Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.1999, Side 7
MIÐVIKUDAGUR 6. JANÚAR 1999
7
sandkorn
Fréttir
Óbættur
Framkvæmdir viö Brydebúð ganga vel:
Mikil spenna er í efsta lagi
þjóðfélagsins uin það hver hljóti
það hnoss að verða seðlabanka-
stjóri. Helst er talað um að fall-
inn landsbankastjóri, Halldór
Guðbjarnason,
fái starfann. Hann
hefur með sér að
vera af réttum
pólítískum lit og
ekki skemmir
vináttan við
Finn Ingólfs-
son viðskipta-
ráðherra. Langt
er liðið síðan
Steingrímur Hermannsson lét
af starfi en gárungar innan bank-
ans segja það nokkur tíðindi því
enginn hafi tekið eftir því að
hann sé farinn og óbættur.
Reyndar eru þeir fáir sem vilja
taka upp evruna sem gjaldmiðil
og þá megi leggja niður Seðla-
bankann...
Geta betur
Nú er að hefjast hin æsispenn-
andi keppni RÚV, Gettu betur.
Búið er að skipta um áhöfn þar
sem hinn geðþekki stjórnandi,
Davíð Þór Jónsson, og hans
fólk er horfið af
sjónarsviðinu. í
hans stað fellur
það Loga Berg-
mannEiðssyni í
skaut að stýn
þættinum og 1
framhaldinu
taka þá skelli
sem til falla
þegar rifist verður
um úrslit milli einstakra skóla.
Þó er talið er að forsetaskipti í
einstökum nemendafélögum auki
líkur á því að friðurinn veröi
ekki sundur slitinn....
í „skammarkrók"
Það var margt um skipin í Ak-
ureyrarhöfn um jól og áramót,
skip við allar bryggjur og víða
þurfti að flytja skip til svo við-
leguplássið nýttist sem best. Það
vakti hins vegar
fljótlega athygli
þeirra sem gerðu
það að gamni
sínu að aka um
bryggjurnar og
skoða skipin um
hátíðarnar að
eitt skip lá við
bryggju út við
fiskimjölsverk-
smiðjuna i Krossanesi. Það var
reyndar engin smáfleyta, heldur
sjálf Guðbjörgin frá ísafirði, þetta
mikla aflaskip sem að einhverju
leyti er komið undir Samherja-
menn eins og svo margt annað
fleyið. Kunnugir höfðu á orði að
það væri dálítið skrýtið að sjá
„Gugguna" í skammarkróknum í
Krossanesi á meðan öðrum skip-
um væri raðað upp við bryggjur
bæjarins. Lítið fer nú fyrir vest-
firska flaggskipinu...
Á áætlun
Tekið hefur verið eftir því
hversu illa hefur gengiö hjá Flug-
félagi íslands að halda áætlun.
Þetta á sérstaklega við um þær
leiðir þar sem ekki ríkir sam-
keppni. Þannig
munu ísfirðing-
ar vera orðnir
langþreyttir á
því að bíða úti
á velli
klukkustund-
um saman.
Sagan segir að
reikni orðið með seinkunum á
ákveðnum leiðum. Það styrkir
þessa kenningu að kona nokkur
kom á Reykjavikurflugvöll á dög-
unum og spurði um ísafjarðarvél-
ina. „Henni seinkar því miður
um klukkustund," var svarið.
„Nú hún er þá á áætlun," sagði
konan um hæl...
Umsjón Reynir Traustason
Netfang: sandkorn @ff. is
Húsið nánast fullgert að utan
DV, Vík:
Endurbætur á gamla verslunar-
húsinu Brydebúð í Vík hafa gengið
vel. Nú eru framkvæmdir utanhúss
langt komnar, búið er að endumýja
klæðningu og einungis á eftir að
skipta um jám á norðurþekju húss-
ins og klæða þar kvist.
Að sögn Sveins Pálssonar, hjá fé-
laginu sem stendur að endurbygg-
ingunni, era framkvæmdir innan-
dyra að hefjast. Ekki liggur ljóst fyr-
ir hvenær þeim lýkur en það ræðst
af því hvernig gengur að afla fjár til
verksins.
„í fyrra fékkst 1.250.000 króna
styrkur frá Húsfriðunarsjóði til
Brydebúðar og síðan fengum við
framlag upp á 1.500.000 krónur til
framkvæmda við húsið úr sjóði sem
Einar Oddsson, fyrrum sýslumaður
Skaftfellinga, hefur umsjón með.
Auk þess fengum við nokkra
smærri styrki. Siðan höfum við góð-
ar vonir með að fá töluvert fjár-
magn til framkvæmda á þessu ári.“
Sveinn sagði að reiknað væri með
að komast sem lengst með fram-
kvæmdir á þessu ári. „Það er búið
að panta húsið til sýningarhalds
árið 2000 og það setur á okkur
ákveðna pressu. Það er eiginlega
framar björtustu vonum að geta
klárað það fyrir þann tíma. Þetta er
sýning sem Sigrún Jónsdóttir
kirkjulistakona ætlar að setja hér
upp að tilstuðlan kirkjunnar í til-
Brydebúð hefur tekið miklum breytingum frá því framkvæmdir
hófust. DV-mynd NH
efni af 1000 ára afmæli kristnitök- framkvæmdir koma til með að húsið geti verið tilbúið þegar að
unnar. Við vitum ekki hvernig ganga en það verður allt reynt til að þessu kemur.“ -NH
Axel Eiríksson uppfinningamaður:
Hækjur sem standa sjálfar
Uppfinningamaðurinn Axel Ei-
ríksson, 78 ára gamall, hefur sent
frá sér sjálfstandandi hækjur sem
læknum og þeim sem annast um
sjúklinga líst vel á. Axel segir að
uppfinningin gangi út á að neðan
á hækjunum er búnaður, fætur,
sem hægt er að spenna út þegar
hún er ekki í notkun. Hægt er að
láta hana standa á gólfi. Þeir sem
þurfa að nota hækjur eru iðulega í
erfiðleikum með að leggja þær frá
sér og sumir eiga erfitt með að
nálgast þær þegar þær liggja á
gólfinu.
Axel hefur fundið ýmislegt upp
um ævina, til dæmis naglamottu
sem leigubílstjórar hafa notað
mikið.
Axel Einarsson uppfinningamaður
og Gunnar Ingi Gunnarsson heilsu-
gæslulæknir með hækjuna góðu
sem Axel hefur endurbætt þannig
að hún stendur sjálf.
DV-mynd Teitur
Gunnar Ingi Gunn-
arsson, heilsu-
gæslulæknir í
Árbæ, er ánægður
með þetta framtak
Axels. „Það er fullt
af fólki sem hefði
gott af því að hafa
þennan útbúnað á
stöfum sinum og
hækjum, til dæmis
þegar farið er í
heimsóknir, í opin-
berar stofnanir og
á læknastofur.
Þessu fólki er
nauðsynlegt að
geta nálgast hjálp-
artækin án erfið-
leika. Þetta er
hreint ágætt fram-
tak hjá Axel og ég
mæli eindregið
með þessum bún-
aði,“ sagði Gunnar
Ingi í samtali við
DV. -JBP
Veðurstöð á Ströndum
SteinSrfmsfjöröur
^ Broddanes
/ Ennishofði
'F°
Skriðsenni
Veðurstöð á
Ennishöfða
DV, Hólmavík:
Að vetri til getur vegurinn yfir
Ennishöfðann milli Bitrufjarðar og
Kollaíjarðar verið ein mesta sam-
gönguhindrun á leiðinni frá
Reykjavík til Bolgungarvíkur.
Þessi hluti leiðarinnar heldur
áfram að vera það þar til úrbætur
verða gerðar - hann færður eða
göng gerð þar í gegn. Þó hæsti
hluti vegarins nái ekki 300 metra
yfir sjó er þar oft á vetrum mikið
ólíkt veður þvi sem er við sjóinn
beggja vegna sem engan þarf að
undra. Hafa óhöpp verið þar tíð en
aldrei sem betur fer alvarleg slys
eða manntjón þó oft hafi þeim sem
hafa fyrstir komið fundist litlu
hafa munað.
Á sl. sumri var komið fyrir bún-
aði á efsta hluta vegarins sem
skráir margháttaðar upplýsingar
og þá ekki síst til öryggis fyrir veg-
farendur s.s. um vindhraða, vind-
átt, lofthita og veghita svo eitthvað
sé talið. Upplýsinga þessara geta
þeir sem leið eiga þarna um aflað
sér fyrir ferð hverja á textavarp-
inu. Mikið öryggi er í þessu sem
þegar hefur sannast, þó nánast
engin vetrarveður hafi enn gert.
Það var verkfræðistofan Vista ehf.
í Reykjavík sem hafði á hendi upp-
setningu og allan frágang á þessum
þarfa búnaði. -GF