Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1998, Side 6

Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1998, Side 6
m a t u r AMIGOS ★★★ Tryggvagötu 8, s. 5111333. „Erfitt er aö spá fyrirfram I matreiðsluna, sem er upp og ofan. Ostgrilluð guesadilla var vel bökuð og hörð." Opið í hádeginu virka daga 11.30-14.00, kvöldin mán.-fím. 17.30-22.30, fös-sun 17.30-23.30. Barinn er opinn til 1 á virkum dögum en tii 3 um helgar. ARGENTÍNA ★★ Barónsstíg lla, s. 551 9555. „Bæjarins besta steikhús hefur dalað.“ Opiö 18-23.30 v.d., 18-3 um helgar. CAFÉ ÓPERA Lækjargötu 2, s. 522 9499. CARPE DIEM Rauöarárstig 18, s. 552 4555. CREOLE MEX ★★★★ Laugavegur 178, s. 553 4020. „Formúlan er líkleg til árangurs, tveir eigendur, annar í eldhúsi og hinn í sal, og fókusinn á matreiðsluhefðum skilgreinds svæðis, í þessu tilviki suðurstrandar Banda- rikjanna, Louisiana, Texas og Nýju-Mexíkó.“ Op/ð 11.30-14 og 18-22 á virkum dögum en 18-23 um helgar. EINAR BEN Veltusundl 1. 5115 090. „Leggur meiri áherslu á umbúðir en innihald. Býður yfir- leitt ekki upp á vondan mat og verður því seint jafnvinsæll og Fashion Café eða Planet Hollywood.” Opið 18-22. HARD ROCK CAFÉ ★★ Krlnglunnl, s. 568 9888. HÓTEL HOLT ★★★★★ Bergstaðastræti 37, s. 552 5700. „Listasafnið á Hótel Holti berí mat- argerðarlist af öðrum veitingastofum landsins. Þar fara saman frumlegir réttir og nærfærin mat- reiðsla, sem gerirjafnvel baunir að Ijúfmeti." Opið 12-14.30 og 19-22.30 virka daga, 12-14.30 og 18-22 föstu- og laugardaga. HÓTEL ÓÐINSVÉ ★★ v/Óðlnstorg, s. 552 5224. „Stundum góður matur og stundum ekki, jafnvel í einni og sömu máltíö." Opið 12-15 og 18-23 virka daga, 12-15 og 18-23.30 föstu- og laugardaga. IÐNÓ ★★★ Vonarstræti 3, s. 562 9700. „Matreiðsla, sem stundum fer sínar eigin slóð- ir, en nær sjaldan hæstu hæðum. Enginn réttur var að neinu leyti misheppn- aður, en fáir minnisstæðir." Opið frá 12-14.30 og 18-23. ÍTALÍA ★★ Laugavegi 11, s. 552 4630. KÍNAHÚSIÐ ★★★★ Lækjargötu 8, s. 551 1014. „Margt er það, sem dregur, matreiösla, verðlag og andrúmsloft, sem samanlagt gera Kínahúsið að einni af helztu matarvinjum mið- bæjarins." Opiö 11.30-14.00 og 17.30-22.00 virka daga, 16-23 iaugardaga og 17-22 á sunnudögum. KÍNAMÚRINN ★★★ Laugavegl 126, s. 562 2258 LAUGA-ÁS ★★★★★ Laugarásvegl 1, s. 553 1620. „Franskt bistró að íslenskum hætti sem dregur til stn hverfisbúa, sem nenna ekki að elda í kvöld, barnafjölskyldur utan úr bæ og ferðamenn utan af landi og frá útlöndum." Opið 11-22 og 11-21 um helgar. LÆKJARBREKKA ★ Bankastræti 2, s. 551 4430. MADONNA ★★★ Rauðarárstíg 27-29, s. 893 4523 „Notaleg og næstum rómantísk veitingastofa með góðri þjónustu og frambæri- legum Ítalíumat fýrir lægsta verö, sem þekkist hér á landi.“ Opið virka daga 11.30-14.00 og 18.00- 23.00 og 17-23.30 um helgar. MIRABELLE ★★★ Smlðjustíg 6., s. 552 2333. „Gamal-frönsk matreiðsla alla leið yfir í profiteroles og créme brulée.” Opið 18-22.30. PASTA BASTA ★★★ Klapparstíg 38, s. 561 3131. „Ljúfir hrisgrjónaréttir og óteljandi til- brigði af góðum pöstum en lítt skólað og of upp- áþrengandi þjónustufólk." Op/'ð 11.30-23 virka daga og 11.30-24 um heigar. Barinn er opinn til 1 virka daga og til 3 um helgar. LA PRIMAVERA ★★★★ Austurstræti 9, s. 5618555. „Sjálfstraust hússins ergott og næg innistæða fyrir því.“ Oplð 12.00-14.30 og 18.00-22.30 virka daga og um helgar frá 18.00-23.30. RAUÐARÁ Rauðarárstíg 37, s. 562 6766. REX ★★★★ Austurstræti 9, s. 511 9111 „Rex kom mér á óvart með góðri, fjöibreyttri og oftast vandaðri matreiöslu, meö áherzlu á ein- föld og falleg salöt, misjafnt eldaðar pöstur og hæfilega eldaða fiskrétti." Opið 11.30-22.30. SKÓLABRÚ ★★ Skólabrú 1, s. 562 4455. „Matreiðslan er fögur og fin, vönduð og létt, en dálítið frosin. Þjónustan er kurteis og hófsöm." Opið frá kl. 18 alla daga. TILVERAN ★★★★★ Linnetsstíg 1, s. 565 5250. „Það eru einmitt svona staöir, sem við þurfum fleiri af til að fá almenning til að lyfta smekk sínum af skyndibitaplani yfir á fyrstu þrep almennilegs mataræðis." Opið 12-22 sunnudag til fimmtudags og 12-23 föstudag og iaugardag. VIÐ TJÖRNINA ★★★★ Templarasundi 3, s. 551 8666. „Nú virðist Tjörnin endanlega hafa gefið forystuna eftir og raunar annað sætið líka, gerir oftast vel, en ekki alltaf og mistekst raunar stundum." Op/'ð 12-23. ÞRÍR FRAKKAR ★★★★★ Baldursgötu 14, s. 552 3939. „Þetta er einn af hornsteinum ís- lenskrar matargerðarlistar og fiskhús landsins númer eitt.“ Op/'ð 12-14.30 og 18-20 virka daga og 18-22 um heigar en til 23 föstu- og laugardag. [meira á.] www.visir.is í tæpa tvo áratugi hefur þjóðin valið sér veitingastaði eftir handleiðslu sama mannsins. En eftir hverju er farið þegar stöðum eru gefnar einkunnir. Jónas Kristjánsson kynnir: Ný stjörnuflokkun ♦ Naustið Undir fölsku flaggi Á matseðlinum segir, að Jónat- an Livingston Mávur hafi „fengið viðurkenningu sem einn af tíu beztu veitingastöðum í Evrópu með áherzlu á fiskrétti og villi- bráð.“ Það er stórt orð Hákot og stækkar, þegar menn treysta sér til að vitna í það sjálfir. í fyrsta lagi er Jónatan ekki fiskréttastaður, ekki einu sinni einn af tíu beztu á íslandi, hvað þá i Evrópu allri. Hann hefur ekki einu sinni á boðstólum ferskan fisk dagsins, sem fæst þó á öðru hverju veitingahúsi borgarinnar, án þess að menn berji sér á brjóst. í öðru lagi eru framboð og gæði villibráðar ósköp svipuð því, sem fæst á öðru hverju veitingahúsi borgarinnar á vertíðinni. Með sjálfshóli vekur staðurinn vænt- ingar, sem hann stendur ekki undir. Sem dæmi um matreiðsluna má nefna langhala, fyrst pönnusteikt- an og síðan ofnsteiktan innan í brenndum kartöfluþráðum, orð- inn þurr af meðferðinni, borinn fram í sesamkryddaðri ostasósu Veitingarýnendur þurfa að end- urnýja sig eins og veitingahús þurfa að gera. Við verðum sífellt að vera með tilraunir, þótt sumar misheppnist. Þannig fleytum við okkur smám saman fram eftir leið. Ég er búinn að taka margar rispur á veitingahúsum síðan ég hóf veitingarýni fyrir tæplega nítján árum. Hver syrpan hefur verið með sínum hætti, misjafn- lega vel heppnuðum eins og geng- ur. Stundum hefur einhvers konar einkunnagjöf fylgt greinaflokkun- um, einkum fyrir gæði annars vegar og verð hins vegar. Einnig hefur komið fyrir, að ég hafi reynt að flokka gæðin í þrennt, mat- reiðslu, umbúnað og umönnun. Að þessu sinni hef ég reynt að tolla i tízku annars konar rýni og nota einfalda stjörnugjöf, sem ætl- að er að sameina einkunn fyrir verð og gæði. Mér hefur réttilega verið álasað fyrir að skýra ekki, hvað ég eigi við með nýju útgáf- unni. Stjörnugjöfinni er ætlað að sýna, hversu miklum árangri veitingahúsið nær í gæðum miðað við þær forsendur, sem það gefur sér í verði. Grafið hér á síðunni skýrir þetta. Á lárétta ásnum er verðið í krónum og á lóðrétta ásnum eru gæðin metin afstætt samkvæmt huglægu, en öguðu mati, byggðu á langri reynslu. Veitingahús fá því fleiri stjörn- ur, sem þau eru ofar og lengra til vinstri á grafinu, sem skipt er í nokkur stjömu-skábönd. í hæsta stjörnuflokki em gerólíkir staðir eins og Listasafnið og Laugaás. Þau ná sama árangri hvort á sin- um forsendum, annað einkum á gæðum og hitt einkum á verði. Þrír Frakkar ná sama árangri með því að fara bil beggja. Þessar stjörnur eiga ekkert skylt við stjörnurnar í Michelin. Ekk- ert íslenzkt veitinga- hús nær slík- jm|i u m Tilveran •Laugaás 1000 2000 hæðum, að hægt se Listasafniö (Holt) að tala um stjom- ' ’ ur af tagi • Grillið Jónas Kristjánsson é [% ' -V v; ' • Primavera dTjörnin H 3 Frakkar fjRex giðnó > Skólabrú ^ Játvarður Creole ^Pasta ' Basta ' Mex • Amigos Madfnna óðinsvé • • Argentína Mirabelle • Jónatan • Kínahúsið > Kínamúrinn • Hard Rock • Ítalía < • Smiðjan Lækjarbrekka • Carpe Ðiem • • Rauðará Einar Ben • Thailand • Bing Dao 3000 E R Ð 4000 Fið arinn Opera 5000 Jónatan: og með kryddvættum grænmetis- þráðum, sem virðast stöðluð mötuneytisfæða með flestum aðal- réttum staðarins. Sítrónuleginn langhali var bor- inn fram i leginum, með símylju- komum á diskbarmi, staðlaðri einkennisskreytingu flestra rétta staðarins. Pönnusteiktir sniglar voru í þurrara lagi, í hring utan um gljáðan perlulauk, sveppi og beikon á stökkri köku í miðju, bomir fram með rauðvínssósu. Betri var hvítlauksristaður smokkfiskur í bleksósu og sinn- epi, meyr og fínn, raðað í geisla út frá miðju rófu- og gulrótarþráða. Bezt var steinseljusalat með góðri blöndu af símyljukomum, tómöt- um, lauk og myntu í miðju, salat- blöðum utar, vætt með sítrónusafa og olífuoliu. Gæsabringa var sjálf hæfilega elduð, en lýtt með fylgihlutum, sem fólust í staðlaðri kartöflu- böku staðarins og mildri hveit- isósu uppbakaðri, sem kölluð var villibráðarsósa. Nautalund var góð, en lýtt af stöðluðu kartöflu- Húsakynni eru notaleg og þægileg, en ekki fínleg. Heitir litir í tjöldum og vafningsplöntur á málmgrindarturnum vega á móti kuldalegum örljósum og groddalegum málverkum. bökunni og uppbakaðri hveit- isósu með skán. Ferskir ávextir suðrænir vom bornir fram á glæsilegan hátt sem fylling í melónu, með hindberjum og blæjuberjum á diskbarmi, vættir með kirsuberjalíkjör og appelsínulíkjör í senn. Hversdagslegri var þurr súkkulaðikaka með hindberjum og blæjuberjum, mangó, ís og rjóma. Gott bananabragð var að lagskiptri súkkulaði- og banana- tertu, sem sögð var með enskri vanillusósu, en var með stöðluðu mangó, ís og rjóma. Þótt eldhúsið spari sér vinnu með stöðluðum endurtekningum, er verðið fremur hátt, 4.200 krón- ur á mann fyrir þríréttað með kaffi. Þjónusta er fagleg og góð. Húsakynni eru notaleg og þægi- leg, en ekki fínleg. Heitir litir í tjöldum og vafningsplöntur á málmgrindarturnum vega á móti kuldalegum örljósum og grodda- legum málverkum. Margt er gott um Jónatan að segja, svo sem tauservéttur og tannstöngla, volgar bollur og væna tónlist, en sem fiskrétta- og villibráðarstaður siglir hann und- ir fölsku flaggi. Jónas Kristjánsson f Ó k U S 11. desember 1998

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.