Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.1999, Síða 8
8
MIÐVTKUDAGUR 6. JANÚAR 1999
Utlönd
Stuttar fréttir i>v
Mál Clintons Bandaríkjaforseta:
Réttarhöld hefjast
formlega á morgun
Réttarhöldin yfir Bill Clinton
Bandaríkjaforseta hefjast formlega í
öldungadeild Bandaríkjaþings á
morgun, að því er Trent Lott,
leiðtogi repúblikana í deildinni,
tilkynnti í gær. Hann hafði áður
fundað með leiðtoga demókrata í
öldungadeildinni, Tom Daschle, og
forseta Hæstaréttar, William
Rehnquist sem leiða á réttarhöldin.
Demókratar og repúblikanar
munu funda í dag um lengd og
tilhögun réttarhaldanna sem eru
þau fyrstu gegn sitjandi forseta í 130
ár. Lott og formaður
dómsmálanefndar fulltrúadeildar
Bandaríkjaþings, Henry Hyde,
munu einnig ræða hvort kalla eigi
vitni.
Sumir öldungadeildarþingmenn
sögðu í gær að málaferlin sjáif gætu
hafist þegar á mánudag þó enn væri
ekki búið að leysa ágreininginn um
Losað um höml-
ur á viðskiptum
við Kúbu
Bill Clinton Bandaríkjaforseti
kynnti í gær nýjar tillögur um
samskiptin við Kúbu. Vill Banda-
ríkjastjðm meðal annars losa um
hömlur á flugi þannig að ekki
verið eingöngu flogið á milli Mi-
ami og Havana. Bandarísk yfír-
völd vilja einnig leyfa fleirum en
ættingjum Kúbverja að senda
fjölskyldum á Kúbu peninga.
Einnig voru kynntar tillögur um
beina póstþjónustu milli land-
anna og viðskipti með bandarísk
matvæli og landbúnaðartæki.
Kúbverskir útlagar gagnrýna til-
lögumar.
Ráðherrar héldu
neyðarfund
um mafíuna
ítalskir ráðherrar héldu í gær
neyðarfund um mafíuna samtím-
is því sem fórnarlömb árásarinn-
ar á Sikiley á laugardaginn voru
borin til grafar. Áður hafði lög-
reglan handtekið 12 meinta
mafíósa á suðurhluta Sikileyjar,
skammt frá bænum Ragusa þar
sem fimm menn voru skotnir til
bana á laugardaginn við kaffí-
drykkju á bensínstöð.
Embættismenn sögðu í gær að
handtökurnar tengdust ekki
beint morðunum og að leitin að
árásarmönnunum tveimur héldi
áfram. Lögregluna grunar að
morðin hafi verið liður í deilum
Carbonaro-fjölskyldunnar og
Dominante-fjölskyldunnar um yf-
irráð yfir fíkniefnamarkaðnum.
Repúblikanar
kusu Hastert
í embætti
forseta
Repúblikanar í fulltrúadeild
Bandaríkjaþings völdu í gær
Dennis Hastert frá Illinois sem
eftirmann Newt Gingrich í emb-
ætti forseta deildarinnar. Allir
þingmenn fulltrúadeildarinnar
verða að greiða atkvæði um
Hastert þegar þing kemur saman
í dag. Litið er á atkvæðagreiðsl-
una sem formsatriði þar sem
repúblikanar eru í meirihluta í
fulltrúadeildinni.
lengd réttarhaldanna og hvort kalla
eigi vitni. Tveir þingmenn,
demókratinn Joseph Lieberman og
repúblikaninn Slade Gorton, hafa
lagt til að málið verði afgreitt á
fjórum dögum. Repúblikanar í
báðum deildum telja útilokað að
meta ákærurnar á hendur
forsetanum nema kalla til vitni.
Öldungadeildin mun taka afstöðu
til tveggja ákæruatriða sem
fulltrúadeildin samþykkti 19.
desember síðastliðinn. Clinton er
ákærður fyrir meinsæri þegar hann
laug um samband sitt við Monicu
Lewinsky, fyrrverandi lærling í
Hvíta húsinu. Hann er einnig
ákærður fyrir að hindra framgang
réttvísinnar.
Rætt hefúr verið um að kalla
Clinton sjálfan í vitnastúku og
einnig lærlinginn fræga, Monicu
Bill og Hillary Clinton í Washington í gær. Símamynd Fteuter Lewinsky.
Ekkert lát viröist vera á fannferginu vestur í Bandaríkjunum. Snjór setti allt á kaf f borginni Buffalo í vestanverðu New
York ríki í gær. Flugvöllurinn lokaðist og farangur ferðalanga hrannaðist upp hjá flugvallarstarfsmönnum.
íraskar og bandarískar flugvélar í loftbardaga:
Saddam Hussein hvetur til
uppreisnar í arabalöndum
Bandarískar og Iraskar orr-
ustuflugvélar áttust við í lofti í
fyrsta skipti í sex ár yfir flugbanns-
svæðinu í suðurhluta íraks í gær. Á
sama tíma fordæmdi Saddam
Hussein íraksforseti önnur
arabaríki fyrir að leyfa Bandaríkja-
mönnum afnot af iandi sínu til
árásanna á írak.
„Flugskeytum óvinarins er enn
skotið að landi ykkar, þjóð og helg-
um stöðum í írak frá lofti, láði og
legi við Persaflóann," sagði Saddam
í sjónvarpsávarpi sem ætlað var að
vekja reiði meðal araba.
Saddam fór niðrandi orðum um
þá arabaleiðtoga sem, að hans sögn,
tóku við fyrirmælum sínum frá
Washington.
„Gerið uppreisn og steypið þess-
um skósveinum, hásætisdvergum
og bleyðum af stóli. Gerið uppreisn
Saddam Hussein íraksforseti var
ómyrkur í máli í gær.
gegn óréttlætinu," sagði Saddam
meðal annars í ræðu sinni.
Bandaríska iandvarnaráðuneytið
sakaði íraka um að hafa rofið flug-
bannssvæðið í suðurhluta íraks.
Bandarískar orrustuvélar skutu að
flórum íröskum Mig-25 þotum en að
sögn Bandaríkjamanna urðu þær
ekki fyrir skoti.
Önnur írösk orrustuvél virðist
hafa hrapað eftir að hún flúði af
hólmi. Ken Bacon, talsmaður banda-
ríska landvamaráðuneytisins, sagði
að vélin hefði sennilega orðið elds-
neytislaus. Átökin í gær voru hin
þriðju á átta dögum milli íraskra
flugvéla annars vegar og banda-
rískra og breskra hins vegar.
Bacon sagði að íraskar flugvélar
hefðu 1 síauknum mæli rofið flug-
bannssvæðin í suður- og norður-
hluta íraks undanfarna daga.
Leitað að fjöldagröf
Alþjóðlegir eftirlitsmenn fóru í
gær til staðar þar sem sagt er að sé
fjöldagröf átta albanskra barna og
þriggja kvenna sem vom drepin í
bardögum í Kosovo í ágúst síðast-
hðnum.
Rushdie hætti við
Breski rithöfundurinn Salman
Rushdie neyddist til að aflýsa
nokkrum sam-
komum í ný-
legri heimsókn
sinni til
Mexíkós vegna
hótana í hans
garð sem birtust
í írönskum Qöl-
miðlum, að því
er einn af gestgjöfum Rushdies
sagði í gær.
Nálgast flakið
Stjórnvöld i Angóla hafa greint
Sameinuðu þjóðunum frá því að
sveitir yfirvalda nálgist nú óðfluga
flak flutningavélar SÞ sem var
skotin niður á annan dag jóla.
Frakkar vilja skýringar
Sendiherra Haítís i París var
kallaður í utanríkisráðuneytið
franska í gær til að skýra fyrir
frönskum yfirvöldum ræðu þar
sem forseti Haitís kenndi franskri
nýlendustefnu um fátækt landsins.
Skipt um ráðherra
Alberto Fujimori, forseti Perús,
skipti um tíu ráðherra í stjórn
sinni í gær. Með því ætlar forset-
inn að reyna að auka vinsældir
sínar fyrir kosningarnar sem
verða á næsta ári.
Anwar hneykslaður
Anwar Ibrahim, brottrekinn
fjármálaráðherra Malasíu, lýsti í
morgun yfir
hneykslan sinni
á því að lögregl-
an skyldi ekki
vera búin að
rannsaka
meiðslin sem
hann hlaut á
meðan hann var
í haldi lögreglu fyrir meira en
þremur mánuðum.
Rithöfundamorð
Yfirvöld í íran tilkynntu í gær
að nokkrir leyniþjónustumenn
hefðu verið handteknir vegna að-
ildar að morðum á rithöfundum að
undanfómu.
Árás gegn fjölskyldu
Hellt: var bensíni í gegnum
bréfalúgu og kveikt í hjá konu og
þremur bömum hennar í Umeá í
Svíþjóð í gær. Konunni og börnum
hennar tókst að bjarga.
Smitaði dreng
Danskur alnæmissmitaður
kennari í bardagaíþróttum hefur
viðurkennt að hafa haft samfarir
viö tvo drengi. Annar drengjanna
er alnæmissmitaður. Lögreglan í
Kaupmannahöfn grunar kennar-
ann um að hafa misnotað fimm
drengi til viðbótar.
Réttarhöld möguleg
Forsætisráðherra Ítalíu,
Massimo D’Alema, sagði í gær að
kúrdíski skæru-
liðaleiðtoginn
Abdullah Öcalan
ætti á hættu rétt-
arhöld á Ítalíu
yrði hann um
kyrrt í landinu.
Sagði ítalski for-
sætisráðherrann að vænta mætti
ákvörðunar innan 20 daga og yrði
stuðst við skjöl frá Tyrklandi.
Hegðunarvandi hunda
Lyfja- og matvælaeftirlitið í
Bandaríkjunum hefur samþykkt lyf
við hegðunarvandamálum hunda.
Vita hvar Tayeb felur sig
Sænska lögreglan telur sig vita í
hvaða landi alnæmissmitaði íran-
inn Mehdi Tayeb felur sig. Tayeb
er grunaður um að hafa haft mök
viö á annað hundrað kvenna án
þess að segja þeim frá smitinu.