar gilda og
hleypa nýju lífi þar inn. Aðspurður
hvort hann teldi byggðapólitík hafa
ráðið einhverju um afstöðu Hafnar-
Jóhannes Geir Sig-
urgeirsson: „Vissu-
lega vonbrigði".
stjórnar sagðist hann
ekki telja svo vera.
„Þeir hafa staðið á
bremsunum gagnvart
fleirum en okkur, t.d. að-
ilum sem vildu koma inn
á svæðið niðri á Granda,
þannig að ef þeir hefðu
heimilað okkur að opna
þama matvöruverslun
hefðu þeir um leið verið
að opna svæðið meira al-
mennt séð. Ég held hins-
vegar að borgin standi
frammi fyrir því að gera
einhverjar svona breytingar fyrr en
síðar“.
- Hvaða áhrif hefur þetta á áform
ykkar um að færa út kvíarnir í
Reykjavík?
„Við bara leitum fyrir okkur ann-
ars staðar og það getur vel verið að
sú leit verði að fara fram í ein-
hverju nágrannasveitarfélaginu.
Við höfum hins vegar verið að horfa
á þetta mál við höfnina í Reykjavík
þannig að það eru engar fregnir af
neinu öðru núna,“ sagði Jóhannes
Geir. -gk
Sarafa loðnuskip eru
eftir á miðunum
- mestu hefur verið landað á Siglufirði
DV, Akureyri:
Langflest nótaskipin sem hafa
loðnukvóta hafa gefist upp á þeim
veiðum og eru áhafnir þeirra ýmist
komnar í land eða reynt er við aðr-
ar veiðar, s.s. sildveiðar. Loðnuver-
tiðin hefur valdið miklum vonbrigð-
um það sem af er, og menn farnir að
hallast að því að ekki takist að
veiða úthlutaðan kvóta.
Á sumar- og haustvertíð hafa að-
eins veiðst um 280 þúsund tonn sem
er miklu minni afli en á sama tíma
undanfarin ár þegar vertíðir hafa
gengið vel. Upphafskvóti sem kem-
ur í hlut íslensku skipanna er 688
þúsund tonn þannig að yfir 400 þús-
und tonn eru enn óveidd, og er þá
ekki miðað við að gefinn verði út
viðbótarkvóti eins og venjan hefur
verið undanfarin ár.
Fiskifræðingar Hafrannsókna-
stofnunar eru ekki tilbúnir að tjá
sig um ástandið eða hvort eitthvað
hafi breyst frá því þeir lögðu fram
tillögur sinar um afla á vertíðinni.
Bent er á að tíðarfar hafi verið mjög
óhagstætt til veiðanna og þá hafi
loðnan tilhneigingu til að dreifa sér
mikið á þessum árstíma. Loðnusjó-
menn segja hins vegar að þótt
sæmilegt veður sé finni þeir lítið af
loðnu.
Það sem af er vertíðinni hafa alls
borist 393 þúsund tonn af loðnu á
land og þar af hafa erlend skip kom-
ið með 112 þúsund tonn sem er hátt
hlutfall. Mestu hefur verið landað á
Siglufirði eða 49.700 tonnum, á
Seyðisfirði 45.300 tonnum, á Þórs-
höfn 38.600 tonnum, í Neskaupsstað
38 þúsund tonnum, og Eskifjörður
er í 5. sæti með 332.800 tonn. -gk
Frumkvæði og sjálfstæði í verki og hugsun
Blaðamaður á
Viðskiptablaðið óskar eftir blaðamanni á ritstjórn.
Við leitum eftir dugmiklum einstaklingi, sem býr yfir frum-
kvæði og sjálfstæði í verki og hugsun. Viðkomandi verður að
vera jákvæður og eiga auðvelt með að vinna með öðru fólki.
Reynsla í blaðamennsku er ekki nauðsynleg en; þekking á ís-
lensku atvinnulífi, góð innsýn í hagfræði, skilningur á árs-
reikningum fyrirtækja, og góð tök á íslensku máli í ræðu og
riti eru skilyrði.
Blaðamenn Viðskiptablaðsins vinna við miðlun upplýsinga
um íslensk og erlend viðskipta- og efnahagsmál. Miðlun
þessara upplýsinga fer fram á síðum Viðskiptablaðsins, á Við-
skiptavef Viðskiptablaðsins á Visir.is og í útvarpi í Viðskipta-
vakt Viðskiptablaðsins á Bylgjunni FM 98,9.
Umsóknum skal skilað á ritstjórn Viðskiptablaðsins, Brautar-
holti 1,105 Reykjavík, eigi síðar en mánudaginn 21. desem-
ber, ásamt helstu upplýsingum um menntun og fyrri störf.
Frekari upplýsingar veitir Örn Valdimarsson, framkvæmda-
stjóri í síma 511 66 22.
REYtlAVlKURSVÆÐIB: Hagkaup. Smáratorgi. Heimskringlan. Kringlunni.Tónborg, Kópavogi. VESTURLAND: Hljómsýn. Akranesi. Kaupfélag Borgfirðinga, Borgamesi. Blómsturvellir. Hellissandi. Gnlni Hallgrimsson. Cnrndarfirði.VESTFIRÐIR: Rafbúð Jónasar
Þórs. Patreksflrði. Póllinn. Isafirði. NORÐURLAND: D Steingrímsljarðar. Hólmavik. tf V-Húnvetninga. Hvammstanga. Lf Húnvetninga, Blönduósi. Skagfirðingabúð. Sauöárkréki. KEA, Dalvík. Ljósgjafinn. Akureyri. KF Þingeyinga. Húsavík. llrð. Raufarhöfn.
AIISTURLAND: Kf Héraðsbúa. Egilsstöðum. Verslunin Vík. Neskaupsstað. Kauptún, Vopnafirði. KF Vopnlirðinga. Vopnalirði. KF Héraösbúa, Seyðisfiröi. Tnrnbræður. Seyðisfirði.KF Fáskrúðsfjarðar. Eáskrúðslirði. KASK. Djúpavogi. KASK Höfn Hornafirði.
SUDIIHLAND: Ralmagnsverkstæði KH. Hvolsvelli. Moslell, Hellu. Heimstækni. Selfossi. Ú, Sellossi. Rás. Þorlákshöln. Brimnes. Vestmannaeyjum. REYKJANES: Rafborg, Grindavik. Raflagnavinnust. Sig. Ingvarssonar. Garði. flafmætti. Hafnarfirði.
írf q&é kaupl
21" Black Matrix myndlampi
Nicam Stereó hljóðkerfi
íslenskt textavarp
Scart tengi IITI
Fjarstýring [j ||
28" Black Matrix myndlarnpi
2x20 watta Nicam Stereo hljóðkerfi
Textavarp með íslenskum stöfum
Allar aðgerðir á skjá
Scart-tengi
Fjarstýring IITURÍ19
29“ Super flatur Black Line myndlampi
2x20 watta Nicam Stereo hljóðkerfi
Textavarp með íslenskum stöfum
Hátalara tengi
Tvö Scart tengi
Fjarstýring
TUC293