Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1998, Page 26
-
'26
Grelðslnskilmálar við allra haefl.
f \ Sknldabrcf til
ggL, < & / allt að 36 mán.
Alma hornsófi
Verö: 148.000 stgr.
HðfSotöni 12 *1ÖS RevkjeH k • Sími S52-620Q & SS2-5/S? • fax: 5S242ÖS
SÁ STCRI !
Aðeins 3.990 miðar og allir miðar fá viimmg
Aðalvinningur:
Glæsilegt tvílyft sumarhús í
náttúruperlu að eigin vali.
Húsinu fylgir um 1 hektara lóð i Grímsnesi - eða
veljiðsjálf staðinn.
3990 aukavinningar
Allir miðar fá vinning
Samtals verðmæti kr. 7 milljónir
Aðeins 3990 miðar - Verðkr. 3.990 - Magnafsláttur eykur möguleikana:
3 miðir= 10.000 - 5 miðar=16.000 - 10 miðar=30.000 - 20 miðar=50.000
Miðapantanir í síma 557 1000
Fax: 557 1047 - Tölvupóstur: santa@peace.is
Húsið er til sýnis í Jólabæ v/Fjörukrána, Hafnarflrg
FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 1998
Hljómplötur_____________________pv
Ýmsir flytjendur - Vilhjálmur Vilhjálmsson. Söknuður:
Áferðarfallegar minningar
Plötur sem tileinkaðar eru sér-
stökum höfundi og/eða flytjanda,
svonefndar „Tribute" plötur, eru fá-
séðar hér á landi. í fljótu bragði
kemur aðeins upp í hugann plata
ýmissa listamanna sem hljóðrituðu
lög Megasar með góðum árangri fyr-
ir nokkrum misserum. Tileinkun-
arplötur þessar hafa verið eins kon-
ar tískubylgja erlendis að undan-
fórnu og tæpast nema von að hér-
lendir tónlistarmenn glími við
formið.
Það er við hæfi að helga plötu Vil-
hjálmi heitnum Vilhjálmssyni á
tuttugu ára dánarafmæli hans. En
listamönnunum sem taka þátt í gerð
hennar er sjálfsagt vandi á höndum
því það þarf djörfung til að taka til
flutnings lög sem hann gerði vinsæl
á sinn látlausa og
eðlilega máta.
Skynsamlegast
hlýtur því að vera
að finna þeim ann-
að form en hið
þekkta og það tekst
ágætlega í nokkrum lögum plötunn-
ar Söknuður. Titillagið fær til dæm-
is svolitla skvettu af keltneskum
blæ sem hæfir því prýðilega. Björg-
vin Halldórsson fer náttúrlega létt
með að túlka lagið sem ég hygg að
sé gömlum aðdáendum og vinum
Vilhjálms heitins hið kærasta af öll-
um þeim aragrúa af dægurlögum
sem hann skildi eftir sig.
Ef eitthvert lag á söngferli Vil-
hjálms Vilhjálmssonar var stílbrot -
í jákvæðri merkingu þess orðs - var
það Hrafninn eftir Gunnar Þórðar-
son og Kristján frá Djúpalæk. Bubbi
Morthens og Eyþór Gunnarsson
stokka það upp og afsýra það ef svo
má segja. Útkoma þess er vel viðun-
andi þótt tryllingurinn sem ein-
kenndi það sé horfinn. Þá kemur á
óvart að lagið Ljúfa lif sem systkin-
in KK og Ellen Kristjánsdóttir flytja
hafi verið valið. Lagið held ég að ég
geti fullyrt að sé
alls óþekkt, svo-
kallaður „sleeper"
sem hefur fallið í
skugga annarra og
mun þekktari laga.
Það sem helst
vantar á plötuna Söknuð er að ung-
ir listamenn spreyti sig á lögum Vil-
hjálms. Hljómsveitin Sóldögg kann
að eiga að vera fulltrúi þeirra en út-
gáfa hennar á laginu Bíddu pabbi er
ósköp ljúf. Óhætt hefði verið að
rokka lagið töluvert meira án þess
að það skaðaði. Sama er að segja um
ýmis önnur lög sem Vilhjálmur Vil-
hjálmsson flutti. Ég gæti til dæmis
vel ímyndað mér að vælandi gítarar
og kröftugur söngur hæfðu vel lag-
inu SOS ást í neyð. Það bíður því
væntanlega betri tima að ungum
tónlistaráhugamönnum verði kynnt
tónlist Vilhjálms heitins með út-
setningum sem hæfa smekk þeirra.
Hljómplötur
Ásgeir Tómasson
dítiffiJ m
Asta í Eskimo Models
Stuðmön