Dagblaðið Vísir - DV - 28.01.1999, Page 4
4
FIMMTUDAGUR 28. JANÚAR 1999
Fréttir
Prófessor Lewontin um peningamyllur vísindanna í viðtali við DV:
Lofa arðsemi og heilsu-
bót en efna ekki neitt
Bandaríski prófessorinn Ric-
hard C. Lewontin hafnar því að
Einar Ámason prófessor hafi ver-
ið með í ráðum þegar hann skrif-
aði grein sína í New York Times
um helgina. Hann segir í samtali
við DV að enda þótt Einar sé ágæt-
ur vinur sinn hafi hann aldrei ver-
ið nemandi sinn. Annað í ummæl-
um DV á mánudag segir prófessor-
inn að sé í sama dúr.
„Kári Stefánsson mótmælti því
ekki að venjulegum kröfur um
upplýst samþykki, sem er alsiða í
heimi rannsókna á sjúkdómum
fólks, hefur verið snúið við í ís-
lenska tilfellinu. Einstaklingar
verða að annast sjálíir um að fjar-
lægja upplýsingar um sig úr
grunninum, og geri þeir það eftir
að gagnagnmnurinn hefur starf-
semi geta þeir ekki hindrað notk-
un upplýsinganna," segir Richard
C. Lewontin, prófessor í sameinda-
erfðafræðum viö Harvard-háskóla
í Bandaríkjunum, í viðtali við DV.
Nafn prófessorsins er víðfrægt í
heimi erfðafræðanna.
Eru að rugla kviðdóminn
Prófessorinn segir að sjálfur sé
hann sameindaerfðafræöingur og
hafi lifibrauð af þeim ffæðum. Það
sé þvi erfitt að ímynda sér að hann
hafi horn í síðu þeirrar fræði-
greinar.
„Og ég hef ekkert á móti DNA í
glæpamálum," sagði prófessorinn
sem er landsfrægur í Bandaríkjun-
um sem sérfræðilegt vitni í DNA-
rannsóknum. „En ég er á móti því
að nota umsagnir sem byggðar eru
á líkindareikningi gagnvart kvið-
dómi sem ekki skilur slíka út-
reikninga. Og ég er á móti því að
styðjast við tvö eða þrjú gen til að
finna sökudólg. Og í stuttu máli er
ég á móti slökum vinnubrögðum
við tækni sem hefur mikla mögu-
leika á að koma upp um fólk í
glæpamálum, eða þá að sanna sak-
leysi þess,“
Prófessorinn segir það gjörsam-
lega út í hött að hann sé á móti líf-
fræði almennt. Hann sé hins vegar
á móti einkaleyfúm, leynisamning-
Richard C. Lewontin, frægur sameindaerfðafræðingur og sérfræðingur í
DNA-rannsóknum, prófessor við Harvard-háskóla.
um, hagsmunaárekstrum og ein-
okun upplýsinga til fyrirtækja
sem hamla aðgang almennrar
rannsóknarstarfsemi og heilsu-
stofnana. Ég hef líka hvað eftir
annað bent á að líffræðifyrirtæki,
sérstaklega erfðamengjafýrirtæki,
halda áfram að lofa fólki mikilli
arðsemi en efiia ekki þau loforð.
Þessi fyrirtæki eru almennt rekin
með tapi vegna þess að þau hafa
enn ekki komið með nokkurn
skapaðan nytsaman hlut sem hægt
hefur verið að markaðsfæra á
heilsumarkaðnum. Hluthafar hafa
grætt, ekki á framleiðslu sem bæt-
ir hag sjúklinga heldur á því að
kaupa og selja bréf sem hækka í
takt við loforð vísindamanna fyrir-
tækjanna um „mikinn og góðan
árangur" í vísindarannsóknum.
Verð hlutabréfa rís hátt í einn eða
tvo daga og fellur síðan aftin. Pró-
fessor Lewontin segir að Banda-
rikjamenn hafi séð mörg dæmi um
þetta, til dæmis vegna frétta um
klónun. Undir yfirskini bættrar
heilsu er allur þessi markaðsgeiri
i raun eins konar hlutabréfamark-
aður sem hugar að hagsmunum
fjárfesta.
Vinur en ekki lærifaðir
Prófessorinn segir að hann hafi
aldrei sagt að gagnagrunnsfrum-
varpið hafi verið samþykkt með
litlum meirihluta heldur að það
hafi verið namnlega samþykkt, því
37 voru með frumvarpinu en 20 á
móti, en 6 tóku ekki þátt í at-
kvæðagreiðslunni.
Varðandi Einar Ámason pró-
fessor segir prófessorinn að það sé
misskilningur að hann hafi verið
nemandi sinn. Hann hafi numið
við Kaliforníuháskóla. Hins vegar
hafi Einar varið tíma í rannsókn-
arstofu sinni og hann segir það
ánægjulegt að upplýsa að Einar
þekki hann vel, auk þess sem
hann dáist að vinnu hans við
stofnerfðafræði. En að Einar hafi
haldið í hendumar á sér í blaða-
skrifum eða almennt verið „með í
ráðum“. Það sé tóm tjara.
-JBP
Borgarstjórinn brýtur lög
Komið er upp mikið
vandamál hjá borgar-
stjóm Reykjavíkur.
Borgarstjórinn, Ingi-
björg Sólrún Gísladótt-
ir, hefur stjórnað fund-
um borgarráðs. Það má
hún ekki. Fyrir það
hefur hún verið kærð
og félagsmálaráðuneyt-
ið hefur samþykkt
kæruna og segir að það
stangist á við lög að
borgarsfjóri stjómi
borginni að þessu leyti.
Hún má stjórna aö
öðra leyti en að þessu
leyti, enda er fúndar-
stjóm borgarstjóra
ólögleg í borgarráði og
stangast áreiðanlega á
við þann vilja kjósenda
að láta Ingibjörgu
stjórna borginni, að
öðra leyti en því að
hún má ekki stjóma fundum sem taka ákvarðan-
ir um málefni borgarinnar.
Það stríðir gegn hagsmunum borgarbúa og
minnihlutinn, sem er minnihluti af því að minni-
hlutinn fékk minnihluta atkvæða, hefur bent á þá
hættu sem er samfara því að borgarstjóri stjómi
fundum borgarráðs og hefur máli sínu til frekari
rökstuðnings vísað til laga um sveitarstjómir þar
sem ekkert segir um það að borgarstjóri megi
stjóma þessum fúndum.
Það er aö vísu rétt að lögin kveða á um að for-
maður byggðaráðs (forseti borgarstjómar) skuli
stjóma fundum byggðaráðs en þetta eru gömul
sveitarstjómarlög sem ekki er alveg að marka
vegna þess að ný sveitarstjómarlög hafa verið
samþykkt og gefin út en era enn ekki komin í
gildi og þess vegna ekki alveg að marka þau. Þess
vegna ákvað meirihlutinn að samþykkja fundcir-
stjóm borgarstjóra enda þótt félagsmálaráðuneyt-
ið væri búið að banna borgarstjóra að stjóma
fundunum af því að meirihlutinn heldur að hann
ráöi vegna þess að hann sé meirihluti. Minnihlut-
inn heldur hins vegar að félagsmálaráðuneytið
ráði og sumir hafa meira að segja haldið að kjós-
endur hafi með atkvæðum sínum ákveðið að Ingi-
björg Sólrún eigi að stjóma borginni og þar með
fúndum borgcirráðs.
Þessi misskilningur allur hefur sem sagt leitt
til þess að meirihlutinn er að brjóta lög sem era
í gUdi en næstum runnin út og mótmælir lögum
sem búið er að gefa út og eru næstum í gUdi og
minnihlutinn vUl auðvitað fara að lögum frekar
en taka mark á niðurstöðum kosninga og borgar-
stjóri er svo vitlaus halda að hann eigi að ráða
borginni þegar félagsmÉfaráðuneytið er búið að
úrskurða að það sé einhver aUt annar sem eigi að
ráða því sem borgarstjóri heldur að hann hafi
verið kosinn tU að ráöa.
Dagfari sér ekki aðra leið út úr þessum ógöng-
um en þá að láta kjósa aftur um það hver megi
stjóma borgarráði, enda er það greinUega aUt
annað að kjósa meirihluta og borgarstjóra heldur
en hitt að kjósa þann sem má stjóma fundum
þeirra sem ráða eða halda að þeir ráði.
Dagfari
Stuttar fréttir i>v
Útboð á dreifbýlisflugi
Rekstrarstyrkir vegna áætlun-
arfiugs á nokkrum flugleiðum
innanlands verða boðnir út á Evr-
ópska efnahagssvæðinu á næst-
unni. Samkvæmt EES-reglunum
er stjórnvöldum óheimilt að
styrkja flug á einstökum leiðum
án útboðs á efnahagssvæðinu.
Ríkisútvarpið greindi frá.
Vinstrihreyfingin
Kjördæmisfélag Vinstrihreyf-
ingarinnar - græns framboðs á
Norðurlandi
vestra var stofn-
að í fyrrakvöld.
Um 40 manns
sóttu stofhfund-
inn. Steingrím-
ur J. Sigfússon
alþingismaður
flutti framsögu-
erindi og kynnti hreyfinguna.
Þórarinn Magnússon var kjörinn
formaður.
Þörungaverksmiðjan
Stórfyrirtækið Monsanto, sem
er eigandi 67% hlutafjár í Þör-
ungaverksmiðjunni á Reykhólum,
vinnur nú að sölu þeirrar deildar
í fyrirtækinu sem tengist fram-
leiðslu á þeim efnum sem unnin
eru úr þörangamjöli. Þar á meðal
er verksmiðjan á Reykhólum.
Morgunblaðiö greindi frá.
Víkartindsmálið
Réttarhöld era haftn í Þýska-
landi vegna strands Víkartinds
fyrir tveimur áram. Ríkisútvarp-
ið greindi frá.
Skóflustunga
í dag klukkan 15 tekur Þor-
steinn Pálsson dómsmálaráðherra
fyrstu
skóflustungu að
nýju húsnæði
fyrir embætti
sýslumannsins í
Snæfells- og
Hnappadals-
sýslu að Borgar-
braut 2 í Stykk-
ishólmi. Trésmiðja Pálmars ehf. á
Grundarfirði átti lægsta tilboðið í
verkið, 105 mOljónir króna. Það
var lægra en kostnaðaráætlun
gerði ráð fyrir.
Vill kaupa hverasvæði
Rikisstjórnin hefur samþykkt
tillögu Guðmundar Bjamasonar,
umhverfis- og landbúnaðarráð-
herra, um skipan nefndar til að
semja við landeigendur í Hauka-
dal um kaup á hverasvæði við
Geysi. Rikisútvarpið greindi frá.
Líftæknifyrirtæki
Nýtt fyrirtæki á sviði liftækni,
íslensk náttúraefni ehf., hefur
verið skráð hjá
hlutafélagaskrá.
Kári Stefánsson,
forstjóri ís-
lenskrar erfða-
greiningar, er
stjómarformað-
ur félagsins. Til-
gangur félagsins
er rannsóknarvinna, þróun og
sala á hvers kyns afurðum, þar
með talið liftækniafurðum. Ríkis-
útvarpið greindi frá.
Stýrir fundi
Tillaga Sigrúnar Magnúsdótt-
ur, borgarfulltrúa Reykjavíkur-
hsta og formanns borgamáðs, um
að fela borgarstjóra fundarstjóm
á fundi borgarráðs í fyrradag, var
samþykkt með þremur atkvæðum
meirihluta Reykjavíkurlista gegn
tveimur atkvæðum sjálfstæðis-
manna. Morgunblaðið greindi frá.
Vefur uppbyggingar
Á vef Landssambands íslenzkra
verzlunarmanna hefúr verið sett-
ur upp sérstakur vefur helgaður
samstöðuverkefnum vegna upp-
byggingarstarfa í Bosniu og
Herzegóvínu. Þar er aö fmna upp-
lýsingar um verkefni, frásögn og
myndir frá Sarajevo, auk fjölda
tenginga í aðra vefi.
http://www.livis.is/frettir/bosnia.
http://www.livis.is.
http://www.asi.is. f
-SJ