Dagblaðið Vísir - DV - 28.01.1999, Blaðsíða 25
FIMMTUDAGUR 28. JANÚAR 1999
25
I>V
Fréttir
Hraunkarl í Hallmundarhrauni er ein skýrasta mannsmynd sem vitað er um
í íslensku landslagi. Karlinn er merktur og blasir við þegar ekið er áleiðis að
Surtshelli. Ferðamenn sem hafa átt leið um hraunið, veiðimenn og jafnvel
vermenn að norðan á sínum tíma hafa gjarnan numið staðar hjá karlinum,
tekið ofan fyrir honum eða skálað við hann. Það fór vel á með hraunkarlin-
um og blaðamanni þegar DV skoðaði hann í vikunni. DV-mynd GVA
Þyrlupallur í Grundarfirði:
Myndi auka öryggi
íbúa og sjófar-
enda á svæðinu
DV, Vesturlandi:
Almannavarnanefnd Grundar-
fjaröar hefur farið fram á þaö viö
fjárlaganefnd Alþingis að við gerð
fjárlaga fyrir árið 1999 verði veitt
Qármagni til byggingar þyrlupalls í
Grundarfirði. Pallurinn mun kosta
3 milljónir. Sjálfir ætla Grundfirð-
ingar að leggja eina milljón króna
fram í formi sjálfboðavinnu.
Ef af þessu verður mun þyrlupall-
urinn verða á sjávarkambi norðan
við Sæból í Grundarfirði. Flugmenn
Landhelgisgæslunnar hafa bent á að
á þessum stað gæti orðið einn besti
lendingarstaður á landinu fyrir
margra hluta sakir m.a. að aðflug af
sjó væri mögulegt án hættu af raf-
magnslínum og háhýsum. Auk þess
er staðurinn hentugur veðurfars-
lega séð.
Varla er hægt að segja að flugvöll-
ur sé í Grundarfirði nema að nafn-
inu til. Um er að ræða malarvöll um
12 km frá þéttbýlinu sem oft er lok-
aður yfir veturinn. Góöur lending-
éu’staður fyrir þyrlur í Grundarfirði
myndi auka öryggi íbúa á öllu Snæ-
fellsnesi og raunar víðar, svo og sjó-
farendum sjálfum. Þyrlupallur í
Grundarfirði myndi þjóna hlutverki
millilendingarstaðar fyrir þyrlur.
Þegar snjóflóð féllu á Flateyri í
október 1995 var að beiðni Lands-
stjómar Björgunarsveitanna sett
upp móttökustöð í Grundarfirði fyr-
ir björgunarliö víðs vegar af suð-
vesturlandi, sem stefnt var til
Grundarfjarðar og flutt þaðan til
Flateyrar.
Báðar þyrlur Landhelgisgæslunn-
ar lentu á umræddum stað í Grund-
arfirði, sem var valinn til lendingar
í samráði við flugmenn Landhelgis-
gæslunnar. -DVÓ
Borgarbyggö:
Skatttekjur hækka
um 4-5% á milli ára
DV, Vesturlandi:
Fjárhagsáætlun Borgarbyggðar
fyrir árið 1999 var nýlega samþykkt
á fundi bæjcirstjórnar. „Skatttekjur
Borgarbyggðar eru 437 milljónir
króna. Hækkun er á bilinu 4-5%
miðað við Borgarbyggð eftir sam-
einingu sveitarfélaga í fyrrasumar,“
segir Óli Jón Gunnarsson bæjar-
stjóri.
„Rekstur málaflokka er um 370 m.
kr. auk fjármagnskostnaðar og er
um 89% af skatttekjum. Þetta hlut-
fall er of hátt og verður að ná að
lækka það. Það lá hins vegar fyrir
að þetta ár yrði nokkuð hátt að af-
lokinni sameiningu en það tekur
nokkurn tíma að koma hagræðing-
araðgerðum áfram.“
Óli Jón segir að helstu útgjalda-
liðir séu fræðslumál með tæplega
200 m. kr. og 50% af rekstrarútgjöld-
um, félagsmál með 52 m. kr. nettó
eða 13% og síðan koma æskulýðs-
og íþróttamál og yflrstjórn með
rösklega 30 m. kr. hvor málaflokk-
ur.
Eignfærð fjárfesting er um 8,5 m.
kr. og vegur þar þyngst undirbún-
ingur að einsetningu grunnskólans.
Gjaldfærð fjárfesting er um 48 m.
kr. og er stærsta verkefnið samteng-
ing útrása en hafnar eru fram-
kvæmdir við að koma skolpi frá
Borgarvogi og verður varið 20 m.
ki'. til þess verkefnis á árinu.
„Aðrar verulegar framkvæmdir
eru gatna- og gangstéttagerð og úti-
lýsing í dreifbýli en það er framhald
af átaki Borgar- og Álftaneshrepps
fyrir sameiningu. í ár verður Norð- 4
urárdalur og Varmaland tekið. Lag-
færingar hafa verið í gangi með veg
að Einkunnum sem er útivistar-
svæði rétt fyrir ofan Borgarnes.
Áætlað er að taka lán að upphæð 25
m. kr. og greiða lán að upphæð 31
m. kr. þannig að skuldir verði svo-
lítið lækkaðar," sagði Óli Jón við
DV. -DVÓ
Fækkun nemenda á
framhaldsskólastigi
DV, Vesturlandi:
Hagstofa íslands hefur tekið sam-
an yfirlit yfir fjölda nemenda í fram-
haldsskólum og háskólum á Islandi
haustið 1998. Upplýsingum var safn-
að beint frá skólunum og miðast við
nemendafjölda um miðjan október
1998.
Alls voru 885 nemendur í skólun-
um þremur á Vesturlandi sem bjóða
nám á framhaldsskólastigi og há-
skólastigi. I Fjölbrautaskóla Vestur-
lands voru 698 nemendur, í Sam-
vinnuháskólanum á Bifröst voru
þeir 117 og í Bændaskólanum á
DV, Suðurnesjum
Heildarskatttekjur bæjarsjóðs
Reykjanesbæjar á árinu 1999 eru
áætlaðar 1.711 milljónir króna.
Rekstrarkostnaður er áætlaður
Hvanneyri 70. Heildarfjöldi nem-
enda á öllu landinu á framhalds-
skólastigi og háskólastigi var 28.915
og hafði fjölgað um 0,8% frá árinu
áður. Nemendum á framhaldsskóla-
stigi hefur fækkað um 0,4% en fjölg-
að á háskólastigi um 3.6% á milli
ára.
Það vekur athygli hversu mikið
hlutur fjamáms hefur aukist frá ár-
inu 1997 eða 15,2%. Alls tilkynntu
flórir skólar um 703 nemendur í
fiarnámi en 2,4% nemenda stunda
nú nám í fiarnámi. Tveir skólar á
Vestm'landi hófu um áramót fiar-
námskennslu, þ.e Samvinnuháskól-
1.338 milljónir króna, eða 78,2% af
áætluðum tekjum. Af rekstrargjöld-
um er gert ráö fyrir að laun og
launatengd gjöld verði um 996 millj-
ónir eða þrjár af hverjum fiórum
krónum. -AG
inn á Bifröst og Bændaskólinn á
Hvanneyri. -DVÓ
Magnús Ingólfsson á
stjornmal.is
Þrjár krónur af hverjum fjórum:
I laun og launa-
tengd gjöld
Steinaríkið
slær í gegn
DV, Akranesi:
í júlí á síöasta ári opnaði
Steinaríki íslands og Hvalfiarðar-
gangasafnið á Akranesi. Á safn-
inu gefur að líta muni sem tengj-
ast framkvæmdum við Hvalfiarð-
argöng og eitt mesta og fallegasta
safh fágætra steina á íslandi.
Bæði eru steinar til sýnis og sölu
og auk þess hægt að fá keypt í
safninu hin ýmsu kort af stöðum
á landinu og lopapeysur. i safninu
er þægilegt að setjast niður eftir
aö hafa skoðað alla þessa fágætu
steina og sögu Hvalfiarðarganga
og fá sér drykki í Maríukaffi þar
sem hægt er að fá kalda og heita
drykki.
Frá opnun Steinaríkisins hafa
4100 manns komið í safnið. Tals-
vert af gestunum kemur að sunn-
an í gegnum göngin. Mest hefúr
komið af nemendum og kennur-
um grunnskóla, m.a. af Suðvest-
urlandi og Suðurlandi Einnig
hafa Kynnisferðir í Reykjavik sett
á áætlun sína fastar tvær ferðir í
viku allt árið ef næg þátttaka
fæst. -DVÓ
Fyrir bílinn ■ heimilið ■ garðínn
Sápuáfylling
6 mism.
sprautuaðgerðir
20 cm lenging,
stillanleg.
ryðgar
Gikkur
hitaeinangrað
handfang
Þú getur þvegið allt í kringum
þig á fljótan og auðveldan hátt.
• Þú fyllir sáputankinn, tengir
slönguna, svo þværð þú
gluggana (jafnvel á 3ju hæð),
þakið, þakrennuna,
gangstéttina, hílinn og hvað sem er.
• 6 mismunandi sprautu stillingar.
• 12 mánaða verksmiðjábygð. Falleg
g og verðio er ótrúlegt.
gjafapakkning og '
Hraðtengi
fyrir venjulega
garðslöngu
ff/ót
Kr. 2.800
Dalbrekku 22,
sími. 544 5770,
fax 544-5991
Heildsala-
smásala
X