Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1998, Síða 17
myndlist
+
Opnanir:
Gallerí Geyslr, Hlnu Húslnu viö Ingóifstorg.
Tinna Ævarsdóttlr opnar sýningu sína kl. 16 á
morgun. Sýningin er opin alla virka daga frá kl.
8-23, föd. 8-19 og helgar 13-18 og stendur
til 27. des.
Perlan. Rebekka Gunnarsdóttlr sýnir gler- og
myndlist, Slgríöur og Freyja Þorgelrsdætur
sýna leirmuni og brúöur. Sýndir verða listmun-
ir sem eigendur Galleris 3 framleiða, svo sem
leir, glermunir, myndlist og postullnsbrúöur I
búningum frá ólíkum árhundruðum. Sýningin
stendur til 21. desember.
Galleri Borg. Rut Skúladóttlr klæöskeri opn-
aöi sýningu sína í gær og stendur til 14. des-
ember. Sýndar verða erótískar myndir og
klæðnaður.
Llstmunahús Ófelgs. Á morgun kl. 16 opnar
Þórður Hall sýningu á málverkum í sýningarsal
hússins á annarri hæð. Sýningin verður opin á
verslunartíma og stendur til 24. desember.
Hafnarborg. Bresk-bandariski listmálarinn Lev
Andre Vykopal mun opna vinnustofu sína fyr-
ir almenningi á morgun kl. 16.
Geröarsafn, Kópavogi. Sýning í Geröarsafni í
Kópavogi til heiöurs Sæmundl Valdlmarssynl
áttræðum. Þetta er yfirlitssýning listamanns-
ins.
Uennlngarmlöstööln, Geröubergl. I dag kl.
16 verður opnuð sýning á verkum Ástu Er-
llngsdóttur.
Kaffistofa Llstasafns Kópavogs. Settar hafa
verið upp útsaumaðar frummyndir úr bókinni
Jólasvelnarnlr þrettán - Jólasvelnavisur eftir
Eslu E. Guöjónsson - ásamt íslensku vísun-
um úr bókinni. Sýningin verður opin til og með
sunnudaginum, en safnið er lokað á mánu-
dögum.
Síðustu forvöð:
Gallerílö „Nema hvaö“, Skólavörðustíg 22c.
Guörún Margrét Jóhannesdóttlr verður meö
sýningu á verkum sínum. Sýningin er opin frá
kl. 14-18 og lýkur núna á sunnudaginn.
Stöölakot við Bókhlööustíg. Magnús Þor-
grímsson leirlistarmaöur er með sýningu á
eld- og reykbrenndum leirkerum. Yfirskrift sýn-
ingarinnar er „Leikur viði eld". Sýningin er
opin daglega frá 14-18 og lýkur á sunnudag-
inn.
Austurgata 17, Hafnarfiröi. Gestur Þorgríms-
son, Slgrún Guöjónsdóttlr (Rúna) og Guöný
Magnúsdóttlr stilla saman verkum sínum á
vinnustofunni. Opin til sunnudags frá 14-17.
Aðrar sýningar:
Gallerí Hornlö, Hafnarstræti 15. Stelnn Slg-
uröarson meö sýningu á myndum unnum með
akrýl á striga. Sýningin stendur til 30. desem-
ber og verður opin alla daga kl. 11-24, nema
lokað á jóladag. Sérinngangur verður aöeins
opinn kl. 14-18.
Norræna húslö. Sýningar I sýningarsölum og
anddyri helgaðar verkum finnska arkitektsins
Alvars Aaltos. Sýningin er þriskipt. I sýningar-
sölum verða til sýnis frumteikningar, líkan og
Ijósmyndir frá bókasafninu í Viborg. í anddyri
verða tii sýnis Ijósmyndir um finnska bygging-
arlist með verkum Alvars Aaltos og annarra
finnskra arkitekta.
Álafossbúöln, Álafossvegi 23, Mosfellsbæ.
Inga Elín er meö sýningu á verkum sínum.
Sýningin stendur til 6. janúar og er opin virka
daga kl. 10-18 og Id. 10-14.
Gallerí Llstakot. Samsýningin „Horft tll hlm-
Ins". Opið I samræmi viö opnunartíma versl-
ana við Laugaveg fram að jólum.
Hallgrímsklrkja, Skólavörðuholti. Sýningar 6
myndllstarmanna.
Llstasafn ASÍ. Eftirfarandi sýningar eru I lista-
safninu á morgun. I Ásmundarsal er Anna
Þóra Karlsdóttlr með sýningu á flókateppi úr
ull. í Gryfju er Sigríður Ágústsdóttlr með
handmótaða, reykbrennda leirvasa. Krlstinn
Pétursson sýnir ætingar I Arinstofu.
Llstasafn íslands. Sýningin 80/90 Speglar
samtímans Museet for samtidskunst I Ósló.
Sýningin stendur til 30. janúar.
Hafnarborg, Strandgötu 34, Hafnarfirði. Nú
stendur yfir yfirlitssýning á verkum Slgurjóns
Ólafssonar. Sýningin er opin frá kl. 12-18 alla
daga nema þriðjudaga og henni lýkur 23. des-
ember.
KJarvalsstaöir. Þrjár sýningar eru f gangi.
„Framsýning: Fdroysk nútlðarlist" I austursal.
Nýja kynslóöln I norrænum arkltektúr I vest-
ursal. Myndlist og tónlist: Halldór Ásgelrsson
og Snorrl Slgfús Birglsson I miösal. Sýning-
arnar standa til 20. desember og er opið alla
daga frá kl. 10-18. Á sunnudögum kl. 16 er
leiðsögn um sýningarnar.
Hafnarborg. Sýning á verkum Sigurjóns Ólafs-
sonar.
Mennlngarstööln Geröuberg. Yfirlitssýning á
verkum Hannesar Lárussonar. Frá '78 til loka
nlunda áratugarins. Sýningin stendur til 31.
desember.
Herrafataverslunln GK. Þorstelnn Joö sýnir I
sjónvarpstæki fjórar vldeósögur, I svarthvltu
og fullum litum. Sögurnar eru frá síöustu
Lúsíukvöld
Þrátt fyrir aö íslendingar hafi
étið upp alla jólasiði sem að þeim
hafa verið réttir þá neita þeir enn
sem fyrr að gleypa við hinni
sænsku Lúsíu. Einhverjir Svía-
vinir (þó ekki sænska mafian sem
Indriði G. er með á heilanum)
hafa þrátt fyrir takmarkaðar und-
irtektir staðið fyrir Lúsíukvöld-
um í Norræna húsinu árum sam-
an og fengið að launum innskot í
fréttatimum sjónvarpsstöðvanna.
En unglingsstúlkur með kerti á
hausnum eru of geggjuð hugmynd
til að íslendingar ánetjist.
Það er náttúrlega bundin þversögn í jólunum eins og öllu öðru. Jólin eru hátíð hefðanna þar sem fólk reynir að halda
í hátíðleik og eftirvæntingu bernskunnar með því að endurtaka sífellt jólin eins og þau voru. En jólin eru líka stærsta
hátíð ársins, þau eru andhverfa hversdagsleikans - þá á allt að vera með öðrum blæ, hátíðlegra, glæstra en
fyrst og fremst stærra, meira, betra, flottara, yfirgengilegra en fólk má lifa við dagsdaglega.
Neyslusjúkur nútímamaðurinn getur því ekki gert hvort tveggja - viðhaldið einfaldleika jólanna
sem hann ólst upp við en ætlað jafnframt að jarða hversdaginn með yfirkeyrðri neyslu.
En þetta er séður andskoti - hann býr sér einfaldlega til nýjar jólahefðir og telur sér trú um
að ef hann hlaði í kringum sig aðfluttum, nýuppfundnum og nýlærðum
siðum lifi hann loks jólin sem hann sækist eftir. Hér á opnunni má sjá hvernig ýmsir slíkir siðir
hafa lifað af undanfarin jól, hverjir hafa risið og fallið, hverjir eru á niðurleið og hverjir stefna
upp og hverjir virðast ætla að verða nýklassík.
Heítir jólasiðir
og aðrir á leið
Rjúpan
Rjúpnaát um jól var staðbund-
inn siður langt fram eftir þessari
öld en er nú óðum að leggja land-
ið undir sig (og útrýma rjúpunni).
Kári Stefánsson myndi ef til vill
vilja skýra þetta með þvi að
rjúpugenið væri sterkara en til
dæmis hamborgarhryggsgenið,
þannig að þegar fólk með þessi
tvö mismunandi gen paraði sig þá
yfirgnæfði rjúpugenið hamborgar-
hryggsgenið. En svo er ekki. í
fyrsta lagi lítur rjúpusiðurinn út
fyrir að vera eldri hefð, uppruna-
legri og hreinni en hamborgar-
út í kuldann
Jólakötturinn
Hann er atvinnulaus. Það fer
enginn í jólaköttinn lengur. Það fá
allir eitthvað. Við skulum bara
viðurkenna það. Það er búið að
svipta okkur hinni hreinu fátækt
og algera bjargarleysi. Það fá hins
vegar fæstir allt sem þeir vilja -
en það er ekki fátækt, alveg sama
hvað við reynum að telja okkur
trú um það. Ef einhver lenti í jóla-
kettinum gæti sá hinn sami feng-
ið tekið við sig viðtal á Stöð 2 á
jóladag og bölvað ríkisstjóminni,
kvótakerfinu og hverjum sem
hann vill um kenna og fengið opn-
aðan fyrir sig söfnunarreikning
hjá Spron. Það myndi rigna yfir
hann hangiketi, laufabrauði,
malti og appelsíni, jólagjöfum,
jólafotum og hugheilum jóla- og
áramótakveðjum. Það er sárvant-
ar nefnilega allslaust fólk á ís-
landi, sérstaklega um jólin þegar
það er hvað hollast fyrir sálina að
æfa gjafmildi og rausnarskap. En
það er ekki aðeins velmegunin
sem hefur gert út af við jólakött-
inn, breytt tiska í barnauppeldi
gerir atvinnuhorfur hans æði
svartar. Foreldri sem hótaði barni
sínu með jólakettinum yrði svipt
forræði á staðnum. Það fór því
með jólaköttinn eins og byltingar-
mennina, hann fór sjálfur í jóla-
köttinn.
hryggurinn sem lyktar af danskri
tísku. í öðm lagi hafa menn verið
reknir unnvörpum frá skrifborð-
um sínum af heilsupredikurum á
undanfornum árum og upp á heið-
ar að hreyfa sig. Og hvað er þá
betra en að breyta erindislausu
labbi í einhverja gagnlega iðju og
skjóta sér rjúpu úr því maður er
hvort eð er í nágrenninu. í þriðja
lagi hafa rannsóknir sýnt að börn-
um fæddum upp úr miðjum sept-
ember er hættara við sykursýki
en öðrum börnum. Það geri salti-
péturinn. Þeir sem éta því saltað-
an og reyktan hamborgarhrygg á
aðfangadag og saltað og reykt
hangikjöt á jóladag eru því að
stofna í voða heilsu barnanna sem
þeir geta í jólafríinu.
Messur
Einu sinni voru jólin lítið ann-
að en messa og dálítið af góðum
mat. Síðan urðu þau mikið af góð-
um mat, hellingur af gjöfum,
skrauti og Guð má vita hverju
ekki - nema þá einna sist mess-
um. Á meðan biskupinn sem þjóð-
in elskaði var í sjónvarpinu lét
fólk sig þó hafa það að hlusta á
hann klukkan tíu á aðfangadags-
kvöld. En fyrir um fimm árum
eða svo fór fólk að þyrpast í kirkj-
ur á jólunum - líklega í leit að
einhverjum friði og hátíðleika
innan um alla neysluna. Nú er
svo komið að fólk þarf að mæta
tímalega ef það ætlar að krækja
sér í sæti.
Englahár
Var það bannað? Eða var ein-
faldlega grafið undan þvi með
áróöri, forvörnum og fyrirbyggj-
andi aðgerðum? Það er að
minnsta kosti horfið. Þetta aumk-
unarverða snjólíki úr næloni (eða
einhverju enn hroðalegra efni)
teiknar því ekki lengur geisla-
bauga kringum jólaljósin á trénu.
Og það er bölvuð synd.
Jólahlaðborð
Byrjaði sem hógvær danskur
julefrukost á einhverju veitinga-
húsinu fyrir áratug eða svo en
sprakk síðan út í drekkhlaðin
borð á hverju einu og einasta veit-
ingahúsi bæjarins. Vítamín-
sprauta fyrir veitingabransann.
Áætla má að í Reykjavík einni
mæti um 100.000 gestir í jólahlað-
borð og borgi fyrir það um 5.000
krónur með víni og öðrum veig-
um. Veltan er því nálægt
500.000.000 krónum (fimm hund-
ruð milljónir). Ef ekki væri fyrir
jólahlaðborðin þyrftu veitinga-
menn miklu oftar að skipta um
kennitölu. Ástæðan fyrir þessum
vinsældum er tvíþætt. Annars
vegar bera jólin með sér nánast
óuppfyllanlega eftirspurn eftir
einhverju sem lítur út fyrir að
vera hefð eða gamall siður. Hins
vegar hefur jólahaldið smátt og
smátt verið að leggja undir sig
desember allan. Jólin sjálf eru þá
hátíð barnanna en aðdragandi
þeirra ber með sér alls kyns til-
efni fyrir fullorðna fólkið til að
lyfta sér upp. Eftir að þjóðin dró
úr áfengisneyslu og fylliríi um jól-
in og Þorláksmessufylliríið
minnkaði því vinsælli varð
jólaglöggin og jólahlaðborðið. Ein-
hvers staðar hlaut gröfturinn að
koma út.
Islensku
jólasveinarnir
Þótt allir íslendingar gangi með
sektarkennd yfir að hafa tekið
Coca-Cola-jólasveininn fram yfir
þá Stekkjarstaur og Stúf þá nægir
hún ekki til þess að þeir fái sig til
að hafa íslensku jólasveinana með
á jólunum. Til þess eru þeir of
ólekkerir, rytjulegir og sveitó.
Innan um jólarósirnar, jóla-sjö-
stikumar og aðventukransinn eru
þeir einfaldlega út úr kú - eins og
fyllibyttur í kirkjukór. Þjóðem-
issinnuðustu allaballar úr vestur-
bænum láta sér nægja að draga
barnabörnin á Þjóðminjasafnið
einu sinni fyrir jól að skoða
sveinkana fetta sig og bretta svo
þau týni sér ekki algjörlega í am-
erískum imperíalisma. Gerður í
Flónni reyndi að flytja þá út til
Hollands en þar var heldur lítil
eftirspurn eftir þeim. Síðasta von
íslensku jólasveinanna er sam-
keppni sem Þjóðminjasafnið
stendur fyrir um hönnun á opin-
beru júníformi fyrir þá, líklega í
von um að hann muni slá jafn-
rækilega í gegn og nýuppfundinn
þjóðbúningur á karlmenn.
Utikerti
Útikertin eru áhrifaríkasta inn-
grip Þjóðkirkjunnar í líf lands-
manna undanfarna áratugi (að
málum Ólafs Skúlasonar sleppt-
um). Það var Pétur Sigurgeirsson
biskup sem lagði það til ein jólin
Sígræna
Jólaglöggin sló í gegn um svip-
að leyti og bjórlikið og náði í raim
aldrei að verða finna fyrirbrigði
en það. Hún blómstraði best á
vinnustaðafylliríum. Og eftir því
sem dregið hefur úr þeim hefur
vegur þess dvínað. Nú eru það
helst rúmlega miðaldra konur
sem skjóta sér í jólaglögg og pip-
arköku inn á Lækjarbrekku að
ræða jólaundirbúninginn og
skiptast á uppskriftum.
Þetta gyðingatákn er orðið svo
ómissandi þáttur jólanna að þeir
sem búa í húsi með átján gluggum
þurfa að eiga átján sjöstikur.
Það er hreinasta klikkun að
höggva niður heilu skógana til að
dröslast með grenitré inn í stofu
þar sem það
stendur í
tvær vikur
og fýkur svo
um hverfið
fram til
p á s k a .
Gervijólatré
eru miklu
betri kostur
og það má
m.a.s. kaupa
greni-ilm í
úðabrúsa
svo allt sé
nú sem eðli-
legast. Skát-
arnir selja
„sígræna
jólatréð“ og
segja að það sé í stöðugri upp-
sveiflu. Það segir sig líka sjálft að
það er miklu meira vit í því.
Jólaglöggin
messufylliríið
Þorláksmessufylliríið er ekki
svipur frá sjón. Það eru aðeins fá
ár síðan það var ball í hverju húsi
þetta kvöld og það var aðeins
hending ef menn komu heim með
réttan poka með réttum gjöfum.
Minnkandi þol samfélagsins gagn-
vart áfengi hefur fært boðlegan
fylliriistima frá jólunum og að há-
degi á Þorláksmessu - að sköt-
unni.
Jólakortin
að landsmenn létu loga kerti á úti-
tröppunum hjá sér á jólanótt til að
senda nágrönnum sínum friðar-
kveðju. Og þjóðin hlýddi. Og nú er
ekki lengur hægt að halda jól án
þessara kerta. Það væri svipað og
að segja nágrönnunum að fara í
rass og rófu á sjálfa jólanótt.
Sígildir
siðir
Jólaböllin
Jólabaksturinn
Skata
Enn einn staðbundinn siðurinn
sem hefur lagt landið undir sig.
Síðustu forvöð til að skemmta sér
að íslenskum sið áður en haldið
er inn í hátíð ljóss og friðar, hátíð
barnanna og fjölskyldunnar. Há-
karl og brennivín í forrétt, úldin
skata, bjór og brennivín í aðalrétt,
kaffi og koníak á eftir. Þorláks-
messuskatan og jólahlaðborðið
eru smátt og smátt að leggja þorr-
ann í eyði. Þegar hann kemur
verður hann nánast eins og end-
urtekið efni - eitthvað sem gæti
verið á dagskrá hjá Sýn.
tlabóka- og plötuflóðið
Jólakveðjur í útvarpi
Jólabarnaefni
Jóiasveinar
Jolamalt og appelsín
Jólahangikjötið
Jólaarenið
Uti-
skreytingar
Nú dugar ekki að setja eina ser-
íu á svalimar heldur þarf hvert
tré og hver runni að fá sína seríu,
jólasveinar og hreindýr, snjókall-
ar og englar að vera upplýstir í
garðinum. Þessi tíska kom í hitti-
fyrra og er að leggja undir sig
landið. Fyrir örfáum árum var lit-
ið á svona tilbúnað sem úrkynjim-
areinkenni á bandarísku þjóðinni.
Nú er þetta tákn um hið sanna
jólaskap.
myndlist
árum, tvær frá Reykjavlk, ein frá San
Francisco og ein frá Armenlu.
Sýningin stendur næstu þrjár vikur I GK viö
Laugaveg, og hún er opin svo lengi sem herra-
fatakaupmaáurinn Gunnar Hllmarsson og
starfsfólk hans er viö afgreiöslu.
Hafnarborg, menningar- og listastofnun Hafn-
arfjarðar. Sýning á verkum norska listamanns-
ins Terje Risberg.
Brelðholtslaug. Tveir starfsmenn Breiðholts-
laugar, þau Berlt Ryland og Gisll Hafstelnn
Elnarsson, standa fyrir sameiginlegri sýningu I
salarkynnum laugarinnar. Opið á afgreiöslu-
tíma laugarinnar, virka daga frá kl. 6.50-22
og um helgar frá kl. 8-20. Sýningin stendur til
31. desember.
Gallerí Sævars Karls, Bankastræti. Nú stend-
ur yfir sýning á nýjum verkum Haralds Jóns-
sonar. Yfirskrift sýningarinnar er SVIMI.
Hafnarborg, Strandgötu 34, Hafnarfirði. Anna
Slgríður Sigurjónsdóttlr myndhöggvari. Sýn-
ingin er opin alla daga nema þd. frá 12-18.
Llsthúsið, Laugardal. íslensk náttúra. íslenskt
landslag eftir SJöfn Har. Opið virka daga kl.
12- 18. Ld. kl. 11-14.
Árþúsundasafnlö, I risi Fálkahússins, Hafnar-
stræti 1. Sýning Greipar Ægls er opin frá
17-22 alla virka daga og um helgar frá
13- 19.
Landspítalinn, K-bygging - anddyri spitalans.
Sýndur er efniviður og aðföng úr ýmsum átt-
um, en stofn myndefnis eru glæsilegar teikn-
ingar Guðjóns Samúelssonar, húsameistara
ríkisins. Þá eru þarna til sýnis nokkrir gripir frá
fyrstu árum spítalans og fleiri fallegir munir.
Sýningin er opin gestum og gangandi til kl. 17
alla daga.
Utan höfuðborgar-
svæðisins:
Ljósmyndakompan I Listagilinu, Akureyri. Sýn-
ing á verkum Taly og Russ Johnson.
Galleri Svartfugl I Listagili á Akureyri. Jónas
Viðar myndlistarmaöur er meö sýningu. Sýn-
ingin er opin á sama tlma og galleríið og frá
14- 18 um helgar.
meira ál
Nýjar sendingar af
fallegum kjólum,
kápum og töff
drögtum.
Jólagjöfina handa
henni færðu hja
okkur
Nýtt kortatímabil
OBSESSION
Laugavegur
103
S 552 3140
Rétt Hjá Hlemmi.
f Ó k U S 11. desember 1998
11. desember 1998
17
i
t