Dagblaðið Vísir - DV - 28.01.1999, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 28.01.1999, Blaðsíða 22
22 FIMMTUDAGUR 28. JANÚAR 1999 Blcmd í poka Einn frœgasti kylfmgur heims, Gary Player frá Suður-Afríku, hefur ákveðið að taka þátt í Brit- ish Open stórmótinu þar til árið 2001. Player, sem er einn fjög- urra kylfinga sem unnið hefur sigur á öllum stórmótunum fjór- um, ætlaði aö hætta eftir mótið 2000 en reglum mótsins var breytt þannig að hinn 63 ára gamli snillingur getur einnig keppt árið 2001. UEFA, knattspymusamband Evrópu, mun taka til athugunar á næstu vikum að fjölga dómur- um í knattspymunni úr einum í tvo. Dómarar víða í Evrópu hafa legið undir mikilli gagnrýni und- anfarin ár enda erfítt fyrir einn dómara að fylgjast með öllu þvi sem gerist á leikvellinum þrátt fyrir að hafa tvo aðstoðardóm- ara. Mýmörg dæmi sanna að að- stoðardómarar (línuverðir) veigra sér við að taka þátt í dóm- gæslunni inni á vellinum hverju sem um er að kenna. Föstudaginn 5. febrúar mun knattspyrnudeild Keflavíkur blóta í KK-sal að Vesturbraut 17. Miðasala er á skrifstofu Knatt- spyrnudeildarinnar alla virka daga kl. 10-17 eða hægt að hringja og panta í síma 421 5388. -SK Golf: 59 höggá 18 holum Bandaríski kylfingurinn Dav- id. Duval náði hreint ótrúlegum lokahring á Bob Hope Classic golfmótinu á dögunum. Duval, sem farið hefur af stað á bandaríska túrnum með mikl- um látum og unnið fyrstu tvö mótin, sló frábærlega með jám- unum og negldi hvem boltann af öðrum upp að stöng. Þegar ein hola var eftir var hann á aðeins 57 höggum. Síðustu holuna lék hann á „eagle“, tveimur högg- um, og kom því inn á 59 höggum. Aðeins tveimur kylfingum hefur tekist að leika 18 holur á 59 höggum í móti á bandaríska túmum. A1 Geiberger árið 1977 og Chip Beck árið 1991. -SK Belgía-knattspyrna: Þórður skoraði D/ Canio og Marc Vivien Fo til West Ham Enska Lundúnafélagið West Ham United gekk í gær frá kaupum á tveimur leikmönnum, sóknarmanninum Paolo Di Canio frá Sheffield Wednesday og varnarmanninum Marc Vivien Fo frá franska liðinu Lens. Di Canio er skæður sóknarmaður og kom til Wednesday frá Celtic fyrir tæpu einu og hálfu ári. Hann var frægur fyrir að hrinda dómaranum í leik gegn Arsenal snemma á þessu tímabili og fékk fyrir vikið 11 leikja bann sem rann úr gildi á annan dag jóla. Di Canio skilaði sér aldrei til baka hjá Wednesday og var því 2 milljóna punda kauptilboði frá West Ham tekið fegins hendi. Di Canio er ætlað að fylla það skarð sem John Hartson skildi eftir sig en hann fór til Wimbledon á dögunum. West Ham borgaði 4 milljónir punda fyrir Marc Vivien sem átt hefur fast sæti í landsliði Kamerún sl. ár. Hann þykir traustur varnarmaður og hafa nokkur lið sýnt honum áhuga lengi. Hann lék ekki með Kamerúnum á HM í Frakklandi sökum meiðsla. Þeir félagarnir sjást hér eftir undirritun samninganna á Upton Park síðdegis í gær. -JKS/Símamynd Reuter Pjetur dæmir á HM í Nígeríu Pjetur Sigurðsson knattspymu- dómari hefur verið valinn til að dæma í úrslitakeppni HM í knatt- spymu skipað leikmönnum 20 ára og yngri sem fram fer í Nígeríu dagana 3.-21. aprll í vor. Pétur verður aðstoðardómari á mótinu en á því keppa 24 bestu knatt- spymuþjóðir heims i þessum ald- ursflokki. Þetta er í fyrsta sinn sem ís- lenskur dómari fær verkefni í úr- slitakeppni heimsmeistaramóts og því er þetta mikil viðurkenning á störf Pjeturs á alþjóða vettvangi. Það er meira á döfinni á Pjetri. Hann verður aðstoðardómari á vin- áttulandsleik írlands og Paragvæ sem fram fer á Landstone leik- vanginum í Dublin þann 10. febrú- ar. Gylfi Orrason verður dómari en honum til aðstoðar verða Pjetur og Einar Guðmundsson. Kristinn Jak- obsson verður svo fjórði dómarinn. -GH Pjetur Sigurðsson til Nígeríu. Þorrablót pr6ttur 50 ára 19ga Þorrablót Knattspyrnufélagsins Þróttar verður haldið laugardaginn 30. janúar 1998 í sal Ferðafélags íslands, Mörkinni 8. Húsið opnað kl. 19.00. Miðapantanir í síma 581 2817-862 5144-897 8252. Nefndin íþróttir Seles var of sterk fýrir Graf Monica Seles reyndist of sterk fyrir Steffi Graf í 8-manna úrslitum á ástralska meistaramótinu í tennis i Melboume. Lokatölur urðu 7-5 og 6-1. Seles mætir Marinu Hingis í undanúrslitunum en hún komst þangað með þvi að vinna frönsku stúlkuna Mary Pearce, 6-3 og 6-4. Hin viðureignin í undanúrslitum kvenna verður á milli Lindsay Da- venport og Amelie Mauresmo. Seles þykir sigurstrangleg en hún hefúr unnið þetta mót fjórum sinnum. Hjá körlunum mætast í undanúr- slitum Yevgeny Kafelnikov og Tommy Haas og Thomas Enqvist gegn Nicolas Lapentti. Kefelnikov sigraði Todd Martin í 8-manna úr- slitum og Tommy Haas lagði Vincent Spadea. -JKS Þjóðverjlnn Tommy Haas mætir Yevgeny Kafelnikov í undanúrslit- um. Bland í Skíðasambandió tilkynnti í gær þá fimm einstaklinga sem keppa á heimsmeistaramótinu í alpagreinum í Colarado í Bandarikjunum. Mótið stendur yflr frá 1.-15. febrúar. Þeir sem valdir voru eru Kristinn Björnsson, Leiftri, Ólafsfirði, Arnór Gunnarsson, Isafiröi, Sigriður Þor- láksdóttir, ísafirði, Teódóra Mathiesen, KR, og Brynja Þor- steinsdóttir frá Akureyri. Cedric Ceballos gerði í gær eins árs samning við Dallas Mavericks en hann spilaði 47 leiki með Phoenix Suns á síðasta tímabili. Bakvörðurinn hjá Liverpool og irski landsliðsmaðurinn Jason McAteer gekk i gær í raðir Blackburn Rovers sem greiddi 450 miUjónir króna fyrir leikmanninn. Ailt útlit er fyrir að Tim Sherwood sé á forum frá Black- bum en Tottenham hefur lengi haft augastað á leikmanninum. Hugo Porfirio hefur verið lánaður frá Benfica til Nottingham Forest til vorsins. Ef Porfirio stendur undir væntingum er hugsanlegt að Forest kaupi hann. Porfirio lék um hríð með West fyrir rúmum tveimur árum. Hinn brasiliski Juninho kom í gær til Birmingham þar sem hann mun setjast niður með forsvarsmönnum Aston Villa. Juninho, sem fór til At- letico Madrid trá Middlesbro fyrir einu og hálfu ári, er metinn á 10 milljónir punda. Atletico hefur gefið Juninho leyfi til að fara en talið er líklegt að Middlesbro vilji einnig ræða við hann. Fréttir frá Englandi herma að félagið eigi fyrsta forkaups- rétt á Junhino. Glasgow Rangers sigraði Dundee, 0-4, í skosku úrvalsdeildinni í gær- kvöld. Rangers er í efsta sæti með 47 stig, Kilmamock 40 stig og Celtic 34 stig í þriðja sæti og einn leik til góða. Július Jónasson og félagar í sviss- neska liðinu St. Otmar sigmðu Wacker Thun, 30-27, f úrslita- keppninni um sviss- neska meistaratitil- inn í gærkvöld. Þá tapaði Grasshopp- ers fyrir Winter- thur, 21-32. í keppn- inni er Winterthur efst með 10 stig, St. Otmar hefur 8 stig og Suhr 4 stig. Tveir leikir voru f þýska handbolt- anum í gærkvöld. Lemgo sigraði Gummersbach, 25-21, og Grosswald- stadt sigraði Minden, 23-19. í itölsku bikarkeppninni vom tveir leikir í 8-liða úrslitum og var um að ræða síðari leiki liðanna. Inter sigr- aði Lazio, 5-2, og vann Inter saman- lagt, 6-4. Þá vann Parma lið Udinese, 4-0, og samanlagt, 6-3. Tottenham og Wimbledon geröu markalaust jafntefli í imdanúrslitum enska deildabikarsins í gærkvöldi. Síðari viðreign liðanna verður 16. febrúar. -JKS Þórður Guðjónsson skoraði eitt mark Genk og lagði upp annað þeg- ar liðið sigraði Standard, 2-4, í gær- '• kvöld. Jóhannes Guðjónsson var á i varamannabekknum. ‘ Genk er i efsta sæti með 44 stig og f Club Brúgge hefur 43 stig. Þessi lið hafa afgerandi forystu á næstu lið. -JKS/KB Á íkvöld t Úrvalsdeildin í körfuknattleik: ÍA-Haukar...............20.00 a Skallagrímur-Tindastóll.20.00 \ Grindavík-KR ..........20.00 Njarövík-Snæfell..............20.00 Valur-Keflavík................20.00 Skíðagönguátakið gengur vel og heldur áfram: Austuiiand tekið með trompi Þegar þrjár vikur eru liðnar frá því farið var af stað með göngu- skíðaátak Skíðasambands íslands hafa yfir 1000 manns mætt í kennsl- una á Norðurlandi sem sambandið er mjög ánægt með. Skíðahelgin á Akureyri gekk mjög vel og þar mættu yfir 200 manns í ágætisveðri í tvo daga. Á fimmtudag verður kennt á Skaga- strönd klukkan 17.00, síðan á Sauð- árkróki á laugardag klukkan 13.00 og við Mývatn á sunnudaginn klukkan 14.00. Dagana 1.-13. febrúar verður átakið á ferð á Austurlandi og er það í fyrsta skipti sem það fer svo víða um Austurland. Það hefur lengi verið á dagskrá hjá aðstandendum átaksins að heimsækja Austfirðinga en í fyrra kom snjóleysið í veg fyrir það. Er það von Skíðasambandsins að þátt- taka verði góð á Austfjörðum þessa daga og unnt verði að gera þetta að árvissum viðburði. Dagskráin fyrir Austfirði hljómar þannig: 1. febrúar, Vopnaflörður ...20.00 2. febrúar, Egilsstaðir ....20.00 3. febrúar, Borgarfjörður eystri. 4. febrúar, Seyðisfjörður ..20.00 6. febrúar, skíðadagur í Stafdal. 7. febrúar, skíðadagur á Egilsstöðum. 8. febrúar, Norðfjörður ......20.00 9. febrúar, Eskifjörður og Reyðarfjörður ................20.00 10. febrúar, Fáskrúðsfjörður . . 20.00 11. febrúar, Stöðvarfjörður og Breiðdalsvfk .................20.00 13. febrúar, skiðadagur 1 Oddsskarði ...................13.00 Auglýsingaveggspjöldum verður dreift á alla kennslustaði þar sem fram kemur hvenær kennt verður á viðkomandi stað. t

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.